Fleiri fréttir

Brunaði á sleða framan á bíl

Fimm ára stúlka fékk heilahristing þegar hún brunaði á sleða framan á bíl, sem ekið var eftir Seljalandsvegi á Ísafirði um átta leitið í gærkvöldi. Hún var þegar flutt á sjúkrahúsið en reyndist ekki meidd að öðru leiti. Hún var látin gista á sjúkrahúsinu í nótt til öryggis.

Stálu áfengi til skemmtanahalds

Lögreglan á Selfossi handtók sjö ungmenni í gær, grunuð um innbrot í þjónustumiðstöð Gesthúsa í bænum, þaðan sem fjórum kössum af bjór og fjörutíu áfengisflöskum var stolið. Í ljós kom að fyrst var brotist þar inn til að sækja vínföng í teiti, sem fólkið var í, og síðan var sótt meira eftir því sem á nóttina leið.

Dæmdur fyrir samræði við tólf ára

Ágúst Fannar Ágústsson hefur verið dæmdur í árs fangelsi fyrir samræði við tólf ára telpu sem var gestkomandi á heimili Ágústs á Akureyri í desember 2002. Hann var þá tvítugur að aldri. Ágúst hefur áður verið dæmdur fyrir að ganga í skrokk á kærustu sinni sem neitaði að fara fyrir hann út í sjoppu.

Snjór á óvenjulegum slóðum

Sjaldgæf sjón blasti við íbúum í Sameinuðu arabísku furstadæmunum í morgun. Mikill snjór var í fjöllum í grennd við borgina Ras al-Kæma sem er í norðurhluta furstadæmana, en slíkri ofankomu eru íbúar á svæðinu ekki vanir, enda hitabeltisloftslag þar nánast allt árið um kring.

Íslendingar leggi sitt af mörkum

Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs telur einboðið að Íslendingar leggi með myndarlegum hætti sitt af mörkum til hjálpastarfs og síðan uppbyggingar á hamfarasvæðunum í Suðaustur-Asíu. Flokkurinn segir Íslendinga þekkja af eigin raun þær fórnir sem sambúð við óblíð náttúruöfl geti kostað.

Óttast að 200 þúsund missi vinnu

Óttast er að minnst tvö hundruð þúsund manns sem störfuðu við ferðaþjónustu í Taílandi missi vinnuna sína vegna hamfaraflóðanna í suð-austur Asíu. Þetta kemur fram í taílenska dagblaðinu The Nation í dag. Ferðaþjónusta hefur verið mikilvægur iðnaður í landinu um árabil og skilað þjóðarbúinu sem samsvarar um sjö hundruð milljörðum íslenskra króna í tekjur árlega.

2 Íslendingar komnir í leitirnar

Tveir þeirra tíu íslendinga sem átti eftir að staðsetja eftir flóðin á Indlandshafi eru komnir í leitirnar en eitt nafn í viðbót er komið á listann. Þannig á enn eftir að staðsetja níu íslendinga á flóðasvæðunum. Íslenskt par sem statt var í grennd við Bangkok er nú komið í leitirnar en enn er leitað að öðru íslensku pari með barn.

Yfir 90 þúsund látnir

Mikil skelfing hefur gripið um sig á Indlandi vegna viðvörunar yfirvalda í landinu um að önnur flóðbylgja kunni að ríða yfir fljótlega. Hamfaraflóðin í Suðaustur Asíu hafa kostað hátt í hundrað þúsund mannslíf, þar af rúmlega fimmtíu þúsund bara á Indónesíu.

Styðja ákvörðunina

Meirihluti bankaráðs Íslandsbanka styður þá ákvörðun Bjarna Ármannssonar forstjóra bankans, að reka Jón Þórisson, staðgengil sinn, eins og hann gerði í gær. Um leið og fréttist af brottrekstrinum var gerð sú krafa að banakráð yrði kallað saman til aukafundar vegna málsins. Hann hófst klukkan hálftíu í morgun og stóð í röska klukkustund.

4 þúsund Svía saknað

Talið er að allt að fjögur þúsund Svía sé enn saknað eftir flóðin við Indlandshaf. Hátt í fimm hundruð Norðmanna er einnig saknað. Fregnir herma að mun fleiri Svía sé saknað á hamfarasvæðunum í Taílandi, en þeirra fjórtán hundruð, sem yfirvöld hafa talið hingað til.

