N1 bíður átekta - Olís lækkar Breki Logason skrifar 8. júní 2009 13:35
Hermann Guðmundsson forstjóri N1 segist bíða eftir svari frá fjármálaráðuneytinu varðandi vörugjaldshækkunina en Skeljungur tilkynnti um 12,5 króna lækkun á eldsneyti fyrr í dag. Framkvæmdarstjóri vörustýringarsviðs hjá Olís segir að bensín hjá þeim muni lækka um sömu krónutölu í dag. „Við munum setja okkur í samband við þá [Fjármálaráðuneytið] strax eftir hádegið og bregðumst við í kjölfarið," segir Hermann sem hefur beðið eftir svari frá ráðuneytinu frá því á föstudag. Í tilkynningu frá Skeljungi segir að félagið hafi fengið staðfestingu frá tollayfirvöldum að nýtilkomnar breytingar á bensíni muni aðeins eiga við um bensínbirgðir Skeljungs sem ekki voru komnar til landsins þann 29.maí síðastliðinn. Samúel Guðmundsson framkvæmdarstjóri vörustýringarsviðs hjá Olís segir að félagið hafi þá stefnu að bjóða viðskiptavinum sínum upp á samkeppnishæft verð og von sé á lækkun síðar í dag um 12,5 krónur. Samúel segir það koma Olís á óvart að ekki hafi átt að greiða vörugjöld af þeim birgðum sem félagið átti 28.maí líkt og gert hefur verið hingað til. „Við fengum sendan tölvupóst frá fjármálaráðuneytinu að kvöldi 28.maí þar sem ekki kom fram að það ætti að gera þetta með öðrum hætti en áður hefur verið gert," segir Samúel. Hann segir þó ljóst að hækkunar sé þörf enda sjái menn að heimsmarkaðsverð á bensíni hafi farið hækkandi og krónan veikst. Hann segist ekki geta svarað því til hvenær Olís muni hækka verð hjá sér aftur.
Tengdar fréttir Skeljungur viðurkennir mistök - lækka bensín um 12,5 krónur tímabundið Endanleg tollafgreiðsla bensíns leiddi í ljós að hækkun þann 29. maí sl. var ótímabær. Í ljósi mistakanna verður bensínverð lækkað í dag hjá Skeljungi um 12,5 krónur. Bensínverð mun hækka síðar í mánuðinum þegar tollabreyting kemur til framkvæmda. 8. júní 2009 11:56 Mest lesið Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Erlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Fleiri fréttir Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði Sjá meira
Skeljungur viðurkennir mistök - lækka bensín um 12,5 krónur tímabundið Endanleg tollafgreiðsla bensíns leiddi í ljós að hækkun þann 29. maí sl. var ótímabær. Í ljósi mistakanna verður bensínverð lækkað í dag hjá Skeljungi um 12,5 krónur. Bensínverð mun hækka síðar í mánuðinum þegar tollabreyting kemur til framkvæmda. 8. júní 2009 11:56