Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Essó afturkallaði hækkun Essó afturkallað tveggja krónu hækkun á eldsneyti aðeins sólahring eftir að hafa hækkað verðið. Hjörleifur Jakobsson, forstjóri Essó, segir að verðið hafi verið lækkað aftur vegna samkeppninnar á markaðnum. 19.1.2005 00:01
Kennsla aukin í Kópavogi Skólanefnd Kópavogs hefur ákveðið að bæta nemendum 9. og 10. bekkja upp hluta þeirrar kennslu sem féll niður vegna kennaraverkfallsins í haust. 19.1.2005 00:01
Fyrsta íslenska fluguveiðihjólið Fyrsta íslenska fluguveiðihjólið kemur á markað í vor og er sérhannað fyrir hinn sterka íslenska lax. Heiti hjólsins tengist veiðivon og hjátrú. 19.1.2005 00:01
Tala látinna hækkaði um 60 þúsund Tala þeirra sem létust í flóðbylgjunni í Suðaustur-Asíu hækkaði snarlega um 60 þúsund manns í dag þegar yfirvöld í Indónesíu uppfærðu skýrslur sínar og þeir, sem áður var saknað, voru taldir af. Fjöldinn nemur alls rúmum 225 þúsundum. Lífið á hamfarasvæðunum verður aldrei samt eins og Ingólfur Bjarni Sigfússon komst að þegar hann heimsótti lítið sjávarþorp á Srí Lanka. 19.1.2005 00:01
Skoða aðstæður á Kárahnjúkum Fulltrúar ítölsku verkalýðshreyfingarinnar og Alþjóðasambands byggingaverkamanna skoða aðstæður verkamanna hjá Impregilo á Kárahnjúkum í dag. Þeir ætla að segja skoðun sína hreinskilnislega eftir ferðina. 19.1.2005 00:01
Ísraelar ræða við Abbas Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, aflétti í gær samskiptabanni við Mahmoud Abbas, forseta Palestínu. Í kjölfarið funduðu yfirmenn öryggismála Ísraels og Palestínu um það hvernig hægt væri að sporna við auknu ofbeldi á svæðinu. 19.1.2005 00:01
Opinberir starfsmenn á sérkjörum Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra og núverandi sendiherra í Finnlandi, hefur rétt á tæplega 400.000 króna eftirlaunum á mánuði auk fullra launa vegna sendiherrastöðu sinnar, sem nema tæpri milljón króna sem er að stórum hluta skattfrjáls. Sjö fyrrverandi ráðherrar fá greidd eftirlaun þrátt fyrir að vera í fullu starfi á vegum ríkisins og samtals þáðu þeir sautján milljónir í eftirlaunagreiðslur á liðnu ári. 19.1.2005 00:01
Festi bíl sinn á Fróðárheiði Björgunarsveitarmenn og lögregla frá Ólafsvík komu ökumanni til aðstoðar eftir að hann festi bíl sinn í skafli á Fróðárheiði. 18.1.2005 00:01
Enn að heiman Hjálmar Sigurðsson ábúandi á Hrauni í Hnífsdal og fjölskylda hans hafa ekki geta dvalið heima hjá sér síðan að snjóflóð féll á bæ þeirra í síðustu viku. Stór hluti af bænum eyðilagðist í flóðinu, en beðið er eftir efni sem pantað hefur verið til viðgerðar. 18.1.2005 00:01
Hættuástandi aflétt á Vestfjörðum Almannavarnanefnd á Ísafirði ákvað á sjöunda tímanum í morgun að aflétta hættuástandi á Ísafirði og getur fólk, sem rýma þurfti hús sín þar í gær, snúið aftur til síns heima. Hættuástandi hefur líka verið aflétt í Bolungarvík og á Patreksfirði. 18.1.2005 00:01
Rændu erkibiskupi í Írak Uppreisnarmenn í Írak rændu í gærkvöldi erkibiskupi sýrlenska arms kaþólsku kirkjunnar. Hinn 66 ára gamli Basile Casmoussa hefur verið yfirmaður sýrlenska hluta kaþólsku krikjunnar í Írak undanfarin sex ár. Hann var á gangi utan við kirkju sína í borginni Mósúl í gær þegar hann var numinn á brott. 18.1.2005 00:01
Segja að boðað verði til kosninga Danskir fjölmiðlar og stjórnmálaskýrendur búast fastlega við því að Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, muni tilkynna um kosningar í landinu á blaðamannafundi sem boðað er til klukkan hálfellefu að íslenskum tíma. 18.1.2005 00:01
