Fleiri fréttir

Leiðindaveðri spáð í kvöld

Útlit er fyrir leiðindaveður sunnan- og vestanlands seinni partinn í dag. Þar er búist við stormi með snjókomu og éljagangi. Á Norðaustur- og Austurlandi gæti hins vegar orðið sæmilegt veður með hægari vindi og einhverjum éljum. Hitastigið verður líklega um frostmark og fer kólnandi með kvöldinu.

Olía lak í höfnina á Patreksfirði

Mengunarvarnargirðing var sett upp umhverfis smábátahöfnina á Patreksfirði í fyrrakvöld eftir að í ljós kom að olía hafði lekið í höfnina. Óttast er að nokkuð hundruð lítrar af olíu hafi lent í höfninni að sögn lögreglu.

Knútur hættur hjá Fróða

Knútur Signarsson sem tók við starfi framkvæmdastjóra Fróða í haust er hættur störfum. Hann hverfur aftur til starfa hjá Odda, sem er stærsti hluthafinn í Fróða.

Flaggað í hálfa stöng í dag

Ákveðið hefur verið að flaggað verði í hálfa stöng við opinberar stofnanir í dag, nýársdag, til þess að votta hinum látnu í náttúruhamförunum við Indlandshaf virðingu.

Búist við snjóþyngslum

Færð á Norðausturlandi og á Austfjörðum er nokkuð góð eftir að óveðrinu slotaði og samkvæmt upplýsingum frá Vegagerð Íslands eru allar helstu leiðir austan Akureyrar og á Austfjörðum færar. Holtavörðuheiðin var lokuð á mánudag sökum snóþyngsla en var opnuð aftur í gærmorgun.

Hlýtur að vera handvömm

Gunnar Snorri Gunnarsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, segist engar skýringar geta gefið á því hvers vegna fréttatilkynning ráðuneytisins um meintan sinnepsgassfrund íslenskra sérfræðinga í Írak í byrjun ársins var fjarlægð af heimasíðu ráðuneytisins: "Enginn í ráðuneytinu kannast við að hafa látið gera þetta. Þetta hlýtur að vera einhver handvömm."

Vonskuveður á gamlársdag

"Það lítur út fyrir að síðdegis á gamlársdag verði vonskuveður. Það gæti þó alveg rofað til um eða uppúr miðnætti, þó kannski síst sunnan til," segir Sigurður Þ. Ragnarsson veðurfræðingur. Með kvöldinu snöggkólnar og um miðnætti býst Sigurður við frosti á bilinu eitt til fimm stig.

Andæfa orðum starfsbróður

Foreldrar eru hvattir til að fylgja tilmælum landlæknis hvað varðar bólusetningar barna, segir stjórn Sálfræðingafélags Íslands. Stjórnin tekur þar með undir gagnrýni landlæknisembættisins á sálfræðing sem í útvarpsþætti varaði foreldra við að nýta sér tilboð um bólusetningar barna sinna.

Meira en 68 þúsund látnir

Staðfest er að meira en 68.000 manns hafi týnt lífi í hamförunum í Suður og Austur Asíu og ljóst að tala látinna heldur áfram að hækka. Þá er staðfest að 174 erlendir ferðamenn hafi týnt lífi og hátt í þrjú þúsund er saknað, þar af um fimmtán hundruð frá Svíþjóð. Ekki er vitað um afdrif hátt í átta hundruð Norðmanna, meira en tvöhundruð manna er saknað frá Danmörku og Finnlandi.

Álver rafmagnslaust í klukkutíma

Rafmagnslaust varð í um það bil klukkustund í álverinu og í járnblendiverksmiðjunni á Grundartanga í nótt þegar rafmagnstruflanir urðu víða á Suður- og Vesturlandi eftir að hvassviðri brast á í nótt, með ofankomu. Framleiðsla stöðvaðist en ekki varð þó tjón á framleiðslubúnaði í verksmiðjunum.

