Fleiri fréttir Alvarlegt samkeppnisbrot Símans Samkeppnisráð hefur komist að þeirri niðurstöðu að Landssíminn hafi misnotað markaðsráðandi stöðu sína með því að tvinna saman ólíka þjónustuhætti og veita tryggðarafslætti í svonefndu "Allt saman" tilboði. Samkvæmt úrskurði Samkeppnisráðs skekkti Landssíminn á alvarlegan hátt samkeppni á markaði og misnotaði markaðsráðandi stöðu sína. 24.6.2005 00:01 Seltirningar kjósa í dag Í dag gefst Seltirningum kostur á að kjósa um tvær skipulagstillögur sem settar hafa verið fram um framkvæmdir á svæðinu við Suðurströnd og Hrólfsskálamel við miðbæinn. Kosningin fer fram í Valhúsaskóla og opnar kjörstaður klukkan níu í morgunsárið en lokar klukkan tíu í kvöld.</font /> 24.6.2005 00:01 Prestar vilja gifta samkynhneigða "Við fögnum því að þjóðkirkjan sé að svara kalli tímans," segir Sigursteinn Másson varaformaður Samtakana 78 vegna þeirrar óskar sem biskupi Íslands barst í gær á prestastefnunni sem nú er haldin um að þjóðkirkjan komi að hjúskaparstofnun samkynhneigðra para með hliðstæðum hætti og hjá gagnkynhneigðum. 24.6.2005 00:01 Lögregla lýsir eftir manni Lögreglan lýsir eftir Hafsteini Eðvarðssyni. Síðast er vitað um ferðir Hafsteins við Djúpavog um klukkan fjögur í gær. Talið var að hann væri á leið til Egilsstaða. Hafsteinn, sem er fertugur, var á jeppabifreið af gerðinni Kia Sportage, ljósgrárri að lit. Þeir sem geta veitt upplýsingar um ferðir Hafsteins eru beðnir um að hafa samband við lögregluna á Fáskrúðsfirði. 24.6.2005 00:01 Hvalveiðisinnar guldu afhroð Hvalveiðisinnar guldu afhroð á fundi alþjóðahvalveiðiráðsins sem lauk í Suður-Kóreu í morgun. Þó að nafnið gefi til kynna að þar sé á ferðinni ráð sem hafi umsjón með veiðum, er meirihluti aðildarríkjanna á því að friða hvali með öllu. 24.6.2005 00:01 Dæmd fyrir kókaínsmygl í hárkollu Erlend kona á sjötugsaldri var í dag dæmd í eins og hálfs árs fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness fyrir að hafa flutt inn kókaín sem falið var í hárkollu sem hún bar. 24.6.2005 00:01 Boðið upp á hvalkjötsborgara Japönsk skyndibitakeðja hefur ekki áhyggjur af því þótt Japanar séu harðlega gagnrýndir fyrir hvalveiðar og áform um að auka þær. Hefur skyndibitakeðjan, sem er á eynni Hokkaido, tekið upp á því að bjóða upp á hrefnukjötsborgara á 240 krónur og segja forsvarsmenn hennar að með þessari nýjung gefist tækifæri til að nýta hvalkjötsbirgðir landsmanna sem séu allverulegar. 24.6.2005 00:01 Aðgerðir gegn hallarekstri Háskólaráð Háskólans á Akureyri samþykkti í gær tillögur til þess að draga úr rekstrarkostnaði skólans. Ráðið skipaði jafnframt starfshóp sem fara á yfir rekstrarkostnað og skipulag Auðlindadeildar, Upplýsingatæknideildar og og Félagsvísinda- og langadeildar skólans. 24.6.2005 00:01 Framtíðin ekki endilega á Hlemmi Sólmundur Már Jónsson, framkvæmdastjóri rekstar- og þjónustusviðs lögreglunnar í Reykjavík, varpaði fram þeirri hugmynd á fundi um skipulagsmál við Hlemm í vikunni að lögreglustöðin gæti vel flutt sig um set ef þurfa þætti. 24.6.2005 00:01 Mótmæltu seinagangi kerfisins Átta flóttamenn frá fjölmörgum löndum mótmæltu á götum Reykjanesbæjar í dag. Þeir hafa dvalið á gistiheimili í bænum undanfarna mánuði og mótmæla seinagangi kerfisins; segja íslensk stjórnvöld ekki líta á sig sem mannverur. 