Innlent

Samstaða um nýjan skóla

Átta af tíu þingmönnum Norðausturkjördæmis og einn þingmaður úr Norðvesturkjördæmi hafa endurflutt á alþingi þingsályktunartillögu um stofnun framhaldsskóla við utanverðan Eyjafjörð en tillagan var einnig lögð fram á síðasta þingi. Í tillögunni er gert ráð fyrir að skólinn bjóði upp á nám til stúdentsprófs, auk náms tengdu sjávarútvegi, en í greinargerð með tillögunni segir að vagga útgerðar og fiskvinnslu í landinu sé við Eyjafjörð og því eðlilegt að þar fari fram menntun skipstjórnarmanna og fiskvinnslufólks. Enn fremur segir í greinargerðinni að mikill stuðningur sé við stofnun framhaldsskóla við utanverðan Eyjafjörð í Dalvíkur-byggð, Ólafsfirði og á Siglufirði og ljóst að með jarðgöngum um Héðinsfjörð muni samstarf sveitarfélaganna eflast til muna á öllum sviðum. Flutningsmenn tillögunnar eru allir þingmenn Norðausturkjördæmis, nema ráðherrarnir Valgerður Sverrisdóttir og Jón Kristjánsson, en Sigurjón Þórðarson, þingmaður Norðvesturkjördæmis, á einnig aðild að tillögunni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×