Segist ekki undirbúa árás á Íran George Bush Bandaríkjaforseti neitar því að verið sé að undirbúa innrás inn í Íran eins og Seymour Hersh, einn þekktasti rannsóknarblaðamaður Bandaríkjanna heldur fram. Hersh, sem meðal annars kom upp um pyntingar í Abu Ghraib fangelsinu í fyrra, segir fjölmarga erindreka innan hersins og leyniþjónustunnar fullyrða að undirbúningur að innrás sé þegar hafinn. 18.1.2005 00:01
52% telja innrásina í Írak mistök Fimmtíu og tvö prósent Bandaríkjamanna telja innrásina í Írak mistök, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Gallups, sjónvarpsstöðvarinnar CNN og dagblaðsins USA Today. Fjöldi þeirra sem andsnúnir eru innrásinni hefur aukist frá því í nóvember, þegar viðhorf Bandaríkjamanna til málsins var kannað síðast. 18.1.2005 00:01
300 milljónir safnast í útvarpi Meira en þrjú hundruð milljónir söfnuðust í maraþonútvarpsþætti sem til styrktar fórnarlömbum hamfaranna í Asíu sem sendur var út í Bretlandi í gær. Þættinum var útvarpað á 270 útvarpsstöðvum samtímis og stóð yfir í rúmar sex klukkustundir. 18.1.2005 00:01
Vilja banna hakakross í löndum ESB Uppátæki Harrys Bretaprins í síðustu viku kann að draga dilk á eftir sér, en prinsinn sást sem kunnugt er bera hakakross í afmæli. Nú vilja þýskir þingmenn á Evrópuþinginu að það verði gert refsivert innan landa Evrópusambandsins að bera merki nasista á almanafæri. Þeir hafa beðið um að málið verði tekið fyrir á ráðherrafundi sambandsins í næstu viku. 18.1.2005 00:01
Fleiri fá ríkisborgararétt Aldrei hefur jafnmörgum verið veittur íslenskur ríkisborgararéttur og í fyrra en þá fengu 637 útlendingar ríkisborgararétt. Fjölgunin á milli ára er veruleg því árið 2003 fengu 436 útlendingar ríkisborgararétt og árið 2002 voru þeir 364 samkvæmt tilkynningu frá dóms- og kirkjumálaráðuneytinu. 18.1.2005 00:01
Tafir vegna árekstrar Töluverðar umferðartafir urðu eftir þrír bílar lentu í árekstri á mótum Miklubrautar, Hringbrautar og Snorrabrautar um áttaleytið í morgun. Engan í bílunum sakaði en þeir skemmdust mikið. 18.1.2005 00:01
Norski herinn fram úr fjárlögum Varnarmálaráðherra Noregs, Kristin Krohn Devold, er enn og aftur í slæmum málum. Annað árið í röð fer herinn langt fram úr fjárhagsáætlun. Rúman milljarð norskra króna vantar upp á að endar nái saman núna. 18.1.2005 00:01
ÍE og SÁÁ rannsaka fíkn Íslensk erfðagreining og SÁÁ hafa samið um að starfa saman að rannsóknum á erfðafræði áfengissýki og fíknar. Samningurinn er liður í viðamiklu evrópsku samstarfsverkefni átta rannsóknastofa en rannsaka á líffræðilegar orsakir fíknar, eins og fram kemur í tilkynningu frá Íslenskri erfðagreiningu. 18.1.2005 00:01
Landamærum Íraks lokað í kosningum Landamærum Íraks verður lokað fyrir þingkosningarnar sem fram eiga að fara í lok þessa mánaðar. Að auki verður umferð við kosningamiðstöðvar bönnuð til að draga úr líkum á árásum, en í morgun var gerð sjálfsmorðssprengjuárás á kosningamiðstöð stjórnmálaflokks sjíta. Þar fórst einn og sjö særðust. 18.1.2005 00:01
Kosið í Danmörku 8. febrúar Forsætisráðherra Danmerkur tilkynnir nú í hádeginu að þingkosningar verði haldnar í landinu eftir þrjár vikur, þann 8. febrúar, mörgum mánuðum fyrir lok kjörtímabilsins. Ástæðan er sögð sú að skoðanakannanir séu forsætisráðherranum hagstæðar. 18.1.2005 00:01
Gengi krónunnar í sögulegu hámarki Gengi krónunnar náði sögulegu hámarki í gær þegar gengisvísitalan mældist lægri en hún hefur verið í fjögur og hálft ár. Á rúmum þremur árum hefur gengi krónunnar hækkað um meira en þriðjung. 18.1.2005 00:01
