Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Utanríkisráðuneytið neitar styrk Mannréttindaskrifstofu Íslands, sem neitað var um styrk frá utanríkisráðuneytinu þar sem veita átti fé til mannréttindamála á alþjóðavettvangi, er enn neitað um fjárframlög. Ýmis innlend verkefni hafa þó hlotið náð fyrir augum ráðuneytisins. Ráðuneytið hyggst ekki styrkja skrifstofuna á þessu ári þó enn virðist vera til fjármagn. 18.11.2005 16:00
Félagsmenn ánægðir með starfsemi SÍB Viðhorfskönnun SÍB, Samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja, sýnir að lang flestir félagsmenn eru ánægðir með starfsemi samtakanna, starfsumhverfi félagsmanna er gott, en vinnuálag er mikið. Félagsmenn telja sig einnig þurfa meiri tíma til að uppfæra menntun sína. Bæði bankarnir og sambandið standa sig vel í að kynna námsframboð en starfsmenn fjármálafyrirtækja hafa minni tækifæri en æskilegt er til að auka persónulega hæfni sína. Starfsmenn eru almennt ánægðir með yfirmenn og samband sitt við samstarfsmenn 18.11.2005 16:00
Fræðimenn heiðraðir Tveir íslenskir fræðimenn, Jónas Kristjánsson og Svavar Sigmundsson, voru nýlega heiðraðir með veglegum verðlaunum frá Kungliga Gustav Adolfs Akademien í Uppsölum. Jónas hlaut verðlaun úr sjóði sem kenndur er við Nils Ahnlund, Svavar úr sjóði Torsten Janckes. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn á árshátíð akademíunnar í hinni fornu konungshöll í Uppsölum 6. nóvember s.l. Á myndinni sem fylgir hér með sjást fræðimennirnir, Svavar og Jónas, að athöfn lokinni. 18.11.2005 15:45
Heilbrigðisráðherra skipar framkvæmdanefnd Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra hefur skipað framkvæmdanefnd um byggingu nýs Landspítala sem á að hafa yfirumsjón með undirbúningi framkvæmda og mannvirkjagerð á lóð spítalans. Þetta var ákveðið eftir að ríkisstjórnin tilkynnti að 18 milljörðum af söluandvirði Símans yrði varið til byggingar nýs spítala. 18.11.2005 15:15
ÖBÍ fagnar samþykkt ríkisstjórnar um eingreiðslu Öryrkjabandalag Íslands fagnar þeirri ákvörðun ríkisstjórnarinnar að öryrkjar, ellilífeyrisþegar og fólk á atvinnuleysisskrá fái eingreiðslu í samræmi við það sem um var samið á almennum vinnumarkaði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá samtökunum. 18.11.2005 14:59
Fimmtíu fallnir í árásum í Írak í dag Um fimmtíu manns hafa fallið í hryðjuverkaárásum í Írak í dag. Að minnsta kosti átta manns féllu og yfir 40 særðust er tvær bílsprengjuárásir voru gerðar í Bagdad í morgun. Talið er að hótel, sem erlendir blaðamenn gista á, hafi verið skotmark árásarinnar sem talið er að hafi verið sjálfsmorðsárás. Innanríkisráðuneytið er einnig skammt frá. Þá féllu yfir 40 manns og yfir fimmtíu særðust í tveimur sjálfsmorðsárásum inni í tveimur moskum sjíta í austurhluta Íraks. 18.11.2005 14:30
Stjórnarsáttmáli undirritaður í Þýskalandi Kristilegir demórkratar og jafnaðarmenn í Þýskalandi undirrituðu í morgun sáttmála um stjórnarsamstarf í landinu eftir nærri tveggja mánaða samningaviðræður. 18.11.2005 14:15
Raforkurverð breytist líklega lítið Raforkuverð mun líklega breytast lítið þegar ný raforkulög taka gildi um áramótin. Söluhluti raforkunnar er aðeins fimm til átta prósent af verðinu, að sögn talsmanns Orkuveitu Reykjavíkur. 18.11.2005 14:12
Ísland verði alþjóðleg fjármálamiðstöð Nefnd á vegum forsætisráðuneytis verður skipuð á næstunni til að gera tillögur um hvernig megi gera Ísland að alþjóðlegri fjármálamiðstöð. Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra tilkynnti þetta í viðtali á NFS í dag og sagði að Sigurður Einarsson stjórnarformaður KB banka yrði formaður nefndarinnar. 18.11.2005 13:58
