Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kastljós sendir frá sér athugasemdir vegna úrskurðar siðanefndar Kastljós hefur sent frá sér athugasemdir vegna úrskurðar Siðanefndar fyrr í dag og fara þær hér á eftir: Siðanefnd Blaðamannafélagsins sendi frá sér úrskurð í dag þar sem hún kemst að þeirri niðurstöðu að umfjöllun Kastljóss um veitingu ríkisborgararéttar til unnustu sonar Jónínu Bjartmarz umhverfisráðherra hafi verið 19.6.2007 17:19
Jafnréttisskóli í burðarliðnum Tillaga frá borgarfulltrúum Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs um undirbúning að stofnun Jafnréttisskóla var samþykkt samhljóða í borgarstjórn í dag, 19. maí. Í tillögunni segir að borgarstjórn Reykjavíkur samþykki að setja á stofn samráðshóp sem hafi það verkefni að kanna kosti þess að stofna Jafnréttisskóla. 19.6.2007 16:36
Bandaríkin og Ísrael lofa Abbas aðstoð George Bush, forseti Bandaríkjanna, segist ætla að hjálpa Mahmoud Abbas, ásamt Ísrael, í baráttunni gegn Hamas samtökunum sem nú stjórna Gaza svæðinu. „Við vonumst til að Abbas verði styrktur svo að hann geti leitt Palestínu í aðra átt," sagði Bush í byrjun fundar með forsætisráðherra Ísrael, Ehud Olmert. 19.6.2007 16:20
Hæstiréttur í Kúveit breytir dauðadómi Hæstiréttur í Kúveit hefur breytt dauðadómi, yfir fjórum málaliðum sem tengdir eru Al Quaeda, í lífstíðardóm. Um leið voru staðfestir lífstíðardómar yfir tveimur öðrum mönnum sem tengdir eru Al Qaeda. 19.6.2007 15:28
Samfylkingin skipar talsmenn Borgarstjórnarflokkur Samfylkingarinnar hefur skipað talsmenn í einstökum málaflokkum. Flokkurinn segir þetta vera nýmæli sem miði að því stuðla að markvissum málflutningi Samfylkingarinnar í öllum málaflokkum. 19.6.2007 15:21
Ástand bílstjóranna stöðugt að sögn læknis Bílstjórarnir sem lentu í árekstri í Hörgárdal eftir hádegið í dag eru ekki i lífshættu. Bílstjórarnir, tvær konur, voru fluttar á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri með sjúkrabíl. Önnur þeirra hefur verið lögð inn til frekari rannsókna. Ekki var búið að taka ákvörðun um hvort hin konan yrði lögð inn. 19.6.2007 15:06
Hlaut verðlaun fyrir uppfinningu sína Þuríður Guðmundsdóttir, grasalæknir og ilmolíufræðingur, hlaut nýlega árleg verðlaun European Union Women Inventors & Innovators Network AWARDS (EUWIIN). Þrjátíu og fimm verðlaun eru veitt konum víðs vegar að úr Evrópu í fimm flokkum, fyrir vísindi, tækni, hönnun, margmiðlun og heilsu. Fjórar konur voru tilnefndir frá Íslandi. 19.6.2007 14:47
Aðalstign Salman Rushdies vekur hörð mótmæli Mikil alda mótmæla hefur riðið yfir Pakistan í kjölfar þess að rithöfundurinn Salman Rushdie var sæmdur aðalsnafnbót. Ráðherra trúmála í ríkisstjórn Pakistans hefur sagt að ákvörðunin auki hættuna á sjálfsvígsárásum þar sem múslimar séu á þeirri skoðun að Rushdie hafi móðgað Íslam. 19.6.2007 14:33
Bleiku steinarnir afhentir þingmönnum NV kjördæmis Bleiku steinarnir, hvatningarverðlaun Femístafélags Íslands, voru afhentir á Austurvelli í morgun. Að þessu sinni voru steinarnir afhentir þingmönnum Norðvesturkjördæmis, en ástæðan fyrir valinu er sú að engin kona situr nú á þingi fyrir kjördæmið. 19.6.2007 14:25
Hálendiskort vegagerðarinnar Kjalvegur og Uxahryggjaleið eru færir umferð en Kaldidalur er ófær. Sprengjusandsleið er ennþá lokuð og Fjallabaksleiðir nyrðri og syðri eru ófærar. Leiðin í Herðubreiðalindir og í Öskju hafa verið opnaðar. 19.6.2007 14:08
