Fleiri fréttir

Hellisheiði lokuð

Hellisheiði hefur verið lokað vegna slæmrar færðar að sögn Vegagerðarinnar. Fólk hefur þurft að skilja bíla sína eftir úti í vegakanti í morgun og hafa björgunarsveitarmenn unnið að því að koma ökumönnum til aðstoðar. Fólki er eindregið ráðið frá því að aka heiðina að svo stöddu.

Margir 35-44 ára tannlausir

Rúmlega 550 einstaklingar á aldrinum 35 til 44 ára eru tannlausir í báðum gómum. Tannlækningastofnun Háskóla Íslands heldur áfram að rannsaka tannheilsu Íslendinga og í fjórða áfanga þeirrar rannsóknar er fjallað um fólk á þessum aldri.

Innflytjendum vefst tunga um tönn

Ný könnun á viðhorfum og aðstæðum innflytjenda á Vestfjörðum og Austurlandi sýni að fjölmargir eiga í mesta basli með íslenskuna. Af því leiðir að margir skilja ekki ráðningarsamninga sem þeir þó hafa undirritað. Könnunin sýnir líka að margir innflytjendur eiga börn í upprunalandinu, margir búa í eigin húsnæði og atvinnuleysi meðal þeirra er nánast óþekkt. </font /></b />

Snjóflóðahætta að verða liðin tíð

Ekkert íbúðarhús í Ísafjarðarkaupstaðnum sjálfum var rýmt í óveðrinu fyrir nokkrum dögum og Ísafjarðarbær, með Suðureyri, Flateyri, Þingeyri og Hnífsdal innanborðs, er í heild að verða býsna öruggt svæði gagnvart snjóflóðum, að sögn Halldórs Halldórssonar bæjarstjóra.

Laun bæjarfulltrúa lækkuð

Tillaga um að lækka laun bæjarfulltrúa og bæjarráðsmanna í Reykjanesbæjar var borin upp á bæjarstjórnarfundi í gær og var tillögunni vísað til bæjarráðs. Það var Guðbrandur Einarsson, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar, sem bar tillöguna fram en nauðsynlegt er að draga úr kostnaði hjá yfirstjórn bæjarins um fjórar milljónir króna.

Fullnægjandi meðferð gæti fundist

Samstarf norrænna vísindamanna hefur leitt í ljós að frávik í tveimur genum auki líkurnar á því fá gigtarsjúkdóminn lúpus sem oft nefnist „rauðir úlfar“ á íslensku. Að sögn Snævars Sigurðssonar lífefnafræðings hefur verkefnið staðið yfir í rúm þrjú ár. Uppgötvunin getur orðið til þess að fullnægjandi meðferð finnist innan tíðar. 

Úrbætur í íslenskukennslu

Stjórnvöld hafa ákveðið að efna til samstarfs við Kennaraháskólann um úttekt á íslenskukennslu innflytjenda og tillögum til úrbóta, að sögn Árna Magnússonar félagsmálaráðherra. Hann kvaðst frekar eiga von á að bætt yrði úr vanköntum sem kynnu að koma fram. Hann teldi að úrbóta væri þörf.

Einnota atvinnuleyfi

Ný tegund atvinnuleyfa er nú til athugunar í félagsmálaráðuneytinu, að sögn Árna Magnússonar ráðherra þar á bæ.

Tala látinna hækkar um 50 þúsund

Tala látinna í flóðunum við Indlandshaf á annan í jólum hækkaði um rúmlega 50 þúsund í dag þegar stjórnvöld í Indónesíu tilkynntu að mannfall í landinu vegna hamfaranna sé komið yfir 166 þúsund manns. Þar með er staðfest að meira en 226 þúsund manns hafi týnt lífinu í þessum mestu náttúruhamförum sögunnar.

Óvenju mikil velta í haust

Um 6% íbúða á höfuðborgarsvæðinu hafa skipt um eigendur frá því bankarnir hófu að bjóða verðtryggð íbúðalán á sambærilegum kjörum og Íbúðalánasjóður síðastliðið haust. Þetta er óvenju mikil velta að sögn greiningar Íslandsbanka.

