Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bensínstyrkir verði ekki skertir Landsfundur Sjálfstæðisflokksins samþykkti í dag að hvetja til þess að fallið verði frá því að skerða bensínstyrk til öryrkja. Þá vilja sjálfstæðismenn að styrkir hreyfihamlaðra til bifreiðakaupa verði auknir. 16.10.2005 00:01
Loksins komin lögleg útgáfa Enska útgáfan af Harry Potter and the Half-Blood Prince kom út í júlí og óleyfileg kínversk þýðing á bókinni komst í dreifingu tveimur vikum seinna. 16.10.2005 00:01
Stjórnarskráin líklega samþykkt Ánægja ríkir með kosningarnar í Írak í gær. Það þykir næsta víst að stjórnarskráin sem kosið var um hafi verið samþykkt, en þar með eru þó ekki allir erfiðleikar yfirstignir. 16.10.2005 00:01
Gert ráð fyrir samþykki Þrátt fyrir mikla þátttöku súnnía í þjóðarkosningum Íraka um stjórnarskrá á laugardag er talið líklegt að niðurstaðan verði sú að þjóðin samþykki nýju stjórnarskrána. Tveir þriðju hlutar kjósenda í þremur héruðum þurfa að hafna stjórnarskránni svo hún verði felld. 16.10.2005 00:01
Syrgjendur vilja fá líkin Hundruð svartklæddra syrgjenda söfnuðust saman í gær fyrir utan skrifstofur saksóknara í borginni Naltjik í rússneska hluta Kákasus og kröfðust þess að lík ættingja þeirra yrðu látin af hendi, svo hægt væri að grafa þau. 16.10.2005 00:01
Hvalur á stafni Áhöfn ítölsku ferjunnar Moby Aki brá heldur betur í brún þegar upp komst um orsakir stýriserfiðleika skipsins á laugardag. Fimmtán metra langur hvalsskrokkur, 25 tonn á þyngd, lá yfir stefni ferjunnar og hafði hann valdið því að erfiðlega gekk að stýra ferjunni inn í höfnina í Livorno á Norður-Ítalíu. 16.10.2005 00:01
Voru fimm daga á sporbaug Kínverjar bjuggu sig undir komu geimfarsins Shenzhou 6 í gærdag, en búist er við lendingu farsins nú í morgunsárið. Tveir geimfarar, Nie Haisheng og Fei Junlong, voru um borð í geimfarinu, sem var skotið á loft á miðvikudag. Kínverjar voru þriðja þjóðin sem hefur sent mannað geimfar út í heim, og var þetta í annað sinn sem þeir sendu geimfar út. Hinar þjóðirnar tvær eru Rússland og Bandaríkin. 16.10.2005 00:01
Ný stjórn Jens Stoltenberg, nýr forsætisráðherra Noregs, skipar í ráðherrastóla í Osló í dag, en ráðherralaust hefur verið í Noregi nú um helgina, þar sem síðasta ríkisstjórn sagði af sér á föstudag. 16.10.2005 00:01
Barn finnst á lífi Ungt stúlkubarn fannst á lífi í gær í rústum byggingar nærri Balakot-borg, sem hrundi í jarðskjálftunum í Kasmír um síðustu helgi. Stúlkan hafði verið grafin í rústunum í átta daga þegar systkini hennar fundu hana. 16.10.2005 00:01
Minnkandi þorskstofn Þorskstofninn í Barentshafi hefur minnkað verulega, segja norskir og rússneskir fiskifræðingar sem hafa nýlokið stofnstærðarmælingum þar. 16.10.2005 00:01
Hungursneyð í Malaví Yfirvofandi hungursneyð í Malaví mun hafa áhrif á um helming þjóðarinnar, að sögn forseta landsins, Bingu wa Mutharika, sem kallaði á hjálp frá öðrum þjóðum í ríkissjónvarpi og -útvarpi landsins á laugardag. 16.10.2005 00:01
Fimm bandarískir hermenn falla Fimm bandarískir hermenn létust er sprengja sprakk á vegi í Írak á laugardag, þegar Írakar kusu um stjórnarskrá sína. Bandaríski herinn sagði frá þessu í gær en áður hafði herinn sagt að kosningarnar hafi farið friðsamlega fram. 16.10.2005 00:01
