Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Þrílitað áróðursstríð Ólga fer nú vaxandi í Ísrael vegna brottflutnings landnema frá Gaza-ströndinni sem hefjast á í ágúst. Enn sem komið er eru mótmælin þó að mestu friðsamleg. 27.6.2005 00:01
Nauðgað að skipun öldunga Pakistönsk kona sem nauðgað var af hópi karla í refsingarskyni hefur nú eftir langa baráttu fengið illvirkjana dregna fyrir hæstarétt landsins. Hugrekki konunnar hefur vakið heimsathygli og jafnframt beint sjónum fólks að stöðu kvenna í þessum heimshluta. 27.6.2005 00:01
Hitabylgja á Ítalíu Enn ein hitabylgjan gengur nú yfir Ítalíu. Heilbrigðisráðuneytið hefur beint þeim tilmælum til eldri borgara að halda sig heima við og mælist til þess að yfirvöld fylgist vel með eldra fólki sem býr eitt. 27.6.2005 00:01
Byrjað að rífa Valsheimilið Byrjað er að rífa niður gamla íþróttahús knattspyrnufélagsins Vals við Hlíðarenda. Húsið var upphaflega byggt sem sýningarskemma en síðar breytt í íþróttahús. Iðkendum Vals hefur fjölgað mjög í gegnum árin og byggingin löngu búin að sprengja utan af sér. 27.6.2005 00:01
Samtal eða viðtal? Ásgerður Guðmundsdóttir, sem DV og tímaritið Hér og nú, kalla sviknu eiginkonuna í umfjöllun um skilnaðarmál Bubba Morthens, segist aldrei hafa veitt blöðunum viðtal. Þvert á móti segist hún hafa beðist undan umfjöllun um sig til að vernda börnin sín. 27.6.2005 00:01
Síminn skylt að greiða leigu Landssíma Íslands var í gær gert að greiða fyrirtækinu Gullveri frá Stykkishólmi rúma eina milljón króna ásamt dráttarvöxtum sem leigu vegna fjarskiptamasturs fyrirtækisins á lóð Gullvers. 27.6.2005 00:01
4.000 nýir bílar í júní Innflutningur og sala á nýjum bílum og öðrum vélknúnum ökutækjum það sem af er þessu ári eru talin vera allt að 66 prósentum meiri en á sama tíma í fyrra. Hafa bílaumboðin vart við að afgreiða nýja bíla og eru dæmi um að stöku tegundir seljist allt að 90 prósent betur nú en fyrir ári. 27.6.2005 00:01
Vill mislæg gatnamót á Miklubraut Forvarnarfulltrúi Sjóvár segir beygjuljós á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar ekki hafa skilað því sem vonast var til. Hann hefur ekki trú á að þær framkvæmdir sem nú eru hafnar bæti öryggið mikið og vill mislæg gatnamót. 27.6.2005 00:01
Ekkert óeðlilegt við umfjöllunina Fyrrverandi fulltrúa í siðanefnd Blaðamannafélags Íslands finnst að blaðamennska sem er stunduð á tímaritinu <em>Hér og nú</em> ætti ekki að líðast hér á landi. Eiríkur Jónsson, blaðamaður á Hér og nú, segir ekkert óeðlilegt við umfjöllun blaðsins um Bubba Morthens og fjölskyldu hans. 27.6.2005 00:01
Olían hefur aldrei verið dýrari Hækkandi heimsmarkaðsverð á olíu er farið að hafa veruleg áhrif á hagkerfi ýmissa þjóða en undanfarið hefur verð á tunnu af olíu farið yfir 60 dollara og margir spá enn frekari hækkunum framundan. 27.6.2005 00:01
Forsetinn viðurkennir mistök Gloria Arroyo, forseti Filippseyja, viðurkenndi í dag að hún hefði gert mistök með því að hringja í kjörstjórnarmeðlim fyrir forsetakosningarnar og segjast óska þess að hún ynni með milljón atkvæða mun. Hún ætlar samt ekki að segja af sér. 27.6.2005 00:01
Ísland opnasta land í Evrópu Rauði krossinn gerir ekki miklar athugasemdir við hvernig flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna er framfylgt hér á landi og segir Ísland eitt opnasta land Evrópu. 27.6.2005 00:01