24.6.2005 00:01 Lögmaður borgi sex milljónir Hæstaréttarlögmaður í Reykjavík þarf að greiða verðbréfafyrirtæki 6 milljónir króna, auk dráttarvaxta og 400 þúsund króna í málskostnað, samkvæmt dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í gær. 24.6.2005 00:01 Fimm hlutu dóm í Dettifossmáli Fjórir voru fengu fangelsisdóma í seinni hluta svonefnds Dettifossmáls í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Þyngstu dómarnir námu sex og hálfu og sex árum. Þá fékk maður hálfsársdóm, kona fjóra mánuði skilorðsbundna og einn fékk 40 þúsund króna sekt. Smyglararnir þurfa að borga fyrir efnarannsókn á eiturlyfjunum sem þeir voru gripnir með. 24.6.2005 00:01 Borgin bætir stuld af fötluðum Borgarráð samþykkti á fundi sínum á fimmtudag að vísa til lögreglu meintum fjárdrætti starfsmanns borgarinnar úr heimilissjóði íbúa á heimili ætluðu fötluðum. 24.6.2005 00:01 Söngur dans og leikur Kirkjudagar þjóðkirkjunnar hófust í gær á Skólavörðuholti í Reykjavík og standa áfram með fjölbreyttri dagskrá í dag, frá hádegi fram til klukkan sex. Í boði er margvísleg skemmtan fyrir börn og unglinga, auk þess sem fjöldi hópa kynnir kirkjustarf sitt. 24.6.2005 00:01 Grænar baunir og torfæra Um þessar mundir standa nokkur bæjar- og sveitarfélög fyrir uppákomum um helgina sem laðað geta að ferðamenn. Til dæmis eru hátíðarhöld á Bíldudal og á Flúðum. 24.6.2005 00:01 Bílstjórar sjá ekki merkin Lögreglan í Ólafsvík tók tíu ökumenn fyrir of hraðan akstur, á vegaköflum þar sem vegaframkvæmdir stóðu yfir og búið að lækka hámarkshraða í 50 kílómetra á klukkustund, eftir kvöldmat á fimmtudag. Nokkuð var um að rúður brotnuðu í bílum vegna grjótkasts. 24.6.2005 00:01 Fékk refsilækkun fyrir aðstoðina 64 ára gömul hollensk kona sem gripin var í Leifsstöð með 759 grömm af kókíni falin í sérsaumaðri hárkollu fékk refsingu mildaða í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær, vegna þess hve hún var samvinnuþýð við lögreglu. Konan var dæmd í eins og hálfs árs fangelsi. 24.6.2005 00:01 Kona lá í skurði fram á morgun Um klukkan átta í gærmorgun fannst kona um fimmtugt sem horfið hafi heiman frá sér á bæ í nágrenni Blönduóss eftir miðnætti kvöldið áður. Konan, sem átt hefur við vanheilsu að stríða, gerði sjálf vart við sig þar sem hún lá í skurði um 150 metra frá heimili sínu. 24.6.2005 00:01 Fylgi Framsóknar fimm prósent Fylgi Framsóknarflokksins í Reykjavík er minna en fimm prósent samkvæmt þjóðarpúlsi Gallup frá því í byrjun mánaðarins. Í könnuninni mældist fylgi flokksins í sögulegu lágmarki eða átta og hálfu prósenti á landsvísu sem er minna en helmingur af kjörfylgi flokksins í síðustu alþingiskosningum. 24.6.2005 00:01 Ársfundi hvalveiðiráðsins lokið 24.6.2005 00:01 Vill kosningar um stækkun álvers Alcan á að leggja til hliðar áform sín um að stækka álverið í Straumsvík. Þetta segir umhverfisnefnd Hafnarfjarðar. Stækkunin gæti orðið að pólitísku hitamáli, en fulltrúi í umhverfisnefnd vill að bæjarbúar kjósi um hana í haust. 24.6.2005 00:01 Neyðast til að kveðja í kyrrþey Kostnaður vegna jarðarfara og erfidrykkju er orðinn svo mikill að margir neyðast til að kveðja látna ástvini í kyrrþey. Kirkjan segir það óheillaþróun að jarðarfarir reynist mörgum fjárhagslegur baggi. 