Fleiri fréttir

Greenpeace segja engan markað fyrir hvalkjöt í Japan

Náttúruverndarsamtökin Greenpeace stóðu í dag fyrir blaðamannafundi á hafnarbakkanum í Reykjavík en samtökin eru hér á landi til þess að kynna fyrir stjórnvöldum skýrslu sem unnin hefur verið um möguleika Íslendinga til þess að selja hvalkjöt til Japans.

Minni umferð um Hvalfjarðargöng

Umferðin um Hvalfjarðargöng er í heildina minni það sem af er rekstrarári Spalar en á sama tíma í fyrra, en sveiflurnar eru umtalsverðar á köflum frá mánuði til mánaðar. Þannig var samdrátturinn 14% í mars miðað við sama mánuð 2008 en í apríl var aukningin hins vegar hátt í 4%. Í maí var örlítill samdráttur, upp á 1,45% frá sama mánuði í fyrra.

Fíkniefnasalar handteknir

Lögreglan á höfuðborgarsvæðin lagði hald á 60 grömm af kókaíni í gær. Lögreglan gerði húsleit í húsnæði skammt frá lögreglustöðinni. Þar fundu þeir þrjár karlmennn á fertugsaldri og fundust fíkniefni við líkamsleit á einum þeirra.

Sniglarnir blása til forvarnardags með skellinöðrukrökkum

Bifhjólasamtök Lýðveldisins, Sniglar hafa ákveðið að blása til sérstaks forvarnardags með skellinöðrukrökkum á höfuðborgarsvæðinu. Ástæðan er sú að samkvæmt nýútkominni slysaskýrslu hjúkrunarfræðinemanna Kristrúnar Guðmundsdóttir og Ragnheiðar Erlu Eiríksdóttir eru mótorhjólaslys algengust á skellinöðrukrökkum.

Hékk utan á lest í tvo og hálfan tíma

Bandarískur ferðamaður er heppinn að hafa lifað af tveggja og hálfrar klukkustundar ferðalag með lest milli Adelaide og Darwin í Ástralíu en hann hékk utan á lestinni.

Kjörsókn Evrópuþingkosninga aldrei minni

Kjörsókn kosninga til Evrópuþingsins, sem lauk í gær, var rúmlega 43 prósent og hefur aldrei verið minni. Í kosningunum árið 2004 var hún 45,5 prósent.

Icesave-samkomulag rætt á Alþingi í dag

Samkomulag um skuldbindingar Íslendinga vegna Icesave-innistæðna verður til umræðu á Alþingi í dag klukkan þrjú. Boðað hefur verið til mótmæla á Austurvelli klukkan þrjú þar sem því er mótmælt að gengið verði að samkomulaginu.

Sala hvalkjöts er í uppnámi

Lítill sem enginn markaður er fyrir hvalkjöt í Japan, samkvæmt forstöðumanni innflutningsfyrirtækisins Asian Trading Co. Ltd. í Japan. Fyrirtækið hefur verið aðalkaupandi afurða Hvals hf. í Japan.

Ekkert banaslys á sjó á einu ári

Sjómannadagurinn var haldinn hátíðlegur um allt land í gær og raunar var helgin víða undir­lögð enda hefur þróunin hin síðari ár verið sú að skipulögð sjómannadagskrá teygir sig yfir á nokkra daga.

Icesave-sátt rædd á Alþingi

Samkomulag um skuld­bind­ingar Íslendinga vegna Icesave-innistæðna verður til umræðu á Alþingi í dag. Baldvin Jónsson, sem er í stjórn Borgaraflokksins, hefur boðað til mótmæla á Austurvelli klukkan þrjú þar sem því er mótmælt að gengið verði að þessu samkomulagi.

Segir ráðherra hóta Seðlabanka óbeint

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, þingmaður Samfylkingar, gagnrýnir Ögmund Jónasson heilbrigðisráðherra harkalega vegna ummæla sinna í Fréttablaðinu á laugardag. Þar ber hann upp þá hugmynd að breyta lögum um Seðlabankann þannig að hann verði ekki sjálfstæð stofnun.

Spyr hvort ráðherra hafi blekkt þingheim

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, segist munu krefja Steingrím J. Sigfússon fjármálaráðherra svara í þinginu í dag hví hann hafi sagt á miðvikudaginn var að engar formlegar viðræður væru þá hafnar í Icesave-deilunni.