Ritstjóraskipti á Vísi með haustinu Ritstjóraskipti verða á Vísi með haustinu þegar Óskar Hrafn Þorvaldsson verður ritstjóri Vísis og Þórir Guðmundsson tekur við starfi varafréttastjóra Stöðvar tvö. 19.6.2007 14:00
Atlantis yfirgefur geimstöðina Bein útsendingu var frá brottför Atlantis af Alþjóðlegu geimstöðinni á Vísi.is í dag. Flugstjóri á Atlantis er Rick Sturckow. Áhöfnin fékk nýlega nýjan meðlim, Clayton Anderson, sem er flugvirki og leysir af Suni Williams. 19.6.2007 13:56
Fimm Danir flæktir í barnaklámshring Fimm Danir eru tengdir barnaklámshringnum sem breska lögreglan upprætti fyrir skömmu. Mennirnir eru ákærðir fyrir vörslu barnakláms og einn af þeim var nýlega dæmdur fyrir misnotkun á tveimur börnum, samkvæmt ríkislögreglunni í Danmörku. 19.6.2007 13:16
12% af heilbrigðiskostnaði fer í sykursýki Nýjar rannsóknir sýna að gífurlegur hluti af því sem eytt er í heilbrigðismál í Bandaríkjunum fer í meðferð fyrir sykursjúkt fólk. Rannsóknin er byggð á gagnagrunni yfir lyfjakostnað frá 2005 og var framkvæmd af tölfræðistofnun og sýnir að um 12% af öllum kostnaði til heilbrigðismála fer í aðhlynnun sykursjúkra. 19.6.2007 13:12
Landsbankinn í samstarf við Alþjóðahúsið Alþjóðahúsið og Landsbankinn hafa gert með sér samning sem meðal annars felur í sér að bankinn styrkir húsið um tíu milljónir á þessu ári. Eftir því sem segir í tilkynningu frá bankanum og Alþjóðahúsinu hyggst bankinn einnig bjóða viðskiptavinum sínum sem eru af erlendu bergi brotnir upp á íslensku- og fjármálakennslu í samstarfi við Alþjóðahúsið. 19.6.2007 13:00
Hjallastefnan rekur leikskóla í Reykjanesbæ Í dag skrifa bæjaryfirvöld í Reykjanesbæ undir samning við Hjallastefnuna ehf. um rekstur leikskólans Akurs við Tjarnabraut sem er nýr 6 deilda leikskóli fyrir 140 börn. Skólinn mun taka til starfa í september og mun hann starfa eftir hugmyndafræði Hjallastefnunnar. 19.6.2007 12:49
Gerir ráð fyrir mjúkri lendingu Búist er við því að landsframleiðslan dragist saman um 0,1 prósent í ár þrátt fyrir stóraukinn útflutning áls í endurskoðaðri þjóðhagsspá sem birt var í morgun. Starfandi forsætisráðherra gerir ráð fyrir mjúkri lendingu í efnahagsmálum. 19.6.2007 12:45
Níu slökkviliðsmenn létust í eldsvoða Níu slökkviliðsmenn létust í Sofa Superstore húsgagnaversluninni í Charleston, Suður-Karólínu, í Bandaríkjunum þegar bygging hrundi í eldsvoða. 19.6.2007 12:39
Fjórir létust í flóði í Texas Fjórir létust í Gainesville í Texas í gær þegar flæddi yfir bæinn. Tilkynnt hefur verið um nokkra sem eru týndir. Fjöldi fólks beið á þökum húsa sinna eftir hjálp. Þrjár þyrlur voru notaðar við björgunaraðgerðirnar. 19.6.2007 12:31
Vestfirðingum verði komið til bjargar Össur Skarphéðinsson, ráðherra byggðamála, segir að Vestfirðingum verði komið til bjargar. Hörð orð gagna á víxl á milli áhrifamanna í Sjálfstæðisflokknum vegna gagnrýni á kvótakerfið. 19.6.2007 12:30
50 milljarða eignir Eignir Samvinnutrygginga, aðallega í verðbréfum, nema ríflega fimmtíu milljörðum króna. Helsta eignin er hlutur í Exista uppá 20 milljarða. 19.6.2007 12:20
Stór hluti launamuns kynjanna innbyggður í hugarfar Konur reikna með að konur sætti sig við lægri laun en karlar og konur bjóða körlum hærri laun en konum. Þetta er meðal þess sem viðamikil rannsókn á launamun kynjanna leiðir í ljós. 19.6.2007 12:18
Kanna hvort Keilisnes standi til boða undir álver Ráðamenn Alcan í Straumsvík hafa fundað með sveitarfélaginu Vogum um hvort Keilisnes standi enn til boða undir álver. Bæjarstjórn hefur í framhaldinu boðað til borgarafundar í Vogum annað kvöld til að heyra sjónarmið íbúanna til málsins. 19.6.2007 12:13
