Kviðdómsval frá helvíti 19. janúar 2005 00:01
Lögmenn og saksóknarar sem þurftu að velja fólk í kviðdóm vegna líkamsárásar í hjólhýsabyggð í Tennessee segjast aldrei hafa lent í öðru eins. Fólkið sem þeir gátu valið úr voru hvert öðru sérstakara og varð verjandanum Leslie Ballin það á að kalla þetta kviðdómsvalið frá helvíti. Skömmu eftir að kviðdómsvalið hófst í síðustu viku stóð einn hugsanlegra kviðdómenda upp og fór. "Ég er undir áhrifum morfíns og þrælskakkur," sagði hann þegar hann gekk út án þess að spyrja kóng eða prest. Eftir þetta versnaði uppákoman aðeins. Þegar saksóknari spurði hvort einhver hugsanlegra kviðdómenda hefði framið glæp svaraði einn því til að hann hefði verið handtekinn og fluttur á geðsjúkrahús eftir að hann skaut að yngri frænda sínum. Hann sagði frændann hafa reitt sig til reiði þar sem hann neitaði að koma undan rúmi sínu. Annar hugsanlegur kviðdómandi sagðist eiga við áfengisvandamál að stríða og kvaðst hafa verið handtekinn fyrir að reyna að kaupa vændi af lögreglukonu í dulargervi. "Ég hefði átt að vita að eitthvað gruggugt var á seyði. Hún var enn með allar tennurnar." Fjórði sagði líklega ekkert vit í því að hann tæki sæti í kviðdómnum. "Í mínu hverfi vita allir að ef þú færð Ballinn ertu líklega sekur." Hann slapp við kviðdómsskyldu. Á endanum tókst að velja kviðdóm og rétta í máli konu sem var ásökuð fyrir að berja kærustu bróður síns í andlitið með múrsteini. Hún var sýknuð.
Erlent Fréttir Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Fleiri fréttir Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Sjá meira