Erlent

Fann líkamshluta í íþróttatösku

Líkamshlutar fundust í íþróttatösku í Stokkhólmi í gær. Það var um miðjan dag sem kona rakst á töskuna þar sem hún var á gangi við Danvikstullsbron, en taskan var þar á floti í tjörn eða læk. Lögreglan hefur engar vísbendingar um af hverjum líkið er en telur ekki ólíklegt að töskunni hafi verið kastað í vatn nokkuð frá staðnum þar sem hún fannst og að hana hafi rekið með ís sem nýlega þiðnaði.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×