Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Samruni mjólkurframleiðenda Mjólkursamsalan í Reykjavík (MS) og Mjólkurbú Flóamanna hafa sameinast undir einn hatt. Ný stjórn sameinaðs félags verður kosin 29. apríl næstkomandi, að sögn Magnúsar Sigurðssonar, stjórnarformanns MS. 12.4.2005 00:01
Dæmdur fyrir dópsmygl í Danmörku Íslendingur á fertugsaldri hefur verið dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi í Danmörku fyrir stórfellt fíkinefnasmygl. Til stóð að flytja fíkniefnin til Íslands. 12.4.2005 00:01
Líkamspartar í tösku Sænska lögreglan telur að líkamspartarnir sem fundust í Stokkhólmi um helgina séu af sömu manneskju og þeir sem fundust í höfuðborginni í lok síðasta mánaðar. Í gær hvatti hún almenning til að aðstoða við rannsókn málsins. 12.4.2005 00:01
Bush kominn með iPod George W. Bush Bandaríkjaforseti hefur eignast nýtt leikfang: stafræna vasadiskóið iPod. Þegar stund skapast á milli stríða notar Bush tækifærið og stundar líkamsrækt með dúndrandi dægurtónlist í eyrunum. 12.4.2005 00:01
Pólverjar hugsa sér til hreyfings Stjórnvöld í Póllandi áforma að draga herlið sitt frá Írak snemma næsta árs þegar ályktun Sameinuðu þjóðanna um hernaðaraðstoð við írösku ríkisstjórnina rennur úr gildi. 1.700 pólskir hermenn eru nú í Írak en stór hluti Pólverja er andsnúinn stríðsrekstrinum. 12.4.2005 00:01
Mótmælendur loka skóla Andstæðingar Ariels Sharon forsætisráðherra Ísraels lokuðu skólum í mótmælaskyni við áform um að leggja niður landnemabyggðir á Gaza-ströndinni. Sharon situr þó fastur við sinn keip um að stækka byggðir á Vesturbakkanum þrátt fyrir áminningu Bandaríkjaforseta. 12.4.2005 00:01
Almenningur vill kaupa Símann Á sjötta hundrað manns höfðu fyrr í kvöld skráð sig fyrir um 575 milljónum króna til kaupa á hlutabréfum í Símanum. Skráði fólk nafn sitt og upphæð á vefsíðu þar sem stefnan er sett á að vera meðal þriggja fjárfesta í Símanum. 12.4.2005 00:01
Negroponte yfirheyrður Bandaríkjaþing hóf í gær yfirheyrslur sínar yfir John Negroponte, sendiherra í Írak., en George W. Bush forseti hefur tilnefnt hann sem yfirmann yfir leyniþjónustustofnunum Bandaríkjanna. 12.4.2005 00:01
Enn og aftur hamfarir á Súmötru Eins og á það væri bætandi hófst í morgun eldgos á Súmötru, skammt frá þeim slóðum sem urðu illa úti í jarðskjálftum og flóðbylgjunni um jólin. 12.4.2005 00:01
Réttarhöld halda áfram í Angers Réttarhöld fara nú fram í Angers í Frakklandi yfir 66 manns sem eru ákærð fyrir stórfellda kynferðislega misnotkun á 45 börnum. Dómarar heyrðu í gær vitnisburð þriggja fórnarlambanna. 12.4.2005 00:01
Styðja ekki samgönguáætlun Tveir stjórnarþingmenn lýstu því yfir í umræðum á Alþingi í dag að þeir myndu ekki styðja samgönguáætlun ríkisstjórnarinnar, annar vegna svika á kosningaloforðum, hinn vegna misskiptingar vegafjár milli þéttbýlis og dreifbýlis. 12.4.2005 00:01
Segir vinnubrögð hóps ólýðræðisleg Deilur þungavigtarmanna í Samfylkingunni vegna formannskjörsins virðast vera að kljúfa flokkinn. Guðmundur Árni Stefánsson, þingmaður, segist hafa sagt sig úr framtíðarhópi Samfylkingarinnar vegna ólýðræðislegra vinnubragða hópsins sem starfar undir forystu Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur. 12.4.2005 00:01
Bush snupraði Sharon Snuprur en ekki stuðningur var það sem Ariel Sharon fékk á fundi með Bush Bandaríkjaforseta í gær. Bush lagði hart að Sharon að fylgja friðarvegvísinum og leggja bann við landnámi á svæðum Palestínumanna. 12.4.2005 00:01