Jóhannes Páll strax í dýrlingatölu Allt bendir nú til þess að Jóhannes Páll páfi annar verði sá maður sem skjótast verður tekinn í tölu dýrlinga eftir andlátið. Benedikt páfi sextándi hefur fellt niður fimm ára regluna svokölluðu og Vatíkanið er þegar farið að kanna möguleg kraftaverk. 27.6.2005 00:01
Slæleg vinnubrögð þýskra tollvarða Þrátt fyrir rannsóknarklúður leita þýsk yfirvöld enn leiða til að draga Íslendinga, sem gripnir voru með eiturlyf í Bremerhaven, fyrir rétt. 27.6.2005 00:01
Hrun Framsóknar í norðurkjördæmum Framsóknarflokkurinn tapar rúmlega tuttugu prósentustiga fylgi í norðausturkjördæmi samkvæmt könnun Gallup frá því í byrjun mánaðarins. Flokkurinn mælist nú með 12,3 prósenta fylgi en í síðustu alþingiskosningum hlaut hann 32,8 prósent. Hefur hann því tapað 20,5 prósenta fylgi í kjördæminu frá því í kosningunum ef marka má könnun Gallup. 27.6.2005 00:01
Með stærstu mannvirkjum landsins Eitt hundrað og þrjátíu manns á vegum Suðurverks vinna í sumar við að gera hliðarstíflur Kárahnjúkavirkjunar. Stíflurnar við Kárahnjúka verða þrjár en þótt lítið hafi heyrst um tvær þær minni verða þær engu að síður með stærstu mannvirkjum landsins. 27.6.2005 00:01
Gunnar vill óperuna í Kópavoginn Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, vill reisa óperuhús fyrir íslensku óperuna á ónotaðri lóð sunnan við Gerðarsafn í miðbæ Kópavogs. Þegar hafa verið unnar frumteikningar að óperuhúsi sem Gunnar telur að gæti kostað 1,5 til tvo milljarða króna. 27.6.2005 00:01
Slógust við lögreglumenn Hópur manna á Eyrarbakka lenti í slagsmálum við þrjá lögreglumenn frá Selfossi í nótt. Lögreglumenn sáu hvar maður sparkaði í höfuð annars manns og hugðust þá handtaka hann. Félagar árásarmannsins réðust þá að lögreglumönnunum og út brutust mikil átök þar sem lögreglan hafði betur. 26.6.2005 00:01
Rólegt hjá lögreglunni í Reykjavík Svo virðist sem rigningin í nótt hafi orðið þess valdandi að rólegt var að gera hjá lögreglunni í Reykjavík. Að sögn varðstjóra var fremur lítið um útköll. Í Hafnarfirði kom upp eitt fíkniefnamál við hefðbundið eftirlit þar sem einn aðili var tekinn með lítilræði af amfetamíni. 26.6.2005 00:01
Sósíalistar lýsa yfir sigri Sósíalistar hafa lýst yfir sigri í kjölfar þingkosninga í Búlgaríu. Þegar 95% atkvæða höfðu verið talin var Sósíalistaflokkurinn með ríflega 31% atkvæða sem er þó langt undir því sem kannanir gáfu til kynna. Þetta þýðir að erfitt gæti reynst að mynda starfhæfa meirihlutastjórn. 26.6.2005 00:01
Meintur nauðgari enn ófundinn Lögreglan í Reykjavík hefur ekki enn haft uppi á manni á fimmtugsaldri sem grunaður er um að hafa nauðgað konu á þrítugsaldri í fyrrinótt. Konan kom á lögreglustöð í gær og kærði manninn fyrir nauðgun. Atburðurinn á að hafa gerst í heimahúsi nálægt miðborg Reykjavíkur í fyrrinótt. 26.6.2005 00:01
Pissaræningi handtekinn Maðurinn sem rændi pissasendil í fyrrinótt var handtekinn í gærkvöldi og hefur hann játað verknaðinn. Maðurinn rændi pissasendilinn í stigagangi í Hvassaleiti í fyrrinótt. Hafði ræninginn 3200 krónur upp úr krafsinu, auk farsíma sendilsins. 26.6.2005 00:01
Lögreglumenn drepnir í Írak Uppreisnarmenn í Írak réðust á lögreglustöð í vesturhluta landsins í gær og drápu þar átta manns. Í norðurhluta landsins geisaði þriggja klukkustunda byssubardagi milli skæruliða og sveita Bandaríkjamanna og Íraka. Þá hafa nokkrir lögreglumenn verið drepnir í morgun. 26.6.2005 00:01
