Fleiri fréttir

Bretar óánægðir með BT

Breska fjarskiptafyrirtækið British Telecommunications nýtur minnstra vinsælda meðal þarlendra símnotenda samkvæmt nýrri könnun. BT var í einokunaraðstöðu þar til snemma á tíunda áratug síðustu aldar og hefur töluvert hallað undan fæti síðan samkeppni hófst á markaðnum.

Mexíkóar frá vinnu fram á þriðjudag

Öll vinna í Mexíkó, að undanskilinni nauðsynlegustu starfsemi, mun liggja niðri frá morgundeginum og fram á þriðjudag til að sporna við því að svínaflensan breiðist enn frekar út. Fólk er beðið að halda sig heima við og allt samkomuhald hefur verið bannað.

París mun ná út að Ermarsundi

París, höfuðborg Frakklands, mun á næstu tveimur áratugum teygja sig alla leið til hafs og liggja þá að Ermarsundi. Nicolas Sarkozy forseti kynnti þessa hugmynd nú í vikunni og útfærslu hennar sem var í höndum arkitektsins Antoine Grumbach.

Flestir fjallvegir lokaðir vegna aurbleytu

Vegagerðin hefur lokað öllum fjallvegum nema upp í Snæfell og að Langjökli úr Húsafelli. Frost er nú að fara úr jörðu á hálendinu og mikil aurbleyta í vegunum, sem ekki eru uppbyggðir eins og þjóðvegir. Við slíkar aðstæður eru þeir meira og minna ófærir og hætt við utanvegaakstri.

Flatskjá stolið úr sumarbústað

Brotist var inn í sumarbústað í Grímsnesi einhvern tímann í vikunni og þaðan stolið 50 tommu flatskjá. Þjófurinn hreyfði ekki við neinu öðru en í bústaðnum var meðal annars áfengi og margvísleg verðmæti. Þjófurinn og skjárinn eru ófundnir.

Ekið á tvö hross

Jeppa var ekið á tvö hross á Skeiðavegi í Árnessýslu á ellefta tímanum í gærkvöldi með þeim afleiðingum að annað hrossið drapst samstundis en hitt meiddist talsvert.

Þór sjósettur í Chile í gær

Nýtt varðskip Landhelgisgæslunnar var sjósett í skipasmíðastöð í Chile í gær og gefið nafnið Þór. Smíðinni verður þó ekki lokið fyrr en snemma á næsta ári.

Allir vilja launin í evrum

Allir starfsmenn CCP á Íslandi fá nú greitt í evrum. „Við tilkynntum í október síðastliðnum að starfsmönnum stæði þetta til boða frá og með 1. janúar,“ segir Hilmar Veigar Pétursson, framkvæmdastjóri CCP. „Þá ákváðu flestir að nýta sér það og nú í apríl er þannig komið að við greiðum öllum í evrum en lítill hluti hefur valið að fá helming launa sinna í krónum.“

Stefnir í að lögreglumönnum fækki í maí

Fáist ekki auknar fjárveitingar munu 20 lögreglumenn láta af störfum um miðjan maí. Lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins heldur í vonina um að fé fáist til að endurráða hópinn. Verður skoðað um mánaðamót segir dómsmálaráðherra.

Verði kært til ríkislögreglustjóra

Skattrannsóknarstjóri rannsakar nú hugsanleg skattabrot félags og býst við að kæra málið til ríkislögreglustjóra. Bryndís Kristjánsdóttir skattrannsóknarstjóri segir þetta mál vera hluta af stærra máli. Það teygi anga sína til Lúxemborgar, eins og mörg önnur mál sem tengjast bankahruninu. Lengra komist rannsókn slíkra mála ekki, vegna bankaleyndar þar ytra.

Áhyggjur af áhrifum flensu

Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustu, SAF, segir að aðilar innan ferðaþjónustu hafi áhyggjur af svína-flensunni í heiminum og hugsanlegum áhrifum hennar á íslenska ferðaþjónustu. Allir séu á varðbergi og fylgist vel með þróuninni.

