Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Tillögur viðskiptaráðherra ásættanlegar Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra kynnti í dag niðurstöður starfshóps sem hann skipaði í lok sumars um heimildir fjármálafyrirtækja til gjaldtöku. 7.1.2008 18:39
Á 115 km hraða á Laugavegi Tveir karlmenn, 18 og 22 ára, voru sviptir ökuréttindum til bráðabirgða aðfaranótt laugardags en þeir voru staðnir að hraðakstri á Laugavegi á móts við Bolholt. 7.1.2008 17:57
Kibaki Keníuforseti boðar Odinga til viðræðna Forseti Keníu, Mwai Kibaki, hefur boðað andstæðing sinn, Raila Odinga til viðræðna næstkomandi föstudag. Tilgangur með viðræðunum er að binda enda á þá óöld sem ríkt hefur í landinu, en hátt í 500 manns hafa látið lífið í óeirðum eftir að úrslit forsetakosninga urðu gerð kunn 27. desember síðastliðinn. 7.1.2008 17:43
Fluttur á sjúkrahús eftir árekstur á Glerárgötu Maður var fluttur á sjúkrahúsið á Akureyri eftir árekstur jepplings og fólksbíls á Glerárgötu til móts við Borgarbraut á fjórða tímanum í dag. 7.1.2008 16:54
Lýsir yfir áhyggjum af ástandinu í Kenía Helsti erindreki Bandaríkjanna í Afríku hefur lýst yfir miklum áhyggjum af ástandinu sem blossaði upp áður en úrslit forsetakosninganna í Kenýa urðu ljós. Jendayi Frazer hefur verið í Keníu síðustu þrjá daga og fundað með Mwai Kibaki forseta og stjórnarandstöðunni. Hún segir kosningarnar ekki hafa verið nægilega gegnsæjar og ofbeldið sem fylgdi í kjölfarið ekki lýsandi fyrir þjóðina. 7.1.2008 16:23
Sex mánaða fangelsi fyrir árás í Garðastræti Átján ára piltur var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í sex mánaða fangelsi, þar af þrjá mánuði skilorðsbundna í þrjú ár, fyrir alvarlega líkamsárás í Garðastræti á nýársnótt í fyrra. 7.1.2008 16:21
Hraðþjónusta hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja Heilbrigðisstofnun Suðurnesja býður nú upp á sérstaka hraðþjónustu heilsugæslunnar á dagvinnutíma fyrir þá sem eiga við skammtímavanda að etja. 7.1.2008 15:56
Leitað að eldflaugaskotmönnum Ísraelar hafa hert enn aðgerðir á Gaza ströndinni til þess að reyna að koma í veg fyrir að Palestínumenn skjóti þaðan eldflaugum og vörpusprengjum yfir landamærin. 7.1.2008 15:51
Íranskir bátar ógna bandarískum skipum Bandaríska varnarmálaráðuneytið hefur staðfest fréttir CNN sjónvarpsstöðvarinnar um helgina um að íranskir hraðbátar hafi hótað þremur bandarískum herskipum á alþjóðlegu hafsvæði undan ströndum Írans. Bátarnir voru fimm og á vegum íranskra byltingarsinna hringsóluðu í kringum herskipin í tæplega 200 metra fjarlægð. 7.1.2008 15:37
Hann er á leiðinni Bandarískir öryggisverðir eru nú á ferð á flugi um Ísrael vegna heimsóknar Georges Bush forseta síðar í þessari viku. 7.1.2008 15:35
Fagnar því að seðilgjöld verði felld niður Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, fagnar því að fella eigi niður seðilgjöld og væntir þess að síðari skref sem stigin verða í tengslum við gjaldtöku banka og sparisjóða verði í þágu neytenda. 7.1.2008 15:31
Bjargaði fjölskyldu rétt áður en hann dó - styrktarsöfnun hafin Maðurinn sem lést í brunanum í Tunguseli í morgun vann mikla hetujdáð þegar hann bar vinkonu sínu og tvo syni hennar út úr brennandi íbúðinni. 7.1.2008 15:16
Bíl ekið á ljósastaur á Skúlagötu Bifreið ók á ljósastaur á Skúlagötu fyrir um hálftíma síðan. Tveir sjúkrabílar eru á vettvangi auk tækjabíls frá slökkviliði en ekki er vitað á þessari stundu hvort og hve margir hafi slasast í árekstrinum. 7.1.2008 14:34
Upplýstur engill Íslendingar eru með nokkrum rétti stoltir af því hvað þeir skjóta upp mörgum rakettum um áramótin. Voru það ekki eitthvað um 800 tonn í þetta skipti ? 7.1.2008 14:25
Ævintýrahöll úr klaka Það er mikið vetrarríki í Kína. Í borginni Harbin í Norðausturhluta landsins nota listamenn ísinn til þess að búa til undraveröld sem er mikið sótt af ferðamönnum ár hvert. 7.1.2008 14:12