110 ára afmæli skáldsins fagnað

Á föstudaginn hefði skáldið Davíð Stefánsson frá Fagraskógi orðið 110 ára. Í tilefni af því verður opnuð sýning um Davíð í bókasal Þjóðmenningarhússins við Hverfisgötu þar sem hann verður Skáld mánaðarins. Dagskráin hefst klukkan 17 með ávarpi Guðmundar Andra Thorssonar.

Nígeríumaðurinn farinn úr landi

Þrítugur Nígeríumaður sem handtekinn var í tengslum við umfangsmikið smygl á kókaíni er farinn úr landi. Maðurinn var tekinn í kjölfar þess að þrítugur Ungverji var tekinn í Leifsstöð með tæpt kíló af kókaíni innvortis í áttatíu hylkjum.

Nokkrir árekstrar á Hellisheiði

Nokkrir árekstrar hafa orðið á Hellisheiði sem er enn lokuð vegna mikils óveðurs, blindhríðar, skafrennings og hálku. Ekki hafa orðið slys á fólki eftir því sem best er vitað. Lögreglan ræður fólki eindregið frá því að vera á ferðinni á þessu svæði.

Viðbótarkennsla vegna verkfallsins

Níundi og tíundi bekkur í grunnskólum Kópavogs fá viðbótarkennslu vegna kennaraverkfallsins í haust. Tíundi bekkur fær 60 kennslustundir og níundi bekkur tuttugu. Auk þess geta skólar í Kópavogi sótt um viðbótarkennslustundir til að koma til móts við þá nemendur sem taldir eru þurfa á sérstakri aðstoð að halda vegna verkfallsins.

14 mánaða fangelsi fyrir rassskell

Ítalskur maður sem sló unga konu á afturendann meðan hún talað í símann fékk 14 mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm í Hæstarétti á Ítalíu í vikunni. Þessi þungi dómur kemur í kjölfar yfirlýsinga stjórnvalda að nú verði tekið hart á allri kynferðislegri áreitni.

Eyrarrósin veitt í fyrsta sinn

Á morgun verður Eyrarrósin, sérstök viðurkenning fyrir framúrskarandi menningarverkefni á landsbyggðinni, veitt í fyrsta sinn. Þrjú verkefni hafa verið valin úr hópi fjölmargra umsækjenda og verða þau kynnt sérstaklega á Bessastöðum klukkan 15 á morgun.

Ísraelar og Palestínumenn funda

Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, hefur afturkallað bann sem hann setti á samskipti embættismanna sinna við nýja stjórn Palestínu. Öryggisfulltrúar beggja landa hittast í kvöld til að ræða ástandið í Miðausturlöndum.

Kviðdómsval frá helvíti

Lögmenn og saksóknarar sem þurftu að velja fólk í kviðdóm vegna líkamsárásar í hjólhýsabyggð í Tennessee segjast aldrei hafa lent í öðru eins. Fólkið sem þeir gátu valið úr voru hvert öðru sérstakara og varð verjandanum Leslie Ballin það á að kalla þetta kviðdómsvalið frá helvíti.

Ofbeldið færist enn í aukana

Í það minnsta 26 manns létust í fjórum sprengjuárásum sem gerðar voru á einni og hálfri klukkustund í og við Bagdad í gær. Þá létust tveir starfsmenn bresks öryggisfyrirtækis í árás vígamanna og hollenskir hermenn skutu íraskan bílstjóra til bana eftir að hann stöðvaði bifreið sína ekki við vegatálma.

Vígamenn helsta þolraun Íslams

Ungir menn sem eru lokkaðir til vígaferla eru helsta þolraun Íslams, sagði Sheik Abdul-Aziz al-Sheik, æðsti klerkur Sádi-Arabíu þegar hann ávarpaði hluta þeirra tveggja milljóna múslima sem lögðu leið sína til Arafatsfjalls í Sádi-Arabíu í pílagrímsför við upphaf Hajj trúarhátíðar múslima.

Spænskir kaþólikkar vilja smokkinn

Kaþólska kirkjan á Spáni hefur kúvent í afstöðu sinni til smokka og er nú samþykk því að fólk noti þá til að verja sig gegn HIV-veirunni sem veldur alnæmi. Þetta er þvert á afstöðu Jóhannesar Páls páfa II, æðsta yfirmanns kaþólsku kirkjunnar, sem er alfarið andvígur notkun smokka.

