Fleiri fréttir Refsingu frestað í skjalafalsmáli Kona á fimmtugsaldri var fundin sek fyrir skjalafals í Héraðdsómi Reykjaness í dag. Hafði hún falsað tvo lyfseðla, breytt ávísuðu magni á báðum seðlunum og breytt öðrum úr einnota lyfseðil í fjölnota. Hún játaði brot sín skýlaust fyrir dómi og var tekið tillit til þess og einnig framlagðra sjúkraskýrslna. Refsingu var frestað haldi konan almennt skilorð í tvö ár. 21.12.2005 13:50 Samningar um yfirtöku Landsnets á flutningsvirkjum Samningar um yfirtöku Landsnets á flutningsvirkjum Landsvirkjunnar, Orkubús Vestfjarða og Rafmagnsveitna ríkisins. Samtals greiðir Landsnet hf. um 26 milljarða króna fyrir flutningsformin 21.12.2005 12:58 Tindafjöll sýknað Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í dag Tindafjöll ehf. af skaðabótakröfu. Hérðasdómur Reykjavíkur komst að því í morgun að málið væri fyrnt og sýknaði því Tindafjöll af skaðabótakröfunni. 21.12.2005 12:16 Algjör ringulreið Algjör ringulreið ríkir í New York borg vegna allsherjarverkfalls starfsmanna samgöngukerfis borgarinnar. Milljónir manna þurfa líklega að ganga borgina þvera og endilanga í nístingskulda annan daginn í röð til að komast í vinnuna. 21.12.2005 12:05 Leysa ekki vanda með skemmtanabanni Foreldrar, lögregla og skólayfirvöld verða að bregðast við drykkju unglinga en vandamál henni tengd verða ekki leyst með því að banna skemmtanahöld nemenda segir rektor Menntaskólans við Sund. Lögreglan í Reykjavík hefur bannað skemmtanahald nemenda skólans fram á vor vegna drykkjuláta og uppákoma á síðustu tveimur böllum skólans. 21.12.2005 12:00 Þrír sækjast eftir stöðu sýslumanns á Hólmavík Þrír sækjast eftir stöðu sýslumanns á Hólmavík. Dómsmálaráðherra skipar í embættið frá og með 1. janúar 2006 21.12.2005 11:55 Stúlka slasast illa á hönd Stúlka slasaðist illa á handarbaki þegar hún festi höndina í roðvél í fiskvinnslunni í Keflavík í morgun. Að sögn lögreglunnar á staðnum er óljóst hversu illa útleikin höndin er en töluvert af handarbakinu flettist af. Stúlkan var flutt með sjúkrabíl á Landsspítalann Háskólasjúkrahús í Fossvogi og að sögn læknis lögð inn á lýtarlækningardeild. 21.12.2005 11:50 Skráningartímabil fyrir Avion Group hefst á morgun. Á morgun hefst skráningartímabil fyrir hlutafé í Avion Group. Markaðsvirði útboðsins verður 6 milljarðir króna. Boðnir verða út 157 til 175 milljónir hluta og verður verð á hlut á bilinu 34,3 til 38,3. Einungis fagfjárfestum er heimilað að taka þátt og er lágmarksfjárhæðin 5 milljónir króna að markaðsvirði. 21.12.2005 11:45 Bilun í heitavatnsæð síðdegis í gær Bilun varð í heitavatnsæð við dælustöð í Stekkjabakka síðdegis í gær. Unnið var að viðgerð í gærkvöldi og nótt til að valda sem minnstum óþægindum. 21.12.2005 11:30 Síðasti dagurinn til að senda jólakortin Íslendingar eyða um það bil þrjú hundruð og fjörtíu milljónum króna í jólakort og sendingarkostnað um þessi jól. Það jafngildir því að sérhvert mannsbarn á Íslandi eyði um það bil eitt þúsund fimmtíu og sjö krónum í þessa gömlu hefð. 21.12.2005 11:15 Ungir hugvitsmenn vinna til verðlauna Fjórar íslenskar hugmyndir hlutu verðlaun í nýsköpunarsamkeppni sem InnoEd verkefnið stóð fyrir. Að verkefninu standa Íslendingar, Bretar, Finnar og Noregur og er markmið þess að koma á fót menntakerfi sem styður kennslufræðileg markmið nýsköpunar. 