Innlent

Á móti erfðabreyttu byggi

Náttúrulækningafélag Íslands leggst alfarið gegn því að fyrirtækinu Orf líftækni ehf. verði veitt leyfi til útiræktunar á erfðabreyttu byggi sem inniheldur lyfjaprótín. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá félaginu. Eins og fram hefur komið í fréttum stefnir Orf líftækni ehf. að því að hefja slíka ræktun í Gunnarsholti í sumar.

„Félagið telur að mengun íslenskrar náttúru og nytjalands af völdum erfðabreyttra lífvera verði ekki forðað nema þær séu ræktaðar innandyra og í lokuðu kerfi undir ströngu eftirliti," segir í tilkynningunni. - sh




Fleiri fréttir

Sjá meira


×