Sagði þingmenn bera inn gróusögur Forsætisráðherra sakaði þingmenn Samfylkingarinnar um að bera gróusögur inn á Alþingi í snarpri þingumræðu sem hófst eftir að forseti þingsins neitaði Helga Hjörvar um að bera upp fyrirspurn um meint hagsmunatengsl forsætisráðherra við væntanlega bjóðendur í Landssímann. 12.4.2005 00:01
Ósætti meðal stjórnarliða Tveir stjórnarliðar segjast ekki styðja samgönguáætlun Sturlu Böðvarssonar samgönguráðherra. Annar vegna þess að loforð séu svikin, hinn vegna þess að fjármunum til framkvæmda sé misskipt. 12.4.2005 00:01
Fær hljóðlátustu farþegavél heims Hin nýja Boeing 787 Dreamliner-þota, sem Icelandair hefur valið sem sína framtíðarvél, verður hljóðlátasta farþegaþota heims og mun auk þess geta notað Reykjavíkurflugvöll til flugtaks og lendinga. 12.4.2005 00:01
Vilja styrkja stöðu hjóna Hið opinbera hvetur fólk til að skilja, segja fjórir þingmenn Sjálfstæðisflokksins, sem flytja þingsályktunartilögu um að styrkja stöðu hjóna og sambúðarfólks. 12.4.2005 00:01
Nýr formaður danskra jafnaðarmanna Hin 38 ára gamla Helle Thorning-Schmidt sigraði í formannskjöri í danska Jafnaðarmannaflokknum sem leitt var til lykta í gær. Hún er fyrst kvenna til að gegna formennsku í flokknum í 134 ára sögu hans. 12.4.2005 00:01
Stúlkur frelsaðar úr gíslingu Liðsmenn sérsveitar þýsku lögreglunnar yfirbuguðu í gær mann, sem hafði rænt fjórum stúlkum úr skólabíl, vopnaður hnífum, og haldið þeim í fimm tíma í gíslingu í húsi í Ennepetal, smábæ nálægt Düsseldorf. 12.4.2005 00:01
Segir Japana þurfa að vinna traust Wen Jiabao, forsætisráðherra Kína, gaf í skyn í gær að Japanir verðskulduðu ekki að fá varanlegt sæti í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Stjórnvöld í Japan ættu eftir að vinna traust grannþjóðanna áður en þau öxluðu nýja ábyrgð á alþjóðavettvangi. 12.4.2005 00:01
Átök á Vesturbakkanum Til átaka kom í borginni Nablus á Vesturbakkanum í morgun þegar ísraelskir hermenn gerðu áhlaup á nokkrar byggingar. Hermennirnir komu á tuttugu herbílum og þyrlu, umkringdu byggingarnar og skipuðu íbúum að fara út. Sögðust þeir leita palestínskra uppreisnarmanna. 11.4.2005 00:01
Meirihluti Norðmanna hlynntur ESB Meirihluti Norðmanna er nú hlynntur aðild að Evrópusambandinu samkvæmt nýrri skoðanakönnum sem gerð var fyrir norska ríkissjónvarpið og dagblaðið <em>Aftenposten</em>. 58 prósent Norðmanna vilja ganga í ESB og hefur stuðningur við það ekki mælst meiri síðan í maí í fyrra. Norðmenn hafa sem kunngt er tvisvar hafnað inngöngu í Evrópusambandið í þjóðaratkvæðagreiðslu, fyrst árið 1971 og svo aftur árið 1994. 11.4.2005 00:01
Saddam kann að sleppa við dauðadóm Saddam Hussein kann að sleppa við dauðarefsingu. Að sögn embættismanns innan ríkisstjórnar Íraks eru í gangi samningaviðræður við súnníta í Írak sem hafa farið þess á leit við stjórnvöld að Saddam verði dæmdur í lífstíðarfangelsi en fái að halda lífi. Á móti myndu þeir beita sér fyrir því að uppreisnarmenn létu af árásum sínum. 11.4.2005 00:01
Fimm handteknir fyrir innbrot Lögreglan í Reykjavík handtók samtals fimm innbrotsþjófa í tengslum við tvö innbrot í nótt þar sem þeir reyndu að stela verðmætum fyrir hundruð þúsunda króna. 11.4.2005 00:01
Hermönnum fækkað innan árs Bandarískum hermönnum í Írak verður líklega fækkað verulega þegar í byrjun næsta árs. Dagblaðið <em>New York Time</em>s hefur þetta eftir háttsettum embættismönnum innan Pentagon, varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna. Þeir segja að árásum uppreisnarmanna hafi fækkað verulega undanfarna mánuði og þá hafi meira en 150 þúsund írakskir þjóðvarðliðar þegar hlotið næga þjálfun til þess að hefja störf. 11.4.2005 00:01