24.6.2005 00:01 Hugsanlegt að áminna forstöðumenn Fjármálaráðherra segir að til greina komi að áminna forstöðumenn stofnana, sem fara fram úr á fjárlögum, en ekki að frysta launagreiðslur til þeirra, eins og lagt er til í skýrslu Ríkisendurskoðanda. 24.6.2005 00:01 Umferðaröryggi eykst með göngum Umferðaröryggi á Suðausturlandi jókst til muna í dag þegar göng undir Almannaskarð voru opnuð. Verkið kostaði minna en gert var ráð fyrir og lauk rúmum þremur mánuðum á undan áætlun. 24.6.2005 00:01 Flóttamenn mótmæla Níu flóttamenn sem dvelja á tveimur gistiheimilum í Reykjanesbæ mótmæltu í gær meðferð íslenskra stjórnvalda á þeim. Flóttamennirnir, sem allir hafa sótt um atvinnu- og dvalarleyfi á Íslandi, segja aðbúnað sinn lélegan og undrast hversu hægt gangi að vinna úr þeirra málum. 24.6.2005 00:01 Berlusconi orðhákur Finnska sendiráðið á Ítalíu hefur sent formlega kvörtun til Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, vegna ummæla sem hann lét falla um Tarju Halonen, forseta Finnlands. 24.6.2005 00:01 Kúariðusmit staðfest Prófanir hafa staðfest að kýr sem drapst í Bandaríkjunum fyrir skemmstu var sýkt af kúariðu. Þetta er annað kúariðutilfellið sem kemur upp þar vestanhafs en hið fyrra kom upp í desember árið 2003. 24.6.2005 00:01 Refaferðir á Vestfjörðum eftir ár Skipulagðar refaferðir verða boðnar í fyrsta skipti á Íslandi næsta sumar. Áfangastaðurinn er Vestfirðir, þar sem þá flesta er að finna, um eitt hundrað talsins. Þessi spöku dýr sem kunna vel að meta þegar að þeim er réttur harðfiskur eða pylsur. 24.6.2005 00:01 Fundað í Washington George W. Bush Bandaríkjaforseti og Ibrahim al-Jaafari, forsætisráðherra Íraks, hittust í Washington í gær og ræddu stöðu og horfur í landi hins síðarnefnda. 24.6.2005 00:01 Mannskæð flóð í Kína Í það minnsta 536 manns fórust í árlegum sumarflóðum í suðurhluta Kína. Nauðsynlegt hefur verið að flytja hundruð þúsunda manna frá heimilum sínum. 24.6.2005 00:01 Klofin þjóð gengur að kjörborðinu Íranar gengu að kjörborðinu í gær í annað sinn á einni viku. Hashemi Rafsanjani og Mamhoud Ahmadinejad tókust á um forsetaembættið en vitað var að mjótt yrði á mununum. Endanleg úrslit liggja fyrir í dag. 24.6.2005 00:01 Eldur í húsi við Grettisgötu Lið frá öllum slökkviliðsstöðvum á höfuðborgarsvæðinu var kallað á vettvang eftir að mikill eldur gaus upp í tvílyftu bakhúsi við Grettisgötu laust fyrir klukkan eitt í nótt. Þegar slökkvilið kom á vettvang var húsið, sem er járnklætt timburhús, nær alelda. 23.6.2005 00:01 Sama konan í tveimur ránum? Flest bendir til að ein og sama unga og ljóshærða konan hafi staðið að tveimur ránum á höfuðborgarsvæinu seint í gærkvöldi. Fyrst ógnaði hún starfsstúlku á American Style í Kópavogi með steikarhnífi á tólfta tímanum í gærkvöldi og heimtaði peninga. 23.6.2005 00:01 Sjö bílsprengjur í Bagdad í nótt Minnst þrjátíu og átta eru látnir og um það bil eitt hundrað særðir eftir sjö bílsprengingar í Bagdad, höfuðborg Íraks, í nótt. Rétt fyrir miðnætti sprungu fjórar bílsprengjur í íbúðahverfi sjíta í höfuðborginni með þeim afleiðingum að tuttugu og þrír létust. Al-Qaida hefur lýst ábyrgð á þeim árásum. 