Innlent

Flugvél frá Íslandi nauðlenti í Bergen

Flugvélin frá SAS lenti á heilu og hölfnu í Fleslandi fyrr stuttu síðan.
Flugvélin frá SAS lenti á heilu og hölfnu í Fleslandi fyrr stuttu síðan.

Farþegaþota frá SAS sem var að fljúga frá Reykjavík til Osló nauðlenti á Flesland-flugvelli í Bergen vegna bilunar í hreyfli.

Vélin lagði af stað klukkan 12:10 í Keflavík í dag og var áætlaður lendingartími rétt upp úr fjögur í Osló.

Það breyttist þó þegar í ljós kom að bilun var kominn upp í hreyfli. Vélinni var í kjölfarið beint til Bergen þar sem hún nauðlenti.

Samkvæmt norskum fjölmiðlum er mikill viðbúnaður á flugvellinum í Bergen vegna lendingarinnar. Engan sakaði og vélin lenti á heilu og höldnu.

102 farþegar voru í vélinni ásamt starfsfólki. Ekki er ljóst hversu margir Íslendingar voru um borð.

Þess má geta að SAS hefur haldið uppi áætlunarflugi á milli Íslands og Noregs í þrjú ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×