Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Með logandi vindil innanklæða Benjamin Nethanyahu, fjármálaráðherra Ísraels, veitti í dag eldheitt útvarpsviðtal í orðsins fyllstu merkingu skömmu fyrir ríkisstjórnarfund. Forsætisráðherrann fyrrverandi var að ræða við fréttamann frá útvarpi hersins þegar fréttamaðurinn sagðist skyndilega finna reykjarlykt. Netanyahu hváði en þá benti fréttamaðurinn honum á að vindill innan á jakkafötum hans stæði í ljósum logum. 29.5.2005 00:01
Sótt gegn andspyrnumönnum í Bagdad Írakski herinn hóf í dag umfangsmestu aðgerð sína frá því að Saddam Hussein var komið frá völdum, en um 40 þúsund hermenn hafa umkringt höfuðborgina Bagdad og hyggjast ganga á milli bols og höfuðs á uppreisnarmönnum í borginni. Þeir njóta aðstoðar 10 þúsund bandarískra hermanna og verður öllum leiðum til og frá borginni lokað og farið hverfi úr hverfi í leit að erlendum sem innlendum uppreisnarmönnum. 29.5.2005 00:01
Annan hvetur til efnda á loforðum Kofi Annan, framkvæmdstjóri Sameinuðu þjóðanna, hvatti í dag þær þjóðir sem lofuðu að aðstoða við uppbyggingu í Suður-Súdan að standa við heit sín, en Anna lauk þriggja daga heimsókn sinni til Súdans með því að kynna sér ástandið í suðurhluta landsins. 29.5.2005 00:01
Klerkur drepinn í Afganistan Byssumenn myrtu í áhrifamikinn afganskan klerk og andstæðing talibana í suðurhluta Afganistans í dag. Mawlavi Abdullah Fayaz var á leið frá skrifsofu sinni í borginni Kandahar þegar tveir menn á vélhjóli óku hjá og skutu hann til bana. Hamid Karzai, forseti Afganistans, fordæmdi morðið og sagði það árás í íslam og hvatti til þess að höndum yrði komið yfir tilræðismennina hið fyrsta. 29.5.2005 00:01
Stefán Már sóknarprestur á Hofi Stefán Már Gunnlaugsson var kjörinn sóknarprestur á Hofi í Vopnafirði með 58 prósentum atkvæða í almennum prestskostningum sem fram fóru í gær, laugardaginn 28. maí. Atkvæði voru talin í dag. Fimm sóttu um embættið en einn umsækjenda dró umsókn sína til baka. Voru því fjórir í kjöri, séra Séra Brynhildur Óladóttir, Klara Hilmarsdóttir guðfræðingur, Stefán Már Gunnlaugsson guðfræðingur og Þóra Ragnheiður Björnsdóttir guðfræðingur. 29.5.2005 00:01
Forseti Indlands kominn Dr. Abdul Kalam, forseti Indlands, er kominn til landsins en flugvél hans lenti á fjórða tímanum. Hann mun í kvöld eiga viðræður við hóp íslenskra vísinda og fræðimanna og þá mun hann einnig hitta stjórnarmenn í Íslensk-indverska verslunarráðinu. Opinber heimsókn hans hefst svo í fyrramálið með móttökuathöfn að Bessastöðum og stendur hún fram á þriðjudagskvöld. 29.5.2005 00:01
Meiri kjörsókn en fyrir 13 árum Um tíu milljónir Frakka höfðu um hádegi greitt atkvæði um stjórnarskrá Evrópusambandsins en það er um fjórðungur þeirra sem eru á kjörskrá. Segja frönsk blöð að það sé tæplega fimm prósentustigum fleiri en kosið höfðu á sama tíma um Maastricht-samkomulagið í þjóðaratkvæðagreiðslu árið 1992. 29.5.2005 00:01
