Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Tekjur af varnarliðinu minnka Tekjur Íslendinga af varnarliðinu í Keflavík hafa farið hraðminnkandi á síðustu árum. Þær eru nú innan við 1% af vergri landsframleiðslu, og voru um 8 milljarðar í fyrra. 17.3.2006 13:30
Ekki eitrað fyrir Milosevic Ekkert bendir til þess að eitrað hafi verið fyrir Slobodan Milosevic, fyrrverandi forseta Júgóslavíu, sem lést í haldi stríðsglæpadómstólsins í Haag í Hollandi um síðustu helgi. Þetta kemur fram í bráðabirgðaniðurstöðu blóðrannsóknar sem birtar voru í dag. 17.3.2006 13:30
Slökkviliðsmenn álykta Starfsmenn slökkviliðsins á Keflavíkurflugvelli telja brottför Varnarliðsins kalla á breytingar og meiriháttar uppstokkun á rekstri og stjórnsýslu Keflavíkurflugvallar, svo og öllum flugrekstrar og flugöryggismálum Íslands. Þetta kemur fram í ályktun sem almennur félagsfundur starfsmanna slökkviliðsins sendi frá sér í morgun. 17.3.2006 13:15
Umfangsmestu aðgerðir frá innrás Stærstu hernaðaraðgerðir Bandaríkjamanna í Írak, síðan herinn réðst inn í landið árið 2003, hófust í gær. Yfir 50 flugvélar og um 1500 bandarískir hermenn taka þátt í aðgerðunum. Talið er að hermennirnir séu búnir að handtaka um 40 manns. 17.3.2006 13:15
300 handteknir í óeirðum Til óeirða kom í grennd við Sorbonne-háskólann í miðborg Parísar í gærkvöld. Um þrjú hundruð manns voru handteknir þegar námsmenn mótmæltu nýjum atvinnulögum ríkisstjórnarinnar. 17.3.2006 12:52
Samt hægt að tengjast evrunni Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna, telur hægt að tengjast evrunni og grípur til varna fyrir Valgerði Sverrisdóttur viðskiptaráðherra. 17.3.2006 12:45
Tveggja krónu afsláttur af eldsneyti Atlantsolía og FÍB, Félag íslenskra bifreiðaeigenda, undirrita í dag samning um afslátt af eldsneyti og veitir samningurinn félögum FÍB tveggja krónu afslátt af eldsneyti. Með samningnum skuldbindur Atlantsolía sig til að veita engum öðrum en félögum FÍB jafnmikinn afslátt. Að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá FÍB þá mun afslátturinn gera það að verkum að félagsmenn geta sparað samanlagt um 80 milljónir króna í eldsneytiskaupum. Athygli vekur að samningurinn er undirritaður nú en í gær hækkuðu stóru olíufélögin bensínverðið hjá sér. 17.3.2006 12:28
Bréf til Bandaríkjamanna sent Íslensk stjórnvöld hafa ritað bandarískum stjórnvöldum bréf og spurt hvaða viðbúnað þau ætli að hafa hér á landi til að tryggja varnir landsins eftir að herþoturnar fjórar og þyrlur hersins fara af landi brott. Hann vill ekki svara því hvaða lágmarksviðbúnaður sé ásættanlegur fyrir íslensk stjórnvöld. 17.3.2006 12:17
Skoða greiningar með gagnrýnisaugum Hlutabréf í Kauphöll Íslands hafa stigið hægt upp á við í vikunni eftir að hafa fallið um nær 4% á mánudaginn var. Forstjóri Glitnis segir mikilvægt að fjölmiðlar skoði þær greiningar sem fram koma á fjármálamarkaðnum með gagngrýnisaugum. 17.3.2006 11:45
