Bílslysum fækkar hlutfallslega í Reykjavík Jón Örn Guðbjartsson skrifar 18. júní 2007 18:39
Umferðaróhöppum og umferðarslysum hefur fækkað um 45 prósent í höfuðborginni frá árinu 2000 ef hliðsjón er höfð af fjölgun ökutækja. Tveir hafa látist í umferðinni í ár en á sama tíma í fyrra höfðu 7 látist í umferðarslysum. Lögregla telur að vegabætur eigi stóran þátt í snarbættri umferðarmenningu auk þess sem hert sektarúrræði skili árangri þegar fram í sækir. Oddur Árnason, yfirlögregluþjónn á Selfossi, telur að víravegrið á Hellisheiði, sem vélhjólamenn hafa kvartað yfir, hafi sannað tilverurétt sinn. Tvöföldun Reykjanesbrautar hafi auk þess dregið verulega úr slysum. Í höfuðborginni hefur slysum fækkað mikið hlutfallslega á sex ára tímabili. Bifreiðum hefur fjölgað mikið í borginni en tjónum fækkað. Óhöpp eða slys með meiðslum árið 2000 voru 494 miðað við 100 þúsund ökutæki. Árið 2006 voru slysin hins vegar 277 miðað við sama fjölda ökutækja. Kristján Ólafur Guðnason segir að þrátt fyrir að margur gæti ætlað að slysum sé að fjölga mikið, þá fækki þeim hlutfallslega miðað við fjölda ökutækja. Sektarúrræði hafa verið hert mikið að undanförnu og telur lögreglan að ökumenn muni hægja verulega á sér á næstunni því sektirnar séu það háar að ökumenn finni rækilega fyrir þeim. Hærri sektir auki þannig öryggi í umferðinni og dragi enn frekar úr slysum. Áhrifa hærri sekta er þó ekki tekið að gæta enn því á sjálfvirkum mælum vegagerðarinnar kemur fram að stór hluti ökumanna ekur of hratt og hraðast fara menn um Mývatnsöræfi. Þar ekur verulegur hluti ökuamanna á meira en 120 km. hraða á klukkustund.
Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Innlent Hitamet í maí slegið í Bretlandi Erlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Innlent Fleiri fréttir Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns Sjá meira