5 milljónir allt of lág upphæð

Vinstri grænir segja fimm milljónir, sem ríkisstjórnin hefur ákveðið að veita til hjálparstarfsins á hamfarasvæðunum, allt of litla upphæð, miðað við að þetta séu einhverjar mestu hörmungar sögunnar. Þeir skora á stjórnvöld að veita minnst þrjú hundruð milljónum króna til hjálparstarfsins.

Ekki vitað um snjóflóð í nótt

Ekki er vitað til þess að nein snjóflóð hafi fallið í nótt eftir að flóð féll úr Ólafsfjarðarmúla um kvöldmatarleitið í gærkvöldi og lokaði veginum. Engin var þar á ferð þegar það féll og ruddu Vegagerðarmenn veginn í gærkvöldi.

Mengunarslys rannsakað

Lögreglan á Patreksfirði rannsakar nú mengunarslys sem varð í höfninni þar í gærkvöldi, en tildrög þess eru með öllu ókunn. Menn urðu þess fyrst varir að ekki var allt með felldu, þegar megnan díselolíufnyk lagði með hægum andvara inn yfir bæinn. Við athugun kom í ljós að talsvert var af olíu í höfninni.

Ólátabelgir dregnir til ábyrgðar

Bæjarráð Grindavíkur ákvað á fundi sínum í gær að leita leiða til að draga þá menn til ábyrgðar sem stóðu fyrir ólátum sem urðu í bænum á jóladag. Sem kunnugt er var kveikt í áramótabrennu bæjarins í miklum skrílslátum sem brutust þar út.

Veitukapphlaupið heldur áfram

Jarðorkurisarnir Orkuveita Reykjavíkur og Hitaveita Suðurnesja halda áfram kapphlaupi sínu um að kaupa veitur vítt og breitt um Suðvesturlandið. Nýjasti leikurinn er að Orkuveita Reykjavíkur hefur keypt Austurveitu í Ölfusi sem er bændaveita með borholu í landi Gljúfurárholts, en þaðan er dreift heitu vatni á þónokkra bæi í Ölfusi.

Morgunkornið lækkar

Bandarískt morgunkorn sem keypt er til landsins fyrir dollara hefur lækkað í verði um 16% í sumum tilvikum. Könnun neytendasamtakanna sýnir að allar verslanir hafa lækkað verð á morgunkorni sé það borið saman við verð í byrjun ársins.

Staðfest að 115 þúsund hafi látist

Tala látinna vegna flóðbylgjunnar af völdum jarðskjálftans við Súmötru hefur skyndilega hækkað upp í meira en 115 þúsund. Skýringin á þessari miklu hækkun eru nýjar upplýsingar frá Indónesíu, þar sem áður hafði verið talið að 52 þúsund manns hefðu týnt lífi í flóðunum miklu.

Hafa eyðilagt efnahagslífið

Mikhail Khodorkovsky, fyrrverandi forstjóri Yukos olíurisans, sem nú situr í fangelsi, segir stjórnvöld í Kreml hafa skemmt rússneskt efnahagslíf með því að þvinga Yukos til gjaldþrots. Khodorkosvky segist ekki vera harmi sleginn þó að fyrirtæki hans sé nú á leið undir hendur hins opinbera og hann segist þakklátur fangelsisvistinni, sem hafi gert sér kleyft að íhuga og endurskoða líf sitt.

Vistir safnast upp á flugvöllum

Hjálparsamtök og erlend ríki kappkosta við að senda mat og lyf til hamfarasvæðanna við Indlandshaf, en dreifing vistanna er óskilvirk vegna samgönguerfiðleika og birgðirnar safnast upp á flugvöllum.

Aðsúgur gerður að ráðherra

Íbúar í norðurhluta Srí Lanka gerður aðsúg að Mahinda Rajapakse, forsætisráðherra landsins, þegar hann kom á svæðið til að bera eyðilegginguna af völdum flóðsins augum. Fólkið hafði verið að segja ráðherranum frá vandræðum sínum og hvað það skorti helst þegar tilkynning barst úr hátalarakerfi þar sem fólk var beðið um að tala ekki við hann.