21.12.2005 11:03 Sýknað af bótakröfu starfsmanns Hæstiréttur hefur sýknað Ístak af kröfu starfsmanns fyrirtækisins sem slasaðist þegar hann féll til jarðar þar sem hann stiklaði milli gólfbita í Smáralind þegar hún var í byggingu. Varanleg örorka mannsins er metin fimmtán prósent. 21.12.2005 11:00 Íbúðalánasjóður traustur Íbúðalánasjóður nýtur trausts almennings samkvæmt nýrri skoðanakönnun IMG Gallup. 21.12.2005 10:00 Byggingastjóri greiði fyrir galla á húsi Byggingastjóri parhúss í Garðabæ var í gær dæmdur til að greiða eiganda hússins eina og hálfa milljón króna í skaðabætur vegna verulegra galla sem voru á byggingu hússins. 21.12.2005 09:45 Átta mánaða fangelsi fyrir fíkniefnabrot Hæstiréttur hefur dæmt karlmann á þrítugsaldri í átta mánaða fangelsi fyrir fíkniefnabrot og hylmingu með því að taka við stolinni haglabyssu, þar af eru sex mánuðir skilorðsbundnir. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður dæmt manninn til sjö mánaða óskilorðsbundins fangelsis. 21.12.2005 09:30 Verkfallið stendur enn Milljónir manna gengu til vinnu eða notuðust við reiðhjól í nístingskulda í New York í gær. Enn hefur ekki náðst samkomulag við starfsmenn almennings samgöngukerfisins í borginni sem hófu verkfall í gær. 21.12.2005 09:30 Hæstiréttur sýknaði ríkið Hæstiréttur sýknaði ríkið í gær af kröfu manns sem vildi að álagning iðnaðarmálagjalds á rekstur hans á árunum 2001 til 2004 yrði felld úr gildi. 21.12.2005 09:15 Banna kennslu á sköpunarkenningunni Alríkisdómari í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum úrskurðaði í gær að ekki mætti kenna sköpunarkenninguna í líffræðitímum í skólum í Pennsylvaníu. 21.12.2005 09:15 Hætt við uppboð á eigum Bobby Fischer Uppboð á eigum Bobby Fischer á uppboðsvefnum e-bay sem sagt var frá í fréttum NFS í síðustu viku hefur nú verið dregið til baka. Seljandinn segist reiðubúinn að afhenda Fischer eigur sínar aftur fáist einhver til að greiða flutningskostnað. 21.12.2005 09:15 Fleiri innherjamál til Fjármálaeftirlitsins Innherjamálum sem Fjármálaeftirlitið fær til skoðunar hefur fjölgað að undanförnu að því er fram kemur í Markaðnum, viðskiptablaði Fréttablaðsins í morgun. 21.12.2005 09:00 Réttarhöld yfir Saddam hefjast á ný Réttarhöldin yfir Saddam Hússein og sjö samstarfsmönnum voru að hefjast rétt í þessu. Saddam er viðstaddur réttarhöldin, þrátt fyrir að hafa neitað að taka frekari þátt í þeim fyrir tveimur vikum. 21.12.2005 08:46 Vélstjórar samþykktu samning Vélstjórar samþykktu kjarasamning sinn við Landhelgisgæsluna með 63 prósentum atkvæða. Tólf voru á kjörskrá og greiddu ellefu þeirra atkvæði. Sjö greiddu atkvæði með samningnum, tveir á móti og tvö atkvæði voru ógild. 21.12.2005 08:45 Misnota og misskilja notagildi öryggismyndavéla Norskur afbrotafræðingur segir öryggisverði misskilja og/eða misnota notkun eftirlitsmyndavéla, samkvæmt frétt í Aftenposten. Niðurstöða afbrotafræðingsins byggir á rannsókn á viðbrögðum öryggisvarða í verslunarmiðstöðvum. Þar segir að oft sé nóg að fólk hafi oft ekkert annað til saka unnið en að vera þreytulegt eða sjúskað til þess að því sé vísað út eða önnur afskipti höfð af þeim. Afbrotafræðingurinn segir að um gróflega mismunum sé að ræða og hvetur yfirvöld til aðgerða. 21.12.2005 08:30 Kosning um sjö undur veraldar Nú gefst heimbyggðinni kostur á að kjósa um sjö undur veraldar. Kosningin fer fram á netinu og þar er gefnir möguleikar á að kjósa á milli hinna fjölbreyttustu mannvirkja. Í boði eru kirkjur, hof og minnisvarða. Kínamúrinn er nú efstur á listanum og í öðru sæti er Patala höllin í Indlandi, í tíunda sæti er Rauða torgið í Moskvu. Kjósendum gefst einnig kostur á að benda á önnur mannvirki. Úrslit verða tilynnt í janúar 2007. 