Samþykktu að vinna að friðlýsingu Drekasvæðis og norðurslóða 29. apríl 2009 19:45 Formaður og nokkrir þingmenn VG. Mynd/Pjetur
Hjörleifur Guttormsson, helsti hugmyndafræðingur Vinstri grænna í umhverfismálum, segir að íslensk stjórnvöld eigi að beita sér mjög ákveðið á alþjóðavettvangi fyrir friðlýsingu Drekasvæðis og norðurslóða gagnvart allri olíuvinnslu.Þremur dögum fyrir kosningar afneitaði forysta Vinstri grænna skoðun Kolbrúnar Halldórsdóttur á olíuvinnslu. Formaður flokksins, Steingrímur J. Sigfússon, sagði umhverfisstefnu VG ekki útiloka það að Ísland yrði aðili að olíuvinnslu, frekar en aðrar þjóðir.Olíuvinnsla á Drekasvæðinu rýmar hins vegar ekki við framtíðarsýn Hjörleifs Guttomssonar, fyrrverandi ráðherra og alþingismanns. Hjörleifur segir að undir Norðurskautssvæðinu, - og Jan Mayen-svæðið og svæðið norður af Noregi séu hluti af því, - sé áætlað að sé rösklega fimmtungur af þeim forða sem eftir er af jarðefnaeldsneyti, olíu. Ef þetta verði notað og brennt á næstu áratugum standi menn ekki við þau markmið að stöðva sig af við hlýnun andrúmsloftsins um tvær gráður.Hann vill að íslensk stjórnvöld beiti sér mjög ákveðið fyrir því að þjóðir heims bremsi af olíuvinnslu á norðurslóðum, og ekki verði farið út í kapphlaup um olíuvinnslu á þessu stóra svæði, heldur ná utan um það og friðlýsa það gagnvart slíkri nýtingu.Hjörleifur Guttormsson, fyrrum þingmaður og ráðherra.En hefur þá Kolbrún Halldórsdóttir rétt fyrir sér þegar hún segir olíuvinnslu á Drekasvæðinu ekki samrýmast stefnu Vinstri grænna?"Ég sé ekki betur en að hún tali í sama anda eins og samþykktir á landsfundinum okkar fyrir ekki löngu síðan, í marsmánuði," svarar Hjörleifur. Þar hafi verið lagðar þær línur að Vinstrihreyfingin grænt framboð beiti sér fyrir því að færa umræðuna um friðlýsingu þessa svæðis inn í alþjóðaumræðuna og beiti sér fyrir því að reyna að ná þar samkomulagi. Það sé eftir því spori sem menn eigi að vinna, segir Hjörleifur.Í ályktun Landsfundar VG um Norðurslóðir segir meðal annars:"Landsfundur VG telur að Ísland eigi að beita sér fyrir umræðu allra hlutaðeigandi ríkja um friðlýsingu Norðurheimsskautssvæðisins."Spurður hvort að með Norðurskautssvæði sé hann einnig að tala um Drekasvæðið svarar Hjörleifur:"Já, mikil ósköp. Það er auðvitað hluti af því. Og allt sem norðar er og allt í kringum heimsskautsbauginn og innan hans, sem þarna er um að ræða."
Mest lesið Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Fleiri fréttir Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Sjá meira