Þurrkar á Amason-svæðum Fjárskortur hamlar flutningum á nauðsynjavörum til Amason-svæða Brasilíu, sem miklir þurrkar hafa hrjáð síðustu mánuði, að sögn talsmanna brasilíska hersins. 16.10.2005 00:01
Eignarhaldið skorðað Landsfundur Sjálfstæðisflokksins skorar á Alþingi að setja lög um eignarhald á fjölmiðlum. „Að undanförnu hefur nauðsyn rammalöggjafar um starfsemi fjölmiðla orðið æ augljósari,“ segir í ályktun fundarins. 16.10.2005 00:01
Geir gengur auðmjúkur til verks „Ég er mjög ánægður með þessi úrslit og glaður yfir því að hafa fengið svona mikið traust hjá landsfundarfulltrúum og mun að sjálfsögðu gera mitt besta til þess að standa undir því,“ segir Geir Hilmar Haarde, nýkjörinn formaður Sjálfstæðisflokksins. Geir segir að samstaða hafi ríkt um þær ályktanir sem voru til meðferðar á fundinum. 16.10.2005 00:01
Þörf á löggjöf um fjölmiðla „Þetta var alveg stórkostlegt og frábær stuðningur að fá næstum því tvo þriðju atkvæða. Ég er mjög þakklát fyrir það,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins. Hún segir fundinn hafa verið kraftmikinn, þar hafi verið bæði mikið af ungu fólki og ekki síður nýju fólki innan flokksins. 16.10.2005 00:01
Vilja afnema synjunarvald Sjálfstæðisflokkurinn telur óhjákvæmilegt að fella úr gildi 26. grein stjórnarskrár lýðveldisins um synjunarvald forsetans. Þetta kemur fram í ályktun landsfundar flokksins frá því um helgina. Í ályktun fundarins er tekið fram að huga eigi að heimild í stjórnarskrá til þjóðaratkvæðagreiðslu um tiltekin mál. 16.10.2005 00:01
Einstök lest tekin í gagnið í Kína Hún fer hærra en nokkur hefur farið á undan henni, lestin sem Kínverjar vígðu með stolti um helgina. Eftir áratuga starf hefur loksins verið lokið við að leggja lestarteina þvert yfir Tíbet. Þar brunar lest sem á engan sinn líka. 16.10.2005 00:01
Tvöföldun líklega samþykkt Búist er við að bæjarstjórn Garðabæjar samþykki í vikunni tvöföldun Reykjanesbrautar frá Fífuhvammsvegi að Kaplakrika. Ný tillaga sem gerir ráð fyrir betri hljóðvörnum hefur líka hlotið samþykki íbúa sem hafa hingað til verið mótfallnir tvöföldun brautarinnar. 16.10.2005 00:01
Kanóar horfnir af götunum Tekist hefur að dæla öllu vatni burt af götum Hafnar í Hornafirði, að sögn Helga Más Pálssonar bæjarverkfræðings. Bæjarbúar eru því hættir að róa um göturnar á kanóum og geta gripið til bílanna á ný. 16.10.2005 00:01
Björn finnur saksóknara Björn Bjarnason sagði í Silfri Egils í gær að hann myndi sennilega taka ákvörðun um nýjan saksóknara sem á að taka við þeim 32 ákæruatriðum í Baugsmálinu. Bogi Nilsson ríkissaksóknari sagði sig frá málinu fyrir helgi. 16.10.2005 00:01
Óljóst hvað gerðist Bilun varð hjá þjónustuaðila Farice-sæstrengsins aðfaranótt sunnudags. Í gær var enn ekki ljóst hvað hefði valdið biluninni. 16.10.2005 00:01
Brot á samkeppnislögum Samkeppniseftirlitið hefur úrskurðað að sú ákvörðun að semja ekki við klíníska sálfræðinga um greiðsluþátttöku ríkisins í kostnaði sjúkratryggðra gangi gegn markmiðum samkeppnislaga. 16.10.2005 00:01
Spara tugþúsundir í matarinnkaupum Um 33 þúsund krónum minna færi í matarinnkaup hjá meðalfjölskyldu á ári, ef matarskatturinn verður lækkaður úr fjórtán prósentum í sjö. 16.10.2005 00:01