Reykingar hafa áhrif á barnabörn Barnabörn kvenna sem reykja á meðgöngu eru meira en helmingi líklegri til þess að fá asma heldur en önnur börn. Þetta kemur fram í niðurstöðum nýrrar rannsóknar sem vísindamenn við læknaháskóla í Kaliforníu gerðu. Svo virðist sem breytingar á erfðaefni kunni að eiga sér stað hjá afkomendum kvenna sem reykja á meðgöngu. 11.4.2005 00:01
Forsetahjónin á Akureyri Opinber heimsókn Ólafs Ragnars Grímssonar forseta og Dorritar Moussaieff forsetafrúar til Akureyrar og Eyjafjarðarsvæðisins hófst klukkan hálfníu í morgun en þá tóku framámenn innan Akureyrarbæjar á móti þeim á flugvellinum. Forsetahjónin heimsækja ýmsa skóla og stofnanir og í kvöld verður fjölskylduhátíð í Íþróttahöllinni þangað sem öllum bæjarbúum er boðið. 11.4.2005 00:01
Snarpur skjálfti í Japan Jarðskjálfti upp á 6,1 á Richter varð rétt utan við Tókýó snemma í morgun en ekki hafa borist neinar fregnir af slysum eða verulegu eignatjóni. Loka þurfti tveim flugbrautum á Narita-flugvelli um stund en þær voru fljótlega opnaðar aftur. Yfirvöld í Tókýó hafa varað við að snarpir eftirskjálftar kunni að fylgja í kjölfar skjálftans í morgun. 11.4.2005 00:01
Hyggjast leyfa silíkon aftur Er silíkon hættulegt eða skaðlaust? Enn á ný er um þetta deilt í Bandaríkjunum þar sem stjórnvöld hafa nú í hyggju að aflétta banni við flestum tegundum sílíkonaðgerða sem verið hefur í gildi síðan árið 1992. Hópur vísindamanna hefur þegar mótmælt þessum áformum stjórnvalda og enn stefnir í harðvítugar deilur um hugsanlegar hættur af völdum silíkons og silíkonaðgerða. 11.4.2005 00:01
Dóms að vænta í apríllok Irena Kolesnikova, dómari í máli Míkhaíls Khodorkovskís, stofnanda og forstjóra Yukos-orkurisans í Rússlandi, tók sér í morgun frest til 27. apríl til að kveða upp dóm yfir honum. Hann er sakaður um skattsvik og fleiri refsiverð brot og hafa saksóknarar í málinu krafist að minnsta kosti tíu ára fangelsisdóms yfir honum. 11.4.2005 00:01
Vilja annars konar stóriðju Á nýafstöðnum aðalfundi Samfylkingarinnar í Eyjafirði þar sem ályktað var um atvinnumál og byggðaþróun vekur athygli að ekki er minnst á nýtt álver. Í ályktuninni segir að efla skuli stóriðju við Eyjafjörð í formi menntunar, ferðaþjónustu, heilbrigðismála og matvælaiðnaðar svo sem bláskeljaræktunar en ekki er minnst á álver. 11.4.2005 00:01
Fann líkamshluta í íþróttatösku Líkamshlutar fundust í íþróttatösku í Stokkhólmi í gær. Það var um miðjan dag sem kona rakst á töskuna þar sem hún var á gangi við Danvikstullsbron, en taskan var þar á floti í tjörn eða læk. Lögreglan hefur engar vísbendingar um af hverjum líkið er en telur ekki ólíklegt að töskunni hafi verið kastað í vatn nokkuð frá staðnum þar sem hún fannst og að hana hafi rekið með ís sem nýlega þiðnaði. 11.4.2005 00:01
Samþykktu kjarasamning við ríkið Félag flugmálastarfsmanna ríkisins hefur samþykkt kjarasamning við ríkið með rúmum 80 prósentum greiddra atkvæða. Þetta kemur fram á heimasíðu BSRB. Á kjörskrá voru 145, 115 greiddu atkvæði og sögðu 94 eða 82% já en 16 eða 14% nei. 11.4.2005 00:01
Fá háan styrk til uppbyggingar Þróunarbanki Asíu hefur samþykkt að veita Indónesíu 300 milljóna dollara styrk, andvirði 18,3 milljarða íslenskra króna, til uppbyggingar eftir hamfarirnar annan dag jóla í fyrra. Þetta er hæsti styrkur sem bankinn hefur veitt en nokkur héruð í Indónesíu, þar á meðal Aceh, urðu mjög illa úti í flóðbylgjunni og er talið að um 126 þúsund manns á Súmötru einni hafi látist í hamförunum. 11.4.2005 00:01
