Erlent

Fá háan styrk til uppbyggingar

Þróunarbanki Asíu hefur samþykkt að veita Indónesíu 300 milljóna dollara styrk, andvirði 18,3 milljarða íslenskra króna, til uppbyggingar eftir hamfarirnar annan dag jóla í fyrra. Þetta er hæsti styrkur sem bankinn hefur veitt en nokkur héruð í Indónesíu, þar á meðal Aceh, urðu mjög illa úti í flóðbylgjunni og er talið að um 126 þúsund manns á Súmötru einni hafi látist í hamförunum. Talsmenn bankans segja að féð komi úr sérstökum flóðbylgjusjóði og verður það notað til að koma aftur á margs konar almenningsþjónustu og hleypa lífi í efnahag Indónesíu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×