Fleiri fréttir

Mestu átök í fjögur í ár

Lík 178 skæruliða hafa fundist í Afganistan eftir þriggja daga skærur milli bandarískra og afganskra hersveita við uppreisnarmenn í Miana Shen-héraði í síðustu viku.

Sósíalistar sigra í Búlgaríu

Sósíalistaflokkurinn fékk flest atkvæði í þingkosningunum í Búlgaríu samkvæmt útgönguspám, en náði þó ekki hreinum meirihluta.

Seltirningar völdu S-tillögu

Meirihluti Seltirninga veitti í gær svokallaðri S-tillögu brautargengi í almennum kosningum um skipulag í bænum. Kosið var milli tveggja tillaga um framtíðaruppbyggingu á Hrófskálamel þar sem frystihúsið Ísbjörninn stóð áður og við Suðurströnd. Deilt var um hvort gervigrasvöllur ætti að vera austan eða vestan við íþróttamiðstöð bæjarins.

Yfir 500 látnir í flóðum í Kína

Yfir fimm hundruð manns hafa látist af völdum sumarflóða í Kína og meira en ein milljón neyðst til þess að yfirgefa heimili sín. Flóðin í ár eru þau mestu í Kína í áratug og í kjölfar þeirra hafa fjölmargar ár flætt yfir bakka sína og aurskriður fallið á íbúðarbyggð. Talið er að fjárhagslegt tjón vegna flóðanna nemi nærri hundrað milljörðum króna.

Fundu konu sem saknað hafði verið

Björgunarsveitarmenn úr Húnavatnssýslu fundu fyrir stundu konu sem leitað hefur verið í grennd við Blönduós frá því um miðja nótt. Hún hafði fallið ofan í djúpan skurð og meitt sig þannig að hún komst ekki upp úr honum aftur. Hún var köld og hrakin þegar hún fannst og er nú verið að flytja hana á sjúkrahúsið á Blönduósi til aðhlynningar.

Sprengjum varpað á uppreisnarmenn

Súdanski herinn varpaði í morgun sprengjum á uppreisnarmenn sem berjast gegn stjórnvöldum í landinu. Talsmaður uppreisnarmannanna segir orustuflugvélar hafa varpað hverri sprengjunni á fætur annarri og verið sé að flytja burt slasaða. Enn hefur ekki frést af mannfalli.

Læknar komi að yfirheyrslum

Læknar í fangelsinu á Guantanamo-flóa á Kúbu hafa aðstoðað fangaverði við útfærslu á grimmdarlegum yfirheyrslum. Í viðtölum bandaríska dagblaðsins <em>New York Times</em> við nokkra fangaverði kemur fram að læknar hafi gefið þeim upplýsingar um hvernig mætti notfæra sér fælni fanganna til þess að fá þá til að leysa frá skjóðunni.

Göng undir Almannaskarð opnuð

Vaskir verktakar við gerð jarðganga undir Almannaskarð, rétt austan við Höfn í Hornafirði, eru nú að ljúka frágangi við göngin sem formlega verða tekin í notkun í dag. Með vegskálum beggja vegna ganganna eru þau rúmlega 1100 metra löng og nýir vegkaflar beggja vegna eru samtals um fimm kílómetrar.

Önnur umferð kosninga í Íran

Önnur umferð forsetakosninga í Íran hófst í morgun. Valið stendur á milli umbótasinnans Akbars Rafsanjani og harðlínumannsins Mahmouds Akmadinsjads. Kosningarnar skipta miklu máli um framtíð Írans enda eru frambjóðendurnir tveir eins og svart og hvítt.

Var ekki með haffærisskírteini

Lögreglumenn biðu á bryggjunni þegar handfæra- og línubáturinn Eyjólfur Ólafsson GK kom til Sandgerðis í gærkvöldi eftir að mikil leit hafði verið gerð að bátnum í gær. Það var gert þar sem hann hvarf úr sjálfvirka tilkynningaskyldukerfinu og ekki náðist samband við hann um talstöð eða síma. Í ljós kom að báturinn hafði farið út fyrir leyfileg mörk, hann hafði ekki haffærisskírteini og hvorugur bátsverja hafði fullgilda lögskráningu á bátinn og voru því ótryggðir.