23.6.2005 00:01 Gagnrýnir útboð Herjólfs Grímur Gíslason, fyrrverandi formaður Herjólfs, gagnrýnir vinnubrögð Vegagerðarinnar vegna útboðs Herjólfs árið 2000. Vegagerðin neitaði honum sífellt um gögn um tilboð Samskipa og Herjólfs í reksturinn þar til úrskurðarnefnd um upplýsingamál skipaði henni að afhenda þau. 23.6.2005 00:01 Meira en 10% af landsframleiðslu Ísland er eitt sex ríkja innan OECD þar sem útgjöld til heilbrigðismála nema meira en tíu prósentum af landsframleiðslu. Meðalútgjöld til heilbrigðismála á hvern einstakling hér á landi eru um 200 þúsund krónur á ári og alls nema útgjöld til málaflokksins 10,5 prósentum af landsframleiðslu. 23.6.2005 00:01 Blair: ESB verði endurskilgreint Það verður að endurskilgreina Evrópusambandið í grundvallaratriðum. Þetta sagði Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, á fundi með Evrópuþinginu í morgun. 23.6.2005 00:01 Skotið á hjálparstarfsmann Skotið var á hjálparstarfsmann á hamfarasvæðunum í Inónesíu í gær. Starfsmaðurinn er ekki í lífshættu en vegarspotta í nágrenninu hefur verið lokað til öryggis, enda er þetta í fyrsta sinn sem atvik af þessu tagi á sér stað í alla þá sex mánuði sem hjálparstarfið hefur staðið yfir. Ekki liggur enn fyrir hver var að verki eða hvers vegna. 23.6.2005 00:01 Hitabylgja í París Íbúar Parísar fara ekki varhluta af sumrinu. Hitabylgja hefur verið í borginni undanfarna daga og hefur hitinn vart farið undir þrjátíu gráður þegar sólin er hæst á lofti. Bæði túristar og heimamenn nýta sér gosbrunna borgarinnar til hins ítrasta til að kæla sig niður, enda líklega fullheitt til þess að standa í stórtækum skoðunarferðum. 23.6.2005 00:01 Aron Pálmi: Nefndinni sent erindi Stuðningsnefnd Arons Pálma Ágústssonar hefur sent náðunar- og reynslulausnarnefnd Texasfylkis sérstakt erindi þar sem þess er farið á leit að fyrirtaka á máli Arons Pálma verði flýtt, honum veitt ferðafrelsi og leyft að fara til Íslands sem fyrst. 23.6.2005 00:01 59% samþykktu kjarasamninginn Starfsmannafélag Hafnarfjarðar hefur samþykkt kjarasamning félagsins við Hafnarfjarðarbæ með tæplega 60% greiddra atkvæða. Um 20 % félagsmanna, eða 113 manns, tóku þátt í atkvæðagreiðslu um samninginn. Atkvæði fóru þannig: Já sögðu 67 eða 59%, nei sögðu 45 eða 40%, einn seðill var auður eða 1%. 23.6.2005 00:01 Friðarumleitanir efst á baugi Friðarumleitanir í Miðausturlöndum verða efst á baugi á fundi utanríkisráðherra átta stærstu iðnríkja heims sem hófst í Lundúnum í morgun. Fundurinn fylgir í kjölfar heimsóknar Condoleezzu Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, til Miðausturlanda en líklegt þykir að áform Ísraela um brottflutning frá Gaza-svæðinu verði aðallega rædd. 23.6.2005 00:01 Enn óvíst um eldsupptök Enn er allt á huldu um eldsupptök í bakhúsi við Grettisgötu sem stórskemmdist í eldi í nótt en rannsókn er haldið áfram. 23.6.2005 00:01 Eitt tjald risið við Kárahnjúka Aðeins eitt tjald virðist risið við Kárahnjúka þar sem mótælendur sögðust ætla að reisa tjaldbúðir. Kalt hefur verið á Kárahnjúkum undanfarna daga og hitinn þar var aðeins um tvær gráður í nótt. 23.6.2005 00:01 Ágúst fagnar niðurstöðunni Nýkjörinn varaformaður Samfylkingarinnar fagnar niðurstöðu framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar um að ekkert hafi verið málum blandið varðandi kosningar á landsfundi flokksins. Hörð gagnrýni kom fram á varaformannskosningarnar á landsfundinum. 23.6.2005 00:01 Sjá næstu 50 fréttir
