Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Segja ekki komin fram góð rök fyrir breytingu á Suðurnesjum Þrír þingmenn Samfylkingarinnar, þeir Lúðvík Bergvinsson, Árni Páll Árnason og Helgi Hjörvar, lýstu allir yfir efasemdum um fyrirhugaðar breytingar á embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum. Veigamikil rök þyrfti að breyta því sem gengi vel og slík rök væru ekki komin fram. 1.4.2008 14:37
Ál og kopar skotmörk innbrotsþjófa vegna hækkana Bandaríkjamenn verða um þessar mundir í auknum mæli vitni að innbrotum sem beinast að óhefðbundnum verðmætum. Koparrör hitaveitulagna og hvers kyns hlutir úr áli eru nýjustu skrautfjaðrirnar í þýfisflórunni samhliða mikilli hækkun á verði þessara málma í Bandaríkjunum og víðar. 1.4.2008 14:31
Óskar óskar eftir rökstuðningi borgarstjóra „Á þeim rúmu tveimur mánuðum frá því borgarstjórnarmeirihluti Ólafs F Magnússonar tók við völdum í Reykjavíkurborg hefur borgarstjóri nú í þrígang veist að Framsóknarflokknum og fulltrúa hans í borgarstjórn með þeim hætti að eftir hefur verið tekið,“segir í fyrirspurn Óskars Bergssonar borgarfulltrúa Framsóknarflokksins. 1.4.2008 14:27
Norðmenn mega hefja hrefnuveiðar við Jan-Mayen Í dag er heimilt að hefja hrefnuveiðar í Noregi og á Jan Mayensvæðinu. Leyft verður að veiða rúmlega 1.000 hrefnur á vertíðinni en litlar líkur eru taldar á að allur kvótinn náist í sumar. 1.4.2008 13:28
Elsta gullhálsmen Suður-Ameríku fundið Gullhálsmen sem fannst við vatnið Titicaca í suðurhluta Perú er hið elsta sem fundist hefur í Suður-Ameríku. Aldursgreining bendir til að hálsmenið sé um 4.000 ára gamalt. 1.4.2008 13:16
Geir og Ingibjörg Sólrún með einkaþotu á NATO-fund Íslenska sendinefndin sem fer á leiðtogafund NATO í Búkarest á morgun mun ferðast með einkaþotu til Rúmeníu frá Íslandi. Aðstoðarkona forsætisráðherra segir kostnaðarmuninn á ferðinni miðað við áætlunarflug óverulegan. Með vélinni fara þau Geir H. Haarde forsætisráðherra og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra auk fylgdarliðs og blaðamanna. 1.4.2008 13:07
Viðurkenna að Tsvangirai hafi fengið flest atkvæði en vilja kjósa aftur Fulltrúar stjórnarflokks Simbabve viðurkenndu í morgun að stjórnarandstæðingurinn Morgan Tsvangirai hefði fengið flest atkvæði í forsetakosningunum á laugardaginn. 1.4.2008 13:02
Vaxandi eftirspurn eftir silungsveiðileyfum Vaxandi eftirspurn er eftir silungsveiðileyfum sem eru allt að tífalt ódýrari en laxveiðileyfi. Veiðitímabilið hófst í morgun á öllum hefðbundnum veiðisvæðum. Undantekning er þó Varmá í Ölfusi. 1.4.2008 12:53
Grunur um að bílabrennuvargur gangi laus Grunur leikur á að brennuvargur gangi laus og kveiki í mannlausum bílum á höfuðborgarsvæðinu. 1.4.2008 12:46
Samgöngumiðstöð verði mikilvægari þegar flugvöllur fer Dagur B. Eggertsson, fyrrverandi borgarstjóri, segir að samgöngumiðstöð í Vatnsmýri verði mikilvægari en nokkru sinni fyrr þegar flugvöllurinn fer. 1.4.2008 12:43