Börnum nauðgað í beinni útsendingu Lögreglan í Kanada, Ástralíu og Bandaríkjunum aðstoðaði lögregluna í Bretlandi við að uppræta umfangsmikill alþjóðlegan barnaklámhring. Hópurinn notaði netið til að dreifa barnaklámi en á síðunni mátti sjá börnum nauðgað í beinni útsendingu. 19.6.2007 12:10
Rannsakar haglabyssuárás sem tilraun til manndráps Lögregla rannsakar mál karlmanns, sem skaut af haglabyssu að eiginkonu sinni í Hnífsdal fyrir tíu dögum, sem tilraun til manndráps. Við slíkum brotum liggur allt að 16 ára fangelsi. Hæstiréttur staðfesti í gær áframhaldandi gæsluvarðhald yfir manninum til 3. júlí á grundvelli almannahagsmuna. 19.6.2007 12:03
Lögreglan frelsar fólk sem haldið var í bankaráni í Frakklandi Franska lögreglan hefur frelsað alla gíslana sem teknir voru í bankaráni í Frakklandi fyrr í morgun. Tveir ræningjar fóru inn í bankann klukkan átta í morgun að íslenskum tíma og héldu þar sex manns. Fljótlega létu þeir tvo gísla lausa en lögregla frelsaði síðar þá fjóra sem eftir voru. 19.6.2007 11:59
Á áttunda tug látnir eftir að bílsprengja sprakk í Írak Sjötíu og fimm eru látnir og hundrað og þrjátíu særðir eftir að bílsprengja sprakk nærri Sjía moskvu í miðborg Bagdad í írak í morgun. Aðeins eru um þrjár vikur frá því mannskæð bílsprengja felldi um tuttugu manns á sama svæði. 19.6.2007 11:32
Evrópuþingið hafnar þröngri skilgreiningu á vodka Evrópuþingið hefur hafnað tillögu frá þingmönnum landa í vodkabeltinu svokallaða, Póllandi, Finlandi, Eystrasaltsríkjunum, Svíþjóð og Danmörku, um að herða lagalega skilgreiningu á vodka. Löndin vildu að vodka yrði skilgreint sem drykkur sem væri búinn til úr korni eða kartöflum. Meirihluti þingmanna vildi hins vegar opnari skilgreiningu. 19.6.2007 11:25
Skammdræg eldflaug frá Norður Kóreu hafnaði í Japanshafi Norður Kóreumenn skutu í dag á loft skammdrægri eldflaug sem hafnaði í Japanshafi, að því er japanska fréttastofan NHK hefur eftir þarlendum yfirvöldum. Fréttirnar af eldflaugarskotinu þykja koma á viðkvæmum tíma, því vonir standa til að viðræðum um kjarnorkuafvopnun Norður Kóreu verði haldið áfram í júlí. 19.6.2007 11:22
Þrír vinir taka eigið líf á vikutímabili Bæjarbúar þorps í N-Írlandi eru í uppnámi eftir að þrír ungir vinir hafi framið sjálfsvíg á aðeins vikutímabili. Lee Walker, Wayne Browne og James Topley eru allir taldnir hafa hengt sig. Síðast var það Walker sem tók líf sitt á föstudaginn. Internetið er talið eiga þátt í atvikunum. 19.6.2007 11:13
Mikið mannfall í Afganistan Talið er að yfir 100 manns, bæði óbreyttir borgarar og hermenn hafi látist, og nokkrir særst í átökum milli afganskra NATO hersveita og Talíbana í suður Afganistan á þremur dögum. 19.6.2007 11:10
Varað við hruni í íshellinum í Kverkfjöllum Viðvörunarskilti hefur verið sett upp við íshellinn í Kverkfjöllum eftir að fregnir bárust af hruni úr honum. Í tilkynningu frá Landsbjörgu segir að skemmst sé að minnast þess þegar erlendur ferðamaður lést í íshellinum við Hrafntinnusker fyrir um ári síðan þegar hann varð undir hruni úr hellinum. 19.6.2007 11:09
Búist við samdrætti í landsframleiðslu í ár Búist er við því að landsframleiðslan dragist saman um 0,1 prósent í ár þrátt fyrir stóraukinn útflutning áls í endurskoðaðri þjóðhagsspá fjármálaráðuneytisins sem birt var í dag. Stóriðjuframkvæmdir og kvótaúthlutun fyrir næsta ár eru meðal þess sem veldur óvissu í spánni. 19.6.2007 10:46