Alvarlegt samkeppnisbrot Símans Samkeppnisráð hefur komist að þeirri niðurstöðu að Landssíminn hafi misnotað markaðsráðandi stöðu sína með því að tvinna saman ólíka þjónustuhætti og veita tryggðarafslætti í svonefndu "Allt saman" tilboði. Samkvæmt úrskurði Samkeppnisráðs skekkti Landssíminn á alvarlegan hátt samkeppni á markaði og misnotaði markaðsráðandi stöðu sína. 24.6.2005 00:01
Seltirningar kjósa í dag Í dag gefst Seltirningum kostur á að kjósa um tvær skipulagstillögur sem settar hafa verið fram um framkvæmdir á svæðinu við Suðurströnd og Hrólfsskálamel við miðbæinn. Kosningin fer fram í Valhúsaskóla og opnar kjörstaður klukkan níu í morgunsárið en lokar klukkan tíu í kvöld.</font /> 24.6.2005 00:01
Prestar vilja gifta samkynhneigða "Við fögnum því að þjóðkirkjan sé að svara kalli tímans," segir Sigursteinn Másson varaformaður Samtakana 78 vegna þeirrar óskar sem biskupi Íslands barst í gær á prestastefnunni sem nú er haldin um að þjóðkirkjan komi að hjúskaparstofnun samkynhneigðra para með hliðstæðum hætti og hjá gagnkynhneigðum. 24.6.2005 00:01
Lögregla lýsir eftir manni Lögreglan lýsir eftir Hafsteini Eðvarðssyni. Síðast er vitað um ferðir Hafsteins við Djúpavog um klukkan fjögur í gær. Talið var að hann væri á leið til Egilsstaða. Hafsteinn, sem er fertugur, var á jeppabifreið af gerðinni Kia Sportage, ljósgrárri að lit. Þeir sem geta veitt upplýsingar um ferðir Hafsteins eru beðnir um að hafa samband við lögregluna á Fáskrúðsfirði. 24.6.2005 00:01
Hvalveiðisinnar guldu afhroð Hvalveiðisinnar guldu afhroð á fundi alþjóðahvalveiðiráðsins sem lauk í Suður-Kóreu í morgun. Þó að nafnið gefi til kynna að þar sé á ferðinni ráð sem hafi umsjón með veiðum, er meirihluti aðildarríkjanna á því að friða hvali með öllu. 24.6.2005 00:01
Dæmd fyrir kókaínsmygl í hárkollu Erlend kona á sjötugsaldri var í dag dæmd í eins og hálfs árs fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness fyrir að hafa flutt inn kókaín sem falið var í hárkollu sem hún bar. 24.6.2005 00:01
Boðið upp á hvalkjötsborgara Japönsk skyndibitakeðja hefur ekki áhyggjur af því þótt Japanar séu harðlega gagnrýndir fyrir hvalveiðar og áform um að auka þær. Hefur skyndibitakeðjan, sem er á eynni Hokkaido, tekið upp á því að bjóða upp á hrefnukjötsborgara á 240 krónur og segja forsvarsmenn hennar að með þessari nýjung gefist tækifæri til að nýta hvalkjötsbirgðir landsmanna sem séu allverulegar. 24.6.2005 00:01
Aðgerðir gegn hallarekstri Háskólaráð Háskólans á Akureyri samþykkti í gær tillögur til þess að draga úr rekstrarkostnaði skólans. Ráðið skipaði jafnframt starfshóp sem fara á yfir rekstrarkostnað og skipulag Auðlindadeildar, Upplýsingatæknideildar og og Félagsvísinda- og langadeildar skólans. 24.6.2005 00:01
Framtíðin ekki endilega á Hlemmi Sólmundur Már Jónsson, framkvæmdastjóri rekstar- og þjónustusviðs lögreglunnar í Reykjavík, varpaði fram þeirri hugmynd á fundi um skipulagsmál við Hlemm í vikunni að lögreglustöðin gæti vel flutt sig um set ef þurfa þætti. 24.6.2005 00:01
Mótmæltu seinagangi kerfisins Átta flóttamenn frá fjölmörgum löndum mótmæltu á götum Reykjanesbæjar í dag. Þeir hafa dvalið á gistiheimili í bænum undanfarna mánuði og mótmæla seinagangi kerfisins; segja íslensk stjórnvöld ekki líta á sig sem mannverur. 24.6.2005 00:01
