Fleiri fréttir

Handleggsbraut sambýliskonu og son hennar

Karlmaður var í gær dæmdur í Héraðasdómi Reykjaness í átta mánaða fangelsi fyrir að hafa ítrekað ráðast á fyrrverandi sambýliskonu sína og tvö börn hennar. Dómurinn er skilorðbundinn til sex mánaða. Að auki var hann dæmdur til að greiða fórnarlömbunum skaðabætur.

Íslendingi hótað með hnífi á Sunny Beach

Vísir sagði frá því fyrr í vikunni að dönsk ungmenni myndu enn flykkjast í svall á sumardvalarstaðinn Sunny Beach í Búlgaríu. Ströndin sem gengur undir nafninu Nauðgunarströndin í norrænum fjölmiðlum er annáluð fyrir ofbeldi og nauðganir. Þrátt fyrir þetta orðspor virðist aðsóknin ekki fara minnkandi. Íslenskir útskriftarnemar dvöldu þar árið 2006

Meira en 900 skjálftar við Grímsey

Jarðskjálftavirkni heldur áfram við Grímsey, 14-16 kílómetrum austan við eynna. Hafa nú verið yfir 900 skjálftar síðan virknin hófst um hádegisleytið í gær. Stærstu skjálftarnir voru í gærkvöldi og voru þeir 4,7 og 4,8 á richter.

Leitað að nöktum manni á Esjunni

Tilkynning barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu fyrir stundu um nakinn mann sem var í fjallgöngu upp Esjuna. Búið er að ræsa út björgunarsveitir sem eru á leiðinni á staðinn. Lítið er vitað annað en að maðurinn sé nakinn.

Obama í Berlín

Búist er við að tugir þúsunda manna komi saman við Sigursúluna í miðborg Berlínar í dag til að hlýða á Barack Obama forsetaframbjóðanda demókrata. Obama er mjög vinsæll í Þýskalandi. Komið hefur fram í skoðanakönnunum að þriðjungur Þjóðverja telur hann verða næsta forseta Bandaríkjanna.

Niðurstaða í máli Paul Ramses í ágúst

Dóms-og kirkjumálaráðherra, Björn Bjarnason sagði í viðtali við Kastljósið í gærkvöldi að hann teldi að niðurstöðu í máli Paul Ramses væri að vænta í ágúst. Tvær vikur eru síðan lögfræðingur Paul Ramses lagði inn kæru í dómsmálaráðuneytið. Hún krafðist þess að ákvörðun Útlendingastofnunar yrði dæmd ógild vegna þess hvernig staðið var að málinu.

Orð Kjartans stangast á

Kjartan Magnússon sagði í maí að áformum um virkjun Bitru yrði ekki haldið áfram á kjörtímabilinu. Í dag segir hann að alls ekki hafi verið fallið frá hugmyndum um Bitruvirkjun og stjórn Orkuveitunnar hafi ákveðið að doka við.

Gagnrýnir Kínaför forseta harðlega

„Hann á bara að segja nei takk nema hann ætli að nota tækifærið og berja í borðið," segir Sveinn Magnússon, framkvæmdastjóri Geðhjálpar. Hann er ósáttur við að Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands hafi þegið boð um að vera viðstaddur Ólympíuleikana í Peking. Og engu hrifnari af því ef Þorgerður Katrínar Gunnarsdóttir menntamálaráðherra fer í opinberum erindagjörðum á leikana. „Þetta er köld vatnsgusa framan í fólk að sjálfstæðismenn skuli sína þennan tvískinnungshátt," segir Sveinn.

Segir Kjartan tvístígandi

,,Kjartan er tvístígandi eins og í svo mörgu öðru. Ég átta mig ekki á því hvað hann er að boða," segir Svandís Svavarsdóttir varðandi yfirlýsingar Kjartans Magnússonar, stjórnarformanns Orkuveitunnar, varðandi Bitruvirkjun.

Engar skemmdir þrátt fyrir skjálftana

Engar skemmdir hafa orðið á eignum í Grímsey þrátt fyrir að jörð hafi skolfið þar undanfarinn sólarhring, að sögn Bjarna Magnússonar hreppstjóra þar.