Óbreytt í sex ár Sjómenn hafa haft óbreytt laun í sex ár að mati formanns Farmanna- og fiskimannasambandsins. Ungir sjómenn segja þjóðfélagið misskilja meint ofurlaun sjómanna og hvetja stéttarfélög sín til að leita leiða til úrbóta. 18.11.2005 13:32
Breytingartillaga væntanleg Hilmar Örn Hilmarsson Allsherjargoði skorar á alþingismenn að breyta lögum svo söfnuðir geti gefið samkynhneigða saman í hjónaband. Guðrún Ögmundsdóttir alþingismaður ætlar að leggja fram breytingartillögu á Alþingi í þessa átt, þegar frumvarp ríkisstjórnarinnar um aukin rétt samkynhneigðra verður lagt fram á þinginu. 18.11.2005 13:16
Best aftur á gjörgæslu Fyrrvernandi knattspyrnugoðið George Best hefur aftur verið lagður inn á gjörgæsludeild vegna alvarlegrar sýkingar. Best var lagður inn á sjúkrahús í síðasta mánuði vegna alvarlegra veikinda og var jafnvel búist við að hann myndi þá enda lífdaga sína. Hins vegar hefur hann sýnt ýmis batamerki undanfarnar vikur þar til í dag að hann var aftur lagður inn á gjörgæslu. 18.11.2005 13:00
Bannvænn tekíladauði Barþjónn í Vikersund í Noregi telur að hann hafi selt manni meira en 19 tekílaskot í maí árið 2003 með þeim afleiðingum að maðurinn lést. Þetta kom fram fyrir rétti í dag þar sem málið er til meðferðar gegn barþjóninum. 18.11.2005 12:45
Innan við hundrað bílar brenndir í nótt Innan við eitt hundrað bílar voru brenndir í Frakklandi í nótt, sem er mun minna en undanfarnar þrjár vikur og segir lögreglan ástandið orðið nær eðlilegt í stórborgum landsins. Þegar verst lét voru á annað þúsund bílar brenndir á einni nóttu. 18.11.2005 12:45
Myrti ófríska konu Ung kona af víetnömskum uppruna lést eftir hnífsstungu í Osló í gær. Konan var á gangi með barn í barnavagni þegar fyrrum sambýlismaður og barnsfaðir hennar kom aðsvífandi og stakk hana. 18.11.2005 12:45
Flugvél magalent í Atlanta Allir farþegar sluppu ómeiddir þegar lítil flugvél þurfti að magalenda í Atlanta í Bandaríkjunum í gær. Skömmu áður en vélin náði á áfangastað kom í ljós að lendingarbúnaðurinn var bilaður og því ekki um annað að ræða en að reyna að magalenda vélinni. 18.11.2005 12:30
Mikil uppsveifla í Danmörku Mikil uppsveifla er í efnahagslífinu í Danmörku. Talið er að á næstu tveimur árum muni fjöldi starfa ná sögulegu hámarki og atvinnuleysi muni mælast það minnsta í þrjátíu ár. 18.11.2005 12:15
Úrvalsvísitalan á hraðri uppleið Úrvalsvísitalan er á hraðri uppleið í Kauphöllinni og vísitalan hefur hækkað um hátt í fimmtíu prósent í ár, meira en nokkru sinni fyrr. Hún hefur aldrei verið jafn há og engin lækkun er fyrirsjáanleg, að sögn forstjóra Kauphallarinnar. 18.11.2005 12:00
Flughált á Hrafnseyrarheiði og Klettshálsi Flughált er á Hrafnseyrarheiði og Klettshálsi. Hálkublettir eru á Vesturlandi og Vestfjörðum en háka á fjallvegum. Hálka og hálkublettir eru á Norður-, Norðaustur- og Austurlandi. Hálkublettir eru frá Breiðdalsvík að Kvískerjum. Greiðfært er um Suðurland. 18.11.2005 11:45
Eingreiðsla einnig til öryrkja og ellilífeyrisþega Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í dag að öryrkjar, ellilífeyrisþegar og aðilar á atvinnuleysisskrá muni fá eingreiðslu þá sem aðilar vinnumarkaðarins sömdu um sín í milli fyrr í vikunni. Eingreiðslan reiknast sem álag á tekjutryggingu. Miðað er við að greiðslan komi til útborgunar 1. desember næst komandi. 18.11.2005 11:30
