Innlent

Stjórnin beðin um útfærslur

Aðilar vinnumarkaðarins ræddu í gær við stjórn og stjórnarandstöðu um það hvernig hægt væri að tryggja stöðugleika þrátt fyrir þær ögranir sem bíða þjóðarinnar í ríkisfjármálum. „Við kölluðum eftir því að þeir færu í gegnum þessar stærðir og leituðu leiða með okkur í öllum þessum málum," sagði Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, eftir fundinn. „Mér heyrðist á viðbrögðum að þeir hefðu hug á því." Hann segir ASÍ vilja fá að sjá útfærslu ráðuneytanna á því hvað eigi að gera í ríkisfjármálunum næstu ár til lengri og skemmri tíma.

Vinnuhópur um efnahags- og atvinnumál lauk vinnu sinni og verður afraksturinn kynntur á næstu dögum.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×