Vinna á Lyngdalsheiði stöðvast 29. apríl 2009 18:22
Gerð nýs vegar um Lyngdalsheiði liggur niðri eftir að Lýsing hirti vinnuvélarnar af verktakanum, Klæðningu. Lagning hitaveituæðar frá Hellisheiðarvirkjun hefur stöðvast af sömu ástæðu. Þá hefur Klæðning fallið frá tilboði sínu í Raufarhafnarveg, en fyrirtækið átti lægsta boð í verkið.Klæðning hóf gerð nýs fimmtán kílómetra vegar yfir Lyngdalsheiði milli Þingvalla og Laugarvatns síðastliðið haust og áformaði að ljúka verkinu í sumar. Vinnan hefur nú stöðvast.Hreinn Haraldsson vegamálastjóri segir að Lýsing, sem fjármagnaði tækin, hafi stöðvað notkun þeirra og verkið sé stopp. Á verkfundi í morgun með verktakanum hafi hann óskað eftir því að einhverja daga til að skoða möguleika á því að fá að halda verkinu áfram með því að fá leigð tæki annarsstaðar frá. Vegagerðin muni veita þeim þá heimild í einhvern tíma. Síðan verði að taka á því þegar þar að kemur hvort þeir geti haldið verkinu áfram eða hvort bregðast þurfi öðruvísi við.Klæðning vann einnig að lagningu hitaveituæðar frá Hellisheiðarvirkjun til borgarinnar fyrir á annan milljarð króna og stöðvaðist það verk á föstudag af sömu ástæðu. Fundur er áformaður á morgun milli fulltrúa Orkuveitu Reykjavíkur og Klæðningar um hvernig leyst verður úr því máli. Klæðning átti fyrir tveimur vikum lægsta tilboð í gerð nýs vegar til Raufarhafnar en hefur nú fallið frá boðinu. Það var upp á 250 milljónir, sem var aðeins 56 prósent af kostnaðaráætlun.Hvort Vegagerðin hafi áhyggjur af þessari þróun mála, ekki bara gagnvart þessum verktaka heldur öðrum, kveðst vegamálastjóri almennt hafa áhyggjur. Menn viti að staða fyrirtækja, ekki síst í mannvirkjagerð, til dæmis jarðvinnu, sé mjög slæm víða.KNH verktakar á Ísafirði áttu næstlægsta boð í Raufarhafnarveg, um 60 prósent af kostnaðaráætlun. Þeir leggja nú Suðurstrandarveg og munu á morgun undirrita verksamning um Vopnafjarðarveg. Vegagerðarmenn telja óvíst að þeir ráði einnig við Raufarhafnarveg á sama tíma og hafa sett sig í samband við fjóra verktaka sem næstir komu í röðinni, um að taka að sér verkið.
Mest lesið Hvað segja veðbankarnir? Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent „Nú er komið að mér“ Erlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Innlent Fleiri fréttir Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Sjá meira