Garður fyrir alla borgarbúa

„Við lítum á Miklatún sem garð fyrir alla borgarbúa en ekki eingöngu sem hverfisgarð. Þess vegna hvetjum við alla Reykvíkinga til að mæta á fundinn, segja sínar skoðanir og koma með ábendingar,“ segir Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir borgarfulltrúi, sem situr í starfshóp um endurnýjun Miklatúns. Næsta miðvikudag, hinn 6. maí, verður samráðsfundur Reykjavíkurborgar og borgarbúa um endurnýjun túnsins haldinn á Kjarvalsstöðum.

Ný kolategund sögð ógna bleikjustofnum

Áhugamenn um stangveiði tengja minnkandi veiði á sjóbleikju við landnám flundru; kolategundar sem numið hefur hér land. Rannsókna á flundrunni er þörf en sérfræðingar telja hlýnandi veður líklegri orsök minni fiskgengdar.

400 milljónir í viðhald vega

Vegagerðin og Reykjavíkurborg hafa endurnýjað samning sinn um viðhald og rekstur þjóðvega innan borgarmarkanna. Samningurinn felur í sér að Framkvæmda- og eignasvið borgarinnar annast yfirlagnir malbiks, fræsun gatna, vetrarþjónustu, gatnamerkingar, umferðarljós, umferðarmerki, gatnahreinsun, gatnalýsingu og skiltabrýr er tengjast þjóðvegum í Reykjavík. Sambærilegir samningar eru við önnur sveitarfélög í nágrenni höfuðborgarinnar.

Eigið fé 110 milljarðar 2007

Eigið fé íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja í árslok 2007 var 110 milljarðar, eða 25,3 prósent. Þetta kemur fram í ritinu Hagur fiskveiða og fiskvinnslu árið 2007 sem Hagstofa Íslands hefur gefið út. Niðurstöður efnahagsreiknings sýna að heildareignir sjávarútvegsins voru 435 milljarðar króna en heildarskuldir 325 milljarðar.

Kasparov reifst við saksóknara

Skákmeistarinn Garry Kasparov, einn af leiðtogum stjórnarandstöðunnar í Rússlandi, lét sjá sig við réttarhöldin yfir auðkýfingnum fyrrverandi Mikaíl Kodorkovskí í Moskvu í gær. Í hléi lenti hann í snörpu orðaskaki við einn saksóknaranna í málinu. Kasparov sagði það borgaralega skyldu sína að mæta við réttarhöldin og sýna Kodorkovskí stuðning.

Lögfræðingum fækkaði í þingliðinu

Þingmennirnir 63 sem landsmenn kusu á laugardag eiga fjölbreytta menntun að baki. Flestir þeirra, níu, lærðu lögfræði en lögfræðingum á þingi fækkaði frá síðasta kjörtímabili. Þá voru þeir þrettán.

Byrjaður að dusta rykið

Fyrstu hundrað dagar Baracks Obama í starfi forseta Bandaríkjanna þykja vel heppnaðir. Mannréttindasamtök segja þó hægt miða í mannréttindamálum.

Minnstar líkur á Íslandi

Minnstar líkur eru á að Ísland verði fyrir barðinu á svínaflensu af öllum Evrópulöndum, samkvæmt Paddy Power, stærsta veðmálafyrirtæki Írlands. Frá þessu segir á veðmálavefsíðunni Oddspreview.

Kannabisræktandi dæmdur

Karlmaður á þrítugsaldri af erlendum uppruna hefur verið dæmdur í þrjátíu daga skilorðsbundið fangelsi fyrir vörslu fíkniefna, sem hann er talinn hafa ætlað til sölu. Maðurinn var einnig dæmdur fyrir ræktun á kannabisplöntum.

Ók ölvaður og slasaði fernt

Ríflega þrítugur karlmaður hefur verið dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að valda alvarlegu bílslysi undir áhrifum áfengis í febrúar 2007.