Nýjungar í byggingariðnaði og mannvirkjagerð Helstu nýjungar í byggingariðnaði og mannvirkjagerð og kynning á skipulagsmálum sveitarfélaga er meðal þess sem sjá má á sýningunni Verk og vit 2006 sem opnuð var í nýju sýningarhöllinni í gær. Sýningin er sú stærsta sinnar tegundar sem haldin hefur verið hér á landi. 17.3.2006 11:30
Útilokað að taka upp evru án aðildar að ESB Richard Wright, umsjónarmaður samskipta Evrópusambandsins við Ísland, segir útilokað að taka upp evruna án þess að ganga í Evrópusambandið. Hann segir samninginn um Evrópska efnahagssvæðið virka vel og að hann geti enst eins lengi og aðildarríkin telji hann fullnægjandi. 17.3.2006 11:15
Stóru olíufélögin hækka bensínverð Stóru olíufélögin og flest dótturfélaga þeirra hækkuðu bensínverð í gær og er algengt verð á sjálfsafgreiðslustöðvum tæpar 115 krónur. Orkan og Atlantsolía hækkuðu ekki og er lítrinn þar um þremur krónum ódýrari. 17.3.2006 11:00
Óttast um að maður hafi sýkst af fuglaflensu Óttast er að maður hafi sýkst af fuglaflensu í Ísrael en í morgun var staðfest að hið hættulega H5N1 afbrigði flensunnar hefði greinst þar í landi. 17.3.2006 11:00
Eldur í Guðmundi VE Töluvert tjón varð þegar eldur kviknaði í aftari frystilest Guðmundar VE í skipasmíðastöð í Póllandi í gærkvöldi. Skipið er í eigu Ísfélags Vestmannaeyja Lengja átti skipið og voru framkvæmdir við það að hefjast þegar eldurinn kviknaði. 17.3.2006 10:44
Fatah ekki með Fatah-samtök Mahmouds Abbas, forseta Palestínumanna, hafa ákveðið að taka ekki þátt í myndun ríkisstjórnar með Hamas-liðum, sem unnu meirihluta á þingi heimastjórnar Palestínumanna í kosningum í janúar. Þetta er haft eftir ónafngreindum heimildarmanni innan Fatah. 17.3.2006 10:15
Fuglaflensa í Ísrael Fuglaflensa af hinum hættulega H5N1 stofni hefur greinst í kalkúnahræjum sem fundust á dögunum í Suður-Ísrael. Talsmaður ísraelska landbúnaðarráðuneytisins staðfesti þetta í morgun. 17.3.2006 10:00
FTSE yfir 6000 stig FTSE, enska hlutabréfavísitalan fór yfir 6000 stig þegar Kauphöllin í Lundúnum opnaði í morgun. Það er í fyrsta sinn í 5 ár. 17.3.2006 09:45
Málverk eftir Van Gogh endurheimt Lögreglan í Hollandi hefur endurheimt málverk eftir Van Gogh, eitt það síðasta sem hann málaði í Hollandi, en því var stolið fyrir sjö árum. Verkið, sem er óskemmt, var málað árið 1885 og er nú í eigu Van Lanschot-bankans þar í landi. Tveir menn 25 og 33 ára hafa verið handteknir vegna málsins en rannsókn þess stendur þó enn yfir. 17.3.2006 09:30
Reyndu að stinga lögreglu af Tveir karlmenn á ósksráðum fjórhjólum reyndu í gærkvöldi að stinga lögregluna af þegar hún sá til þeirra suður í Sandgerði. Annar hvarf á fullri ferð út í náttmyrkrið en hinn náði ekki fullu valdi á hjólinu eftir að hafa farið í loftköstum yfir hraðahindrun, og náði lögreglan að króa hann af. Grunur leikur á hver hinn er, og verður rætt við hann í dag. 17.3.2006 09:15