21.12.2005 07:37 Vinnuhópur um verndun hafsins Norrænu ríkisstjórnirnar hafa sett á laggirnar vinnuhóp um verndun hafsins. Vinnuhópurinn á að koma með tillögur Norðurlanda að sameiginlegri Evrópskri stefnu um verndun sjávar. Formaður nefndarinnar er Tore Riise frá norska strand- og sjávarútvegsráðuneytinu. 21.12.2005 07:00 Áfengi mælt í lofti ekki blóði 21.12.2005 06:00 Með eiturlyf í Norrænu Handteknir vegna smygls. 21.12.2005 06:00 Íslenskri konu vísað úr sænskum strætó Sjónskert íslensk kona stóð í stappi við strætisvagnsstjóra á Skáni í Svíþjóð. Lögregla vísaði henni úr vagninum þegar hún stóð á rétti sínum og neitaði að borga undir aðstoðarmann sinn. Málið vakti mikla athygli ytra um helgina. 21.12.2005 06:00 Harður árekstur í Njarðvík Harður árekstu varð á gatnamótum Reykjanesbrautar og Stekks í Njarðvík í dag. Einn var fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og reyndist meiðsl hans minniháttar og fékk hann að fara heim að skoðun lokinni. Bílarnir voru talsvert skemmtis og voru fjarlægðar með dráttarbifreið. 20.12.2005 23:41 Tvö umferðaróhöpp í Vestur-Húnavatnssýslu fyrr í kvöld Betur fór en á horfðist þegar ungur ökumaður velti bíl sínum í nágrenni Hvammstanga fyrr í kvöld. Bílli fór veltu en endaði á hvolfi á miðjum veginum. Ökumaðurinn, sem er nýkominn með bílpróf, var fluttur á Heilbrigðisstofnunina á Hvammstanga og reyndust meiðsl hans vera lítilsháttar. 20.12.2005 23:32 Ólíkar jóla- og áramótahefðir á Íslandi, Indlandi og í Ástralíu Í Ástralíu boðar það lukku að kyssa lögreglumann á áramótunum og Indverjar eru jafn flugeldaglaðir og Íslendingar. Kristnir Indverjar leggja rækt við trú sína og fjölskylduna yfir jólahátíðina á meðan Ástralir taka stefnuna á ströndina til jólahalds. 20.12.2005 23:08 Hjördís sátt Hjördís Hákonardóttir dómsstjóri er sátt við samkomulag sem náðst hefur milli hennar og Björns Bjarnasonar, dómsmálaráðherra vegna úrskurðar kærunefndar jafnréttismála. Kærunefndin komst að þeirri niðurstöðu á sínum tíma að dómsmálaráðherra hafi brotið jafnréttislög þegar hann skipaði Ólaf Börk Þorvaldsson hæstaréttardómara í ágúst árið 2003. 20.12.2005 23:02 Borgarstjóri þiggur ekki launahækkun Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri hefur ákveðið að úrskurður Kjaradóms frá í gær um hækkun launa æðstu embættismanna muni ekki ná til borgarstjórans í Reykjavík. 20.12.2005 22:36 Útilokar ekki sameiningu við Morgunblaðið Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Símans, útilokar ekki sameiningu við Morgunblaðið. Hluthafafundur Landssíma Íslands hf. samþykkti í dag sameiningu Símans, Skipta ehf. og Íslenska sjónvarpsfélagsins hf. sem á og rekur Skjá 1. Síminn stefnir að því að hasla sér frekari völl á fjölmiðlamarkaði, bæði innanlands og utan. 20.12.2005 21:50 Laun borgarstjóra munu ekki hækka samkvæmt ákvörðun Steinunnar Valdísar Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri hefur ákveðið að úrskurður Kjaradóms frá í gær um hækkun launa æðstu embættismanna muni ekki ná til borgarstjórans í Reykjavík. Laun borgarstjóra hafa miðast við laun forsætisráðherra, en skv. úrskurðinum áttu launin að hækka um 75.000 kr. á mánuði frá áramótum. 