Al-Zarqawi sagður stjórna gagnárás Al-Qaida samtökin í Írak greindu frá því í yfirlýsingu á Netinu í dag að leiðtogi þeirra, Abu Musab al-Zarqawi, færi fyrir gagnsókn gegn írökskum og bandarískum sem í dag hófu umfangsmikla aðgerð gegn uppreisnarmönnum í Bagdad. <em>Sunday Times</em> greindi frá því í dag að al-Zarqawi hefði hugsanlega verið fluttur til Írans vegna sára sem hann hlaut í árás Bandaríkjamanna á bílalest hans fyrir þremur vikum en stjórnvöld í Íran hafa hafnað því. 29.5.2005 00:01
Hefja átak gegn mænusótt í Jemen Stjórnvöld í Jemen greindu frá því í dag að 179 börn hefðu greinst með mænusótt í mænusóttarfaraldri sem gengur yfir landið. 108 þeirra hafa lamast vegna sjúkdómsins. Brugðist verður við þessu með átaki á landsvísu þar sem rúmlega 4,6 milljónir barna undir fimm ára aldri verða bólusettar gegn sjúkdómnum á næstu þremur dögum, en sjúkdómurinn hafði ekki gert vart við sig í landinu frá árinu 1996. 29.5.2005 00:01
66% höfðu kosið klukkan fimm 66 prósent kjósenda höfðu kosið í Frakklandi um stjórnarskrá Evrópu klukkan fimm að íslenskum tíma, sjö að frönskum tíma. Frá þessu greindi innanríkisráðuneyti Frakklands áðan. Kosningaþátttaka virðist vera öllu meiri en þegar franska þjóðin greiddi atkvæði um Maastricht-sáttmálann árið 1992. Þá var heildarþátttaka tæp 70 prósent. Öllum kjörstöðum var lokað nú klukkan sex að íslenskum tíma nema í París og Lyon, en þar verður opið tveimur tímum lengur. 29.5.2005 00:01
Milljón vinnustundir án slyss Meira en milljón vinnustundir hafa verið unnar í álverinu í Straumsvík án þess að þar hafi orðið slys sem leiðir til fjarveru starfsmanns frá vinnu daginn eftir óhapp. Slíkt slys varð síðast í apríl í fyrra og var hið eina á árinu. Frá árinu 1997 hefur þess háttar slysum fækkað úr fimmtíu á ári í eitt til tvö. 29.5.2005 00:01
Kosið í Líbanon í dag Íbúar Líbanons gengu til frjálsra þingkosninga í dag, þeirra fyrstu sem þar fara fram í þrjá áratugi án íhlutunar Sýrlendinga. Búist er við að niðurstaða kosninganna endurspegli ánægju Líbana með þá þróun og að flokkur sonar fyrrverandi forsætisráðherra landsins, Rafiqs Hariris, vinni afgerandi sigur. 29.5.2005 00:01
Sektaður fyrir að veifa riffli Maður á þrítugsaldri, sem gekk um Akureyrarbæ og veifaði veiðiriffli í júlí í fyrra með þeim afleiðingum að sérsveitin var kölluð út, hefur verið dæmdur í 30 þúsund króna sekt í Héraðsdómi Norðurlands fyrir brot á vopnalögum. 29.5.2005 00:01
Halda enn í vonina um samþykkt Stuðningsmenn stjórnarskrár Evrópusambandsins halda enn í vonina um að Frakkar samþykki hana í þjóðaratkvæðagreiðslunni í dag. Sáttmálinn á að sameina þjóðir en stefnir í að verða djúpstætt ágreiningsefni. 29.5.2005 00:01
Engin ástæða til álverskapphlaups Næg orka og rými eru á Íslandi svo að Alcan þarf ekki að rjúka upp til handa og fóta þótt aðrir lýsi yfir áhuga á að byggja álver, segir Rannveig Rist, forstjóri álversins í Straumsvík. Engu að síður hraða skipulagsyfirvöld í Hafnarfirði afgreiðslu erindis sem varðar stækkun álversins. 29.5.2005 00:01