Segja makrílveiðarnar löglegar en siðlausar

Makrílveiðar Íslendinga eru siðlausar þótt þær séu löglegar. Þetta er auk þess andstyggileg aðferð til að neyða önnur lönd til að veita Íslendingum hlutdeild í makrílkvótanum á Atlantshafi, segir leiðarahöfundur norska blaðsins Fiskeribladet-Fiskaren.

Dolly veldur usla í Texas og Mexíkó

Fellibylurinn Dolly hefur nú tekið land í Texas og Mexíkó en samhliða því hefur dregið töluvert úr styrk hans og er Dolly nú aftur flokkaður sem hitabeltisstormur.

Flugdrekaslys í Nýja dal á Sprengisandsleið

Björgunarsveitarmaður úr hálendisvakt Slysavarnafélagsins Landsbjargar slasaðist þegar flugdreki, sem hann sveif í, féll til jarðar við Nýja dal á Sprengisandsleið seint í gærkvöldi.

Yfir 200 skjálftar mældust við Grímsey í nótt

Yfir tvö hundruð jarðskjálftar hafa mælst í hafinu austur af Grímsey í nótt, en þar hófst ný skjálftahrina laust fyrir klukkan sjö í gærkvöldi með skjálfta upp á fjóra komma sjö á Richter.

Kjartan ekki hættur við Bitruvirkjun

„Ekki hefur verið hætt við Bitruvirkjun heldur undirbúningi hætt meðan málið er skoðað betur,“ segir Kjartan Magnússon, stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur.

Segja Fox fréttastofuna rasista

Hópur fólks safnaðist saman fyrir utan skrifstofur Fox sjónvarpsstofunnar til þess að mótmæla fréttatflutningi stöðvarinnar sem hópurinn telur yfirfullan af rasisma, m.a. í garð Barack Obama, forsetaframbjóðanda Demókrataflokksins.

Jörð heldur áfram að titra við Grímsey

Enn einn skjálftinn varð austnorðaustur af Grímsey rétt fyrir klukkan 21 í kvöld, nú af stærðinni 4,8 á Richter. Fyrr í kvöld varð annar skjálfti á svæðinu sem mældist 4,7 á Richter.

Réðst með hníf á forstöðumann áfangaheimilis

Fréttastofa Sjónvarps greindi frá því í kvöldfréttum sínum nú fyrir stuttu að íbúi á áfangaheimili Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík hafi ráðist með hníf á forstöðumann heimilisins og stungið hann þrisvar sinnum.

Bílþjófar sífellt betur útbúnir

Bílaþjófar eru sífellt betur útbúnir. Dæmi eru um að þjófar hafi tekið allt nýtilegt úr stolinni bifreið og skilið einungis flakið eftir. Á Íslandi er að meðaltali brotist inn í einn bíl á dag samkvæmt afbrotatölfræðir ríkislögreglustjóra.

Iceland Express fá tvær Boeing 737-700 vélar

Iceland Express mun í september taka í notkun tvær Boeing 737-700 flugvélar. Vélarnar eru mun sparneytnari og umhverfisvænni en þær flugvélar sem félagið hefur fram að þessu notað í millilandaflugi og eyða allt að 40% minna eldsneyti á hvern flugtíma en þær vélar sem félagið er nú með í notkun.

Fjármálaráðherra fagnar gagnrýni flokksbræðra sinna

Fjármálaráðherra fagnar gagnrýni þeirra Illuga Gunnarssonar og Bjarna Benediktssonar á efnahags- og peningastefnu stjórnvalda. Illugi segir gagnrýninni ekki beint sérstaklega að forystu Sjálfstæðisflokksins.

Hjúkrunarfræðingar staðfesta samning

Félagsmenn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga staðfestu kjarasamning milli félagsins og ríkisins frá 9. júlí, síðastliðnum, með 91% greiddra atkvæða.

Gallabuxur varna ekki nauðgun

Fyrir níu árum síðan komst hæstiréttur Ítalíu við litla hrifiningu að þeirri niðurstöðu að það væri ómögulegt að nauðga konu í gallabuxum. Enda þótti ljóst að enginn gæti klætt konu úr þeim fatnaði án hennar samþykkis.

