Innlent

Búið að opna Hvalnesskriður

Búið er að opna Hvalnesskriður en enn er ófært um Þvottárskriður og ekki er víst að það náist að opna þær í dag. Lokað er á milli Breiðdalsvíkur og Djúpavogs vegna vatnavaxta. Vegfarendur eru beðnir um að vera ekki á ferð að ástæðislausu á milli Breiðdalsvíkur og Stöðvarfjarðar vegna skriðuhættu. Það rignir mikið á þessu svæði. Á Vestfjörðum eru hálkublettir og búið er að moka Hrafnseyrar- og Dynjandisheiði. Aðrir helstu þjóðvegir landsins eru greiðfærir.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×