Ný tækni rýmkar mengunarkvóta Mörg Evrópuríki geta rýmkað mengunarkvóta sína verulega þegar ný tækni sem næstum eyðir allri koltvísýringsmengun frá kolaorkuverum verður tekin í notkun. Áhrifin á Íslandi verða líklega óveruleg nema ef til vill í formi aukinnar samkeppni á orkusviðinu - og minni gróðurhúsaáhrifa. 29.5.2005 00:01
Auglýstur að nefnd forspurðri Ríkisstjórnin ákvað að auglýsa Búnaðarbankann til sölu um leið og Landsbankann að einkavæðingarnefnd forspurðri. Þetta segir í úttekt Fréttablaðsins á sölu ríkisins á bönkunum. Formaður Vinstri grænna krefst opinberar rannsóknar. 29.5.2005 00:01
Vilja samstöðu gegn hernaði Stúdentar í Suður-Kóreu vilja að íbúar Suður- og Norður-Kóreu standi saman í andstöðu gegn hernaðaráformum Bandaríkjanna á Kóreuskaga. Þúsundir stúdenta í Suður-Kóreu mótmæltu á götum úti í dag. 29.5.2005 00:01
Frakkar hafna stjórnarskrá ESB Frakkar hafa hafnað stjórnarskrá Evrópusambandsins með afgerandi hætti ef marka má útgönguspár sem birtar voru skömmu eftir að kjörstöðum var lokað í París og Lyon klukkan átta að íslenskum tíma. Samkvæmt útgönguspánum neituðu á milli 55 og 58 prósent Frakka að samþykkja stjórnarskrána, en kjörsókn er sögð á bilinu 70-80 prósent. Ekki er búið að greina frá endanlegum niðurstöðum en það verður gert síðar í kvöld. 29.5.2005 00:01
Úthafskarfi í hættu vegna ofveiði Úthafskarfastofnarnir eru í hættu vegna ofveiði og ofveiðin leiðir til verðhruns á mörkuðum. Hvort tveggja er alvarlegt fyrir Íslendinga því að veiðarnar hafa skilað þjóðarbúinu þremur til fjórum milljörðum króna árlega. Á sama tíma eru sjóræningjar að útmá stofninn á Reykjaneshrygg. 29.5.2005 00:01
Hótel opnað eftir tæpar tvær vikur Radisson Sas 1919 í gamla Eimskipahúsinu verður opnað 10. júní næstkomandi með pompi og prakt. Andri Már Ingólfsson, eigandi hótelsins, segir að um glæsilegasta hótel Íslands sé að ræða og fékk fréttastofa Stöðvar 2 að kíkja inn, nú þegar verið er að leggja lokahönd á verkið. 29.5.2005 00:01
Máluðu Vík rauða Lögreglan á Vík í Mýrdal þurfti að hafa talsverð afskipti af gestum á mótorkrossmóti sem þar fór fram.</font /></font /> 29.5.2005 00:01
Könnunin segir ekkert um launamun Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir að rektor Viðskiptaháskólans á Bifröst hafi að öllum líkindum viljað vekja athygli á útskriftinni og stofnun rannsóknarmiðstöðvar, með þeim ummælum sínum að íslenskt atvinnulíf meti konur ekki til jafns við karlmenn með sömu menntun. 29.5.2005 00:01
Sex daga stríðið um yfirráð í VÍS Halldór Ásgrímsson hótaði Davíð Oddssyni að hætta við einkavæðingu bankanna ef VÍS yrði selt Samson með Landsbankanum. Björgólfur Guðmundsson fundaði með S-hópnum um afdrif VÍS áður en hann keypti Landsbankann. 29.5.2005 00:01