Fjölmenni á nefndafundi um efnahagsmál í morgun Fjölmenni var á sameiginlegum fundi fjárlaganefndar og og efnahags- og skattanefndar Alþingis í morgun þar sem rædd var staða efnahagsmála og horfur í ríkisfjármálum. Fjárlaganefnd bíður eftir nýrri þjóðhagsspá og Peningamálum áður en skoðað verður hvort endurskoða þurfi fjárlög. 1.4.2008 12:36
Funduðu með nýrri Evrópunefnd Geir H. Haarde forsætisráðherra og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra áttu í dag fund með nýskipaðri nefnd um þróun Evrópumála. 1.4.2008 12:13
Snekkjan leggst að bryggju Snekkja Pálma Haraldssonar, áður í eigu Saddams Husseins, lagðist fyrir skömmu að bryggju við hlið Viðeyjarferjunnar í Sundahöfn. Snekkjunni er ætlað að hýsa Al Gore á meðan hann dvelur hér á landi í næstu viku, og munu bandarískir öryggisverðir sem gæta varaforsetans fyrrverandi því taka við henni upp úr tvö í dag og fara yfir öryggismál. 1.4.2008 11:39
Leggja fram fjárnámskröfu á snekkju Saddams „Þetta er náttúrulega afar kaldhæðnislegt, en að sumu leyti viðeigandi, því eins og menn vita byggði Saddam veldi sitt að miklu leyti á stuðningi Bandaríkjanna," segir Stefán Pálsson, formaður Samtaka hernaðarandstæðinga. 1.4.2008 11:24
Orkuveitan ekki skaðabótaskyld „Það sem gerðist var að virkjunin sló út líka og þar er eitthvað framleiðslutap sem nemur hundruðum þúsunda en ómögulegt er að segja til um kostnað fyrir notendur,“ segir Eiríkur Hjálmarsson upplýsingafulltrúi Orkuveitu Reykjavíkur. 1.4.2008 11:19
Svipuð hækkun á matvælum og annars staðar á Norðurlöndum Matvæli hafa hækkað álíka mikið hér á landi og annars staðar á Norðurlöndum á síðastliðnu ári samkvæmt samantekt Rannsóknarseturs verslunarinnar. 1.4.2008 11:11
Málþing um íslenska tungu í fjölmiðlum „Íslenskan er atvinnutæki íslensks fjölmiðlafólks,“ segir Steinunn Stefánsdóttir, aðstoðarritstjóri og nefndarmanneskja Íslenskrar málnefndar, í spjalli við Vísi um málþing föstudagsins sem að þessu sinni fjallar um stöðu íslenskrar tungu í fjölmiðlum og er haldið í samvinnu við Blaðamannafélag Íslands. 1.4.2008 11:08
Funda með viðskiptaráðherra um aðgerðir í verðlagsmálum Fulltrúar ASÍ, Neytendastofu og Neytendasamtakanna ganga á fund Björgvins G. Sigurðssonar viðskiptaráðherra klukkan ellefu þar sem ræða á verðhækkanir í samfélaginu. 1.4.2008 10:43
Bush styður umsókn Úkraínu að Nato George Bush Bandaríkjaforseti hefur lýst yfir stuðningi að inngöngu Úkraínu í Nato. Forsetinn lýsti þessu yfir í heimsókn til höfuðborgarinnar Kiev. Úkraína hefði tekið djarfa ákvörðun að sækja um aðild og að Bandaríkin styddu landið heilshugar. 1.4.2008 10:38
Byrgisstúlkan kvartar til umboðsmanns Alþingis Ólöf Ósk Erlendsdóttir hefur kvartað undan Birgi Ottóssyni forstöðumanni þjónustudeildar Félagsbústaða til umboðsmanns Alþingis. Hún sakar hann um einelti og að hafa fjarlægt eigur sínar úr íbúð sem Ólöf var í á þeirra vegum. Það gerði hann án þess að hafa dómsúrskurð og án þess að hafa samband við fjölskyldu Ólafar segir í kvörtuninni. Ólöf afplánar nú dóm í Kvennafangelsinu. 1.4.2008 10:32