Geti ekki fækkað hermönnum strax

Bandaríkin ættu ekki einu sinni að íhuga að fækka hermönnum í Írak næstu árin. Þetta er haft eftir hershöfðngjum innan Bandaríkjahers í Írak í nýjasta tímariti <em>Economist</em>. George Bush Bandaríkjaforseti og Donald Rumsfeld varnarmálaráðherra hafa ítrekað talað um að írakski herinn sé vel á veg kominn til að verja land sitt og Bandaríkjamenn geti hafið brottfluttning í áföngum þegar í upphafi næsta árs.

Gæðavodki framleiddur í Borgarnesi

Uppsetningu og frágangi á eimi til framleiðslu á sérstökum gæðavodka er nú að ljúka í blöndunarstöð Egils Skallagrímssonar í Borgarnesi. Til þessa hefur farið fram vínblöndun í stöðinni en nú á að framleiða vodka sem sérstaklega er miðaður við stóra, erlenda markaði. Á vef <em>Skessuhorns</em> er haft er eftir Kristmari Ólafssyni, framkvæmdastjóra fyrirtækisins, að vonast sé til að vodkinn verði tilbúinn á markað í september.

Launamunur skýrist af ýmsum þáttum

Samtök atvinnulífsins í Svíþjóð, SN, segja ítarlegar rannsóknir sínar á launamun kynjanna sýna að hann skýrist að mestu leyti af þáttum á borð við aldur, starfsval, menntun og gerð fyrirtækja. Að teknu tilliti til þessara þátta sé munurinn 4,8 prósent en minnki enn ef skoðuð er ábyrgð, til dæmis fjöldi undirmanna eða fjárhæðir sem ábyrgð er borin á, eða starfsaldur hjá viðkomandi fyrirtæki.

Rússi á leið heim eftir hnífaatvik

Rússneski sjómaðurinn sem fékk hníf í kviðinn um borð í sjóræningjatogara skammt utan við 200 mílna mörkin á Reykjaneshrygg nýverið fer til Rússlands í dag. Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti manninn á sínum tíma og gekkst hann undir aðgerð á Landsspítalanum. Undanfarið hefur hann svo dvalið á hóteli í borginni en umboðsmaður skipsins hér á landi keypti flugmiða og flýgur maðurinn því heim á leið í dag.

Árekstrum við lögreglubíla fjölgar

Fólki sem ferst eða slasast alvarlega í árekstrum við lögreglubifreiðar sem bruna á vettvang hefur fjölgað um sextíu prósent á einu ári í Bretlandi. Yfir tvö þúsund manns slösuðust í slysum af þessu tagi í Englandi og Wales á milli apríl 2003 og 2004 og fjölgaði þeim um 700 miðað við sama tíma árið áður.

Samið um þróunarsamvinnu

Tvíhliða samningur um þróunarsamvinnu Íslands við Srí Lanka var undirritaður í Kólombó, höfuðborg landsins, í morgun. Samningurinn er gerður til fimm ára og nemur framlag Íslands til þróunarstarfs í landinu á þessu ári 75 milljónum króna. Þetta er fyrsta þróunarverkefni Íslands utan Afríku.

Tilbúin langt á undan áætlun

Vaskir verktakakar við gerð jarðganga undir Almannaskarð, rétt austan við Höfn í Hornafirði, eru nú í óða önn að sópa og snurfusa göngin, sem formlega verða tekin í notkun í dag, langt á undan áætlun.

Lá hjálparvana í djúpum skurði

Björgunarsveitarmenn úr Húnavatnssýslum fundu á níunda tímanum í morgun húsfreyju af sveitabæ í grennd við Blönduós, þar sem hún lá hjálparvana og hrakin ofan í djúpum skurði.

Þungir dómar fyrir amfetamínsmygl

Tveir menn á þrítugs- og fertugsaldri voru í dag dæmdir í Héraðsdómi Reykjavíkur í sex og sex og hálfs árs fangelsi fyrir tilraun til að smygla tæpum átta kílóum af amfetamíni til landsins frá Hollandi.

