Innlent

Ófærð á Austurlandi

Ófært er um Hvalnes og Þvottárskriður og ekki er víst um að það náist að opna þar í dag samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Þá er lokað á milli Breiðdalsvíkur og Djúpavogs vegna vatnavaxta. Vegfarendur eru beðnir um að vera ekki á ferð að ástæðulausu á milli Breiðdalsvíkur og Stöðvarfjarðar vegna skriðuhættu. Það rignir mikið á þessu svæði. Á Norðausturlandi er hálka eða hálkublettir. Á Vestfjörðum eru hálkublettir og verið er að moka Hrafnseyrar- og Dynjandisheiði. Aðrir helstu þjóðvegir landsins eru greiðfærir.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×