Tveir kærðir fyrir hraðakstur Lögreglan í Keflavík kærði tvo ökumenn í nótt fyrir hraðakstur. Annar þeirra var mældur á 146 kílómetra hraða á Reykjanesbraut þar sem hámarkshraði er 90 kílómetrar. Þá var ökumaður stöðvaður á 95 kílómetra hraða innanbæjar í Keflavík þar sem hámarkshraði er 50 kílómetrar. 26.6.2005 00:01
Grunur um fuglaflensu í Japan Grunur leikur á að fuglaflensa hafi valdið því að hundruð hænsna í austurhluta Japans drápust fyrr á þessu ári. Nokkur hundruð hænsn drápust á kjúklingabúi þar sem eru að jafnaði á þriðja tug þúsunda hænsna og telja embættismenn á svæðinu nú að hugsanlega megi rekja þetta til fuglaflensu. 26.6.2005 00:01
178 talíbanar felldir Hundrað sjötíu og átta bardagamenn úr röðum talíbana í Afganistan hafa verið drepnir á undanförnum þremur dögum og fimmtíu og sex hafa verið handsamaðir. Þetta segir talsmaður varnarmálaráðuneytisins í Kabúl. Þetta er eitthvert mesta mannfall í röðum talíbana síðan þeir voru hraktir frá völdum í stríðinu 2001. 26.6.2005 00:01
Tala látinna tvöfaldast Fjörutíu og tveir hafa látist af völdum eitrunar í áfengum drykk í Kenía um helgina. Talið er að miklu magni af metanóli hafi verið blandað í drykkinn til að auka alkóhólmagn hans. Fólkið mun hafa fengið bruggið á krá í þorpi skammt frá Naíróbí, höfuðborg Kenía, og veiktist í kjölfarið heiftarlega. 26.6.2005 00:01
Íslendingar gáfu 230 milljónir Íslendingar gáfu yfir 230 milljón króna til styrktar fórnarlömbum hamfaranna við Indlandshaf en endanlegar tölur liggja nú fyrir. Alls safnaðist 121 milljón króna í landssöfnuninni Neyðarhjálp úr norðri, sem haldin var um miðjan janúar, en áður en sú söfnun fór af stað höfðu safnast 110 milljónir króna. 26.6.2005 00:01
Sextán látnir í Mósúl Sextán hið minnsta fórust í sjálfsmorðsárás í borginni Mósúl í Írak í morgun. Þá ók maður bíl fylltum sprengiefni á höfuðstöðvar lögreglunnar í borginni og sprengdi sig í loft upp. Hluti byggingarinnar hrundi og fimm lögreglumenn fórust. Fjórtán eru sárir. 26.6.2005 00:01
Ekki áfall segir bæjarstjóri Íbúar Seltjarnarness höfnuðu skipulagsáformum bæjaryfirvalda á Hrólfsstaðamel og Suðurströnd í íbúakosningu í gær. Bæjarstjóri segist ekki líta á þetta sem áfall fyrir bæjaryfirvöld, þrátt fyrir að þau hafi viljað stefna í hina áttina. 26.6.2005 00:01
Enn hörmungarástand á svæðunum Hörmungarástand er ennþá á hamfarasvæðunum í Asíu þar sem flóðbylgjan annan dag jóla olli gjöreyðileggingu. Uppbygging gengur afar hægt og fórnarlömbin þarfnast enn mikillar hjálpar, hálfu ári síðar. 26.6.2005 00:01
Skorað á ráðherra og fjárlaganefnd Áskorun til fjárlaganefndar Alþingis og menntamálaráðherra var undirrituð á málþingi um framtíð Héraðsskólahússins á Laugarvatni í gær. Þar er skorað á ráðherra og nefndina að beita sér fyrir að á fjárlögum verði eyrnamerktir fjármunir til endurbóta á húsnæði Héraðsskólans. 26.6.2005 00:01
Hagsmunir Írana á oddinum Íranar munu halda áfram kjarnorkuviðræðum við Evrópusambandið með hagsmuni sína að leiðarljósi. Þetta sagði nýkjörinn forseti Írans, Mahmoud Ahmadinejad, á blaðamannafundi í dag. Aðspurður sagði forsetinn einnig að hann sæi enga þörf á sérstökum viðræðum við Bandaríkjamenn um kjarnorkuframleiðslu þjóðar sinnar. 26.6.2005 00:01
STASI-aðferðir í Svíþjóð Sænsk skattayfirvöld hafa verið sökuð um að beita STASI-aðferðum við að koma höndum yfir þá sem stunda svarta vinnu. Þau ætla að reiða sig á uppljóstrara. 26.6.2005 00:01