20.12.2005 20:36 Elton John staðfestir samvist sína Elton John og ástmaður hans eru meðal sexhundrað áttatíu og sjö samkynhneigðra para sem ætla að staðfesta samvist sína opinberlega, þegar ný lög taka gildi í Bretlandi á morgun. 20.12.2005 19:33 Brýnasta verkefnið að lækka virðisaukaskatt á matvæli Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra segir eitt brýnasta verkefnið fram undan að lækka virðisaukaskatt á matvæli. Ríkisvaldið verði að stuðla með beinum hætti að lægra vöruverði. Það verði þó að herða eftirlit með verðlagi svo skattaívilnunin lendi ekki í vasa kaupmanna. Sporin hræði í þeim efnum. 20.12.2005 19:24 Vildu horfa í augu morðingja sona þeirra Fimm Serbar, sem voru kvikmyndaðir þegar þeir myrtu sex múslíma í Bosníu árið 1995, voru leiddir fyrir rétt í Belgrad í dag. Mæður hinna myrtu eru viðstaddar réttarhöldin. Þær sögðust vilja horfa í augu mannanna sem myrtu syni þeirra. 20.12.2005 19:19 Samkomulag milli Björns og Hjördísar Samkomulag hefur tekist milli Björns Bjarnasonar, dómsmálaráðherra, og Hjördísar Hákonardóttur, dómsstjóra, vegna úrskurðar kærunefndar jafnréttismála um að ráðherra hefði brotið jafnréttislög þegar hann skipaði hæstaréttardómara haustið 2003. Björn skipaði þá Ólaf Börk Þorvaldsson hæstaréttardómara. Þetta kom fram í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins. 20.12.2005 18:59 Fékk 6 mánaða dóm fyrir að stela kókómjólk, áleggi og köku Karlmaður var dæmdur í hálfs árs skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í dag fyrir að brjótast inn í Reynisbakarí í Kópavogi í ágúst síðastliðnum og stela þaðan vörum. Ránsfengurinn var þrjár kókómjólkurfernur, oststykki, hangikjötssalat og brúnkaka. 20.12.2005 17:26 Þriggja bíla árekstur við Smáralind Þriggja bíla árekstur varð á Reykjanesbraut í nágrenni Smáralindar fyrr í dag. Þrír voru fluttir á slysadeild. Svo virðist sem meiðsl þeirra séu lítilsháttar en verið er að rannsaka hugsanlega áverka. 20.12.2005 17:17 Vetnisrafall tekinn í notkun á Keflavíkurflugvelli Geir H. Haarde utanríkisráðherra og Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, kveiktu á vetnisrafali við Flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli í dag. Rekstur rafalsins er hluti af tilraunaverkefni verkfræðideildar Bandaríkjahers með vetni sem varaafl. 20.12.2005 17:00 Forseti Íslands heimsótti Fjölskylduhjálpina Forseti Íslands kom í opinbera heimsókn í bækistöðvar Fjölskylduhjálpar Íslands í dag. Það kom honum á óvart hversu margir leita til fjölskylduhjálparinnar allan ársins hring. Hann sagði einnig augljóst að þrátt fyrir að flestir ynnu fulla vinnu næðu margir ekki endum saman. 20.12.2005 17:00 Geti kennt sjálfum sér um að vera lítið á sviðinu Andstæðingar Sjálfstæðisflokksins í borginni hafa lítið verið á sviðinu og það er þeim sjálfum að kenna, segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn, en ný skoðanakönnun sýnir að fylgi flokksins í borginni mælist nú 55,7 prósent. Borgarstjóri á von á að kannanir í febrúar gefi skýrari mynd af stöðu floikkanna. 20.12.2005 16:45 Hálka og hálkublettir víða um land Hálka og hálkublettir eru víða um land samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni frá því um klukkan þrjú í dag. Hálka er á Hellisheiði og víðar á Suðurlandi, ásamt hálkublettum. Í Þrengslum er éljagangur og snjóþekja og þá er einnig snjóþekja og hálka víða á Vesturlandi. Éljagangur er í Bröttubrekku og á Holtavörðuheiði. 20.12.2005 16:29 Sjá næstu 50 fréttir