Byggja netþjónabú í Reykjanesbæ

Framkvæmdir eru hafnar við netþjónabú íslensk-bandaríska fyrirtækisins Verne Holding á Keflavíkurflugvelli. Búið er að rífa innan úr 25 þúsund fermetra skemmum á gamla varnar­svæðinu þannig að húsnæðið er nánast eingöngu fokhelt og er verið að grafa grunn fyrir varaaflsstöðar. Íslenskir aðalverktakar sjá um framkvæmdirnar. Þá hefur Hitaveita Suðurnesja verið að færa til lagnir á svæðinu.

Hrossagaukur sást uppi í tré

Hrossagaukur sást í tré í Heiðmörk á miðvikudaginn. Aðalsteinn Agnarsson tók myndirnar, en hann var á göngu þar. Þetta er ekki algeng sjón, en eins og sjá má af einni myndinni grípur hrossagaukurinn þéttingsfast í greinarnar til að halda sér í.

Línur að skýrast um niðurskurð

„Maður sér að menn eru komnir á fullt að vinna að þessu,“ segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, en hann sat á fundi Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra í gær ásamt fulltrúum Alþýðusambandsins, BSRB, BHM og fleiri.

Eigandi búinn að urða hrossin

Búið er að urða hross sem voru dauð í skurði og við heyrúllur á bænum Ánastöðum á Mýrum. Héraðsdýralæknir og búfjáreftirlitsmaður höfðu farið í eftirlitsferð á staðinn í vor. Þeir sáu þá mörg dauð hross í skurði sem hálfpartinn hafði verið grafið yfir og hræ af folaldi hafði verið troðið niður við heyrúllur sem gefnar höfðu verið. Hræ af einu hrossi var einnig í skurði sem var fullur af vatni.

Brown heldur vígreifur áfram

Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, ætlar ekki að segja af sér embætti þrátt fyrir mikinn þrýsting frá Falconer lávarði, fyrrverandi dómsmálaráðherra landsins.

Alltaf betra að semja en deila

Þórólfur Matthíasson hagfræðiprófessor segist hafa skilning á sjónarmiðum þeirra sem gagnrýna stjórnvöld fyrir að hafa ekki náð hagstæðari lendingu í Icesave-deilunni. „En það er líka gott að líta á þetta hinum megin frá,“ segir hann. „Ég er ansi hræddur um að menn tækju fram búsáhöldin ef Bretar hefðu verið með banka hér, farið á hausinn og neitað að borga innistæðurnar.“

Ráðstöfun óskilamuna breytt

Dómsmálaráðherra, Ragna Árnadóttir, segist ætla að beita sér fyrir því að ráðstöfun peninga, sem fást fyrir óskilamuni í vörslu lögreglu, verði gagnsærri en hún er, og hún sett í lög.

Ísland verður að standa við erlendar skuldbindingar

Ef Ísland ætlar að vera partur af Alþjóðasamfélaginu verður að standa við skuldbindingar erlendis. Ekki er raunhæft að bera saman stöðu Íslands í dag við stöðu Argentínu þegar landið lýsti yfir þjóðargjaldþroti árið 2001, að mati Jóns Daníelssonar, hagfræðings.

Sterkari króna lækkar Icesave-skuldbindingar

Ef gengi íslensku krónunnar styrkist um eitt prósent myndi það lækka skuldbindingar Íslendinga vegna Icesave um rúma sex milljarða. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir að öll gögn varðandi Icesave samningana verði gerð opinber.

Hugnast þjóðaratkvæðagreiðsla

Álfheiður Ingadóttir, þingmaður VG og formaður viðskiptanefndar Alþingis, segir að sér hugnist að fram fari þjóðaratkvæðagreiðsla um Icesave-samkomulag sem nýverið var undirritað. Hún styðji þó samkomulagið og muni ekki beita sér fyrir sérstakri þjóðaratkvæðagreiðlu um málið.

Vilja ekki einkavæða Gagnaveituna

Hallveig, félag ungra jafnaðarmanna í Reykjavík, lýsir furðu sinni yfir því að aftur séu að skjóta upp kollinum hugmyndir um einkavæðingu Gagnaveitu Reykjavíkur. Hallveig ítrekar þá skoðun sína að Gagnaveituna eigi ekki að einkavæða.

Hægt að fækka dauðsföllum með skimun

Hægt er að fækka dauðsföllum af völdum ristilkrabbameins með skimun, auk þess sem vert er að bera saman kostnaðinn af henni við lyfjakostnað sjúklinga, segir krabbameinslæknir. Árlega greinast að meðaltali 134 einstaklingar með þessa tegund krabbameins.

Alvarleg aðför að kjörum sjómanna

Hugmyndir ríkisstjórnarinnar um breytingu á kvótakerfinu eru alvarleg aðför að kjörum íslenskra fiskimanna. Þetta sagði formaður félags skipstjórnarmanna í ávarpi sínu í tilefni sjómannadagsins. Hátíðarhöld voru víða í dag.