Lögmaður borgi sex milljónir Hæstaréttarlögmaður í Reykjavík þarf að greiða verðbréfafyrirtæki 6 milljónir króna, auk dráttarvaxta og 400 þúsund króna í málskostnað, samkvæmt dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í gær. 24.6.2005 00:01
Fimm hlutu dóm í Dettifossmáli Fjórir voru fengu fangelsisdóma í seinni hluta svonefnds Dettifossmáls í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Þyngstu dómarnir námu sex og hálfu og sex árum. Þá fékk maður hálfsársdóm, kona fjóra mánuði skilorðsbundna og einn fékk 40 þúsund króna sekt. Smyglararnir þurfa að borga fyrir efnarannsókn á eiturlyfjunum sem þeir voru gripnir með. 24.6.2005 00:01
Borgin bætir stuld af fötluðum Borgarráð samþykkti á fundi sínum á fimmtudag að vísa til lögreglu meintum fjárdrætti starfsmanns borgarinnar úr heimilissjóði íbúa á heimili ætluðu fötluðum. 24.6.2005 00:01
Söngur dans og leikur Kirkjudagar þjóðkirkjunnar hófust í gær á Skólavörðuholti í Reykjavík og standa áfram með fjölbreyttri dagskrá í dag, frá hádegi fram til klukkan sex. Í boði er margvísleg skemmtan fyrir börn og unglinga, auk þess sem fjöldi hópa kynnir kirkjustarf sitt. 24.6.2005 00:01
Grænar baunir og torfæra Um þessar mundir standa nokkur bæjar- og sveitarfélög fyrir uppákomum um helgina sem laðað geta að ferðamenn. Til dæmis eru hátíðarhöld á Bíldudal og á Flúðum. 24.6.2005 00:01
Bílstjórar sjá ekki merkin Lögreglan í Ólafsvík tók tíu ökumenn fyrir of hraðan akstur, á vegaköflum þar sem vegaframkvæmdir stóðu yfir og búið að lækka hámarkshraða í 50 kílómetra á klukkustund, eftir kvöldmat á fimmtudag. Nokkuð var um að rúður brotnuðu í bílum vegna grjótkasts. 24.6.2005 00:01
Fékk refsilækkun fyrir aðstoðina 64 ára gömul hollensk kona sem gripin var í Leifsstöð með 759 grömm af kókíni falin í sérsaumaðri hárkollu fékk refsingu mildaða í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær, vegna þess hve hún var samvinnuþýð við lögreglu. Konan var dæmd í eins og hálfs árs fangelsi. 24.6.2005 00:01
Kona lá í skurði fram á morgun Um klukkan átta í gærmorgun fannst kona um fimmtugt sem horfið hafi heiman frá sér á bæ í nágrenni Blönduóss eftir miðnætti kvöldið áður. Konan, sem átt hefur við vanheilsu að stríða, gerði sjálf vart við sig þar sem hún lá í skurði um 150 metra frá heimili sínu. 24.6.2005 00:01
Fylgi Framsóknar fimm prósent Fylgi Framsóknarflokksins í Reykjavík er minna en fimm prósent samkvæmt þjóðarpúlsi Gallup frá því í byrjun mánaðarins. Í könnuninni mældist fylgi flokksins í sögulegu lágmarki eða átta og hálfu prósenti á landsvísu sem er minna en helmingur af kjörfylgi flokksins í síðustu alþingiskosningum. 24.6.2005 00:01
Vill kosningar um stækkun álvers Alcan á að leggja til hliðar áform sín um að stækka álverið í Straumsvík. Þetta segir umhverfisnefnd Hafnarfjarðar. Stækkunin gæti orðið að pólitísku hitamáli, en fulltrúi í umhverfisnefnd vill að bæjarbúar kjósi um hana í haust. 24.6.2005 00:01
Neyðast til að kveðja í kyrrþey Kostnaður vegna jarðarfara og erfidrykkju er orðinn svo mikill að margir neyðast til að kveðja látna ástvini í kyrrþey. Kirkjan segir það óheillaþróun að jarðarfarir reynist mörgum fjárhagslegur baggi. 24.6.2005 00:01