Westergaard teiknar skopmynd af Wilders Danski teiknarinn Kurt Westergaard hefur teiknað skopmynd af hollenska stjórnmálamanninum Geert Wilders og segir hana stuðningsyfirlýsingu við málfrelsið. 1.4.2008 10:27
Kalli Bjarni fluttur heim til mömmu „Hann er kominn heim á hótel mömmu og verður hjá mér þangað til hann fer inn," segir Sveinbjörg Karlsdóttir, móðir Kalla Bjarna, sem handtekinn var á föstudaginn á Hótel Vík ásamt vinkonu sinni með 65 grömm af amfetamíni. 1.4.2008 10:00
Nokkurt tjón í vatnsleka í Árbæ Talsverðar annir voru hjá slökkviliði í gærkvöld og nótt og var það meðal annars kallað út þrisvar vegna elds í bílum og einu sinni vegna vatnsleka. 1.4.2008 09:28
Sjóbirtingsveiðin hafin Sjóbirtingsveiði hófst í morgun á öllum hefðbundnum veiðistöðum fyrir sjóbirting nema í Varmá í Ölfusi. Þar er enn verið að meta afleiðingar mengunarslyssins í fyrra þegar klór frá sundlauginni í Hveragerði barst út í ánna. Heldur færri urriðum er nú landað ár eftir ár en áður og bleikju hefur fækkað mikið síðastliðin fimm ár án þess að vísindalegar skýringar séu á því. 1.4.2008 08:28
Ævintýralegt rán í Danmörku - stálu 400 milljónum Lestarsamgöngur á milli Kaupmannahafnar og Höje Tastrup röskuðust í morgun þegar ræningjar sem brutust inn í peningaflutningafyrirtæki skildu eftir búnað sem líktist sprengju. 1.4.2008 08:21
Nunna stal frá biskupi til að stunda fjárhættuspil Kaþólsk nunna í Omaha í Bandaríkjunum var í gær sakfelld fyrir að stela frá biskupsembættinu í ríkinu. Nunnan játaði brot sín og viðurkenndi að hafa eytt fénu að mestu í fjárhættuspil. Hún á yfir höfði sér allt að 20 ára fangelsi. 1.4.2008 08:18
Ræninginn lenti í klónum á bingóspilurum Norskir bingóspilarar létu hart mæta hörðu þegar óprúttinn ræningi hugðist hlaupast á brott með bingóvinningana um helgina. Ræninginn ógnaði starfsfólki baksviðs með skammbyssu, hafði af þeim féð og hugðist síðan forða sér út í gegnum bingósalinn sjálfann. 1.4.2008 08:15
Einn með hamar og annar með hníf Lögregla kannar nú hvort tveir menn, sem hún handtók á Eiríksgötu í Reykjavík í nótt, kunni að hafa eitthvað saknæmt á samviskunni því annar var vopnaður hnífi og hinn hamri. 1.4.2008 08:14
Mugabe hugleiðir stöðuna Íbúar Zimbabwe bíða enn óþreyjufullir eftir því að tilkynnt verði um úrslit kosninganna sem fram fóru þar í landi á laugardag. 1.4.2008 08:11
Pelosi vill fá niðurstöðu í baráttu Demókrata strax Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings og einn valdamesti Demókrati landsins hvetur forsetabrambjóðenudrna Obama og Clinton til þess að binda enda á baráttuna sem allra fyrst. 1.4.2008 08:07
Fáir aka of hratt í göngunum Aðeins eitt prósent bíla, sem óku um Hvalfjarðargöng frá föstudegi fram á mánudag, reyndist vera á of miklum hraða, samkvæmt mælingum lögreglunnar. 1.4.2008 08:05
Gore gistir á snekkju Saddams á Íslandi Nóbelsverðlaunahafinn Al Gore mun gista á snekkju Saddams Hussein á meðan hann dvelur á Íslandi í næstu viku. Snekkjan er í eigu athafnamannsins Pálma Haraldssonar sem keypti hana fyrir skömmu. Þetta staðfesti Pálmi í samtali við Vísi í morgun . 1.4.2008 07:52