Innlent

Ofbeldisseggur í fjögurra mánaða fangelsi

Héraðsdómur Reykjavíkur.
Héraðsdómur Reykjavíkur.

Tuttugu og þriggja ára gamall maður var dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun.

Hann var dæmdur fyrir að hafa slegið mann hnefahöggi í Þorlákshöfn í júní árið 2007. Fórnalamb hans hlaut bólgur og mar á hægri auga.

Hinn dæmdi hefur tvisvar áður verið dæmdur fyrir líkamsárásir.

Hann var síðast dæmdur fyrir tvær líkamsárásir í október síðastliðnum. Þá hlaut hann 3 mánaða fangelsi en dómurinn var skilorðsbundin í tvö ár.

Ofbeldisseggurinn áfrýjaði dómnum en hefur nú fallið frá því.

Nú var hann dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi en refsingunni er frestað haldi hann skilorð í þrjú ár.

Þá þarf hann að greiða fórnalambi sínu rúmar tvöhundruð þúsund krónur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×