Innlent

Fjölmenni á nefndafundi um efnahagsmál í morgun

MYND/Lárus

Fjölmenni var á sameiginlegum fundi fjárlaganefndar og og efnahags- og skattanefndar Alþingis í morgun þar sem rædd var staða efnahagsmála og horfur í ríkisfjármálum. Fjárlaganefnd bíður eftir nýrri þjóðhagsspá og Peningamálum áður en skoðað verður hvort endurskoða þurfi fjárlög.

„Þetta var 30 manna fundur og á hann komu fulltrúar ASÍ og Samtaka atvinnulífsins, greiningadeilda stóru viðskiptabankanna þriggja ásamt fulltrúum Seðlabankans, Fjármálaeftirlitsins og fjármálaráðuneytisins," segir Gunnar Svavarsson, formaður fjárlaganefndar.

„Það voru ólík sjónarmið uppi en menn eru þó sammála um það að það þurfi að efla trúverðugleika íslenska hagkerfisins," segir Gunnar og bætir við að það skipti miklu máli óháð því hvaða aðgerða menn horfi til í efnahagsmálum. „Menn telja að ríkið geti gert ýmislegt og það er bæði tengt tekju- og gjaldahliðinni og sömuleiðis töluðu menn um að efla gjaldeyrisforða Seðlabankans," segir Gunnar. Þá hafi verið bent á frekari útfærslur á reglum Seðlabankans gagnvart bönkunum í landinu.

„Menn sjá fram á það að það dragi úr viðskiptahallanum og einkaneyslan minnki en hins vegar vita menn ekki hversu stór breytingin verður," segir Gunnar enn fremur.

Skiptar skoðanir um Helguvíkurálver

Þá segir Gunnar að fundargestir hafi skipst í tvo hópa gagnvart auknum fjárfestingum í stóriðnaði og vísar hann þar til uppbyggingar álvers í Helguvík. Þar hafi meðal annars verið horft til innspýtingar fjármagns og umhverfissjónarmiða. Þá óttist sumir þensluhvetjandi áhrif framkvæmdanna.

Aðspurður hvort staða efnhagsmála kalli á endurskoðun fjárlaga fyrir þetta ár segir Gunnar að fjárlaganefnd bíði eftir tveimur skýrslum sem koma á næstunni. Þar er annars vegar um að ræða ný Peningamál Seðlabankans sem koma út 10. apríl og endurskoðaða þjóðahagsspá fjármálaráðuneytisins sem lítur dagsins ljós 15. apríl.

„Þetta eru tveir stórir dagar fyrir okkur og við munum ekki fara fram með neitt sem tengist þessu fyrr en þessir hlutir eru ljósir," segir Gunnar. Hann minnir einnig á að formenn stjórnarflokkanna hafi boðað að verið sé að fara yfir ákveðnar aðgerðir í efnahagsmálum og það komi líka til skoðunar í þessu samhengi.

Gunnar segir fundinn hafa verið góðan og til þess að efla aðra samræðu. „Ég tel að það séu bjartari tímar fram undan en verið hefur á umliðnum dögum og vikum. Við verðum vera samstíga í því að tala upp trúverðugleika hagkerfisins," segir Gunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×