Hugsanlegt að áminna forstöðumenn Fjármálaráðherra segir að til greina komi að áminna forstöðumenn stofnana, sem fara fram úr á fjárlögum, en ekki að frysta launagreiðslur til þeirra, eins og lagt er til í skýrslu Ríkisendurskoðanda. 24.6.2005 00:01
Umferðaröryggi eykst með göngum Umferðaröryggi á Suðausturlandi jókst til muna í dag þegar göng undir Almannaskarð voru opnuð. Verkið kostaði minna en gert var ráð fyrir og lauk rúmum þremur mánuðum á undan áætlun. 24.6.2005 00:01
Flóttamenn mótmæla Níu flóttamenn sem dvelja á tveimur gistiheimilum í Reykjanesbæ mótmæltu í gær meðferð íslenskra stjórnvalda á þeim. Flóttamennirnir, sem allir hafa sótt um atvinnu- og dvalarleyfi á Íslandi, segja aðbúnað sinn lélegan og undrast hversu hægt gangi að vinna úr þeirra málum. 24.6.2005 00:01
Berlusconi orðhákur Finnska sendiráðið á Ítalíu hefur sent formlega kvörtun til Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, vegna ummæla sem hann lét falla um Tarju Halonen, forseta Finnlands. 24.6.2005 00:01
Kúariðusmit staðfest Prófanir hafa staðfest að kýr sem drapst í Bandaríkjunum fyrir skemmstu var sýkt af kúariðu. Þetta er annað kúariðutilfellið sem kemur upp þar vestanhafs en hið fyrra kom upp í desember árið 2003. 24.6.2005 00:01
Refaferðir á Vestfjörðum eftir ár Skipulagðar refaferðir verða boðnar í fyrsta skipti á Íslandi næsta sumar. Áfangastaðurinn er Vestfirðir, þar sem þá flesta er að finna, um eitt hundrað talsins. Þessi spöku dýr sem kunna vel að meta þegar að þeim er réttur harðfiskur eða pylsur. 24.6.2005 00:01
Fundað í Washington George W. Bush Bandaríkjaforseti og Ibrahim al-Jaafari, forsætisráðherra Íraks, hittust í Washington í gær og ræddu stöðu og horfur í landi hins síðarnefnda. 24.6.2005 00:01
Mannskæð flóð í Kína Í það minnsta 536 manns fórust í árlegum sumarflóðum í suðurhluta Kína. Nauðsynlegt hefur verið að flytja hundruð þúsunda manna frá heimilum sínum. 24.6.2005 00:01
Klofin þjóð gengur að kjörborðinu Íranar gengu að kjörborðinu í gær í annað sinn á einni viku. Hashemi Rafsanjani og Mamhoud Ahmadinejad tókust á um forsetaembættið en vitað var að mjótt yrði á mununum. Endanleg úrslit liggja fyrir í dag. 24.6.2005 00:01
Eldur í húsi við Grettisgötu Lið frá öllum slökkviliðsstöðvum á höfuðborgarsvæðinu var kallað á vettvang eftir að mikill eldur gaus upp í tvílyftu bakhúsi við Grettisgötu laust fyrir klukkan eitt í nótt. Þegar slökkvilið kom á vettvang var húsið, sem er járnklætt timburhús, nær alelda. 23.6.2005 00:01
Sama konan í tveimur ránum? Flest bendir til að ein og sama unga og ljóshærða konan hafi staðið að tveimur ránum á höfuðborgarsvæinu seint í gærkvöldi. Fyrst ógnaði hún starfsstúlku á American Style í Kópavogi með steikarhnífi á tólfta tímanum í gærkvöldi og heimtaði peninga. 23.6.2005 00:01
Sjö bílsprengjur í Bagdad í nótt Minnst þrjátíu og átta eru látnir og um það bil eitt hundrað særðir eftir sjö bílsprengingar í Bagdad, höfuðborg Íraks, í nótt. Rétt fyrir miðnætti sprungu fjórar bílsprengjur í íbúðahverfi sjíta í höfuðborginni með þeim afleiðingum að tuttugu og þrír létust. Al-Qaida hefur lýst ábyrgð á þeim árásum. 23.6.2005 00:01