Eldsneytisverð hefur lækkað um 2 krónur

Skeljungur, Olís og Orkan hafa lækkað verð á eldsneyti um tvær krónur í dag . N1 hefur ekki lækkað verð í dag og segir Hermann Guðmundsson, forstjóri N1, að þar á bæ vilji menn bíða og sjá til hvað gerist.

Allt í lagi þó andarungar drepist

Hundruðir Sílamáva eru komnir aftur á tjörnina en fyrr í sumar voru aðeins um 20 mávar á því svæði. Æti þeirra á sjó úti hefur að öllum líkindum brugðist að sögn Gunnars Þórs Hallgrímsson líffræðings. Sílamávurinn gæti haft áhrif á afkomu unganna við tjörnina.

Hefur skilning og pólitískt þor

Ég hef skilning á náttúruverndar- sjónarmiðum og pólitískt þor en það ekki þar með sagt að það þurfi að vera nákvæmlega það sama og menn biðja um hverju sinni, segir Kristján Möller, samgönguráðherra, í kjölfar yfirlýsingar Bergs Sigurðssonar, framkvæmdastjóra Landverndar, frá því fyrr í dag.

Harður jarðskjálfti skekur Japan

Jarðskjálfti upp á 6,8 á Richterkvarða skók norðurhluta Japans fyrr í dag. Skjálftinn varð á 107 kílómetra dýpi 64 kílómetra austur af borginni Morioka á stærstu eyjunni Honsu. Kjarnakljúfum í stóru kjarnorkuveri á svæðinu var lokað um tíma eftir skjálftann, en þeir eru komnir í fullan gang aftur. Ekki er vitað um slys á fólki, og segja yfirvöld í Japan enga hættu á því að skjálftinn geti valdið fljóðbylgju.

Nýr mannauðsstjóri Mosfellsbæjar

Sigríður Indriðadóttir hefur verið ráðin í nýtt starf mannauðsstjóra Mosfellsbæjar. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá bænum.

Hasspabbinn hefur áður komið við sögu lögreglu

Karlmaðurinn sem handtekinn var ásamt konu sinni fyrr í vikunni í Reykjanesbæ með 180 grömm af hassplöntum hefur áður komið við sögu lögreglunnar, að sögn Jóhanns Benediktssonar lögreglustjóra.

Sigurður G. fær ekki að verja Jón Ólafs

Kröfu Jóns Ólafssonar athafnamanns um að Sigurður G. Guðjónsson yrði skipaður verjandi hans var hafnað í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir stundu. Við þingfestingu ákærunnar í málinu fyrir skömmu fór saksóknari fram á að Sigurður yrði ekki skipaður verjandi, þar sem hann kynni að verða kallaður til sem vitni í málinu.

Þriðjungur ók of hratt

Ríflega þriðjungur ökumanna ók yfir leyfilegum hámarkshraða á höfuðborgarsvæðinu frá mars fram í júlí á vegarköflum þar sem mikið hefur verið um slys.

Færeyingur ólmur yfir veflottói

Færeyskur netverji úthúðar fjárhættuspilinu Free Lotto sem hann telur vera svik og pretti. Fyrirbæri þetta gengur út á að tölvupóstur er sendur á netfang viðkomandi og tilkynnt um að hann eigi milljónavinning, og jafnvel fleiri en einn, í vændum, gefi hann aðeins upp kortanúmer svo greiða megi reikninginn.

Tjaldvagnar seljast vel í kreppunni

Tjaldvagnar og fellihýsi seljast vel þrátt fyrir þá efnahagslægð sem verið hefur hér á landi. Bæði Arnar Barðdal hjá Víkurverkum og Björgvin Barðdal hjá Seglagerðinni Ægi segja söluna betri en von var á. Salan er þó ekki jafnmikil og síðasta sumar en þá varð sprenging í sölu tjaldvagna og fellihýsa.

Jarðskjálftahrina austan við Grímsey

Jarðskjálftahrina hófst um 16 kílómetra austan við Grímsey klukkan rúmlega hálf eitt í hádeginu. Skjálftar af stærðinni 3,1 og 4,1 stig á Richter mældust og minni eftirskjálftar. Skjálftanna varð meðal annars vart í Svarfaðadal.

Sjá næstu 50 fréttir