Fjölgar í tjaldbúðum fyrir austan

Heldur hefur fjölgað í tjaldbúðum mótmælenda að Kárahnjúkum. Birgitta Jónsdóttir, skáld og einn mótmælendanna sem hyggjast halda upp eftir um mánaðamótin næstu, segir um tólf manns vera búna að koma sér fyrir í nokkrum tjöldum. Flytja þurfti búðirnar í gær að ósk Landsvirkjunar og eru þær nú vestan megin við Jöklu, á landi sem er í eigu Egilsstaða.

Lítill árangur í Ulsan

Fundi Alþjóðahvalveiðiráðsins í Ulsan í Suður-Kóreu lauk í dag með litlum árangri. Hvorki gekk né rak að taka ákvarðanir eða marka nýja stefnu og er staðan því óbreytt.

Jarðarbúar nærri 6,5 milljarðar

Mannkyninu fjölgar jafnt og þétt og eru íbúar jarðarinnar nú nærri 6,5 milljarðar samkvæmt upplýsingum frá frönsku lýðfræðirannsóknastofnuninni. Helmingur íbúanna býr í aðeins sex löndum: Kína, Indlandi, Bandaríkjunum, Indónesíu, Brasilíu og Pakistan. Sextíu og einn af hverjum hundrað íbúum jarðar býr í Asíu, fjórtán í Afríku, ellefu í Evrópu, níu í Suður-Ameríku, fimm í Norður-Ameríku og tæplega einn í Ástralíu.

86% Íslendinga nota Netið daglega

Hlutfall heimila með nettengingu er hvergi hærra í Evrópu en á Íslandi. 88 prósent Íslendinga nota tölvu og 86 prósent nota Netið nær daglega.

12 sveitarfélög þurfa fjárframlag

Tólf sveitarfélög í landinu hafa fengið úthlutað aukaframlagi úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga vegna þess alvarlega fjárhagsvanda sem þau glíma við en úthlutað var úr sjóðnum í vikunni.

Þrettán CIA-menn verði handteknir

Dómari á Ítalíu hefur skipað fyrir um handtöku þrettán útlendinga sem tengjast bandarísku leyniþjónustunni CIA. Þeim er gefið að sök að hafa rænt egypskum kaupsýslumanni á götu í Mílanó og flutt hann nauðugan til Egyptalands þar sem hann var yfirheyrður. Maðurinn var grunaður um tengsl við hryðjuverkamenn og að hafa barist í Afganistan og Bosníu.

Vill Bandaríkjaher burt hið fyrsta

Bandaríkin ættu ekki einu sinni að íhuga að fækka hermönnum í Írak næstu árin, að mati bandarískra hershöfðingja. Forsætisráðherra Íraks vill hins vegar að þeir fari við fyrsta mögulega tækifæri.

Farsímaþjónusta dýrust í Noregi

Norskir neytendur greiða hærra verð fyrir farsímaþjónustu en Íslendingar samkvæmt mánaðargamalli úttekt breska greiningarfyrirtækisins Teligen sem birt var í vikunni.

Reyndu að smygla amfetamíni og LSD

Tveir menn á þrítugs- og fertugsaldri voru í dag dæmdir í Héraðsdómi Reykjavíkur í sex og sex og hálfs árs fangelsi fyrir tilraun til að smygla tæpum átta kílóum af amfetamíni og töluverðu magni af LSD til landsins frá Hollandi. Alls voru sakborningarnir í málinu fimm og fengu aðrir tveir sem að málinu komu annars vegar hálfs árs fangelsisdóm og hins vegar fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi.

Fjárdráttarmáli vísað til lögreglu

Velferðarsvið Reykjavíkurborgar hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna gruns um fjárdrátt starfsmanns Reykjavíkurborgar úr heimilissjóði íbúa á einu þeirra heimila sem ætlað er fötluðum. Þar segir að undanfarið hafi farið fram rannsókn af hálfu Reykjavíkurborgar, meðal annars til þess að athuga hvort tilefni væri til að vísa málinu til lögreglu. Á fundi borgarráðs í gær var samþykkt að vísa málinu til lögreglu til frekari rannsóknar.