Segja mótmæli Japönum að kenna Mótmæli og óeirðir í Kína um helgina eru Japönum að kenna, segja stjórnvöld í Peking, sem sögð eru hafa leyft mótmælin. Stjórnmálaskýrendur segja það geta komið í bakið á ráðamönnum. 11.4.2005 00:01
Óska aðstoðar umhverfisráðuneytis "Að mínu viti er ekki seinna vænna að grípa til róttækari aðgerða en verið hefur hingað til," segir Ingvar Atli Sigurðsson, forstöðumaður Náttúrustofu Suðurlands. Kanínur eru orðnar alvarlegt vandamál í Eyjum og þrátt fyrir að ýmsum vopnum hafi verið beitt í baráttu gegn þeim heldur þeim áfram að fjölga. 11.4.2005 00:01
Reyndi að feta í fótspor Fischers Japanskur karlmaður, sem er veill á geðsmunum, reyndi fyrir skömmu að fá íslenskan ríkisborgararétt við komu sína til landsins og vísaði til þess að Bobby Fischer hefði fengið slíkt. 11.4.2005 00:01
Hafnaði bótakröfu vegna afsagnar Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í morgun ríkið af rúmlega þrettán milljóna króna kröfu Valgerðar Bjarnadóttur, fyrrverandi framkvæmdastýru Jafnréttisstofu, en hún taldi sig hafa verið neydda til að segja af sér. 11.4.2005 00:01
Getur ógnað lífríki Íslands "Ég óskaði eftir þessum upplýsingum þar sem ég tel að lífríki landsins sé verulega ógnað ef Kóngakrabbinn nær fótfestu hér við land," segir Magnús Þór Hafsteinsson, þingmaður Frjálslynda flokksins. Hann hefur borið fram fyrirspurn til umhverfisráðherra um hvort stjórnvöld hyggist grípa til fyrirbyggjandi aðgerða. 11.4.2005 00:01
Hljóðmanir verði settar upp Yfirvöld í Kópavogi segja aðstæður við Kópavogsbrúna áhyggjuefni, en bifreið valt þar um helgina og endaði inni í garði fjölbýlishúss við brúna. Kópavogsbær hefur ráðgert að setja upp hljóðmanir á svæðinu en málið strandar á Vegagerðinni. 11.4.2005 00:01
Lokað í norðurátt við Húnaver Þjóðvegi eitt rétt vestan við Húnaver verður lokað í norðurátt nú í hádeginu og er vonast til að hægt verði að opna hann að nýju um hálftvö eða tvöleytið í dag. Flutningavagn með frystum matvælum fór út af veginum í gær, losnaði frá bílnum og valt. Til að fjarlægja vagninn þarf fyrst að tæma gáminn og getur það tekið dálítinn tíma. 11.4.2005 00:01
Stuðningur við ESB-aðild eykst Fleiri Norðmenn eru fylgjandi aðild að Evrópusambandinu nú en fyrr á árinu. Samkvæmt nýrri könnun sem gerð var á dögunum myndu 58 prósent þjóðarinnar kjósa með aðild ef þjóðaratkvæðagreiðsla yrði haldin á næstunni. Þetta er tveggja prósenta hækkun frá síðustu könnun sem gerð var í febrúar. 11.4.2005 00:01
Umdeildur kardínáli leiðir athöfn Minningarathöfn verður haldin um Jóhannes Pál páfa í Péturskirkjunni í Róm í dag. Athöfnina leiðir fyrrverandi biskup sem segja varð af sér vegna barnaníðingsmála. 11.4.2005 00:01
Flugumferð brátt í fyrra horf Flugumferð í heiminum er loksins farin að ná sama umfangi og var fyrir hryðjuverkin í Bandaríkjunum 11. september árið 2001, að stórlega dró úr flugumferð um allan heim. 11.4.2005 00:01
Telur sig nálgast Munch-myndir Lögregla í Noregi hefur handtekið mann á fertugsaldri í tengslum við rannsókn á ráninu á Ópinu og Madonnu, málverkum Edvards Munchs. Talsmenn lögreglu kveðast bjartsýnir á að finna myndirnar í kjölfarið. Myndunum var stolið úr safni Munchs í Ósló í ágúst í fyrra en ekkert hefur til þeirra spurst eftir það. 11.4.2005 00:01