Kosningar gætu valdið klofningi Vonir standa til þess að kosningarnar í Írak verði skref í átt að tilurð frjáls lýðræðisríkis á svæðinu en svo virðist sem þær gætu valdið klofningi frekar en öðru. Árásir á stjórnmálaflokka valda ótta og ringulreið. 18.1.2005 00:01
Krefjast lausnar Fischers Lögmenn Bobbys Fischers hyggjast krefjast þess fyrir dómi að honum verði sleppt úr japönsku fangelsi þegar í stað svo að hann geti haldið hingað til lands. Japönsk yfirvöld hafa enn sem komið er ekki tekið neina afstöðu til þess hvort að Fischer má þekkjast boð íslenskra stjórnvalda um hæli hér á landi. 18.1.2005 00:01
Flugskeytum skotið að byggð á Gaza Palestínskir skæruliðar skutu flugskeytum að landnemabyggð gyðinga á Gaza-ströndinni í morgun, aðeins nokkrum stundum áður en Mahmoud Abbas, nýr forseti Palestínumanna, mætti þangað til að mæla fyrir nýju vopnahléi. Abbas vonast til þess að slíkt vopnahlé geti liðkað fyrir friðarviðræðum við Ísraelsmenn. 18.1.2005 00:01
Esso hækkar bensínverð Olíufélagið Esso hækkaði bensínlítrann um tvær krónur í gær og kostar lítrinn nú liðlega hundrað krónur á sjálfsafgreiðslustöðvum félagsins. Hin félögin hafa ekki hækkað bensínverð. 18.1.2005 00:01
Stærsta farþegaþota heims kynnt Airbus-verksmiðjurnar kynntu í morgun stærstu farþegaþotu sögunnar við mikla athöfn í Tolouse í Frakklandi. Þotan tekur 555 farþega og er sögð svar Evrópumanna við hinni bandarísku Boeing 747. 18.1.2005 00:01
Ofgreitt fyrir Stjörnubíósreit Reykjavíkurborg borgaði 55 prósentum meira en hæsta markaðsverð á svæðinu þegar hún keypti Stjörnubíósreitinn við Laugaveg. Þetta kemur fram í úttekt sem borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins gerðu. Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir að um hreina spillingu hafi verið að ræða. 18.1.2005 00:01
Snarpur jarðskjálfti í Japan Jarðskjálfti upp á 6,3 á Richter skók japönsku eyjuna Hokkaido rétt upp úr klukkan tvö, en hann er talinn eiga uppptök sín um 50 kílómetra suðaustur af eyjunni. Ekki hefur verið gefin út viðvörun um flóðbygju vegna hans og engar fréttir hafa borist um mann- eða eignatjón. Jörð hefur skolfið með reglulegu millibili í Japan undanfarna mánuði en sem betur hefur manntjón verið lítið. 18.1.2005 00:01
Fagnar áformum um sölu Símans Frjálshyggjufélagið fagnar í ályktun áformum ríkisstjórnarinnar um að selja Símann en hafnar hins vegar öllum hugmyndum um aukinn ríkisrekstur á heilbrigðissviði. Sala ríkisfyrirtækis sé ekki einkavæðing ef andvirði sölunnar sé notað til að auka ríkisrekstur á öðrum sviðum. Reisa megi nýtt sjúkrahús en ekki á vegum ríkisins. 18.1.2005 00:01
Selja félagslegar íbúðir Sveitarfélagið Austurbyggð er nú sem óðast að losna við félagslegar íbúðir sínar, en slíkar íbúðir eru víða þungur baggi á sveitarsjóðum. Þrjár félagslegar íbúðir vour seldar í fyrra og nú er verið að ganga frá sölusamningum um þrjár í viðbót að því er fram kemur á vef Austurbyggðar. 18.1.2005 00:01
Segir Berlusconi slakan stjórnanda Francesco Rutelli, sem verður aðalandstæðingur Silvios Berlusconis, forsætisráðherra Ítalíu, í þingkosningu á næsta ári, segir að Berlusconi sé jafn afburðagóður stjórnmálamaður og hann sé afleitur stjórnandi. Hann sé versti stjórnandi í landinu síðan Mussolini hafi notið við á stríðsárunum. 18.1.2005 00:01
Guðni stendur við fyrri orð Guðni Ágústsson segir að yfirlýsing forsætisráðherra staðfesti atburðarásina sem lá að baki ákvörðuninni um stuðning Íslendinga við innrásina í Írak. Íraksmálið hafi verið margrætt. Hins vegar var ákvörðunin sjálf ekki rædd. Hann segist standa við það sem hann hefur áður sagt. </font /></b /> 18.1.2005 00:01