Engar hæfniskröfur gerðar

"Ástæðan er einfaldlega sú að lög kveða á um að stöðuna skuli auglýsa með þessum hætti," segir Jón Vilberg Guðjónsson, lögfræðingur hjá Menntamálaráðuneytin um auglýsingu um embætti útvarpsstjóra.

Opnunartími kjörstaða framlengdur

Kjörstjórn í Íran hefur ákveðið að framlengja opnunartíma kjörstaða í landinu um klukkutíma vegna þess hversu margir bíða eftir því að fá að kjósa, en seinni umferð forsetakosninga fer fram þar í landi. Kjörstaðir voru opnaðir kl. hálffimm í morgun að íslenskum tíma og átti að loka þeim nú klukkan hálfþrjú en því hefur sem sagt verið breytt til hálffjögur.

Mótmæla stækkun Fríhafnarverslunar

Samtök verslunar og þjónustu mótmæla stækkun Fríhafnarkomuverslunar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Ástæðan er sú að ríkið á og rekur verslunina þótt sérstök stjórn og framkvæmdastjóri stýri rekstrinum í umboði utanríkisráðuneytisins. „Stjórnskipulega er utanríkisráðuneytið eigandi og rekstraraðili stærstu snyrtivöruverslunar landins,“ segir í tilkynningu frá samtökunum.

Netnotkun óvíða meiri

Rúm 80 prósent allra íslenskra heimila eru tengd internetinu og er það hlutfall það hæsta í gervallri Evrópu samkvæmt niðurstöðum könnunar sem Hagstofa Íslands hefur gert.

Þurfti að „umbera“ finnskan mat

Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, hefur tekist að móðga Finna svo herfilega með athugasemdum um matinn þeirra og forsetann að margir Finnar hyggjast hætta að kaupa ítalskar vörur. Berlusconi ku hafa sagt að hann hefði þurft að umbera finnskan mat einhvern tímann og hann hefði þurft að beita öllum glaumgosabrögðum sínum til að sannfæra Törju Halonen, forseta Finnlands, um að hætta að sækjast eftir að fá Evrópsku matvælaöryggisstofnunina til Finnlands.

Heilsugæslan skilaði afgangi

Rekstur Heilsugæslunnar í Reykjavík, Kópavogi, Seltjarnarnesi og Mosfellsumdæmi skilaði 40,7 milljóna króna afgangi miðað við fjárheimildir á árinu 2004. Svarar það til 1,4 prósenta af heildarútgjöldum stofnananna á árinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Heilsugæslunni. Þar segir enn fremur að afgangurinn lækki uppsafnaðan halla frá liðnum árum um 13 prósent.

Uppbyggingarstarf geti tekið 10 ár

Þrátt fyrir að framlög til uppbyggingar hafi aldrei verið meiri en eftir fljóðbylgjuna í Suðaustur-Asíu annan dag jóla í fyrra mun það taka allt að tíu ár að ljúka uppbyggingarstarfinu. Þetta segir Jan Egeland sem fer fyrir neyðarhjálp Sameinuðu þjóðanna á svæðinu við Indlandshaf.

Flóttamenn kröfðust aðgerða

Flóttamenn sem dvalið hafa á gistiheimilinu Fit í Reykjanesbæ undanfarna mánuði fóru í dag í kröfugöngu um Keflavík. Þeir dreifðu bréfi þar sem kemur fram að þeir séu orðnir langþreyttir á seinagangi íslenska kerfisins og að þeim finnist undarlegt að hægt sé að fljúga Bobby Fischer til landsins með íslenskt vegabréf eins og ekkert sé, á meðan umsækjendur um pólitískt hæli húki mánuðum saman algerlega aðgerðalausir án þess að fá nokkra lausn sinna mála.

