Kanóar horfnir af götunum 16. október 2005 00:01
Tekist hefur að dæla öllu vatni burt af götum Hafnar í Hornafirði, að sögn Helga Más Pálssonar bæjarverkfræðings. Bæjarbúar eru því hættir að róa um göturnar á kanóum og geta gripið til bílanna á ný. „Þetta er allt komið í gott lag, við vorum að til klukkan ellefu á laugardagskvöld og þá var vatnið farið að sjatna eftir því sem stytti upp,“ sagði Helgi Már. „Göturnar eru núna orðnar þurrar og allir pollar farnir.“ Bæjarbúar voru beðnir um að láta vita eftir helgina hvort einhverjar skemmdir hefðu orðið hjá þeim og býst Helgi við að nokkuð hafi verið um þær. Talið er að flætt hafi inn á allt að fimmtán heimili í bænum. „Ég held að í það minnsta nokkrir kjallarar hafi farið undir vatn og alls kyns raftæki og dót, frystikistur og þess háttar, getur hafa skemmst. Göturnar eru ekki mikið skemmdar en eitthvað um skemmdir á gangstéttum og hellulögnum.“ Að sögn Helga voru orsakir flóðanna mikil úrkoma og haustlauf sem stífluðu niðurföll. „Það myndaðist mikil samkennd í fólki og allir hjálpuðust að við að koma bænum í fyrra horf. Það er góður andi í bænum og ég held reyndar að krakkarnir hafi bara haft ansi gaman af þessu.“
Fréttir Innlent Mest lesið Lentu í slysi á flugbraut í Kirgistan: „Börn farin að gráta og fullorðnir farnir að öskra“ Innlent Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda Innlent Fréttaútsending stöðvuð til að uppræta áróður Orbáns Erlent „Hafa útsendara á sínum snærum á Íslandi“ Innlent Bandaríkin hefja árásir á Íran á ný Erlent Sexa lent í Reykjavík í fyrsta sinn í áratugi Innlent Stígur fram og segir að kviknað hafi í honum út frá rafbyssu lögreglu Innlent Handtekinn eftir röð innbrota Innlent Spurning með sálina Innlent Kastriot og Sævar ákærðir í Dettifoss-málinu Innlent Fleiri fréttir „Hugsið ykkur hvað þetta er nöturleg afmælisgjöf“ Hiti gæti náð tuttugu og fimm stigum um helgina Bruninn á Stuðlum kominn til ákærusviðs og tíu með réttarstöðu sakbornings Umferð eykst milli ára Handtekinn eftir röð innbrota Lentu í slysi á flugbraut í Kirgistan: „Börn farin að gráta og fullorðnir farnir að öskra“ Sexa lent í Reykjavík í fyrsta sinn í áratugi Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda „Hafa útsendara á sínum snærum á Íslandi“ Stígur fram og segir að kviknað hafi í honum út frá rafbyssu lögreglu Kastriot og Sævar ákærðir í Dettifoss-málinu NATO-ríki auki stuðning við Úkraínu Spurning með sálina Girnist enn Grænland, vændiskaup og áfengisauglýsingar áhrifavalda Viðgerð á mótor Herjólfs á áætlun Heilsufarsskoðanir skuli framkvæmdar að lágmarki fjórum sinnum Yngstu fara flestar ferðir Steypubíllinn kominn úr ánni „Ég fer og kíki og þá er þarna þetta stærðarinnar lambalæri“ Vill afnema sektir við vændiskaupum Telja gervigreind hafa verið beitt í þróaðri netárás Dró sambýliskonu sína eftir jörðinni og beitti ítrekað ofbeldi „Mjög er horft til þess sem Bandaríkjaforseti segir“ Íslendingar munu keppa um Bermúdaskálina Ein þurft að þjónusta 80 kaupendur á þremur sólarhringum Þór lætur Bandero eiga sig og sinnir öðrum málum „Draga mig, mitt nám og minn starfsferil niður í svaðið“ Funda um niðurstöðu héraðsdóms Evru-Ísland óskalandið hvenær kemur þú? Sögufræg Douglas DC 6 á leiðinni til Reykjavíkur Sjá meira