Setja fram aðgerðir vegna ástandsins í efnahagsmálum 9. júní 2009 10:03 Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins.
Þingflokkur sjálfstæðismanna hefur lagt fram þingsályktunartillögu um nauðsynlegar aðgerðir í ljósi alvarlegs ástands í efnahagsmálum þjóðarinnar. Þingflokkurinn stendur allur að tillögunni. Í henni eru settar fram hugmyndir að lausnum og aðgerðum sem mikilvægt er að ráðist verið í hið allra fyrsta. Íslenska þjóðin upplifir nú samdrátt og atvinnuleysi og við þessu þarf að bregðast hratt. Þetta kemur fram í tilkynningu frá þingflokki Sjáflstæðisflokksins nú í morgun. Þar segir einnig að biðstaða undanfarinna vikna og mánaða og skortur á afgerandi aðgerðum stjórnvalda hafi nú þegar valdið miklum skaða og aðgerðarleysiskostnaður hrannast upp. Þess vegna sé brýnt að stjórnvöld geri nú þegar grein fyrir því hvernig eigi að létta undir með heimilunum, ná saman í ríkisfjármálum, endurreisa bankakerfið, endurskoða lög og reglur um fjármálamarkaði og skapa fleiri störf til að vinna gegn atvinnuleysi og tryggja vinnufúsum höndum verkefni. Meðal þeirra aðgerða sem Sjálfstæðisflokkurinn leggur áherslu á eru: - Raunhæf áætlun í ríkisfjármálunum til þriggja ára verði kynnt - Kannað verði í samvinnu við lífeyrissjóði og aðila vinnumarkaðarins að breyta skattlagningu lífeyristekna þannig að inngreiðslur verði skattlagðar en sú aðgerð gæti skapað ríkissjóði tugi milljarða í auknar tekjur - Heimilum verði gert kleift að lækka greiðslubyrði af verðtryggðum íbúðalánum um 50% á mánuði í þrjú ár auk þess sem myndaður verði hópur með fulltrúum frá öllum flokkum sem kanni möguleika á niðurfærslu lána - Með skiptasamningi milli gömlu og nýju bankanna verður unnt að stofna nýju bankana og tryggja að áhætta vegna gjaldeyrisjöfnuðar, vaxtamunar og eignamats endi ekki hjá nýju bönkunum og þar af leiðandi á skattgreiðendum - Stefnt að sölu á eignarhlutum bankanna til almennings eftir skýrum reglum um dreifða eignaraðild og undangengnum breytingum á regluumhverfi fjármálamarkaða - Afnema skal gjaldeyrishöft eins fljótt og auðið er en þangað til verði gerð sú breyting að reglurnar gildi ekki um nýjar erlendar fjárfestingar verði og þannig komið í veg fyrir að höftin dragi úr erlendri fjárfestingu hér á landi - Skynsöm auðlindanýting og fjölbreytt uppbygging í orkufrekum iðnaði, s.s. með gagnaverum, aflþynnuverksmiðju, álverum, kísilflöguverksmiðju og ræktun grænmetis til útflutnings ásamt því að veita skattafslátt til fyrirtækja sem ráðast í verkefni í nýsköpun og þróun og lækka kostnað einyrkja við að stofna félög utan um rekstur getur skapað fjölda starfa fyrir Íslendinga - Lagt er til að brýnum aðgerðum, m.a. í tengslum við heimilin, við stofnun nýju bankana og gerð raunhæfrar áætlunar í ríkisfjármálunum verði lokið fyrir 15. júlí 2009 „Með þingsályktunartillögunni fylgir ítarleg greinargerð þar sem tillögur þingflokksins eru útskýrðar og kynntar nánar. Þingflokkur sjálfstæðismanna leggur þessar hugmyndir og tillögur fram sem sitt framlag til þeirra nauðsynlegu aðgerða sem framundan eru í íslensku efnahagslífi. Afar brýnt er að ríkisstjórnin hefjist nú þegar handa við að leysa vandann og koma Íslandi á ný í hóp samkeppnishæfustu þjóða heims," segir í tilkynningunni.
Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Fleiri fréttir Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Sjá meira