Hver er þessi Dabbi Grensás? „Davíð Smári eða Dabbi Grensás eins og flestir þekkja hann, var einn hættulegasti gangsterinn á götunni forðum daga. Hann rúlaði Breiðholtinu eins vel og hann rúlaði Grensásveginum. Hann var þekktur fyrir að lemja þá sem fyrir honum urðu og voru það margir.“ 7.1.2008 14:08
Bók Bhutto gefin út fyrir þingkosningar í Pakistan Breska útgáfufyrirtækið HarperCollins hyggst flýta útgáfu á bók eftir Benazir Bhutto, fyrrverandi forsætisráðherra Pakistans, sem ráðin var af dögum milli jóla og nýárs. 7.1.2008 14:08
Breski herinn vegsamar stríð Breski herinn hefur verið sakaður um að vegsama stríð í auglýsingum sínum. Þannig beinist auglýsingar sem sýni stríðsrekstur á jákvæðan hátt að börnum allt niður í sjö ára aldur. Þetta eru niðurstöður skýrslu góðgerðarsamtakanna Joseph Rowntree sem birt var í dag. 7.1.2008 14:07
Karl í krapinu Nístandi kaldur og bálhvass vetrarstormur gekk yfir Kaliforníu um síðustu helgi. Vegir tepptust og skriður féllu. Rafmagn fór af húsum og ástandið var allt hið ömurlegasta. 7.1.2008 14:04
Nærri 30 ára gamalt mjólkurframleiðslumet slegið rækilega Nærri 30 ára gamalt met í mjólkurframleiðslu var slegið á síðasta ári þegar 126 milljónir lítra af mjólk voru framleiddar. 7.1.2008 13:18
Fjórtán stöðvaðir fyrir að virða ekki stöðvunarskyldu Lögreglan á Selfossi stöðvaði 14 ökumenn í síðustu viku fyrir að virða ekki stöðvunarskyldu við gatnamót. 7.1.2008 13:07
Fjárhagsaðstoð borgarinnar hækkaði um áramót Fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar hækkaði um 4,2 prósent um síðustu áramót samkvæmt ákvörðun sem tekin var á fundi borgarráðs skömmu fyrir jól. 7.1.2008 12:45
Árni Friðriksson til loðnuleitar í dag Hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson heldur í dag til loðnuleitar norðaustur af landinu þar sem fjögur skip hafa verið að veiðum síðan á föstudag. 7.1.2008 12:30
Flutti þrisvar tillögu um siðareglur þingmanna Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra flutti í þrígang tillögu á Alþingi um að settar yrðu siðareglur þingmanna - á meðan hún sat í stjórnarandstöðu. Sautján ár eru síðan Norðmenn settu slíkar reglur fyrir sína þingmenn. 7.1.2008 12:13
Fellst ekki á flutning eða niðurrif húsa við Laugaveg Forseti borgarstjórnar og oddviti meirihlutaflokks í borginni, Ólafur F. Magnússon, mun ekki fallast á flutning eða niðurrif húsanna á Laugavegi fjögur og sex. 7.1.2008 12:10
Grindvíkingar fá nýtt björgunarskip Grindvíkingar vígðu í gær nýtt björgunarskip sem ber sama nafn og fjögur fyrri björgunarskip bæjarins. 7.1.2008 11:53
Dauðadæmdum kastað fyrir björg Hæstiréttur Írans hefur staðfest að tveir dauðadæmdir menn skuli teknir af lífi með því að kasta þeim fyrir björg. Þeir voru dæmdir fyrir að nauðga öðrum karlmönnum. 7.1.2008 11:32
Seðilgjöld felld niður og FIT-kostnaður háður samningum Starfshópur á vegum viðskiptaráðuneytisins leggur til að seðilgjöld verði felld niður, að takmarkanir verði á álagningu uppgreiðslugjalda og að óheimilt verði að innheimta svokallaðan FIT-kostnað nema það hafi stoð í samningi. 7.1.2008 11:30
Obama með tveggja tölu forskot Bilið breikkar á milli Barack Obama og Hillary Clinton í kjöri um forsetaframbjóðenda demókrata. Samkvæmt nýjustu skoðanakönnunum hefur Obama 13 prósenta forskot á Clinton og mælist nú með 41 prósenta fylgi fyrir kosningarnar í New Hampshire sem fara fram á morgun. 7.1.2008 11:26
75 milljóna króna verkefni í Eþíópíu Hjálparstarf kirkjunnar og Þróunarsamvinnustofnun Íslands hafa ákveðið að verja sameiginlega 75 milljónum íslenskra króna til þriggja ára verkefnis í einu fátækasta héraði Eþíópíu, Jijiga. 7.1.2008 11:21
Letisafn opnar í Kólumbíu Safn sem á að vekja fólk til umhugsunar um leti hefur verið opnað í Bógóta höfuðborg Kólumbíu. Á því eru sófar fyrir framan sjónvarpstæki, hengirúm og venjuleg rúm - og allt það sem tengist því þegar fólk forðast að vinna. 7.1.2008 11:03