Bjóða Hamasmönnum til Strassborgar Evrópuráðið hefur boðið palenstínskum þingmönnum úr röðum Hamas-samtakanna til Strassborgar í þeirri von að koma megi á viðræðum þeirra og ísraelskra þingmanna. Ísraelska utanríkisráðuneytið fordæmir hugmyndir um að bjóða Hamas á fund Evrópuráðsins þar sem þeir segja Hamas ekkert annað en hryðjuverkasamtök. Hamas sigruðu hins vegar í þingkosningum Palestínumanna fyrir skömmu og munu því fá að mynda næstu heimastjórn. 17.3.2006 09:00
Sýktur ránfugl finnst í Danmörku Dönsk heilbrigðisyfirvöld hafa staðfest að fuglaflensuveira af gerðinni H5N1 hafi verið greind í dauðum ránfugli, sem fannst sunnan við Kaupmannahöfn fyrr í vikunni. H5N1 er hættulegasta afbrigði fuglaflensuveirunnar og hafa yfirvöld þar í landi lofað að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að koma í veg fyrir útbreiðslu. Danmörk er 21. Evrópulandið þar sem fuglaflensa greinist. 17.3.2006 08:45
Íransstjórn ræðir málefni Íraks Íranstjórn hefur fallist á beiðni Bandaríkjastjórnar um viðræður um ástand mála í Írak. Yfirmaður Þjóðaröryggisráðs Írans, segir að tilboði um viðræður hafi verið tekið eftir að Aziz al-Hakim, leiðtogi shita í Írak, skoraði á Íranstjórn að hefja viðræður við stjórnvöld í Washington á ný. Engin dagsetning er komin en viðræðunefnd verður skipuð á næstunni. Bréf Bandaríkjamanna hefur verið birt í fjölmiðlum í Íran þar sem fram kemur að menn hafi áhyggjur af meintum tengslum Írana við herskáa hópa í Írak. 17.3.2006 08:45
Hækka verð á bensíni Stóru olíufélögin og flest dótturfélaga þeirra hækkuðu bensínverð í gær og er algengt verð á sjálfsafgreiðslustöðvum tæpar 115 krónur. Orkan og Atlantsolía hækkuðu ekki og er lítrinn þar um það bil þremur krónum ódýrari. Hækkunin er meðal annars rakin til þess að krónan hefur lækkað og dollarinn hækkað á móti, en olíuvörur eru keyptar í dollurum. 17.3.2006 08:30
Reyndu að smygla inn kjöti, tóbaki og áfengi Smygl fannst um borð í Dettifossi í Grundartangahöfn í fyrrinótt og hafa nokkrir skipverjar viðurkennt að hafa átt það. Þeir ætluðu að smygla áfengi, munntóbaki og nautakjöti. Þetta er í annað skiptið á fjórum mánuðum sem smygl finnst í Dettifossi í Grundartangahöfn og fyrir nokkrum dögum fannst töluvert af áfengi og sígarettum í öðru flutningaskipi þar. 17.3.2006 08:15
Aðgerðir gegn andspyrnumönnum í Írak Bandaríkjaher hóf í gær umfangsmestu hernaðaraðgerðir í Írak frá því ráðist var inn í landið árið 2003. Yfir fimmtán hundruð bandarískir hermenn taka þátt í aðgerðunum sem beinast að meintum andspyrnu- og hryðjuverkamönnum nálægt borginni Samarra, um 80 km norður af Bagdad höfuðborg landsins. Talið er að aðgerðirnar muni standa yfir í nokkra daga samkvæmt bandarískum yfirvöldum. 17.3.2006 08:00
Aurbleyta á malarvegum Aurbleyta er nú sumstaðar orðin á malarvegum vegna hlýinda og þungatakmaraknir eru víðasthvar á hringveginum og ýmsum útvegum. Í hlákunni í gær hrundi smávegis af grjóti niður á Óshlíðarveginn til Bolungarvíkur en olli ekki tjóni og snjóflóð lokaði veginum yfir Dynjandisheiði í gærmorgun, en það er líka rakið til hlýindanna. 17.3.2006 07:55