Greiði bætur vegna graðhests

Steypustöðin Dalvík ehf. og Sjóvá-Almennar voru í dag dæmd til að greiða eiganda graðhestsins Ísaks frá Ketilsstöðum 550.000 krónur í bætur ásamt vöxtum. Hesturinn drapst þegar steypubíll frá Steypustöðinni ók á hann skammt frá Dalvík í október árið 2002. Ísak var undan kynbótahestinum Hrafni frá Holtsmúla og ágætlega ættaðri hryssu, Litlu-Löpp frá Möðruvöllum. Ísak frá Ketilsstöðum var því metinn á 1,1 milljón króna.

Gerðu 4,2 tonn af kókaíni upptæk

Lögregla í Portúgal greindi frá því í dag að hún hefði lagt hald á 4,2 tonn af kókaíni á dögunum. Efnið fannst í vörugeymslu í bænum Almeirim austur af höfuðborginni Lissabon og voru tveir Portúgalir og tveir Kólubíumenn handteknir í tengslum við aðgerðirnar. Þetta er mesta magn eiturlyfja sem Europol, lögreglustofnun Evrópusambandsins, hefur lagt hald í ár en samkvæmt portúgölsku lögreglunni var kókaínið ætlað fyrir Spánarmarkað.

Flugvöllur lokaður vegna verkfalls

Flug til og frá flugvellinum í Bagdad í Írak liggur nú niðri eftir að verktakar á vegum bresks öryggisfyrirtækis fóru í verkfall um hádegisbil vegna deilna fyrirtækisins og Íraksstjórnar um greiðslur. Breskar fyrirtækið Global Risk Strategies hefur um 500 starfsmenn á flugvellinum sem ætlað er að gæta öryggis á flugvellinum. Þeir hafa nú allir lagt niður vinnu, að sögn breska fyrirtækisins vegna þess að Íraksstjórn hefur ekki staðið við gerða samninga.

Útflutningur kvikasilfurs bannaður

Umhverfisráðherrar Evrópusambandsríkjanna sömdu um það á fundi sínum í dag að banna útflutning á kvikasilfri fyrir árslok 2010. Þá vilja þeir einnig draga úr notkun málmsins í hitamælum og vinna að því á alþjóðavettvangi að draga úr losun þessa fljótandi málms í náttúrunni.

Aðgerðir til hagræðingar í Háskólanum á Akureyri

Háskólaráð Háskólans á Akureyri hefur samþykkt að ráðast í aðgerðir til að draga úr rekstrarkostnaði þar sem fyrir liggur að fjárveitingar nægja ekki til að greiða þann kennslukostnað sem núverandi námsframboð leiðir af sér. A.m.k. 40 milljónir króna á ári að jafnaði skortir til að endar nái saman og hefur verið skipaður sérstakur starfshópur sem fara á yfir rekstrarkostnað og endurskipulagningu deilda.

Birgðastaða lambakjöts eðlileg

"Útflutningur lambakjöts mun verða með svipuðu móti og verið hefur og mögulegur skortur hefur lítil áhrif á það," segir Baldvin Jónsson, verkefnisstjóri hjá Bændasamtökunum.

Bandarískir hermenn felldir í Írak

Talið er að sex bandarískir hermenn hafi látist í bílsprengjuárás á herlest þeirra í Fallujah í Írak í dag. Lík af tveimur mannanna hafa fundist en samkvæmt talsmanni Bandaríkjahers er hinna fjögurra saknað. Árásin var gerð síðla dags að írökskum tíma, en árásir þar hafa verið fátíðar eftir að hersveitir Íraka og Bandaríkjamanna sóttu þar hart fram gegn andspyrnumönnum fyrir nokkrum mánuðum.

Fæðingarþunglyndi geti hrjáð feður

Feður geta líka þjáðst af fæðingarþunglyndi og það sem meira er - börn feðra sem kljást við fæðingarþunglyndi eru margfalt líklegri til að eiga við ýmiss konar hegðunarvandamál að stríða á ævinni. Þetta eru niðurstöður rannsóknar nokkurra lækna við Bristol og Oxford-háskóla í Bretlandi. 8.340 feður voru rannsakaðir og kom í ljós að þrjú og hálft prósent þeirra greindust með einhvers konar fæðingarþunglyndi.

Sjá næstu 50 fréttir