Flugeldadólgar héldu vöku fyrir þingkonu og syni 8. júní 2009 12:08 Þreytuleg þingkona.
Lögreglan fékk tilkynningu um klukkan fimm í morgun um að óprúttnir aðilar hefðu kveikt í skottertu. Fjölmargir vöknuðu við herlegheitin og meðal annars þingkona Borgarahreyfingarinnar, Birgitta Jónsdóttir. „Ég vaknaði upp við tertuskothríðina í nótt: í henni var kveikt á bílaplaninu við Þjóðarbókhlöðuna sem er beint á móti blokkinni sem ég bý við - ég hrökk upp og var of svifasein að ná ljósmynd af mönnunum tveimur sem þarna voru að verki - en þeir voru svartklæddir, á milli tvítugs og þrítugs og greinilega vel undir þetta búnir ...," segir Birgitta sem var ekki skemmt þegar flugeldarnir sprungu á himninum með tilheyrandi látum. Hún var ekki sú eina sem vaknaði á heimilinu því sonur hennar vaknaði einnig. „Yngri sonur minn vaknaði og gat ekki sofnað aftur - en þetta var klukkan hálf fimm í nótt," segir Birgitta á blogginu sínu og segist ekki skilja hvers vegna fólk geri svona lagað. „ Það glumdi enn hærra því heitt er í veðri og allir gluggar opnir," segir Birgitta og vandar þeim ekki kveðjurnar að lokum: „Ég segi nú bara skammist ykkar fyrir að vekja ugg í brjósti barna og dýra." Lögreglan hafði ekki hendur í hári hávaðaseggjanna þegar hún kom á vettvang.
Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Fleiri fréttir Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Sjá meira