Lá við stjórnarslitum vegna VÍS Halldór Ásgrímsson hótaði Davíð Oddssyni að hætta við einkavæðingu bankanna fengi Samson að kaupa VÍS með Landsbankanum. Davíð hefði þá slitið ríkisstjórnarsamstarfinu því að Halldór hefði brotið gegn stjórnarsáttmálanum. S-hópurinn tókst á við Landsbankann um yfirráðin í VÍS og kallar þau "Sex daga stríðið um VÍS". </font /></b /> 29.5.2005 00:01
Ekkert fjarveruslys í rúmt ár Ekkert fjarveruslys hefur orðið í álveri Alcan í Straumsvík í rúmt ár eða í samtals eina milljón vinnustunda. Hefur aldrei liðið jafnlangur tími hjá fyrirtækinu án fjarveruslyss en þá er átt við slys sem veldur því að starfsmaður getur ekki mætt til vinnu næsta dag. 29.5.2005 00:01
Sala bankanna verði rannsökuð Stjórnarandstaðan segir greinar Fréttablaðsins um sölu ríkisbankanna staðfesta vafasöm vinnubrögð ríkisstjórnarinnar í málinu. Forystumenn ríkisstjórnarinnar voru úti á landi og náðist ekki í þá. 29.5.2005 00:01
R-lista viðræðum verður framhaldið Vinstri hreyfingin grænt framboð vill halda áfram viðræðum um framtíð R-listans í Reykjavík. Félagsfundur hjá VG í Reykjavík samþykkti ályktun þessa efnis í gær en ljóst er að flokkurinn leggur þunga áherslu á jafna skiptingu sæta á hugsanlegum framboðslista R-listans. 29.5.2005 00:01
Stjórnarandstæðingar bæta við sig Fyrsti hluti líbönsku þingkosninganna hófst í gær en þá var kosið í höfuðborginni Beirút. Búist er við að andstæðingar Sýrlendinga muni auka hlut sinn verulega á líbanska þinginu. 29.5.2005 00:01
Frakkar höfnuðu sáttmálanum Frakkar höfnuðu stjórnarskrársáttmála Evrópusambandsins með afgerandi hætti í þjóðaratkvæðagreiðslunni sem fram fór í gær. Úrslitin eru reiðarslag fyrir Jacques Chirac, forseta landsins, og draga auk þess úr líkunum á að sáttmálinn taki gildi í óbreyttri mynd. 29.5.2005 00:01
Tók son sinn í gíslingu Maður ruddist inn á sjúkrahús í Blekinge í Karlskrona-héraði í Svíþjóð í gær og tók son sinn í gíslingu. Hann hótaði að kveikja í sér og syninum. 29.5.2005 00:01
Frakkar sögðu nei við Chirac Kjörsókn var prýðisgóð í þjóðaratkvæðagreiðslunni í Frakklandi um stjórnarskrársáttmála Evrópusambandsins enda eru skoðanir fólks um plaggið afar skiptar. Andstæðingar sáttmálans átöldu ríkisstjórnina fyrir gegndarlausan áróður en stuðningsmennirnir kvörtuðu undan ómálefnalegri kosningabaráttu. 29.5.2005 00:01
Íslenskukrafan ekki til að stjórna Björn Bjarnason dómsmálaráðherra er ósammála þeirri skoðun Guðrúnar Guðmundsdóttur mannfræðings, sem kom fram í Fréttablaðinu í gær, að krafan um íslenskukunnáttu sé leið til að hafa betri stjórn á fólki. 29.5.2005 00:01
Saga Sellafield öll? Nú er komið í ljós að 83.000 lítrar af mjög geislavirkum vökva láku úr ónýtri leiðslu í Thorp-kjarnorkuendurvinnslustöðinni í Sellafield í allt að níu mánuði án þess að starfsmenn hennar yrðu þess áskynja. 29.5.2005 00:01
Heimtir úr helju Þrem kanadískum fjallgöngumönnum var bjargað á laugardaginn eftir að hafa orðið næstum því úti á Logan-fjalli, hæsta fjalli landsins, en það er skammt frá landamærunum við Alaska. 29.5.2005 00:01
