Fleiri fréttir

Fjöldi ökumanna skeytti engu um stórslasaðan mann við þjóðveginn

Karlmaður á áttræðisaldri slasaðist illa um klukkan hálf fjögur í dag þegar hann datt fram fyrir sig. Maðurinn var á gangi skammt sunnan við Borgarnes og náði ekki að bera hendur fyrir andlit sitt. Hann hlaut nokkra stóra skurði til að mynda á enni, við auga og á nefi. Honum blæddi mikið.

Samfylkingin ályktar um boranir

Stjórn Samfylkingarinnar í S- Þingeyjarsýslu og sveitarfélaginu Norðurþingi sendi í dag frá sér ályktun þar sem þeim árangri sem náðst hefur við boranir á jarðvarmaorku við Kröflu,Þeistarereyki og Bjarnaflagi er fagnað.

Þrír látnir eftir árás Ísraela

Ísraelskir hermenn drápu þrjá Palestínumenn í árás inn á Gaza svæðið í dag. Árásin var svar við ítrekuðum loftskeytaárásum þaðan inni í Ísrael.

Ingibjörg til Egyptalands

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra heldur á mánudag í opinbera heimsókn til Egyptalands sem standa mun dagana 8. og 9. janúar. Heimsóknin var ákveðin á fundi hennar með utanríkisráðherra Egyptalands, Ahmed Abdoul Gheit á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York í haust og í ferðinni mun hún eiga fundi með þremur ráðherrum í egypsku ríkisstjórninni, Mohamed Rashid viðskipta- og iðnaðarráðherra og Mahmoud Mohieddin fjárfestingaráðherra auk Abdouls Gheit utanríkisráðherra. Þá mun Ingibjörg Sólrún einnig eiga sérstakar viðræður við Amra Moussa aðalritara Arababandalagsins en höfuðstöðvar þess eru í Kaíró.

Þrettándabrennur í Reykjavík og nágrenni

Í dag á þrettánda degi jóla verður kveikt í þremur brennum í Reykjavík: við Gufunes, Ægisíðu og Reynisvatn. Flugeldasýning verður í Gufunesi. Brennur eru í flestöllum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu.

Bjóðið Bush velkominn með sprengjum

Hinn bandaríski Adam Gadahn, sem er herskár meðlimur í Al-Kaída hryðjuverkasamtökunum, hvetur múslima í miðausturlöndum til að taka á móti George Bush með sprengjum þegar hann kemur þangað í vikunni.

Saakashvili sigurvegari eftir fyrstu tölur

Michel Saakashvili forseti Georgíu er með 58 prósenta fylgi eftir að sjö prósent atkvæða hafa verið talin í forsetakosningunum sem fram fóru í landinu í gær. Stjórnarandstaðan í Georgíu hvetur stuðningsmenn til mótmæla í höfuðborginni Tblisi en þeir segja að útgönguspár hafi verið falsaðar.

Fólkið á Egilsstöðum stóð sig eins og hetjur

Halldóra Bergsdóttir skrifstofukona er ein þeirra tæplega 200 flugfarþega sem voru að koma frá Kanarí í leiguflugvél sem reyndi tvær misheppnaðar aðflugstilraunir í Keflavík og þurfti á endanum að lenda á Egilsstöðum.Hún segir að starfsfólk sem tók á móti sér og öðrum farþegum á flugvellinum á Egilsstöðum hafi staðið sig eins og hetjur.

Vilja Suleiman sem forseta Líbanon

Utanríkisráðherrar Arababandalagsins ákváðu á fundi í Kaíró í Egyptalandi að styðja Michel Suleiman hershöfðingja sem næsta forseta Líbanons. Boðað var til fundarins vegna stjórnmálaástandsins í Líbanon en þar hefur ekki verið forseti síðan 23. nóvember.

Stálu myndavélum og öðru lauslegu

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í morgun tvo erlenda ferðamenn á hóteli í Reykjavík vegna gruns um þjófnað. Um er að ræða konu og karl frá Hollandi en þau eru meðal annars sökuð um að hafa stolið úr töskum annarra ferðamanna sem biðu eftir flugrútunni í morgun.

Mikið tjón í eldsvoða við Neshaga

Mikið tjón varð í nótt þegar eldur kviknaði í íbúð í blokk við Neshaga í Reykjavík. Tilkynning um eldinn barst slökkviliðinu laust fyrir klukkun eitt og stóð þá íbúðin í björtu báli.

Þrettándagleði í Eyjum í gær

Vestmannaeyingar tóku forskot á sæluna í gær og héldu þá þrettándagleði sína. Álfar, tröll og jólasveinar skemmtu fólki og kveikt var í brennu.

Hvetja til mótmæla í Georgíu

Stjórnarandstaðan í Georgíu hvetur stuðningsmenn til mótmæla í höfuðborginni Tblisi en þeir segja að útgönguspár hafi verið falsaðar. Samkvæmt þeim vann Saakashvili forseti yfirburðasigur í kosningunum sem hann boðaði til eftir að hafa barið niður mótmæli stjórnarandstöðunnar gegn sér í nóvember. Þá þykja kosningarnar prófsteinn á lýðræði í landinu.