Breytir ekki áherslum hér á landi

Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) hækkaði í gær viðbúnaðarstig vegna svínaflensunnar í fimmta stig af sex. Sérfræðingar stofnunarinnar telja því að heimsfaraldur gæti verið yfirvofandi. „Í heimsfaraldri er mannkynið allt í hættu,“ segir Margaret Chan, framkvæmdastjóri WHO.

Svínum slátrað í Egyptalandi

Viðbrögðin við svínaflensu eru ekki á sama veg í öllum ríkjum heims. Í Egyptalandi tóku stjórnvöld þá ákvörðun að slátra skyldi öllum svínum í landinu, en þau eru samtals 300 þúsund.

Sýknaðir en í fangelsi

Tveir bresku sakborninganna þriggja, sem á þriðjudag voru sýknaðir af ákærum um að hafa aðstoðað fjóra hryðjuverkamenn sem sprengdu sig í loft upp í London í júlí 2005, voru í gær dæmdir til sjö ára fangavistar fyrir aðrar sakir tengdar dvöl þeirra í þjálfunarbúðum fyrir hryðjuverkamenn.

Stal koníaki, viskí og vodka

Tæplega fertug kona hefur verið dæmd í sextíu daga skilorðsbundið fangelsi fyrir þjófnaði. Konan stal í allmörg skipti áfengi úr vínbúðum ÁTVR. Hún valdi tegundir af sterkari gerðinni svo sem koníak, viskí og vodka. Að auki stal hún fötum og snakki úr Hagkaupum, svo og fimm DVD-myndum úr Krónunni. Auk ofangreindrar refsingar var konunni gert að greiða skaðabætur upp á tæplega níu þúsund krónur til Hagkaupa og skaðabætur til ÁTVR að upphæð rúmlega 24 þúsund krónur.- jss

Enginn smitaður af svínaflensu á Íslandi

Sýni sem tekin hafa verið úr fimm einstaklingum vegna gruns um að þeir gætu verið með svínaflensu reyndust neikvæð þegar niðurstöður lágu fyrir í gær, að sögn Haraldar Briem sóttvarnalæknis.

Vill eignarnám og niðurfærslu lána

Talsmaður neytenda telur að ríkið ætti að taka öll lán, önnur en lán Íbúðalánasjóðs, eignarnámi og niðurfæra síðan hluta þeirra í samræmi við mat sérstaks gerðardóms. Þetta kemur fram í ítarlegum tillögum sem Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda, hefur sent Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra.

Námu fimmtán ára stúlku á brott og börðu í Heiðmörk

Fimmtán ára stúlka var göbbuð upp í bíl við heimili sitt í gær undir þeim formerkjum að hún væri að fara að sættast við stúlku sem hún hafði átt í útistöðum við. Fljótlega komu fimm aðrar stúlkur upp í bílinn, en þar voru tvær fyrir, og óku með hana upp í Heiðmörk. Þar gengu tvær þeirra í skrokk á henni svo stórsér á henni.

Skattsvikari sektaður um 120 milljónir

Karlmaður á fimmtugsaldri, Sverrir Pétur Pétursson, hefur verið dæmdur í ellefu mánaða fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára, fyrir að skjóta 60 milljónum króna undan skatti á tveggja ára tímabili. Honum er gert að greiða 120 milljóna sekt í ríkissjóð.

Áströlskum hermönnum fjölgar í Afganistan

Ríkisstjórn Ástralíu hefur ákveðið fjölga um 450 hermenn í herliði landsins í Afganistan. Kevin Rudd, forsætisráðherra Ástralíu, sagði þetta gert til að herða sóknina gegn Talibönum sem hafa að undanförnu styrkt stöðu sína víða í landinu. Áströlsku hermönnunum er einkum ætlað að þjálfa afganska lögreglumenn og öryggissveitir.