Refsingu frestað í skjalafalsmáli Kona á fimmtugsaldri var fundin sek fyrir skjalafals í Héraðdsómi Reykjaness í dag. Hafði hún falsað tvo lyfseðla, breytt ávísuðu magni á báðum seðlunum og breytt öðrum úr einnota lyfseðil í fjölnota. Hún játaði brot sín skýlaust fyrir dómi og var tekið tillit til þess og einnig framlagðra sjúkraskýrslna. Refsingu var frestað haldi konan almennt skilorð í tvö ár. 21.12.2005 13:50
Samningar um yfirtöku Landsnets á flutningsvirkjum Samningar um yfirtöku Landsnets á flutningsvirkjum Landsvirkjunnar, Orkubús Vestfjarða og Rafmagnsveitna ríkisins. Samtals greiðir Landsnet hf. um 26 milljarða króna fyrir flutningsformin 21.12.2005 12:58
Tindafjöll sýknað Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í dag Tindafjöll ehf. af skaðabótakröfu. Hérðasdómur Reykjavíkur komst að því í morgun að málið væri fyrnt og sýknaði því Tindafjöll af skaðabótakröfunni. 21.12.2005 12:16
Algjör ringulreið Algjör ringulreið ríkir í New York borg vegna allsherjarverkfalls starfsmanna samgöngukerfis borgarinnar. Milljónir manna þurfa líklega að ganga borgina þvera og endilanga í nístingskulda annan daginn í röð til að komast í vinnuna. 21.12.2005 12:05
Leysa ekki vanda með skemmtanabanni Foreldrar, lögregla og skólayfirvöld verða að bregðast við drykkju unglinga en vandamál henni tengd verða ekki leyst með því að banna skemmtanahöld nemenda segir rektor Menntaskólans við Sund. Lögreglan í Reykjavík hefur bannað skemmtanahald nemenda skólans fram á vor vegna drykkjuláta og uppákoma á síðustu tveimur böllum skólans. 21.12.2005 12:00
Þrír sækjast eftir stöðu sýslumanns á Hólmavík Þrír sækjast eftir stöðu sýslumanns á Hólmavík. Dómsmálaráðherra skipar í embættið frá og með 1. janúar 2006 21.12.2005 11:55
Stúlka slasast illa á hönd Stúlka slasaðist illa á handarbaki þegar hún festi höndina í roðvél í fiskvinnslunni í Keflavík í morgun. Að sögn lögreglunnar á staðnum er óljóst hversu illa útleikin höndin er en töluvert af handarbakinu flettist af. Stúlkan var flutt með sjúkrabíl á Landsspítalann Háskólasjúkrahús í Fossvogi og að sögn læknis lögð inn á lýtarlækningardeild. 21.12.2005 11:50
Skráningartímabil fyrir Avion Group hefst á morgun. Á morgun hefst skráningartímabil fyrir hlutafé í Avion Group. Markaðsvirði útboðsins verður 6 milljarðir króna. Boðnir verða út 157 til 175 milljónir hluta og verður verð á hlut á bilinu 34,3 til 38,3. Einungis fagfjárfestum er heimilað að taka þátt og er lágmarksfjárhæðin 5 milljónir króna að markaðsvirði. 21.12.2005 11:45
Bilun í heitavatnsæð síðdegis í gær Bilun varð í heitavatnsæð við dælustöð í Stekkjabakka síðdegis í gær. Unnið var að viðgerð í gærkvöldi og nótt til að valda sem minnstum óþægindum. 21.12.2005 11:30
Síðasti dagurinn til að senda jólakortin Íslendingar eyða um það bil þrjú hundruð og fjörtíu milljónum króna í jólakort og sendingarkostnað um þessi jól. Það jafngildir því að sérhvert mannsbarn á Íslandi eyði um það bil eitt þúsund fimmtíu og sjö krónum í þessa gömlu hefð. 21.12.2005 11:15
Ungir hugvitsmenn vinna til verðlauna Fjórar íslenskar hugmyndir hlutu verðlaun í nýsköpunarsamkeppni sem InnoEd verkefnið stóð fyrir. Að verkefninu standa Íslendingar, Bretar, Finnar og Noregur og er markmið þess að koma á fót menntakerfi sem styður kennslufræðileg markmið nýsköpunar. 21.12.2005 11:03