"Hvar eru hryðjuverkamennirnir núna?"

Fjórir létust þegar sprengja sprakk í Karrada hvefinu í Bhagdad í morgun. Þar var verið að halda upp á Íraska herdaginn sem er árviss viðburður. Þeir látnu voru allir íraskir hermenn en sprenginguna sem sprakk fyrir utan byggingu frjálsra félagasamtaka sem stóð fyrir hátíðarhöldum í hverfinu og bauð nokkrum háttsetum hermönnum.

Sterkur jarðskjálfti í Grikklandi

Sterkur jarðskjálfti upp á 6,5 á Richter reið yfir Grikkland í morgun. Jarðfræðingar segja upptök skjálftans 120 kílómetra suðvestur af Aþenu í suðurhluta Pelopsskaga. Engar fregnir hafa borist af mannfalli eða slysum á fólki.

Líkamsárás á skemmtistað í Reykjanesbæ

Einn maður var handtekinn í nótt grunaður um líkamsárás á skemmtistað í Reykjanesbæ. Sá sem fyrir árásinni varð fékk skurð á höfuð. Árásarmaðurinn var talsvert ölvaður og reyndist því ekki unnt að taka af honum skýrslu í nótt.

Ekið á tólf ára stúlku

Ekið var á tólf ára stúlku við áramótabrennu Sandgerðinga í gærkvöldi. Meiðsl stúlkunnar eru ekki talin alvarleg en stúlkan gekk fyrir bíl sem var að aka yfir Sandgerðisveginn.

Tveir látnir í óveðri í Bandaríkjunum

Að minnsta kosti tveir eru látnir af völdum óveðurs sem geisar á Vesturströnd Bandaríkjanna. Hellirigning, snjór og sterkir vindar fylgja veðrinu. Snjóflóðaviðvaranir voru gefnar út í Sierra Nevada fjöllum þar sem einn og hálfur meter féll af snjó. Þá er varað við flóðum í suðurhluta Kaliforníu og aurskriðum.

Allt bendir til sigurs Saakishvili

Þúsundir mótmæltu úrslitum forsetakosninganna í Tblisi höfuðborg Georgíu í dag sem benda til að Mikhail Saakashvili forseti sitji annað kjörtímabil í embætti. Urður Gunnarsdóttir talsmaður Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu segir vankanta á kosningunum helst snúast um ójafna aðstöðu frambjóðenda fyrir kosningar.

Sjö ungmenni sviku út milljónir

Síðastliðinn fimmtudag barst lögreglunni kæra Sparisjóðsins á Akranesi vegna fjársvika. Reyndist um að ræða mál þar sem um 6.5 milljónir króna höfðu verið teknar út af reikning í heimildarleysi og millifærðar á nokkra aðila.

Fjöldamótmæli boðuð í Georgíu

Stjórnarandstaðan í Georgíu hefur boðað til fjöldamótmæla á morgun vegna þess sem hún kallar "falsaðra" niðurstaðna nýafstaðinna forsetakosninga. Mótmælin eiga að fara fram klukkan 14:00 að staðartíma á morgun.

Borgarstjóri: Veggjakrot vaxandi vandamál

Eignaspjöll vegna veggjakrots hafa þrefaldast í borginni á undanförnum árum að sögn borgarstjóra. Hann segir um verulegt vandamál að ræða. Borgaryfirvöld vinna nú í samstarfi við lögregluna að tillögum til að sporna við þessari þróun.

Rændu bíl af þriggja barna móður

Óprútinn aðili, eða aðilar, gerðust svo kræfir í gær að stela bíl hinnar 21 árs gömlu þriggja barna móður Söru Rós Kavanagh.

Þjóðverja vísað úr landi

Írönsk yfirvöld hafa vísað þýskum diplómat úr landi. Þetta kemur fram í þýskum fjölmiðlum í dag. Það mun, samkvæmt heimildum þýsku fréttastofunnar DPA, vera svar Írana við því þegar írönskum diplómat var vísað úr Þýskalandi í júlí fyrir að hafa reynt að kaupa tæki og tól sem grunur lék á að nota ætti í umdeilda kjarnorkuáætlun Írana.

Féll niður af 47. hæð og lifði af

Gluggaþvottamaður í New York var svo sannarlega ekki feigur þegar hann féll niður af 47. hæð háhýsis á Manhattan í síðasta mánuði og lifði af.

Odinga hafnar samstarfi við Kibaki

Mwai Kibaki forseti Kenía segist tilbúinn að mynda þjóðstjórn til að binda enda á ringulreiðina í landinu eftir afar umdeild úrslit forsetakosninganna síðustu helgi. Stjórnarandstaðan hafnar samstarfi og krefst þess að kosið verði á ný.