Tveir dæmdir fyrir að eiga hass

Tveir menn voru dæmdir í Héraðsdómi Reykjavíkur til að greiða 28000 króna sekt fyrir að hafa haft í fórum sínum annars vegar 0,2 grömm af hassi og hins vegar hálft gramm af hassi. Ellegar sæti mennirnir sem eru um tvítugt sex daga fangelsi.

Ný heilsugæslustöð

Ný heilsugæslustöð í Hafnarfirði verður til húsa að Fjarðargötu 13 til 15 í norðurturni verslunarhússins Fjarðar. Samningur um leiguhúsnæðið var undirritaður milli heilsugæslunnar og Sölusambands íslenskra fiskframleiðenda í dag. Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, staðfesti samninginn við þetta tækifæri.

Minnsti afli í 6 ár

Afli íslenskra skipa á árinu 2004 er áætlaður 1725 þúsund lestir, samkvæmt samantekt fiskistofu. Það er minnsti afli síðan 1998 þegar aflinn var 1678 þúsund lestir. Mestur var aflinn 1997 eða 2199 þúsund lestir. Þorskaflinn 2004 var 20 þúsund lestum meiri en árið 2003. Ýsu- og ufsaafli var líka talsvert meiri en árið áður.

Meiriháttar niðurskurður

Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna mun á næstu sex árum skera niður kostnað sinn um 60 milljarða Bandaríkjadala. Meðal niðurskurðaraðgerða sem fyrir dyrum standa er fækkun flugmóðursskipa og eins verður þróunarverkefnum fyrir hönnun hátæknivopna seinkað.

Fríhöfnin tekur við rekstri

Fríhöfnin ehf., nýstofnað dótturfélag Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar hf., tekur við verslunarrekstri Flugstöðvarinnar núna um áramótin. Fríhafnarverslunin verður þar með aðskilin rekstri Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar, bæði stjórnunar- og rekstrarlega. Fasteignarekstur flugstöðvarinnar, ásamt stoðsviðum, heyrir áfram undir Flustöðina.

Ljósleiðaranet á Seltjarnarnesi

Seltjarnarnesbær og Orkuveita Reykjavíkur undirrituðu í dag samning um uppbyggingu ljósleiðaranets á Seltjarnarnesi. Í samningnum er gert ráð fyrir að a.m.k. 85% húsa á Seltjarnarnesi verði tengd ljósleiðarakerfi Orkuveitunnar í lok næsta árs og öll hús í bæjarfélaginu verði tengd um mitt ár 2006.

Mesta mannfall á friðartímum

Fjölskyldur hafa tvístrast, foreldrar hafa misst börn sín og börn eru orðin munaðarlaus eftir hamfarirnar við Indlandshaf. Norðurlandaþjóðirnar hafa orðið illa úti. Þetta er mesta mannfall á friðartímum í Skandinavíu.

Þjóðarsorg í Skandinavíu

Gríðarleg óánægja er með framgöngu sænskra og norskra stjórnvalda eftir hamfarirnar í löndunum við Indlandshaf um jólin. Búið er að lýsa yfir þjóðarsorg í Noregi og Svíþjóð á nýársdag. Sænsk fyrirtæki senda stuðning í stórum stíl á hamfarasvæðið. </font /></b />

Sigur Júsjenkós stendur

Hæstiréttur Úkraínu hafnaði í dag kröfu Viktors Janúkóvíts, forsætisráðherra, um að forsetakosningarnar á sunnudag yrðu dæmdar ógildar. Rétturinn taldi að Janúkóvíts hefði ekki tekist að sýna fram á að kosningarnar hefðu verið ólöglegar.

Kínverjarnir verða 300

Forysta verkalýðshreyfingarinnar telur að Impregilo stefni að því að ráða 300 Kínverja hingað til lands á næstu vikum, ekki bara 150 eins og sótt hefur verið um leyfi fyrir.

Gefa lyf fyrir tugi milljóna

Actavis hefur ákveðið að gefa lyf til hamfarasvæða í Asíu í kjölfar jarðskjálfta og flóða í álfunni. Um er að ræða talsvert stóra sendingu af sýkla- og verkjalyfjum sem eru framleidd í verksmiðjum Actavis í Tyrklandi, Búlgaríu og á Möltu. Verðmæti lyfjanna er á þriðja tug milljóna króna.