225 þúsund látin

Ljóst er orðið að minnst 225 þúsund manns létu lífið af völdum flóðbylgjunnar í Asíu. Hún er því orðin að næst mannskæðustu náttúruhamförum í rúma öld. Óttast að enn verr geti farið ef náttúruhamfarir verða í stærstu borgum heims. </font /></b />

Sátt um fyrirkomulag um rýmingu

Sýslumenn, bæjarstjórar og sveitarstjórar á þéttbýlisstöðum á sunnan- og norðanverðum Vestfjörðum lýsa yfir að þeir hafi góða reynslu af því fyrirkomulagi sem er um rýmingu húsa. Ástæða yfirlýsingarinnar er umfjöllun í fjölmiðlum um að Veðurstofan hafi of mikið vald til rýmingar.

Þekkta fólkið neytir kókaíns

Hörður Jóhannesson, yfirlögregluþjónn í Reykjavík, segir hóp fíkniefnaneytenda orðinn breiðari. Áður hafi verið litið á fíkniefnaneytendur sem hálfgerða aumingja en annað eigi við þá sem eru í kókaínneyslu sem eru mikið til þekkta og fína fólkið.

Stuðningur Finna lítill

Fyrrum forsætisráðherra Eistlands, Edgar Savisaar, gagnrýnir Finna í nýútkominni minningabók sinni fyrir að styðja land sitt ekki nægjanlega til sjálfstæðis.

Fleygði hassinu fram af svölum

Fjögur hundruð grömm af hassi fundust í húsleit á heimili tuttugu og fimm ára manns í Reykjavík seinni partinn á þriðjudag. Maðurinn var handtekinn og færður á lögreglustöðina til yfirheyrslu.

Atvinnuleysi minnkar lítillega

Á fjórða ársfjórðungi 2004 var atvinnuleysi 2,5 prósent samkvæmt nýjum tölum Hagstofunnar. Á sama tíma í fyrra var atvinnuleysið 2,9 prósent.

Fór strax úr landi

Nígeríumaður sem handtekinn var í tengslum við innflutning á tæpu kílói kókaíni fyrir tveimur vikum hefur verið látinn laus. Sá sem flutti kókaíni inn er tæplega þrítugur Ungverji en hann situr enn í gæsluvarðhaldi.

Komin mynd á utanríkisstefnu BNA

Nýr utanríkisráðherra Bandaríkjanna útnefnir sex lönd sem vígi helstu harðstjórna heimsins og telur að Bandaríkin þurfi að beina sjónum sínum þangað. Yfirlýsingin þykir gefa allgóða vísbendingu um utanríkisstefnu Bandaríkjanna næstu fjögur árin.

Milljónamæringur týndur

Forstjóra og eins af erfingjum sænsku raftækjaverslanakeðjunnar Siba, hins 32 ára margmilljónamærings Fabians Bengtsson, er saknað og óttast lögreglan í Gautaborg að honum hafi verið rænt. Þó hefur ekki komið fram krafa um lausnargjald. 

Mikla olíu að finna

Norska olíufyrirtækið Statoil heldur því fram að olíu sem sé rúmlega 27 milljarða króna virði sé að finna í Barentshafi. Eftir því sem fram kemur í dagblaðinu Politiken gera Rússar kröfur til hluta af olíulindunum.

Lóan fauk til Noregs

Vorboðinn kom óvenjusnemma til Noregs í ár, en það sást til fyrstu lóunnar síðasta laugardag á suðvesturströnd landsins. Daginn eftir sást svo til stórs hóps af lóum, auk þess sem nokkrir spóar voru á stjá.

Sænskum milljónamæringi rænt

Einum af ríkustu mönnum Svíþjóðar, Fabian Bengtsson, var rænt í Gautaborg í gær. Bengtsson er eigandi stærstu rafeindaverslanakeðju Svíþjóðar og ekkert hefur til hans spurst frá því hann yfirgaf íbúð sína á leið til vinnu í gær.

