Innlent

Búið að stöðva ammóníakleka á Grenivík

Slökkviliðsmenn að störfum á Grenivík fyrr í kvöld.
Slökkviliðsmenn að störfum á Grenivík fyrr í kvöld. Mynd/ Akureyri.net

Slökkviliðsmönnum frá Akureyri hefur tekist að stöðva ammoníakleka sem kom upp í togaranum Frosta sem liggur við bryggju á Grenivík, að því er fram kemur á fréttavefnum Akureyri.net.

Tilkynnt var um ammóníakleka um borð í Frosta á sjöunda tímanum í kvöld. Bæjarbúum var þó aldrei hætta búin vegna lekans að því er segir á vefnum. Eins var maður sem var um borð heill á húfi.

Björgunarsveit og lögregla fóru á milli húsa í bænum og athuguðu líðan fólks, en enginn kenndi sér meins eða óþæginda.

Nú er unnið að því að fella ammoníakið með vatnsúða. Á milli 1 og 1.5 tonn af ammoníaki var í kerfi skipsins en efnið er mjög eitrað. Því er ljóst að verr hafi getað farið.

Að sögn lögreglu á vettvangi hefði þó alltaf mátt sigla skipinu í burtu, hefði bæjarbúum verið hætta búin.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×