Sýknað af bótakröfu starfsmanns Hæstiréttur hefur sýknað Ístak af kröfu starfsmanns fyrirtækisins sem slasaðist þegar hann féll til jarðar þar sem hann stiklaði milli gólfbita í Smáralind þegar hún var í byggingu. Varanleg örorka mannsins er metin fimmtán prósent. 21.12.2005 11:00
Íbúðalánasjóður traustur Íbúðalánasjóður nýtur trausts almennings samkvæmt nýrri skoðanakönnun IMG Gallup. 21.12.2005 10:00
Byggingastjóri greiði fyrir galla á húsi Byggingastjóri parhúss í Garðabæ var í gær dæmdur til að greiða eiganda hússins eina og hálfa milljón króna í skaðabætur vegna verulegra galla sem voru á byggingu hússins. 21.12.2005 09:45
Átta mánaða fangelsi fyrir fíkniefnabrot Hæstiréttur hefur dæmt karlmann á þrítugsaldri í átta mánaða fangelsi fyrir fíkniefnabrot og hylmingu með því að taka við stolinni haglabyssu, þar af eru sex mánuðir skilorðsbundnir. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður dæmt manninn til sjö mánaða óskilorðsbundins fangelsis. 21.12.2005 09:30
Verkfallið stendur enn Milljónir manna gengu til vinnu eða notuðust við reiðhjól í nístingskulda í New York í gær. Enn hefur ekki náðst samkomulag við starfsmenn almennings samgöngukerfisins í borginni sem hófu verkfall í gær. 21.12.2005 09:30
Hæstiréttur sýknaði ríkið Hæstiréttur sýknaði ríkið í gær af kröfu manns sem vildi að álagning iðnaðarmálagjalds á rekstur hans á árunum 2001 til 2004 yrði felld úr gildi. 21.12.2005 09:15
Banna kennslu á sköpunarkenningunni Alríkisdómari í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum úrskurðaði í gær að ekki mætti kenna sköpunarkenninguna í líffræðitímum í skólum í Pennsylvaníu. 21.12.2005 09:15
Hætt við uppboð á eigum Bobby Fischer Uppboð á eigum Bobby Fischer á uppboðsvefnum e-bay sem sagt var frá í fréttum NFS í síðustu viku hefur nú verið dregið til baka. Seljandinn segist reiðubúinn að afhenda Fischer eigur sínar aftur fáist einhver til að greiða flutningskostnað. 21.12.2005 09:15
Fleiri innherjamál til Fjármálaeftirlitsins Innherjamálum sem Fjármálaeftirlitið fær til skoðunar hefur fjölgað að undanförnu að því er fram kemur í Markaðnum, viðskiptablaði Fréttablaðsins í morgun. 21.12.2005 09:00
Réttarhöld yfir Saddam hefjast á ný Réttarhöldin yfir Saddam Hússein og sjö samstarfsmönnum voru að hefjast rétt í þessu. Saddam er viðstaddur réttarhöldin, þrátt fyrir að hafa neitað að taka frekari þátt í þeim fyrir tveimur vikum. 21.12.2005 08:46
Vélstjórar samþykktu samning Vélstjórar samþykktu kjarasamning sinn við Landhelgisgæsluna með 63 prósentum atkvæða. Tólf voru á kjörskrá og greiddu ellefu þeirra atkvæði. Sjö greiddu atkvæði með samningnum, tveir á móti og tvö atkvæði voru ógild. 21.12.2005 08:45
Misnota og misskilja notagildi öryggismyndavéla Norskur afbrotafræðingur segir öryggisverði misskilja og/eða misnota notkun eftirlitsmyndavéla, samkvæmt frétt í Aftenposten. Niðurstöða afbrotafræðingsins byggir á rannsókn á viðbrögðum öryggisvarða í verslunarmiðstöðvum. Þar segir að oft sé nóg að fólk hafi oft ekkert annað til saka unnið en að vera þreytulegt eða sjúskað til þess að því sé vísað út eða önnur afskipti höfð af þeim. Afbrotafræðingurinn segir að um gróflega mismunum sé að ræða og hvetur yfirvöld til aðgerða. 21.12.2005 08:30