Ófrjósemisaðgerðum fjölgar Tæplega þrjú hundruð karlar gangast undir ófrjósemisaðgerð á ári en fyrir 25 árum voru þeir aðeins um þrjátíu. Þvagfæraskurðlæknir segir dæmi um að karlar hafi einnig látið endurtengja sig. Það geta konur ekki gert. 16.10.2005 00:01
Bundið í stjórnarsáttmála „Þetta var hluti af okkar landsfundarályktun síðast og hluti af okkar kosningastefnuskrá,“ sagði Geir H. Haarde á landsfundi Sjálfstæðisflokksins um matarskattinn. Séra Halldór Gunnarsson í Holti spurði ráðherrann um þetta stefnumál flokksins. 16.10.2005 00:01
Ofbeldismaður áfram í haldi „Árásin var mjög hrottaleg og hending virðist hafa ráðið því að ekki fór verr,“ segir í gæsluvarðhaldsúrskurði Héraðsdóms Reykjaness yfir ofbeldismanninum unga sem réðst á jafnaldra sinn, átján ára gamlan, með sveðju í samkvæmi í Garðabæ. 16.10.2005 00:01
Samstaða um nýjan skóla Átta af tíu þingmönnum Norðausturkjördæmis og einn þingmaður úr Norðvesturkjördæmi hafa endurflutt á alþingi þingsályktunartillögu um stofnun framhaldsskóla við utanverðan Eyjafjörð en tillagan var einnig lögð fram á síðasta þingi. 16.10.2005 00:01
Þorpið fylgir ráðherranum Einar K. Guðfinnsson hélt sína fyrstu ræðu sem sjávarútvegsráðherra á aðalfundi Landssambands smábátaeigenda á Grand hóteli. 16.10.2005 00:01
500 milljarða halli í sjö ár Steingrímur J. Sigfússon vill yfirlýsingu frá ríkisstjórninni um að stjóriðjuframkvæmdir verði stöðvarðar til ársins 2012. Engin höft segir forsætisráðherra. 16.10.2005 00:01
Verslun varð að félagsmiðstöð „Maður verður einhvern veginn að bjarga sér þegar kreppir að,“ segir Ísak Sigurgeirsson en hann og eiginkona hans, Senee Sankla, eiga verslunina Ásbyrgi í Kelduhverfi sem nú skiptir um hlutverk. 16.10.2005 00:01
Hundruð óþekktra líka í líkhúsunum Hundruð óþekktra líka eru enn í líkhúsum í New Orleans og gengur hægt að bera kennsl á þau. Fjölmargir borgarbúar leita ástvina sinna og eru reiðir sökum þess hversu hægt gengur að fá upplýsingar um örlög þeirra. 16.10.2005 00:01
Nýr erfðaprins í Danmörku Danir eignuðust nýjan erfðaprins í nótt þegar María Elísabet krónprinsessa ól dreng laust fyrir klukkan tvö að dönskum tíma á Háskólasjúkrahúsinu í Kaupmannahöfn. Faðirinn, Friðrik krónprins, var viðstaddur fæðinguna og þegar hann ávarpaði blaðamenn í morgun fór hann ekki leynt með þá gleði sem hann fann fyrir þegar erfinginn kom í heiminn. 15.10.2005 00:01
Ófærð á Austurlandi Ófært er um Hvalnes og Þvottárskriður og ekki er víst um að það náist að opna þar í dag samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Þá er lokað á milli Breiðdalsvíkur og Djúpavogs vegna vatnavaxta. Vegfarendur eru beðnir um að vera ekki á ferð að ástæðulausu á milli Breiðdalsvíkur og Stöðvarfjarðar vegna skriðuhættu. Það rignir mikið á þessu svæði. 15.10.2005 00:01
Fuglaflensa í Rúmeníu banvæn Fuglaflensustofninn sem greindist í fuglum í Rúmeníu er sá stofn sem reynst hefur mönnum banvænn, H5N1. Rannsóknir hafa staðfest þetta og var greint frá tíðindunum fyrir stundu. Þetta staðfestir enn frekar að banvæni stofninn hefur borist til Evrópu. Sextíu hafa týnt lífi í Asíu af völdum fuglaflensunnar þó að hún berist sjaldan frá dýrum í menn. 15.10.2005 00:01