Castro segist ekki haldinn Parkinssonsveiki Fidel Castro, forseti Kúbu, segir það haugalygi að hann sé haldinn Parkinsonsveiki. Það sé aðeins óskhyggja óvina hans. 18.11.2005 11:25
Fjölmargar árásir í Írak í morgun Tvær bílsprengjuárásir kostuðu sex lífið í Bagdad í Írak í morgun. 43 særðust. Talið er að hótel, sem erlendir blaðamenn gista á hafi verið skotmark árásarinnar sem talið er að hafi verið sjálfsmorðsárás. Innanríkisráðuneytið er einnig skammt frá. 18.11.2005 11:17
Fá ekki vegabréfalista Úrskurðarnefnd Upplýsingamála hefur hafnað beiðni DV um að láta blaðinu í té upplýsingar um hverjir séu handhafar svokallaðra diplómatavegabréfa. Fulltrúar Utanríkisráðuneytisins höfðu áður vísað málinu til úrskurðarnefndar eftir að DV gerði kröfu um að fá upplýsingarnar fyrir um tveimur mánuðum. 18.11.2005 10:00
Bandarískur karlmaður dæmdur fyrir gróf kynferðisbrot gegn ættleiddri dóttur Bandarískur karlmaður sem í fyrra var dæmdur fyrir að setja klámmyndir af ættleiddri rússneskri dóttur sinni á netið var í gær dæmdur í allt að sjötíu ára fangelsi fyrir að hafa nauðgað og misnotað stúlkuna ítrekað. 18.11.2005 09:56
Forsætisráðherra Sri Lanka með forskot Forsætisráðherra Sri Lanka hefur nokkurt forskot yfir helsta keppinaut sinn samkvæmt fyrstu tölum í forsetakosningum í landinu. 18.11.2005 09:55
Sænskir nemar fáfróðir um frjósemi Sænskir nemar við Uppsala háskóla virðast vera fáfróðir um frjósemi kvenna. Þetta kemur fram í rannsókn sem unnin var við háskólann þar sem karlkyns og kvenkyns nemar voru spurðir um barneignir og frjósemi. 18.11.2005 09:51
Deildar meiningar um samninga Formenn aðildarfélaga Starfsgreinasambandsins eru mragir hverjir ósáttir við samninga sem forystumenn sambandsins lögðu blessun sína yfir og voru undirritaðir á þriðjudag. Formaður Verkalýðsfélags Húsavíkur segir það með ólíkindum að forystumenn í stéttarfélögum skuli hafa samþykkt þá. 18.11.2005 09:04
Hélt lífi með því að drekka hland Kínverskur námuverkamaður, sem lokaður var inni í námu þar í landi í ellefu daga eftir að jarðvegur hrundi, komst lífs af með því að drekka sitt eigið þvag. Manninum, sem var bjargað úr prísundinni í gær, sagðist aðeins hafa haft smá matarbita og örlítið vatn fyrstu dagana. 18.11.2005 07:57
370 milljóna viðsnúningur hjá Reykjanesbæ Hagnaður Reykjanesbæjar á þessu ári verður um hundrað og sextíu milljónir króna, samkvæmt nýendurskoðaðri fjárhagsáætlun bæjarins. Það er viðsnúningur upp á þrjú hundruð og sjötíu milljónir króna frá síðasta ári þegar tap bæjarins var rúmar tvö hundrað milljónir. 18.11.2005 07:51
Kirkjan hefur ekki gert upp hug sinn Biskup Íslands segir þjóðkirkjuna ekki hafa myndað sér skoðun á því hvort hún vilji gefa saman samkynhneigð pör. En séra Bjarni Karlsson segist ekki þurfa annað en leyfi Alþingis, kirkjan sé ekki her sem bíði eftir skipunum herforingja. 17.11.2005 23:30
Slasaðist á höfði í bílveltu Karlmaður fékk höfuðáverka þegar vikurflutningabíll sem hann var á valt við Þorlákshöfn um klukkan fimm í dag. Hann er nú til eftirlits á Landspítalanum háskólasjúkrahúsi en mun spjara sig vel að sögn læknis á vakt. 17.11.2005 23:00
Íbúðalánin dýrari en í nágrannalöndunum Íbúðalán eru töluvert dýrari hér en í nágrannalöndunum. Lítið myntsvæði, háir stýrivextir og meiri verðbólga skýrir þetta að mestu, - sem og skortur á samkeppni. 17.11.2005 22:00
Fjórar vélar Devon hingað CIA-vélin, Casa 235 vél í eigu Devon Holding and Leasing, er ein fjögurra véla þess fyrirtækis sem lent hafa hér á landi í það minnsta níu sinnum. 17.11.2005 21:15