Ákvörðunin ekki rædd fyrir fram Í yfirlýsingu Halldórs Ásgrímssonar kemur fram að ákvörðunin um að styðja innrásina í Írak hafi ekki verið rædd í ríkisstjórn, né á Alþingi, áður en hún var tekin. Málefni Íraks hafi hins vegar verið margrætt. </font /></b /> 18.1.2005 00:01
ETA sprengir bílsprengju á Spáni Lögreglumaður slasaðist þegar bílsprengja sprakk í sjávarþorpinu Gexto í norðurhluta Spánar fyrr í dag. Liðsmaður í Sjálfstæðishreyfingu Baska, ETA, hafði hringt í baskneskt dagblað og varað við sprengingunni og var lögregla að girða svæðið af þegar bíllinn sprakk. 18.1.2005 00:01
Mörg ágreiningsatriði um Impregilo Ljóst er að fjölmörg ágreiningsatriði eru uppi milli Impregilo annars vegar og hagsmunasamtaka vinnumarkaðarins, að sögn Sivjar Friðleifsdóttur formanns félagsmálanefndar 18.1.2005 00:01
Fela ekki lengur ólöglega vinnu Grunur leikur á að útlendingar starfi mjög víða ólöglega að byggingastörfum hér á landi. Samiðn segir, að það séu "smákallarnir" sem standi í því að ráða slíkt vinnuafl. Þeir séu í smáverkum og geti þar látið sitthvað hverfa eins og vinnulaun. </font /></b /> 18.1.2005 00:01
Lægsta tilboð 24% af kostnaði Lægsta boð í fyrsta áfanga Suðurstrandarvegar reyndist aðeins 23,6 prósent af kostnaðaráætlun en tilboð voru opnuð hjá Vegagerðinni í dag. Fyrirtækið Vegamenn í Reykjavík bauð lægst, 35 milljónir króna, en kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 150 milljónir króna. 18.1.2005 00:01
Rannsaka erfðir á alkahólisma Íslensk erfðagreining og SÁÁ taka nú til óspilltra málana við rannsókn á erfðum áfengissýki og fíknar. Til þessa verkefnis hefur Evrópusambandið veitt 330 milljónum, sem er stærsti styrkur sem það hefur veitt til íslensks rannsóknarverkefnis. Markmiðið er að lækna og fyrirbyggja. </font /></b /> 18.1.2005 00:01
Staða eldra starfsfólks styrkt Árni Magnússon félagsmálaráðherra vill að hafið verði sérstakt fimm ára verkefni til að styrkja stöðu miðaldra og eldra fólks á vinnumarkaði. Hefur nefnd á vegum félagsmálaráðuneytisins lagt það til við stjórnvöld að slíku verkefni verði hrundið úr vör. 18.1.2005 00:01
Kostnaður hækkar meira en laun Kostnaðarliðir heimilanna hækkuðu meira um áramót en laun og ýmsar bætur að mati Alþýðusambands Íslands. Að mati sambandsins má ekki mikið út af bera til að forsendur kjarasamninga bresti og kjarasamningum verði sagt upp í haust. 18.1.2005 00:01
Össur fái aðeins laun frá flokknum Formaður Samfylkingarinnar má ekki þiggja laun fyrir það starf frá öðrum en flokknum ef tillaga Birgis Dýrfjörð verður samþykkt á komandi landsþingi flokksins. Samkvæmt eftirlaunalögunum sem samþykkt voru í lok árs 2003 fá formenn stjórnmálaflokka á þingi um 230.000 krónur á mánuði auk þingmannalauna. 18.1.2005 00:01
Neytendasamtökin styrkja prófmál Stjórn Neytendasamtakanna hefur ákveðið að samtökin styðji fjárhagslega við bakið á skaðabótamáli einstaklings gegn olíufélögunum vegna verðsamráðs þeirra. Jóhannes Gunnarsson, formaður samtakanna, segir að þau geti ekki sjálf farið í mál fyrir hönd neytenda. Þess vegna hafi þessi leið verið valin og það hafi verið óumdeilt í stjórninni. 18.1.2005 00:01
Hluti sekta renni til eftirlits Ef áfrýjunarnefnd samkeppnismála kemst að þeirri niðurstöðu að olíufélögin eigi að greiða sektir vegna samráðs munu fjármunirnir renna nánast samstundis í ríkissjóð. Í niðurstöðu samkeppnisráðs, sem olíufélögin hafa áfrýjað til áfrýjunarnefndarinnar, kom fram að olíufélögin ættu að greiða tæpa þrjá milljarða í sektir. 18.1.2005 00:01