Svartbjörn drap ellefu ára gamlan dreng Svartbjörn drap ellefu ára gamlan dreng sem var í útilegu með fjölskyldu sinni í American Fork Canyon, nokkrum kílómetrum fyrir utan Salt Lake City, aðfaranótt sunnudags. 18.6.2007 22:45
Mikið mannfall í Afganistan Að minnsta kosti hundrað manns þar á meðal óbreyttir borgarar, lögreglumenn og herskáir Talibanar hafa látið lífið í hörðum bardögum sem geisað hafa í suðurhluta Afganistan síðustu daga. Bardagarnir hafa aðalleg geisað í Uruzgan-héraðinu. 18.6.2007 22:27
Sprengjuleit við Hvíta húsið Fjölmiðlamiðstöð nálægt Hvíta húsinu var rýmd í dag. Það var gert eftir að sprengjuleitarhundur sýndi viðbrögð við bifreið sem verið var að nota í tengslum við heimsókn ísraelska forsætisráðherrans Ehud Olmert til landsins. 18.6.2007 21:03
Umhverfisvænir bílar koma illa út úr öryggisprófunum Sænskir bílasérfræðingar greina frá því að 18 af hverjum 37 umhverfisvænum bílum uppfylla ekki lágmarks öryggiskröfur og koma illa út úr árekstarprófunum. Á sama tíma og ríkið ýtir undir kaup á umhverfisvænum bílum með skattafríðindum eru settar hömlur á bíla með sérstakan öryggisbúnað. 18.6.2007 20:19
Þvaglekar kvenna Þvagleki er ekki uppáhalds umræðuefni fólks en hann hrjáir marga, sérstaklega konur, og er skilgreindur þannig: Ástand þar sem ósjálfráður og sannanlegur leki á þvagi orsakar bæði félagsleg og hreinlætisleg vandamál fyrir viðkomandi einstakling. 18.6.2007 20:14
Sömdu við einkaaðila vegna biðraða Langar biðraðir við leiktæki í Hljómskálagarðinum urðu til þess að borgin ákvað að semja við einkaaðila um að starfrækja leiktæki í Lækjargötu. 18.6.2007 19:28
Einkatímar hjá reyndum hryðjuverkamönnum í umferðinni Ökuníðingum er boðið uppá námskeið, til að læra að komast undan laganna vörðum, á vefsíðunni HLS.is. Þar kemur fram að tilefnið sé hærri sektir og hert viðurlög við hraðakstri vélhjóla. Boðið er upp á hópnámskeið sem og einkatíma hjá reyndum hryðjuverkamönnum í umferðinni. 18.6.2007 19:16
Nokkurra mánaða börnum bjargað frá barnaníðingum Bresku lögreglunni hefur tekist að koma upp um barnaklámhring sem teygir anga sína til þrjátíu og fimm landa. Lögreglan bjargaði þrjátíu og einu barni úr klóm barnaníðinganna á meðan á rannsókn málsins stóð, sum þeirra voru aðeins nokkurra mánaða gömul. 18.6.2007 19:09
Ráðið ræður áfram öllu Tuttugu og fjögurra manna framkvæmdaráð, sem endurnýjar sig sjálft, mun í reynd stjórna áfram tugmilljarða eignum Samvinnutrygginga, að mati Péturs Blöndal, formanns efnahags- og skattanefndar Alþingis. Hann telur einnig að það geti stangast á við stjórnarskrá að tryggingatakar missi eignarrétt sinn í þessum digru sjóðum við andlát. 18.6.2007 19:03
Virkjanagróði gerir Ásahrepp að einu ríkasta sveitarfélagi landsins Þrjár virkjanir á hálendinu gera fámennan sveitahrepp í Rangárvallasýslu að einu ríkasta sveitarfélagi landsins. Skattprósentan þar er sú lægsta á landinu og hreppurinn býður íbúum sínum auk þess upp á margskyns hlunnindi. Við virkjun Urriðafoss verður þessi hreppur enn ríkari. 18.6.2007 18:55
Ný ríkisstjórn Abbas hefur stuðning lykilaðila Ný Neyðarstjórn Mahmoud Abbas forseta Palestínu hefur stuðning lykilaðila í alþjóðasamfélaginu. Bandaríkjastjórn og Evrópusambandið ætla að hefja fjárhagsaðstoð við stjórnvöld í Palestínu á nýjan leik eftir um eins og hálfs árs hlé. 18.6.2007 18:49
Bílslysum fækkar hlutfallslega í Reykjavík Umferðaróhöppum og umferðarslysum hefur fækkað um 45 prósent í höfuðborginni frá árinu 2000 ef hliðsjón er höfð af fjölgun ökutækja. Tveir hafa látist í umferðinni í ár en á sama tíma í fyrra höfðu 7 látist í umferðarslysum. 18.6.2007 18:39