Fólk í vandræðum vegna óveðurs

Björgunarsveitarmenn úr Hveragerði og Lögreglan í Árnessýslu stóðu í ströngu í alla nótt við að hjálpa fólki, sem lent hafði í vandræðum á Hellisheiði vegna óveðurs, sem brast á upp úr klukkan eitt í nótt. Engin lenti þó í alvarlegum hrakningum og engin slasaðist.

28 létust í Írak í morgun

Að minnsta kosti 28 manns eru látnir eftir sprengingu í Baghdad, þegar lögreglumenn gerðu áhlaup á hús skæruliða í morgun. Lögreglumenn réðust að húsinu eftir að þeim barst tilkynning um að skæruliðar héldu sig innandyra.

Vill ekki stjórnarfund

Viktor Júsjenkó, sigurvegari endurtekinna forsetakosninga í Úkraínu hefur kvatt stuðningsmenn sína til þess að gera allt sem í þeirra valdi stendur til þess að koma í veg fyrir fund ríkisstjórnar landsins í dag.

Þóttust veikir

Harðorð skilaboð til starfsmanna bandarísks flugfélags sem hringdu sig inn veika yfir jólin voru spiluð bæði í útvarpi og sjónvarpi í Bandaríkjunum í gær.

Röktu slóð þjófs

Lögreglumenn á Akureyri röktu spor innbrotsþjófs hátt í tveggja kílómetra leið frá innbrotsstað og að heimili hans, þar sem hann var handtekinn í nótt. Hann hafði brotist inn í Blómaval, en lagt á flótta þegar þjófavarnakerfi fór í gang. Hann uggði ekki að sér og þar sem nýfallinn snjór var á jörðu reyndist auðvelt að rekja spor hans.

Ekkert fikt með flugeldana

"Ef fólk fer rétt með skoteldana og fylgir leiðbeiningum þá er hættan af þeim hverfandi," segir Valgeir Elíasson, upplýsingafulltrúi Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Hann segir alvarlegustu slysin verða þegar strákar séu að fikta í flugeldunum, safna saman púðrinu úr þeim og búa til stærri sprengjur.

Dagsektirnar misháar

Margir verksamningar eru í gangi vegna framkvæmdanna fyrir austan og verkáfangarnir misjafnlega mikilvægir. Sigurður Arnalds, upplýsingafulltrúi Kárahnjúkavirkjunar, segir að dagsektirnar séu misháar.

Laun bæjarstjórnarmanna lækkuð

Bæjarráð Vestmannaeyja ákvað á fundi sínum í gærkvöldi að lækka laun bæjarstjórnarmanna, bæjarráðsmanna og nefndarmanna, sem starfa fyrir bæinn um fimm prósent. Þetta er gert með hliðsjón af niðurskurðartillögum, í fjárhagsáætlun bæjarins og stofnana hans fyrir næsta ár.

Neitar að samþykkja niðurstöðuna

Viktor Janúkóvitsj, sem sigraði í fyrri umferð forsetakosninganna í Úkraínu neitar að samþykkja sigur Júsjenkós, leiðtoga stjórnarandstöðunnar, í síðari umferðinni og hefur lagt fram formlega kvörtun til kjörstjórnar landsins.

Hópur foreldra mótmælir

Dagvistargjöld einstæðrar móður í Reykjanesbæ með þrjú börn hækka um 18 þúsund krónur á mánuði með hækkun leikskólagjalda, frístundaskólagjalds og breytingum á niðurgreiðslum vegna vistunar hjá dagmæðrum.

Hefur leitt til hækkunar orkuverðs

Orkuverð til almennings hefur nær undantekningalaust hækkað í nágrannalöndum okkar, en lækkað til stórkaupenda með því að aðskilja raforkuframleiðslu og dreifingu, eins og til stendur að gera hér á landi um áramótin.

Varað við fljúgandi hálku

Vegagerðin varar við fljúgandi hálku víðast hvar á landinu og við það bætist að víða er búist við talsverðu hvassviðri, að sögn Þorsteins Jónssonar veðurfræðings. Hann segir fólk alls ekki eiga að leggja í ferðalög nema á mjög vel búnum bílum. Hann segir að vindur geti farið yfir 30 metra á sekúndu, auk þess sem mjög hált sé víða.