Engar samningaviðræður í gangi Talsmenn bandarískra og írakskra hersveita segja að þeir eigi í viðræðum við leiðtoga uppreisnarmanna í Írak, klerka og hópa sem tengdir eru súnní-aröbum til að fá fleiri að pólitískri uppbyggingu landsins. Aðspurðir neituðu talsmennirnir hins vegar að þetta séu samningaviðræður hvers konar eins og haldið er fram í <em>Sunday Times</em> í dag. 26.6.2005 00:01
100 ár frá því að fyrsta loftskeytið barst hingað til lands Eitt hundrað ár eru liðin í dag frá því að fyrsta loftskeytið barst til Íslands. Þennan dag komst landið í daglegt fréttasamband við útlönd. Slík skeytasending markaði jafnframt mikil þáttaskil því þá urðu frjáls fjarskipti að veruleika hér á landi. Loftskeytið barst frá Poldhu í Cornwall á Englandi til loftskeytastöðvar Marconi's Wireless Telegraph Company á Rauðará í Reykjavík (nú Höfði). 26.6.2005 00:01
Saumuðu varir fangans saman Sjö lögreglumönnum hefur verið sagt upp í Pakistan eftir að upp komst að þeir hafi saumað saman varir á fanga sem var í þeirra vörslu. Skýringin sem gefin var á athæfinu var sú að fanginn hafi mótmælt pyntingum sem lögreglumennirnir hafi verið að beita hann. 26.6.2005 00:01
Stúlka lést eftir hákarlaárás Fjórtán ára gömul stúlka lést þegar hákarl réðst á hana undan ströndum Flórída í dag. Stúlkan var komin nokkuð langt út en hún var að renna sér á brimbretti. Karlmaður sem kom með hana að landi segist hafa fundið stúlkuna á floti í sjónum eftir að hafa heyrt skerandi öskur stuttu áður. 26.6.2005 00:01
Mannsins enn leitað Lögreglan í Reykjavík hefur ekki enn haft uppi á manni á fimmtugsaldri sem grunaður er um að hafa nauðgað konu á þrítugsaldri í fyrrinótt. Konan kom á lögreglustöð í gær og kærði manninn fyrir nauðgun. Karlmaðurinn og konan þekktust og er því vitað hver maðurinn er. 26.6.2005 00:01
Á fjórða tug liggur í valnum Á fjórða tug manna liggur í valnum eftir röð hryðjuverkaárása í bænum Mósúl í Írak í morgun. Maður sprengdi sig í loft upp við varðstöð við sjúkrahús, annar við aðalstöðvar lögreglunnar og sá þriðji við herbækistöð í borginni. 26.6.2005 00:01
Blað brotið í skipulagsumræðu Jónmundur Guðmarsson bæjarstjóri segir marka tímamót að bæjarstjórnin á Seltjarnarnesi skuli hafa verið reiðubúin að leggja tvo skulbindandi kosti í skipulagsmálum í hendur bæjarbúa. Hann er sáttur við kjörsóknina um helgina. 26.6.2005 00:01
Lágvöruverslanir berjast enn Vera má að sjái fyrir endann á undirboðum á matvörumarkaði, svo sem mjólk á gjafaverði. Forsvarsmenn Bónuss og Krónunnar segja verðstríð þó alls ekki að baki. Hagfræðingur Landsbankans segir gylliboðin hafa vegið þungt í verðbólguvísitölu. 26.6.2005 00:01
Fimm héðan til Palestínu Hjá Félaginu Íslandi-Palestínu er enn tekið við umsóknum um vist í alþjóðlegum æskulýðsbúðum í Nablus 20. júlí til 5. ágúst. Þegar hafa fimm verið skráðir héðan. 26.6.2005 00:01
Bubbi höfðar skaðabótamál Bubbi Morthens segist ekki samþykkja að hægt sé að beita sig og fjölskyldu sína ofbeldi í skjóli ritfrelsis. Hann ætlar að draga þá sem bera ábyrgð á forsíðufréttum <em>Hér og nú</em> fyrir dómstóla og spyr hvar þjóðin vilja draga mörkin í umfjöllun um persónulega hagi fólks. 26.6.2005 00:01
Samúð um allan heim Samúðin með fórnarlömbum hamfaranna greip um sig um allan heim og fólk sameinaðist í að styðja við þá sem stóðu eftir án heimils, lifibrauðs og ástvina. Framlög almennings á Íslandi námu 231 milljón króna. 26.6.2005 00:01