Vill endurskoða kvótakerfið

Júlíus Vífill Ingvarsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir eðlilegt kvótakerfið sé endurskoðað í þeim tilgangi að um það megi ríkja nauðsynleg sátt meðal þjóðarinnar.

Varar við ESB og Icesave samkomulaginu

Famkvæmdastjóri sænsks hugbúnaðarfyrirtækis vill ekki að Alþingi samþykki Icesave samkomulagið og varar við inngöngu Íslands í ESB. Guðrún Magnúsdóttir á meirihluta í og rekur ESTeam AB sem er sænskt hugbúnaðarfyrirtæki sem framleiðir hugbúnað fyrir tungumál. Fyrirtækið vinnur meðal annars fyrir Evrópusambandið.

Vill þjóðaratkvæðagreiðslu vegna Icesave

Birgitta Jónsdóttir, þingflokksformaður Borgarahreyfingarinnar, vill að þjóðin greiði atkvæði um Icesave-samkomulagið sem undirritað var í fyrrakvöld. Samkomulagið kallar hún ,,gúmmítékkapólitík“.

Hillary aðvarar N-Kóreumenn

Ráðamenn í Washington íhuga alvarlega að setja Norður-Kóreu aftur á lista yfir ríki sem styðja hryðjuverk. Þetta kom fram í máli Hillary Clinton, utanríkisráðherra, í dag.

Fleiri lík finnast

Brasilíski flugherinn fann í dag lík þriggja einstaklinga sem fórust með farþegaþotu Air France aðfaranótt mánudagsins síðasta. Í gær fundust lík tveggja manna ásamt braki úr vélinni og persónulegum munum.

Samkeppni um skipulag gömlu hafnarinnar

Hafin er hugmyndasamkeppni um heildarskipulag gömlu hafnarinnar og Örfiriseyjar í Reykjavík á vegum Faxaflóahafna. Fram kemur í tilkynningu að hún sé ein umfangsmesta samkeppni sinnar tegundar sem efnt hefur verið til hérlendis.

Jafngildir stórslysi að kjósa fyrr

Fjármálaráðherra Írlands segir að það myndi jafngilda stórslysi að rjúfa þing og boða til þingkosninga vegna fjármálakreppunnar sem leikið hefur eyjuna talsvert illa.

Fullnaðarsigur Breta

Eiríkur Bergmann Einarsson, forstöðumaður Evrópuseturs Háskólans á Bifröst, segir eðlilegt að Bretar séu glaðir með Icesave samkomulagið enda hafi þeir unnið fullnaðarsigur á Íslendingum í málinu.

Maðurinn sem hafnaði utan vegar í Súgandafirði er í lífshættu

Karlmaður á sextugsaldri sem var fluttur alvarlega slasaður með flugi á sjúkrahús í Reykjavík eftir umferðarslys í Súgandafirði í morgun er samkvæmt upplýsingum lækna í lífshættu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Vestfjörðum sem fer með rannsókn málsins.

Gengið verður frá fjölmörgum lánum á næstunni

Fjármálaráðherra reiknar með að á næstu dögum eða vikum verði gengið frá lánum fjölmargra þjóða til Íslendinga vegna bankahrunsins. Sendinefnd er á leið til Moskvu til að ræða allt að 60 milljarða lántöku frá Rússum.

Enginn togari á veiðum

Enginn íslenskur togari er á veiðum í dag, sjómannadag. Fjölbreytt dagskrá er víða um land í tilefni dagsins.

Búist við lítilli kosningaþátttöku

Kosningum til Evrópuþingsins lýkur í dag, en þær hófust á fimmtudaginn. Kosið er í öllum 27 Evrópusambandslöndunum en þingsætin eru 736. Ekki var gert ráð fyrir mikilli kosningaþátttöku, enda var hún 38% þegar síðast var kosið árið 2004. Kjósendur virðast hallast til hægri þetta skiptið.

Þingmönnum VG mun reynast erfitt að styðja Icesave samkomulagið

Ríkisstjórnin kynnir skýrslu um Icesave samkomulagið fyrir Alþingi á morgun. Formenn stjórnarflokkanna reikna með að þingmenn þeirra muni greiða atkvæði með frumvarpi um ríkisábyrgð vegna samkomulagsins, þótt fjármálaráðherra segi að sá stuðningur muni sennilega reynast mörgum þingmanni Vinstri grænna erfiður.

Róðurinn hjá Brown þyngist

Róðurinn hjá Gordon Brown þyngist nú með hverjum deginum sem líður. Líkur aukast á að þingkosningar verði boðaðar í Bretlandi.

Sjá næstu 50 fréttir