Utanríkisráðuneytið neitar styrk 18. nóvember 2005 16:00
Mannréttindaskrifstofu Íslands, sem neitað var um styrk frá utanríkisráðuneytinu þar sem veita átti fé til mannréttindamála á alþjóðavettvangi, er enn neitað um fjárframlög. Ýmis innlend verkefni hafa þó hlotið náð fyrir augum ráðuneytisins. Ráðuneytið hyggst ekki styrkja skrifstofuna á þessu ári þó enn virðist vera til fjármagn. Það vakti talsverða athygli fyrir ári þegar þau tíðindi bárust að Mannréttindaskrifstofa Íslands fengi ekki tæplega átta milljóna fjárframlag af fjárlögum til rekstrar eins og verið hafði. Þess í stað ákvað ríkisstjórnin að utanríkisráðuneyti og dómsmálaráðuneyti myndu úthluta milljónunum átta til mannréttindamála og var forsvarsmönnum mannréttindaskrifstofu bent á að sækja um fjármagn til ráðuneytana. Dómsmálaráðuneytið veitti tveimur og hálfri milljón til verkefna skrifstofunnar fyrr á þessu ári, en utanríkisráðuneytið ákvað frekar að verja sínum hluta fjárins í mannréttindamál á erlendri grundu, nánar til tekið í stöðu mannréttindafulltrúa hjá ÖSE. Guðrún Dögg Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands, segir forsvarsmenn skrifstofunnar hafa gengið á eftir því við ráðuneytið hvort ekki ætti að auglýsa styrki úr fjárheimildum þess til mannréttindamála. Sú auglýsing birtist aldrei en skrifstofan sendi þó umsókn og ítrekun á henni um mitt árið. Engin svör bárust hins vegar. Guðrún segir að eftir að fregnir bárust af því að ekki hafi verið ráðið í stöðuna hjá ÖSE þá hafi hún sett sig í samband við Utanríkisráðuneytið enn einu sinni og óskað svara við því hvernig ráðstafa ætti því fé sem til stóð að færi í stöðuna hjá ÖSE. Stuttu áður en svar barst svo við styrkbeiðni Mannréttindaskrifstofunnar nú nýverið fengu aðstandendur hennar fregnir af því að þrátt fyrir að búið væri að gefa það út að milljónirnar fjórar, sem áður fóru til skrifstofunnar en yfirlýst hafði verið að ættu að fara í að styrkja mannréttindi á erlendri grund, hefði verið afgreiddur styrkur til innlendra málefna. Óformlegt svar ráðuneytisins, sem að sögn Guðrúnar barst svo fyrir síðustu helgi, sagði svo að Mannréttindaskrifstofan fengi ekki styrk á þessu ári. Björg Thorarensen forstöðumaður Mannréttindastofnunar Háskóla Íslands staðfesti við fréttastofu í dag að stofnunin hefði fengið úthlutað samtals 700 þúsund krónum frá utanríkisráðuneyti til tveggja aðskildra verkefna. Annars vegar til bókaútgáfu um Mannréttindadómstól Evrópu og hins vegar vegna námskeiðshalds fyrir lögmenn um gildi dóma mannréttindadómstólsins. NFS hefur síðustu daga ítrekað lagt skilaboð fyrir ráðuneytisstjóra, ráðherra og aðstoðarmann hans í utanríkisráðuneytinu vegna málsins. Þeim hefur ekki verið svarað þrátt fyrir ítrekanir. Að sögn Magnúsar Stefánssonar, formanns fjárlaganefndar Alþingis, liggur enn ekki fyrir hvort endurskoða eigi fyrirkomulag um fjárframlög til Mannréttindaskrifstofunnar fyrir næsta ár, en forsvarsmenn skrifstofunnar hafa átt fundi með fjárlaganefnd þar sem þess var krafist að skrifstofan færi aftur á fjárlög.
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Fleiri fréttir Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Sjá meira