Miklar óeirðir í París Til óeirða kom í miðborg Parísar í gærkvöld. Nokkur hundruð námsmenn köstuðu steinum, flöskum og stólum af nærliggjandi kaffihúsum að lögreglu sem svaraði með því að dreifa táragasi á æstan lýðinn. Þá handtók lögreglan um eitt hundrað og fimmtíu manns. Mótmælin, sem staðið hafa undanfarna daga, beinast gegn nýjum lögum ríkisstjórnarinnar sem fjalla um starfssamninga fólks undir 26 ára aldri 17.3.2006 07:45
Lögðu hald á 4 kíló af hassi Fimm manns voru úrskurðaðir í gærluvarðhald í gærkvöldi eftir víðtæka og sameiginlega aðgerð lögreglunnar í Kópavogi, Hafnarfirði, fíkniefnalögreglunnar í Reykjavík, tollgæslunnar og sérsveitar Ríkislögregustjóra, á höfuðborgarsvæðinu í gær. Gerð var húsleit í fjórum íbúðum og tveimur iðnaðarhúsum vegna gruns um stórfellt fíkniefnamisferli og var lagt hald á rösklega fjögur kíló af hassi og hátt í hálft kíló af anfetamíni. Alls voru tólf handteknir en sjö voru látnir lausir að yfirheyrslum loknum. 17.3.2006 07:15
Norræn samkeppni í stað samvinnu Norræn samvinna vék fyrir norrænni samkeppni í Ráðhúsi Reykjavíkur í kvöld þar sem Magnus Carlsen tryggði sér sigur á Glitnismótinu í hraðskák. Norska undrabarnið lagði Hannes Hlífar Stefánsson í úrslitum. 16.3.2006 23:45
Stórsýning byggingariðnaðar í sýningarhöll Helstu nýjungar í byggingariðnaði og mannvirkjagerð og kynning á skipulagsmálum sveitarfélaga er meðal þess sem sjá má á sýningunni Verk og vit 2006 sem opnuð var í nýju sýningarhöllinni í dag. Sýningin er sú stærsta sinnar tegundar sem haldin hefur verið hér á landi. 16.3.2006 23:31
Margt bogið við kvótaúthlutanir í Sandgerði Smábátaeiganda í Sandgerði finnst margt bogið við kvótaúthlutanir bæjarstjórnarinnar. Bæjarstjóri vísar öllum ásökunum á bug. 16.3.2006 23:00
Magnus Carlsen sigraði á Glitnismótinu Norska undrabarnið Magnus Carlsen gerði sér lítið fyrir og sigraði á Glitnismótinu í hraðskák sem lauk fyrir stundu í Ráðhúsi Reykjavíkur. Magnús lagði Hannes Hlífar Stefánsson í úrslitum tvö núll en Hannes Hlífar rann út á tíma í seinni skákinni. 16.3.2006 21:06
Hannes Hlífar í undanúrslit á Glitnismótinu Glitnismótinu í hraðskák, sem nú fer fram í Ráðhúsi Reykjavíkur er senn að ljúka en eftir eru tvær skákir í átta manna úrslitum. Hannes Hlífar Stefánsson komst í undanúrslit fyrir nokkrum mínútum þegar hann lagði Tatíönu Vasilevich í spennandi viðureign þá er heimsmeistarinn í hraðskák, Indverjinn Vishy Anand, einnig kominn í undanúrslit. 16.3.2006 19:26
Ekki þörf á sýnilegum loftvörnum Íslendingar þurfa ekki sýnilegar loftvarnir, segir forstöðumaður sænsku friðarrannsókna- stofnunarinnar SIPRI. Íslendingar verði að sætta sig við að engin þjóð muni senda hingað tæki og mannafla í líkingu við þann sem verið hefur í Keflavík. 16.3.2006 19:15
Björn segi af sér vegna Baugsmáls Björn Bjarnason dómsmálaráðherra var í dag hvattur til þess á Alþingi að axla pólitíska ábyrgð á Baugsmálinu. Stjórnarandstæðingar mæltust til þess að hann segði af sér í framhaldi af dómi Héraðsdóms í gær. 16.3.2006 19:04