Al-Zarqawi hugsanlega í Íran Talið er að Abu Musab al-Zarqawi, leiðtogi al-Kaída Írak, hafi yfirgefið landið. 25 fórust í árásum og átökum víða um landið í gær. 29.5.2005 00:01
Handteknir fyrir hátækninjósnir Átján manns hafa verið handteknir í Ísrael vegna gruns um iðnaðarnjósnir. Margir hinna handteknu eru háttsettir yfirmenn í ísraelskum fjölmiðla- og fjarskiptafyrirtækjum. 29.5.2005 00:01
Biður samlöndum sínum griða Georgi Parvanov, forseti Búlgaríu, er staddur í Líbíu til að biðja samlöndum sínum griða en þeir eru ásakaðir um að hafa smitað yfir 400 líbísk börn af HIV-veirunni. Fimmtíu þeirra eru þegar dáin. 29.5.2005 00:01
Bjart veður næstu daga "Það verður mjög rólegt veður, væntanlega mjög bjart en engin veruleg hlýindi að sjá enn sem komið er," segir Theódór Hervarsson veðurfræðingur um horfur næstu daga. 29.5.2005 00:01
Fagnar frestun ráðherra Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður Samfylkingarinnar, fagnar því að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra fresti fyrirhugaðri styttingu stúdentsnámsins. 29.5.2005 00:01
Forsetar ræðast við A. P. J. Abdul Kalam, forseti Indlands, kom til landsins í gær í fyrstu opinberu heimsókn indversks forseta til Íslands. Kalam hittir Ólaf Ragnar Grímsson forseta á Bessastöðum fyrir hádegi í dag. 29.5.2005 00:01
Stefán vann prestskosinguna Stefán Már Gunnlaugsson hefur verið kjörinn sóknarprestur á Hofi í Vopnafirði með 58 prósentum atkvæða. Þrír voru í köri auk Stefáns, þau séra Brynhildur Óladóttir, Klara Hilmarsdóttir guðfræðingur og Þóra Ragnheiður Björnsdóttir guðfræðingur. 29.5.2005 00:01
Segja al-Zarqawi við góða heilsu Hryðjuverkaleiðtoginn Abu Musab al-Zarqawi er sagður við góða heilsu, samkvæmt upplýsingum sem al-Qaida hefur birt á Netinu. Al-Zarqawi, sem varð fyrir skoti á laugardag, hefur því aftur tekið til starfa. Hann stjórnar hinu heilaga stríði, segir í tilkynningu al-Qaida. Al-Zarqawi og liðsmenn hans eru sagðir bera ábyrgð á fjölda blóðugra árása í Írak. 28.5.2005 00:01
Sótti slasaðan vélsleðamann Vélsleðaslys varð við skálann Jaka á Langjökli um tíuleytið í gærkvöldi þegar maður ók vélsleða fram af um metra hárri snjóhengju. Maðurinn slasaðist það mikið við fallið að læknir í Borgarnesi kallaði þyrlu Landhelgisgæslunnar út. TF-LIF lenti við Borgarspítalann með hinn slasaða um hálftólfleytið í gærkvöld en ekki er unnt að fá upplýsingar um líðan mannsins eða hversu alvarlega slasaður hann er. 28.5.2005 00:01
Sprengjuárásir í Indónesíu Að minnsta kosti 21 lét lífið og tugir særðust þegar tvær sprengjur sprungu á fjölförnum götumarkaði í bænum Tentena í Indónesíu í morgun. Meirihluti bæjarbúa Tentena, sem er á eyjunni Sulawasi, er kristinn. Í þessum sama bæ létust 2000 manns í átökum kristinna og múslíma, átökum sem stóðu í þrjú ár eða þar til samkomulag var gert milli fylkinganna árið 2001. 28.5.2005 00:01