Stjórnvöld brugðust of seint við

Stjórnvöld í Svíþjóð og Noregi eru harðlega gagnrýnd fyrir að bregðast seint við afleiðingum hamfaraflóðanna í Suðaustur-Asíu. Forsætisráðherra Svíþjóðar segir að á annað þúsund Svía kunni að hafa farist. Ekki er vitað um afdrif á fimmta hundrað Norðmanna.

50 milljónir hafa safnast

Íslenskur almenningur og fyrirtæki hafa brugðist framar vonum við neyðarkalli vegna hamfaranna og gefið tugmilljónir króna. Vinstri Grænir segja allt of lítið að ríkisstjórnin gefi aðeins fimm milljónir og skora á stjórnvöld að reiða fram minnst þrjú hundruð milljónir króna.

Staðfest að 125 þúsund hafa látist

Staðfest er að 125 þúsund manns séu látnir eftir hamfarirnar í Indlandshafi. Óttast er sú tala eigi eftir að tvöfaldast. Talið er að í Indónesíu einni hafi hundrað þúsund manns farist.

Íslendingar í hættu

Íslendingar sem sáu flóðbylgjuna koma æðandi yfir ströndina í Púket í Tælandi lýsa lífsreynslu sinni sem hrikalegri og telja sig heppna að vera á lífi. Edda Sigurbjarnardóttir segist hafa setið við morgunverðarborðið á hóteli sínu þegar ósköpin hafi dunið yfir. Hún segir fólk hafa komið hlaupandi frá ströndinni, en að öðru leyti hafi hún ekki séð mikið.

Bankaráð klofið

Bankaráð Íslandsbanka er klofið eftir að bankastjóri bankans rak aðstoðarbankastjórann í gær. Minnihluti ráðsins er ósáttur og segir það bankaráðs að taka slíkar ákvarðanir og að kalla eigi það til fundar áður en slíkir menn séu reknir, ekki eftirá. Formaður bankaráðs heldur því fram að einhugur sé í bankaráði á bak við bankastjórann.

Bandaríkin næst?

Óttast er að næsti risajarðskjálfti sem framkallar flóðbylgjur verði við vesturströnd Bandaríkjanna, þar sem jarðfræðilegar aðstæður eru svipaðar og við Súmötru, og mikil spenna hefur hlaðist upp í jarðskorpunni. Jarðfræðingar telja nánast engar líkur á að risaflóðbylgjur nái nokkurntíman Íslandsströndum.

Samfélagsbreyting vegna skólans

Stofnun Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði þýðir samfélagsbreytingu á Snæfellsnesi. Fjórir árgangar ungs fólks, sem áður leituðu út fyrir héraðið, stunda nú nám í sinni heimabyggð.

Vilja 230 Kínverja

Framkvæmdastjóri Vinnumálalstofnunar sagði á fundi með aðstoðarframkvæmdastjóra Alþýðusambandsins í dag að 54 Kínverjar fengju atvinnuleyfi á næstu dögum að ósk Impregilo. Félagsmálaráðherra segir að það gerist ekki fyrir áramót. Impregilo ætlar að sækja um atvinnuleyfi fyrir að minnsta kosti 230 Kínverja.

Tveir fundust og tveir bættust við

Íslenskt par sem ekki hafði frést af frá því að jarðskjálftinn varð í suðausturhluta Asíu hefur látið vita af sér. Parið var í Pattaya í Taílandi, fjarri hamfarasvæðinu.

Styrktarfé til Asíu

Styrktarforeldrar SOS- barnaþorpanna við Indlandshaf hafa verið órólegir vegna hamfaranna.

Aukning skrifstofuhúsnæðis

Heilu hverfin eru að byggjast upp í borginni af splunkunýju atvinnuhúsnæði. Samkvæmt tölum frá byggingafulltrúa Reykjavíkurborgar kom kippur í nýbyggingar á verslunar- og skrifstofuhúsnæði árið 1999.

Héraðsmenn fjölmennastir

Fljótsdalshérað er nú fjölmennasta sveitarfélagið á Austurlandi með 3.364 íbúa. Á síðasta ári sameinuðust sveitarfélögin Fellahreppur, Norður-Hérað og Austur-Hérað í Fljótsdalshérað.

Sjá næstu 50 fréttir