Viðurkennir fyrningu kærunnar

Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum viðurkennir að kæra sem kona lagði fram á hendur fyrrverandi eiginmanni sínum fyrir líkamsárás var orðin fyrnd þegar maðurinn var ákærður. 

Stærsti ísjaki jarðarinnar

Vísindamenn fylgjast spenntir með stærsta ísjaka jarðarinnar sem hefur verið á hraðri siglingu við Suðurskautslandið. Ísjakinn er 160 kílómetra langur og inniheldur samsvarandi vatnsmagn og rennur um ána Níl í Egyptalandi á áttatíu árum. Ein afleiðing þessa ferðalags jakans er að 3000 mörgæsir þurfa að fara um 180 kílómetra hjáleið heim í hreiðrin með mat fyrir ungana sína.

Halldór neitar að tjá sig

Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra neitar að tjá sig um ákvörðun hans og Davíðs Oddssonar um stuðning Íslands við Íraksstríðið. Fréttastofan hefur nú í þrjá daga leitað eftir skýringum hans á svörum þess efnis að ákvörðunin hafi verið rædd í utanríkismálanefnd.

Afkoman versnar

Afkoma botnfiskveiða versnaði frá árinu 2002 til ársins 2003 en afkoma botnfiskvinnslu batnaði. Þetta kemur fram í hefti Hagstofunnar um sjávarútveg. Helstu botnfisktegundir eru þorskur, ýsa og karfi.

Þiggja eftirlaun í fullu starfi

Sex fyrrverandi ráðherrar, sem enn eru í fullu starfi á vegum ríkisins, þiggja eftirlaun í samræmi við lög um eftirlaun æðstu embættismanna ríkisins sem samþykkt voru í árslok 2003.

Nauðugur einn kostur

Sr. Hans Markús Hafsteinsson, sóknarprestur í Garðasókn, hefur vísað ágreiningi sínum við formann og varaformann sóknarnefndar, auk sóknarprests og djákna, til úrskurðarnefndar þjóðkirkjunnar.

Bara bréf frá biskup

Matthías G. Pétursson, formaður sóknarnefndar Garðanefndar segir að greinargerð verði send úrskurðanefnd þjóðkirkjunnar þann 8. febrúar og úrskurði sé að vænta eftir þann tíma.

Koma fjörutíu Kínverja stöðvuð

Koma rúmlega 40 Kínverja sem hugðust starfa á Kárahnjúkum hefur verið stöðvuð. Þeir fá ekki atvinnuleyfi meðan rannsókn ráðuneyta á starfsmannamálum Impregilo fer fram. Kínverjarnir höfðu fengið dvalarleyfi hjá Útlendingastofnun þrátt fyrir að atvinnuleyfi lægi ekki fyrir.

Kennara að taka til eftir sig

Skilaboð frá borgarfulltrúum til kennara eru að þeir hafi gengið of langt, segir Bergþóra Valsdóttir, framkvæmdastjóri SAMFOKS, sambands foreldrafélaga og foreldraráða í grunnskólum Reykjavíkur.

Mjöll Frigg gæti átt rétt á bótum

Eigandi Mjallar Friggjar hafði samband við skipulagsyfirvöld Kópavogsbæjar áður en klórverksmiðjan fluttist þangað. Hafi fyrirtækið fengið vilyrði fyrir starfsleyfi gæti bærinn verið skaðabótaskyldur. </font /></b />

Ofsaveður á Hellisheiði

Ofsaveður gekk yfir Hellisheiði og Hveragerði í dag. Loka þurfti heiðinni fyrir umferð vegna veðurs og björgunarsveitarmenn hjálpuðu gangandi vegfarendum og skólabörn í Hveragerði. 

Fleiri þarf í iðngreinar

Það er áhyggjuefni hversu fáir sækja iðn- og tæknimenntun hér á landi og það þarf að breyta ríkjandi viðhorfum í garð iðnmenntunar þar sem aukin þörf er fyrir verk- og iðnmenntað fólk. Þetta var meðal þess sem kom fram á málþingi í tilefni Menntadags iðnaðarins á þriðjudag.

Sjá næstu 50 fréttir