Upplýsingar sænsku leyniþjónustunnar á glámbekk

USB minniskubbur fullur af leyniskjölum sænska hersins fannst á bókasafni í Stokkhólmi á fimmtudag. Meðal leyniskjalanna voru skýrslur um friðargæslu Nató í Afghanistan. Fundurinn þykir rýra traust á sænska leyniþjónustu.

Útgönguspár spá Saakashvili sigri

Útgönguspár sem sjónvarpsstöðvar í Georgíu létu framkvæma segja að Mikhail Saakashvili hafi fengið 52.5% atkvæða í forsetakosningunum í landinu. Verði það raunin er ekki þörf á annari umferð kosninga.

Zuma tekur fjórðu eiginkonuna

Jacob Zuma, sem nýlega tók við stjórnartaumunum í Suður-Afríska þjóðarráðinu(ANC) gekk í dag að eiga sína fjórðu eiginkonu. Athöfnin var látlaus og fór fram á heimaslóðum Zuma, sem þykir líklegastur til að taka við forsetaembæti landsisn þegar Thabo Mbke lætur af völdum

Söfnuðu 20 milljónum

20.867.000 kr. söfnuðust í styrktarátaki Sparisjóðsins ”Þú gefur styrk” fyrir átta félagasamtök til verkefna á sviði barna og unglinga með geðraskanir. Styrktarátakinu lauk á aðfangadag jóla en styrkirnir voru afhentir forsvarsmönnum félaganna nú í byrjun árs.

Reiði vegna rusls

Reiðir Napólíbúar hindruðu lestarferðir, köstuðu steinum að lögreglu og veltu bílum í morgun til þess að mótmæla áætlunum borgaryfirvalda um að opna aftur umdeilda sorphauga.

Ástþór neitar að staðfesta framboð

Ástþór Magnússon vill ekki staðfesta fréttir um að hann hyggist bjóða sig aftur fram til forseta. Hann ætlar sér að ræða við fréttamenn um málið um miðjan mánuðinn.

Bloggari í haldi vegna skrifa sinna

Yfirvöld í Saudí Arabí neita að láta bloggarann Fouad al-Farhan lausan en hann hefur verið í haldi vegna skrifa sinna í meira en mánuð. Talsmaður innanríkisráðuneytisins í landinu, Mansour al-Turki, hefur staðfest að al-Farhan sé í haldi vegna öryggisástæðna en neitar að gefa upp hverjar þær eru.

Íraskur hermaður banaði bandaríkjamönnum

Íraskur hermaður skaut tvo bandaríska hermenn til bana og særði þrjá til viðbótar þann 26 desember síðastliðinn. Íraskur túlkur féll einnig í skotárásinni. Óstaðfestar fréttir hafa borist af þessu atviki undanfarna daga en það var fyrst staðfest af bandrískum yfirvöldum í dag.

Zapatero til Líbanon

Jose Luis Zapatero, forsætisráðherra Spánar, fór í dag í óvænta heimsókn til Suður-Líbanon. Zapatero hyggst þar heimsækja 1100 spænska hermenn sem þjóna með friðargæsluliði Sameinuðu þjóðana á svæðinu. Með Zapatero í för var varnarmálaráðherra landsins. Jose Antonio Alonso.

Bandarísk sendinefnd komin til Kenía

Sendinefnd á vegum Bandaríkjanna er nú komin til Kenía til að miðla málum í stjórnmálakreppunni sem þar ríkir eftir úrslit forsetakosninganna síðustu helgi.

Fjórtán saknað eftir flugslys

Fjórtán er saknað eftir að flugvél hrapaði í sjóinn undan strönd Venesúela seint í gær. Um borð í vélinni voru átta Ítalir, Svisslendingur og fimm Venesúelamenn sem meðal annars skipuðu flugáhöfnina.

Ógnuðu fólki og þverbrutu umferðarreglur

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í gærkvöldi konu og karl á þrítugsaldri eftir að karlmaðurinn hafði ógnað starfsmönnum í Laugardalshöll með hnífi. Þar fóru fram tónleikar Bubba Morthens.

Á 134 með útrunnin ökuréttindi

Karlmaður um tvítugt var handtekinn í nótt eftir að lögreglan í Borgarnesi stöðvaði för hans á Vesturlandsvegi. Hann var þá á 134 kílómetra hraða á klukkustund með útrunnin ökuréttindi.

Sinubruni við Akureyri í nótt

Slökkviliðið á Akureyri var um hálf tvö leytið í nótt kallað út vegna sinubruna við sumarhúsabyggð í Pétursborg rétt norðan við bæinn. Um fjögurleytið var slökkviliðið svo aftur kallað út vegna elds í skúr við borholu við Þelamörk í Eyjafjarðarsveit.

Með uppsteyt við tollverði

Tveir gistu fangaklefa lögreglunnar á Suðurnesjum í nótt. Einn vegna fíkninefnamáls sem upp kom um nóttina en annar var handtekinn við komuna til landsins í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Hafði hann verið ölvaður og með uppsteyt við tollverði.

Sjá næstu 50 fréttir