Innlent

Þorpið fylgir ráðherranum

Einar K. Guðfinnsson hélt sína fyrstu ræðu sem sjávar­útvegsráðherra á aðalfundi Landssambands smábátaeigenda á Grand hóteli. Í ræðu sinni rakti hann þróun smábátaútgerðar frá því að kvótakerfinu var komið á og til dagsins í dag. Sagði hann að staðan nú væri sú að notað væri aflamark í stjórnkerfi veiða og skiptingu þeirra á útgerðarflokka og að ekki yrði vikið af þeirri leið. Sagði hann það fyrirkomulag það víðtækt að öll útgerðarform ættu að geta fundið sinn farveg innan þess. Nefndi hann þar almenna aflakerfið, krókaaflamarkið og byggðartengd úrræði sem grípa mætti til. Allt þetta ætti að geta hentað stórum sem smáum og því væri mikilvægt að viðurkenna þessar leiðir og virða. Einar hóf ræðu sína á því að vitna í ljóð vestfirska skáldsins Jóns úr Vör. Ljóðið lýsti því hvernig vestfirska þorpið fylgir skáldinu hvert fótmál og sagði Einar sitt þorp fylgja sér inn í sal Alþingis og á skrifstofu sjávarútvegsráðherrans.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×