Ákvörðun WHO hefur ekki bein áhrif á Íslandi

Ákvörðun Alþjóða heilbrigðisstofnunin, WHO, að hækka viðbúnaðarstig í tengslum við farsóttarhættu vegna svínaflensufaraldursins hefur ekki bein áhrif hér á landi, segir Haraldur Briem sóttvarnalæknir.

Mannskæðar árásir í Bagdad

Að minnsta kosti 42 eru látnir og aðrir 68 mikið slasaðir eftir árásir vígamanna í Bagdad, höfuðborg Íraks, í dag. Á annað hundrað manns hafa fallið á árásum á síðustu tveimur vikum.

Sjö stúlkur börðu 15 ára stúlku í Heiðmörk

Farið var með 15 ára stúlku í Heiðmörk í dag þar sem hún var barin illa. Samkvæmt heimildum fréttastofu voru árásarmennirnir hópur sjö stúlkna á aldrinum 16 til 17 ára og höfðu tvær þeirra sig hvað mest frammi. Fórnarlamið var skilið eftir við verslunarmiðstöð í Hafnarfirði. Hjá lögreglu fengust þær upplýsingar að rannsókn málsins væri á frumstigi.

Viðbúnaðarstig hækkað í fimmta stig af sex

Alþjóða heilbrigðisstofnunin, WHO, hefur aukið viðbúnað sinn vegna farsóttarhættu vegna svínaflensufaraldursins. Viðbúnaðarstig hefur verið hækkað úr fjórða stigi í það fimmta en stigin eru alls sex.

Viðræðurnar snúast ekki bara um Evrópumál

Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, segir stjórnarmyndunarviðræður ríkisstjórnarflokkanna snúast engan veginn bara um Evrópumál þrátt fyrir að vera afar mikilvæg fyrir marga. Hann segir viðræðurnar í eðlilegum farvegi. Þetta kom fram í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins.

Barnaverndarmálum virðist fjölga vegna kreppunnar

Vísbendingar eru um að mikla fjölgun barnaverndarmála í Reykjavík megi rekja til efnahagsástandsins. Tilkynningum frá skólum hefur fjölgað um slakari skólasókn, meiri erfiðleika og vanlíðan barna í grunnskólum. Formaður Velferðarráðs segir að borgaryfirvöld fylgist grannt með þróun mála.

WHO íhugar að lýsa yfir næstefsta viðbúnaðarstigi

Fulltrúar Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar, WHO, segjast skrefi nær því að lýsa yfir næst efsta viðbúnaðarstigi vegna svínaflensunnar. Það þýðir að ekkert lát er á útbreiðslu sjúkdómsins. Íslensk kona í Mexíkó, þar sem sjúkdómurinn greindist fyrst, segir viðbúnað í landinu mikinn en hún sé ekki á leið heim í bráð.

Jóhanna útilokar ekki að Alþingi skeri úr um ESB

Stjórnarmyndunarviðræðum Samfylkingar og Vinstri grænna miðar vel áfram að sögn Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra. Hún er bjartsýn á að flokkarnir komi sér saman um lausn varðandi Evrópusambandið.

Vinna á Lyngdalsheiði stöðvast

Gerð nýs vegar um Lyngdalsheiði liggur niðri eftir að Lýsing hirti vinnuvélarnar af verktakanum, Klæðningu. Lagning hitaveituæðar frá Hellisheiðarvirkjun hefur stöðvast af sömu ástæðu. Þá hefur Klæðning fallið frá tilboði sínu í Raufarhafnarveg, en fyrirtækið átti lægsta boð í verkið.

Rúmlega 5200 ráðnir í sumarstörf hjá borginni

„Það er sérstakt ánægjuefni að í sumar verða í boði hjá Reykjavíkurborg fleiri störf en nokkru sinni fyrr eða rúmlega 5.200 störf,” segir Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri í tilkynningu, en nú liggur fyrir fjöldi sumarstarfa hjá borginni.

Sjá næstu 50 fréttir