Óeirðirnar í rénun Óeirðirnar í Frakklandi eru í mikilli rénun og talsmenn lögreglunnar sögðu í gærkvöldi að glæpir væru nú engu fleiri en áður en alda óeirða blossaði upp fyrir tæpum þremur vikum. 17.11.2005 21:15
Fyrsta skip af fjórum afhent Svartfoss er nýjasta kaupskip íslenska flotans. Skipið er afar sérhæft og fyrsta nýsmíðin af þessu tagi í heiminum í tæpa tvo áratugi. 17.11.2005 20:45
Ekki allir ASÍ félagar fá eingreiðslu í desember Þeir ASÍ félagar sem skipt hafa um vinnu á árinu fá aðeins hluta af tuttugu og sex þúsund króna eingreiðslu sem kveður á um í samkomulagi ASÍ og Samtaka atvinnulífsins. Hagfræðingur ASÍ segir að í samkomulaginu felist hlutir sem til framtíðar séð geti gefið félagsmönnum mikið. 17.11.2005 20:30
Áfall fyrir Blair Dregið hefur úr vinsældum Tonys Blairs forsætisráðherra Bretlands líkt og George Bush forseta Bandaríkjanna. 17.11.2005 20:00
Hafna ásökunum um pyntingar Írösk stjórnvöld hafna því að víðtækar pyntingar á föngum viðgangist í Írak. Bandaríkjamenn segjast ekki hafa framið stríðsglæpi með því að varpa hvítum fosfór í átökum um íröksku borgina Fallujah í fyrra. 17.11.2005 19:30
Þrjú ár fyrir nauðgun Karlmaður var í dag dæmdur til þriggja ára fangelsisvistar í Hæstarétti fyrir að nauðga fyrrum sambýliskonu sinni á heimili hennar auk umferðarlaga- og fíkniefnabrota. 17.11.2005 18:03
Rúmlega fimmtán þúsund sóttu Októberbíófest Októberbíófest lauk formlega í gær. Hátíðin stóð yfir frá 26. október í Háskólabíói og Regnboga og hlaut hún frábærar viðtökur hjá áhorfendum, erlendum gestum og gagnrýnendum. Alls sóttu 15.500 manns hátíðina sem gerir hana að annarri aðsóknarhæstu hátið þessa árs. 17.11.2005 17:45
Góð rekstrarafkoma Hafnarfjarðarbæjar Á fundi bæjarráðs Hafnarfjarðar í morgun, fimmtudaginn 17. nóvember, var lagt fram 9 mánaða uppgjör Hafnarfjarðarbæjar. Niðurstöðurnar eru jákvæðar fyrir bæjarfélagið og gefa fyrirheit um góða afkomu bæjarins. 17.11.2005 17:30
Handtekinn fyrir að afneita helförinni Sagnfræðingurinn breski, David Irving, hefur verið handtekinn í Austurríki fyrir að afneita helförinni. Irving vakti fyrst athygli árið 2000 þegar hann lögsótti Bandaríkjakonuna Deborah Lipstadt fyrir að segja hann afneita helförinni. Hann tapaði málinu og dómarinn sagði hann ekki bara afneita helförinni heldur væri hann gyðingahatari og rasisti og að hann tengdist hægri öfgamönnum sem styðja ný-nasisma. 17.11.2005 17:17
Gæsluvarðhald staðfest Hæstiréttur staðfesti í dag gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur yfir albönskum karlmanni sem grunaður er um morð í Grikklandi. 17.11.2005 17:15
Leiðtogi stjórnarandstöðu Úganda enn í fangelsi Bandaríkin krefjast skjótra réttarhalda yfir leiðtoga stjórnarandstöðunnar í Úganda, Dr. Kizza Besigye. Forseti Úganda, Yoweri Museveni, lét handtaka Dr. Besigye, eftir að hann sneri aftur úr fimm ára útlegð sem hann lagðist í eftir að hafa boðið sig fram í forsetakosningum gegn forsetanum. Hann er kærður fyrir landráð og nauðgun. Eiginkona Dr. Besigye, og fyrrum þingkona, Winnie Banyima, segir ákærurnar tilbúning. Dr. Besigye er helsta ógn Museveni í komandi kosningum snemma á næsta ári. 17.11.2005 17:00
Flestir þreyttu samræmdu prófin 97 prósent nemenda í fjórða og sjöunda bekk grunnskóla þreyttu samræmd próf í stærðfræði og íslensku í síðasta mánuði. Einn af hverjum þrjátíu nemendum fékk hins vegar undanþágu frá Námsmatsstofnun og þurfti því ekki að þreyta prófin. 17.11.2005 17:00