Kosning um sjö undur veraldar Nú gefst heimbyggðinni kostur á að kjósa um sjö undur veraldar. Kosningin fer fram á netinu og þar er gefnir möguleikar á að kjósa á milli hinna fjölbreyttustu mannvirkja. Í boði eru kirkjur, hof og minnisvarða. Kínamúrinn er nú efstur á listanum og í öðru sæti er Patala höllin í Indlandi, í tíunda sæti er Rauða torgið í Moskvu. Kjósendum gefst einnig kostur á að benda á önnur mannvirki. Úrslit verða tilynnt í janúar 2007. 21.12.2005 07:37
Vinnuhópur um verndun hafsins Norrænu ríkisstjórnirnar hafa sett á laggirnar vinnuhóp um verndun hafsins. Vinnuhópurinn á að koma með tillögur Norðurlanda að sameiginlegri Evrópskri stefnu um verndun sjávar. Formaður nefndarinnar er Tore Riise frá norska strand- og sjávarútvegsráðuneytinu. 21.12.2005 07:00
Íslenskri konu vísað úr sænskum strætó Sjónskert íslensk kona stóð í stappi við strætisvagnsstjóra á Skáni í Svíþjóð. Lögregla vísaði henni úr vagninum þegar hún stóð á rétti sínum og neitaði að borga undir aðstoðarmann sinn. Málið vakti mikla athygli ytra um helgina. 21.12.2005 06:00
Harður árekstur í Njarðvík Harður árekstu varð á gatnamótum Reykjanesbrautar og Stekks í Njarðvík í dag. Einn var fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og reyndist meiðsl hans minniháttar og fékk hann að fara heim að skoðun lokinni. Bílarnir voru talsvert skemmtis og voru fjarlægðar með dráttarbifreið. 20.12.2005 23:41
Tvö umferðaróhöpp í Vestur-Húnavatnssýslu fyrr í kvöld Betur fór en á horfðist þegar ungur ökumaður velti bíl sínum í nágrenni Hvammstanga fyrr í kvöld. Bílli fór veltu en endaði á hvolfi á miðjum veginum. Ökumaðurinn, sem er nýkominn með bílpróf, var fluttur á Heilbrigðisstofnunina á Hvammstanga og reyndust meiðsl hans vera lítilsháttar. 20.12.2005 23:32
Ólíkar jóla- og áramótahefðir á Íslandi, Indlandi og í Ástralíu Í Ástralíu boðar það lukku að kyssa lögreglumann á áramótunum og Indverjar eru jafn flugeldaglaðir og Íslendingar. Kristnir Indverjar leggja rækt við trú sína og fjölskylduna yfir jólahátíðina á meðan Ástralir taka stefnuna á ströndina til jólahalds. 20.12.2005 23:08
Hjördís sátt Hjördís Hákonardóttir dómsstjóri er sátt við samkomulag sem náðst hefur milli hennar og Björns Bjarnasonar, dómsmálaráðherra vegna úrskurðar kærunefndar jafnréttismála. Kærunefndin komst að þeirri niðurstöðu á sínum tíma að dómsmálaráðherra hafi brotið jafnréttislög þegar hann skipaði Ólaf Börk Þorvaldsson hæstaréttardómara í ágúst árið 2003. 20.12.2005 23:02
Borgarstjóri þiggur ekki launahækkun Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri hefur ákveðið að úrskurður Kjaradóms frá í gær um hækkun launa æðstu embættismanna muni ekki ná til borgarstjórans í Reykjavík. 20.12.2005 22:36
Útilokar ekki sameiningu við Morgunblaðið Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Símans, útilokar ekki sameiningu við Morgunblaðið. Hluthafafundur Landssíma Íslands hf. samþykkti í dag sameiningu Símans, Skipta ehf. og Íslenska sjónvarpsfélagsins hf. sem á og rekur Skjá 1. Síminn stefnir að því að hasla sér frekari völl á fjölmiðlamarkaði, bæði innanlands og utan. 20.12.2005 21:50
Laun borgarstjóra munu ekki hækka samkvæmt ákvörðun Steinunnar Valdísar Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri hefur ákveðið að úrskurður Kjaradóms frá í gær um hækkun launa æðstu embættismanna muni ekki ná til borgarstjórans í Reykjavík. Laun borgarstjóra hafa miðast við laun forsætisráðherra, en skv. úrskurðinum áttu launin að hækka um 75.000 kr. á mánuði frá áramótum. 20.12.2005 20:36