Gagnrýnir útboð Herjólfs Grímur Gíslason, fyrrverandi formaður Herjólfs, gagnrýnir vinnubrögð Vegagerðarinnar vegna útboðs Herjólfs árið 2000. Vegagerðin neitaði honum sífellt um gögn um tilboð Samskipa og Herjólfs í reksturinn þar til úrskurðarnefnd um upplýsingamál skipaði henni að afhenda þau. 23.6.2005 00:01
Meira en 10% af landsframleiðslu Ísland er eitt sex ríkja innan OECD þar sem útgjöld til heilbrigðismála nema meira en tíu prósentum af landsframleiðslu. Meðalútgjöld til heilbrigðismála á hvern einstakling hér á landi eru um 200 þúsund krónur á ári og alls nema útgjöld til málaflokksins 10,5 prósentum af landsframleiðslu. 23.6.2005 00:01
Blair: ESB verði endurskilgreint Það verður að endurskilgreina Evrópusambandið í grundvallaratriðum. Þetta sagði Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, á fundi með Evrópuþinginu í morgun. 23.6.2005 00:01
Skotið á hjálparstarfsmann Skotið var á hjálparstarfsmann á hamfarasvæðunum í Inónesíu í gær. Starfsmaðurinn er ekki í lífshættu en vegarspotta í nágrenninu hefur verið lokað til öryggis, enda er þetta í fyrsta sinn sem atvik af þessu tagi á sér stað í alla þá sex mánuði sem hjálparstarfið hefur staðið yfir. Ekki liggur enn fyrir hver var að verki eða hvers vegna. 23.6.2005 00:01
Hitabylgja í París Íbúar Parísar fara ekki varhluta af sumrinu. Hitabylgja hefur verið í borginni undanfarna daga og hefur hitinn vart farið undir þrjátíu gráður þegar sólin er hæst á lofti. Bæði túristar og heimamenn nýta sér gosbrunna borgarinnar til hins ítrasta til að kæla sig niður, enda líklega fullheitt til þess að standa í stórtækum skoðunarferðum. 23.6.2005 00:01
Aron Pálmi: Nefndinni sent erindi Stuðningsnefnd Arons Pálma Ágústssonar hefur sent náðunar- og reynslulausnarnefnd Texasfylkis sérstakt erindi þar sem þess er farið á leit að fyrirtaka á máli Arons Pálma verði flýtt, honum veitt ferðafrelsi og leyft að fara til Íslands sem fyrst. 23.6.2005 00:01
59% samþykktu kjarasamninginn Starfsmannafélag Hafnarfjarðar hefur samþykkt kjarasamning félagsins við Hafnarfjarðarbæ með tæplega 60% greiddra atkvæða. Um 20 % félagsmanna, eða 113 manns, tóku þátt í atkvæðagreiðslu um samninginn. Atkvæði fóru þannig: Já sögðu 67 eða 59%, nei sögðu 45 eða 40%, einn seðill var auður eða 1%. 23.6.2005 00:01
Friðarumleitanir efst á baugi Friðarumleitanir í Miðausturlöndum verða efst á baugi á fundi utanríkisráðherra átta stærstu iðnríkja heims sem hófst í Lundúnum í morgun. Fundurinn fylgir í kjölfar heimsóknar Condoleezzu Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, til Miðausturlanda en líklegt þykir að áform Ísraela um brottflutning frá Gaza-svæðinu verði aðallega rædd. 23.6.2005 00:01
Enn óvíst um eldsupptök Enn er allt á huldu um eldsupptök í bakhúsi við Grettisgötu sem stórskemmdist í eldi í nótt en rannsókn er haldið áfram. 23.6.2005 00:01
Eitt tjald risið við Kárahnjúka Aðeins eitt tjald virðist risið við Kárahnjúka þar sem mótælendur sögðust ætla að reisa tjaldbúðir. Kalt hefur verið á Kárahnjúkum undanfarna daga og hitinn þar var aðeins um tvær gráður í nótt. 23.6.2005 00:01
Ágúst fagnar niðurstöðunni Nýkjörinn varaformaður Samfylkingarinnar fagnar niðurstöðu framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar um að ekkert hafi verið málum blandið varðandi kosningar á landsfundi flokksins. Hörð gagnrýni kom fram á varaformannskosningarnar á landsfundinum. 23.6.2005 00:01