Íbúi í Tunguseli: Hélt að konan væri farin af stað „Konan mín vakti mig upp en hún er komin á steypirinn, ég hélt því að allt væri farið af stað,“ segir íbúi í Tunguseli sem býr í næsta stigagangi við eldsupptökin þegar Vísir mætti í Tunguselið í morgun. 7.1.2008 10:42
Sex manns fluttir á slysadeild eftir bruna í Tunguseli Sex manns voru fluttir á slysadeild vegna gruns um reykeitrun í brunanum í Tunguseli í morgun. Slökkvilið lauk störfum um hálfáttaleytið en enn er allt á huldu um eldsupptök. 7.1.2008 10:30
Fjöldi látinna í Kenía 486 Fjöldi þeirra sem látið hafa lífið í óeirðum eftir úrslit forsetakosninganna 27. desember er 486. Þetta er töluvert meiri fjöldi en fyrri tölur höfðu áætlað samkvæmt niðurstöðu nefndar á vegum ríkisstjórnarinnar. 7.1.2008 10:30
Segir Bhutto ábyrga fyrir eigin dauða Pervez Musharraf forseti Pakistan sagði í viðtali við bandaríska fréttaskýringaþáttinn „60 minutes“ að morðið á Benazir Bhutto fyrrverandi forsætisráðherra væri henni sjálfri að kenna. „Hún stóð fyrir utan bílinn, ég tel að þetta sé henni sjálfri að kenna - engum öðrum," sagði fyrrverandi hershöfðinginn í viðtalinu á CBS sjónvarpsstöðinni. 7.1.2008 10:10
Þúsundir innlyksa vegna flóða í Ástralíu Þúsundir manna komast nú hvorki lönd né strönd í austurhluta Ástralíu eftir ein verstu flóð þar undanfarin tuttugu ár. 7.1.2008 09:42
Skelfing eftir jarðskjálfta í Indónesíu Jarðskjálfti upp á 6,2 á Richter skók austhluta Indónesíu í morgun og eyðilagði fjölda bygginga. Skelfing greip um sig meðal íbúa Papúa á Nýju Gíneu en enginn lést samkvæmt uppllýsingum yfirvalda. Upptök skjálftans voru um 8 kílómetra norður af Manokwariborg í vesturhluta Papúa. Eldur logar í fjölda húsa og sprungur mynduðust í mörgum til viðbótar. Engin flóðbylgjuviðvörun var gefin út. 7.1.2008 09:24
Kókaín vinsælasta dópið hjá ungum Dönum Á síðustu tíu árum er kókaín orðið það eiturlyf sem danska lögreglan finnur mest af hjá yngri kynslóðinni þar í landi. Þetta kemur fram í Nyhedsavisen í dag. 7.1.2008 09:16
Gistinóttum fjölgaði um fjögur prósent í nóvember Gistinóttum á hótelum á Íslandi fjölgaði um fjögur prósent í nóvember síðastliðnum miðað við sama mánuð árið áður. Nýjar tölur Hagstofunnar leiða í ljóst að gistinæturnar voru rúmlega 75 þúsund í nóvember í fyrra en rúmlega 72 þúsund í nóvember 2006. 7.1.2008 09:14
Íbúar Napolíborgar eru að drukkna í sorpi Íbúar Napolíborgar eru að drukkna í sorpi og hefur ríkisstjórn Ítalíu verið kölluð til neyðarfundar í dag vegna málsins. Engin sorphirða hefur verið í borginni undanfarnar tvær vikur. 7.1.2008 07:56
Mikið annríki hjá slökkviliði í nótt Fyrir utan eldsvoðannn í Tunguseli var mikið annríki hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins í gærkvöldi og í nótt, við að sinna tuttugu útköllum. 7.1.2008 07:52
Stefnir í stórsigur Obama í New Hampshire Nýjustu skoðanakannanir í New Hampshire gefa til kynna að Barak Obama vinni stórsigur á Hillary Clinton. Obama mælist nú með tíu prósent meira fylgi en Clinton 7.1.2008 06:59
Ákvörðun um Írafoss tekin í dag Það ræðst væntanelga í dag hvar gert verður við Írafoss, flutningaskip Eimskips, sem missti stýrisbúnaðinn skömmu eftir brottför frá Neskaupstað í fyrrinótt. 7.1.2008 06:57
Einn látinn og þrennt á slysadeild eftir eldsvoða í Tunguseli Einn karlmaður er látinn og þrjár manneskjur liggja nú á Slysadeild Landsspítalans eftir að þær fengu reykeitrun þegar eldur kviknaði í íbúð á þriðju hæð í Fjölbýlishúsi við Tungusel í Reykjavík rétt um klukkan sex í morgun. 7.1.2008 06:51
Bruni í fjölbýlishúsi: Grunur um íkveikju Mikið tjón varð þegar eldur kviknaði í íbúð í fjölbýlishúsi við Neshaga í nótt. Talið er líklegt að um íkveikju hafi verið að ræða en eldurinn stofnaði lífi fjölda fólks í hættu. Árið 2006 var bensínsprengju kastað inn í þessa sömu íbúð. 6.1.2008 19:04