Kosningaþáttaka góð í Írak Kosningaþátttaka í þjóðaratkvæðagreiðslu um stjórnarskrá í Írak er sögð hafa verið nokkuð góð og einkum þykir það tíðindum sæta að súnnítar virðast hafa ákveðið að sniðganga ekki kosningarnar eins og þeir gerðu í stórum stíl í við þingkosningarnar í janúar. 15.10.2005 00:01
Skjálftahrina austur af Grímsey Skjálftahrina gengur yfir um fimmtán kílómetra austur af Grímsey. Frá því síðdegis í gær hafa um 200 skjálftar mælst á svæðinu, nokkrir stórir, en sá stærsti mældist 3,7 stig á Richter. 15.10.2005 00:01
Dóu þegar hús hrundi í Barcelona Fimm fórust þegar þriggja hæða fjölbýlishús í Barcelona á Spáni hrundi til grunna í nótt. Það voru einkum innflytjendur frá Norður-Afríku sem bjuggu í húsinu sem var byggt á átjándu öld. Ekki er vitað um ástæður þess að byggingin hrundi en björgunarsveitir eru enn á vettvangi. 15.10.2005 00:01
Sleppt eftir yfirheyrslu um dóp Tveimur karlmönnum og tveimur konum, sem handtekin voru í íbúð í Kópavogi í gær eftir að talsvert magn fíkniefna fannst þar, hefur verið sleppt. Yfirheyrslum yfir fólkinu lauk síðla dags í gær og telst málið upplýst. 15.10.2005 00:01
Bílvelta á Reykjanesbraut Bíll valt á Reykjanestbraut til móts við Hafnaveg um klukkan hálfátta í morgun. Þrennt var í bílnum og slasaðist fólkið lítillega en það var flutt á Heilsugæslustöðina í Keflavík til aðhlynningar. 15.10.2005 00:01
Róleg nótt á höfuðborgarsvæðinu Nóttin var með allra rólegasta móti hjá lögreglu á höfuðborgarsvæðinu og virðist sem fáir hafi verið á ferli. Fáir munu hafa verið í miðbæ Reykjavíkur í gærkvöld og nótt og þá hafði lögregla í Kópavogi og Hafnarfirði lítið að gera. Einn var þó stöðvaður grunaður um ölvunarakstur í umdæmi Hafnarfjarðarlögreglunnar og tveir voru stoppaðir vegna sömu saka í Reykjavík. 15.10.2005 00:01
Yfir 38 þúsund látnir í Pakistan Pakistönsk yfirvöld telja nú að yfir 38 þúsund manns hafi látist af völdum jarðskjálftans sem skók Suður-Asíu fyrir viku, en það er þrettán þúsundum fleiri en talið var í upphafi. Talsmaður Pakistanshers segir að talan hafi hækkað þar sem komið hafi í ljós að fjölmargir hefðu látist í afskekktum héruðum sem björgunarmenn komust ekki til fyrr en nokkrum dögum eftir skjálftann. Þá er tala slasaðra komin upp í 60 þúsund. 15.10.2005 00:01
Gripið til aðgerða innan 3 vikna Mannskæði stofn fuglaflensunnar hefur nú fundist í Rúmeníu. Sérfræðingar Evrópusambandsins vilja grípa til aðgerða innan þriggja vikna. Á sama tíma berast af því fregnir að helsta vörnin gegn flensunni, flensulyfið Tamiflu, dugi ekki til. 15.10.2005 00:01
Búið að opna Hvalnesskriður Búið er að opna Hvalnesskriður en enn er ófært um Þvottárskriður og ekki er víst að það náist að opna þær í dag. Lokað er á milli Breiðdalsvíkur og Djúpavogs vegna vatnavaxta. Vegfarendur eru beðnir um að vera ekki á ferð að ástæðislausu á milli Breiðdalsvíkur og Stöðvarfjarðar vegna skriðuhættu. Það rignir mikið á þessu svæði. 15.10.2005 00:01
Fimmtán milljónir á kjörskrá Fimmtán milljónir Íraka hafa í dag tækifæri til að kjósa um stjórnarskrá landsins. Kosningaþátttaka er sögð góð þrátt fyrir árásir og hótanir uppreisnar- og hryðjuverkamanna. 15.10.2005 00:01