Innlent

Versti samningur sem íslensk ríkisstjórn hefur hugleitt að skrifa undir

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins var harðorður í umræðum um Icesavesamningana á Alþingi fyrr í dag. Hann sagði að annaðhvort hefðum við ríkisstjórn sem áttaði sig ekki á grundvallaratriðum í efnahagsmálum eða þá ríkisstjórn sem væri vísvitandi að blekkja þingið.

Hann sagði marga erlenda lögfræðinga sem og marga af færustu lögfræðingum Íslands hafa haldið því fram að lagaleg staða okkar í þessu máli væri sterk.

„Þessu er litið framhjá. Í Þorskastríðunum vorum við að sækja meira en lagalegur réttur okkar sagði til um. Nú hafa menn ekki dug þegar þjóðin hefur lagalegan rétt. Þetta er forkastanlegur aumingjaskapur hæstvirtur fjármálaráðherra," sagði Sigmundur Davíð.

Hann spurði hvort menn myndu virkilega halda því fram að við værum komin í skjöl næstu sjö árin. Ef svo væri myndi það sína meiri vanþekkingu á efnahagsmálum en hann hefur nefnt varðandi gengi krónunnar.

„Halda menn að þessar skuldbindingar hafi ekki áhrif á lánshæfismat ríkissins. Ef svo væri þá gæti hvaða skuldsetta fyrirtæki sem er gefið út skuldabréf og tilkynnt að það væri skuldlaust. Þetta er fráleitt."

Hann sagði samkomulagið ekki gera neitt annað en skaða okkur næstu sjö árin og þá sæi hann fram á aðra krísu. „Þetta er í samræmi við stefnu ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum sem gengur út á það að fresta og lengja í málum."

Hann sagði kaldhæðnina í þessu vera þá að þetta sé það sama og Landsbankinn gerði þegar bankinn var kominn í vandræði og átti erfitt með að fjármagna sig.

„Þá gripu menn til þess örþrifaráðs að taka gríðarlega mikið lán í von um að ástandið myndi lagast, að eignasafn bankans yrði verðmætara og bankinn gæti staðið undir þessum lántökum. En eignasafnið varð ekki verðmætara og ástandið fór versnandi."

Hann sagði ríkisstjórnin nú ætla að skuldbinda íslenskan almenning í þeirri von að eignasafnið myndi lagast, hækka í verði og þannig væri hægt að borga.

„Þetta er versti samningur sem íslensk ríkisstjórn hefur hugleitt að skrifa undir, þennan samning má ekki staðfesta."








Fleiri fréttir

Sjá meira


×