Innlent

Segja Vinstri Græna senda flugumenn á mótmæli

Frjálslyndir segja svokollaða flugumenn Vinstri Grænna hafa verið við mótmælin í dag.
Frjálslyndir segja svokollaða flugumenn Vinstri Grænna hafa verið við mótmælin í dag.

Á vef Frjálslynda flokksins er því haldið fram að Vinstri Grænir hafi verið með útsendara á mótmælunum sem áttu sér stað á Austurvelli í dag. Þeir hafi ekki verið þar til að mótmæla Icesave samkomulaginu, heldur til að hrópa kaldhæðnislegar athugasemdir.

„Flugumenn Vinstri grænna hafa farið hamförum á netinu til að verja sína menn á þingi og réttlæta þessa samninga sem er ekki hægt að líkja við neitt annað en Versalasamninga í fjórðaveldi. Í dag mætti allskonar fólk úr öllum flokkum til þess að mótmæla þessum samningum og krefjast þess að alþingismenn hafni þeim. Vinstri græn voru svo lágkúruleg að senda flugumenn innan um fólkið og þeir hrópuðu slagorð eins og „Davíð aftur á þing" eða „Davíð er frábær." Í dag mætti hrein og bein alþýða, niðurlút, vegna svika svokallaðra jafnaðarmannaflokka við Ísland niður á Austurvöll. En víðs fjærri voru grímuklæddir Vinstri grænir enda fór allt nokkuð friðsamlega fram," segir í frétt á vefnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×