Elton John staðfestir samvist sína Elton John og ástmaður hans eru meðal sexhundrað áttatíu og sjö samkynhneigðra para sem ætla að staðfesta samvist sína opinberlega, þegar ný lög taka gildi í Bretlandi á morgun. 20.12.2005 19:33
Brýnasta verkefnið að lækka virðisaukaskatt á matvæli Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra segir eitt brýnasta verkefnið fram undan að lækka virðisaukaskatt á matvæli. Ríkisvaldið verði að stuðla með beinum hætti að lægra vöruverði. Það verði þó að herða eftirlit með verðlagi svo skattaívilnunin lendi ekki í vasa kaupmanna. Sporin hræði í þeim efnum. 20.12.2005 19:24
Vildu horfa í augu morðingja sona þeirra Fimm Serbar, sem voru kvikmyndaðir þegar þeir myrtu sex múslíma í Bosníu árið 1995, voru leiddir fyrir rétt í Belgrad í dag. Mæður hinna myrtu eru viðstaddar réttarhöldin. Þær sögðust vilja horfa í augu mannanna sem myrtu syni þeirra. 20.12.2005 19:19
Samkomulag milli Björns og Hjördísar Samkomulag hefur tekist milli Björns Bjarnasonar, dómsmálaráðherra, og Hjördísar Hákonardóttur, dómsstjóra, vegna úrskurðar kærunefndar jafnréttismála um að ráðherra hefði brotið jafnréttislög þegar hann skipaði hæstaréttardómara haustið 2003. Björn skipaði þá Ólaf Börk Þorvaldsson hæstaréttardómara. Þetta kom fram í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins. 20.12.2005 18:59
Fékk 6 mánaða dóm fyrir að stela kókómjólk, áleggi og köku Karlmaður var dæmdur í hálfs árs skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í dag fyrir að brjótast inn í Reynisbakarí í Kópavogi í ágúst síðastliðnum og stela þaðan vörum. Ránsfengurinn var þrjár kókómjólkurfernur, oststykki, hangikjötssalat og brúnkaka. 20.12.2005 17:26
Þriggja bíla árekstur við Smáralind Þriggja bíla árekstur varð á Reykjanesbraut í nágrenni Smáralindar fyrr í dag. Þrír voru fluttir á slysadeild. Svo virðist sem meiðsl þeirra séu lítilsháttar en verið er að rannsaka hugsanlega áverka. 20.12.2005 17:17
Vetnisrafall tekinn í notkun á Keflavíkurflugvelli Geir H. Haarde utanríkisráðherra og Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, kveiktu á vetnisrafali við Flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli í dag. Rekstur rafalsins er hluti af tilraunaverkefni verkfræðideildar Bandaríkjahers með vetni sem varaafl. 20.12.2005 17:00
Forseti Íslands heimsótti Fjölskylduhjálpina Forseti Íslands kom í opinbera heimsókn í bækistöðvar Fjölskylduhjálpar Íslands í dag. Það kom honum á óvart hversu margir leita til fjölskylduhjálparinnar allan ársins hring. Hann sagði einnig augljóst að þrátt fyrir að flestir ynnu fulla vinnu næðu margir ekki endum saman. 20.12.2005 17:00
Geti kennt sjálfum sér um að vera lítið á sviðinu Andstæðingar Sjálfstæðisflokksins í borginni hafa lítið verið á sviðinu og það er þeim sjálfum að kenna, segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn, en ný skoðanakönnun sýnir að fylgi flokksins í borginni mælist nú 55,7 prósent. Borgarstjóri á von á að kannanir í febrúar gefi skýrari mynd af stöðu floikkanna. 20.12.2005 16:45
Hálka og hálkublettir víða um land Hálka og hálkublettir eru víða um land samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni frá því um klukkan þrjú í dag. Hálka er á Hellisheiði og víðar á Suðurlandi, ásamt hálkublettum. Í Þrengslum er éljagangur og snjóþekja og þá er einnig snjóþekja og hálka víða á Vesturlandi. Éljagangur er í Bröttubrekku og á Holtavörðuheiði. 20.12.2005 16:29