Nýtt mannréttindaráð samþykkt Nýtt mannréttindaráð Sameinuðu Þjóðanna hefur verið samþykkt og kemur í stað gömlu mannréttindanefndarinnar. Leyfilegt verður að reka aðildarríki úr ráðinu ef þau brjóta mannréttindi. 16.3.2006 19:00
Handritin heim frá Svíþjóð? Ákvörðun sænska þjóðfræðisafnsins um að skila indíanaflokki merkum forngrip, vekur upp spurningu sem snertir Íslendinga. Í sænskum söfnum eru nefnilega varðveitt einhver merkustu handrit sem rituð voru á Íslandi í fornöld, meðal annars skinnhandrit af Snorra-Eddu frá því um þrettánhundruð og handrit af Konungasögum. 16.3.2006 18:53
Skrifar bréf til Bush Bandaríkjaforseta Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra hyggst skrifa George Bush Bandaríkjaforseta bréf í dag og óska eftir nánari útlistun Bandaríkjastjórnar á því hvernig vörnum Íslands verði háttað í framtíðinni. Þá hefur Halldór beðið framkvæmdastjóra NATO að taka málið upp á fundi með Bush á mánudag. Geir H. Haarde utanríkisráðherra segir að gildi varnarsamningsins verði lítið sem ekkert, takist ekki að ná viðunandi niðurstöðu um skipan varnarmála landsins. Þetta kom fram í umræðum um utanríkismál á Alþingi í dag 16.3.2006 18:45
Athuga þarf varnarsamstarf við nágrannaþjóðir Björn Bjarnason dómsmálaráðherra segir brottflutning hersins ekki koma á óvart heldur sé nýtt í málinu hvaða tími sé til stefnu. Hann vill gera samninga við aðrar þjóðir eins og til dæmis Dani, Norðmenn eða Breta samhliða varnarsamningnum. 16.3.2006 18:45
Ekki hægt að fylla skarð þyrlusveitar hersins að fullu Ein af fimm þyrlum varnarliðsins er tiltæk með skömmum fyrirvara sem stendur. Dómsmálaráðherra segir ekki hægt að fylla skarð þyrlusveitar hersins að öllu leyti. 16.3.2006 18:45
Vatnalög samþykkt frá Alþingi Vatnalagafrumvarp iðnaðarráðherra, sem mikill styr hefur staðið um síðustu daga, var samþykkt sem lög frá Alþingi á fimmta tímanum í dag með 26 atkvæðum gegn 19. 16.3.2006 17:15
Fallinn á fyrsta prófi Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði í umræðum um varnarsamninginn á Alþingi í dag, að Geir H. Haarde, utanríkisráðherra hefði fallið á fyrsta prófi sínu í embætti. 16.3.2006 17:06
H5N1 í Danmörku Heilbrigðisyfirvöld í Danmörku hafa staðfest að Músvákur sem fannst dauður í vikunni var smitaður af H5N1 stofni fuglaflensu. Mikill viðbúnaður er nú þar sem hræið fannst. 16.3.2006 17:01
Umfangsmiklar loftárásir á Samarraborg Bandaríkjaher hóf í dag einhverjar umfangsmestu loftárásir sínar á Írak síðan þeir réðust inn í landið árið 2003. Bandarískra og íraskra hersveitir gera nú loftárásir á felustaði andspyrnumanna í borginni Samarra. 16.3.2006 16:56
Kemur út sex daga vikunnar í 700-900 þúsund eintökum Dagsbrún stefnir að því að hefja útgáfu fríblaðs í Danmörku á þessu ári. Gunnar Smári Egilsson, forstjóri Dagsbrúnar, segir að miðað sé við að upplag blaðsins verði 700-900 þúsund eintök og það komi út sex daga vikunnar. 16.3.2006 16:29