Álver rafmagnslaust í klukkutíma

Rafmagnslaust varð í um það bil klukkustund í álverinu og járnblendiverksmiðjunni á Grundartanga í nótt þegar rafmagnstruflanir urðu víða á Suður- og Vesturlandi eftir að hvassviðri brast á í nótt, með ofankomu.

Eyðileggingin mest á Sri Lanka

Tala látinna vegna flóðbylgjunnar á Indlandshafi nálgast nú sjötíu þúsund manns. Flestir hafa látið lífið í Aceh héraði á Indónesíu en eyðileggingin er hvað mest á Sri Lanka þar sem allt stjórn- og efnahagskerfi er lamað.

Fjölmargra Norðurlandabúa saknað

Um það bil 3500 erlendra ferðamanna er enn saknað eftir hamfarirnar í Asíu, þar af um fimmtánhundruð Svía og fjögur hundruð og fimmtíu Norðmanna. Þarlend yfirvöld hafa verið gagnrýnd fyrir að hafa áttað sig seint á alvarleika málsins.

Ekki vitað um 10 Íslendinga

Enn hefur ekki náðst í tíu íslendinga sem staddir eru á Balí og á Taílandi en utanríkisráðuneytið telur þær upplýsingar sem það hefur um þetta fólk gefa minni ástæðu til að óttast um örlög þess. Hjá ráðuneytinu vilja menn hins vegar fá fullvissu um staðsetningu fólksins.

Fórnarlambanna verði minnst

Biskup Íslands hefur ritað öllum prestum í landinu bréf þar sem hann hvetur til þess að fórnarlamba hamfaranna við Indlandshaf verði minnst í guðsþjónustum um áramótin, og að beðið verði fyrir þeim sem eiga um sárt að binda. Jafnframt hvetji þeir fólk til að gefa til hjálparstarfsins.

5 milljónir skortir nauðsynjar

Talið er að allt að fimm milljónir manna skorti brýnustu lífsnauðsynjar eftir náttúruhamfarirnar við Indlandshaf. Ýmist skorti drykkjarvatn, mat eða eða lágmarks heilsugæslu. Hinar ýsmu stofnanir Sameinuðu þjóðanna einbeita sér nú að því að koma þessu fólki til hjálpar, ekki síst í ljósi þess að drepsóttir geta auðveldlega blossað upp við þessar kringumstæður.

Pokasjóður gefur 5 milljónir

Stjórnendur pokasjóðs, sem almennir neytendur mynda með kaupum á plastpokum undir vörur í verslunum, hefur ákveðið að gefa fimm milljónir til hjálparstarfssins við Indlandshaf, hjálparstofnun Kirkjunnar hefur þegar sent hálfa aðra milljón til uppbyggingu fiskiþorpa.

Sontag látin

Bandaríski rithöfundurinn og baráttukonan Susan Sontag er látin, 71 árs að aldri. Banamein hennar var hvítblæði. Frægasta bók hennar er The Volcano Lover en hún var þó helst þekkt fyrir styttri ritgerðir sínar. Sontag tók virkan þátt í stjórnmálum og baráttu fyrir mannréttindum. Sontag var virkur þátttakandi í mótmælum rithöfnda vegna dauðadóms Salmans Rushdie.

Þrefaldur verðmunur milli hverfa

Mjög vaxandi verðmunur er á fasteignum eftir hverfum á höfuðborgarsvæðinu. Þannig getur verið rúmlega þrefaldur munur á fermetraverði þriggja herbergja íbúðar eftir því hvar hún er staðsett. </font /></b />

Meira en 100 þúsund látnir?

Talsmenn alþjóða Rauða Krossins segja líklegt að tala látinna í hamförunum í Asíu fari yfir eitt hundrað þúsund þegar í ljós komi hve margir hafa týnt lífi á eyjunum Andaman og Nicobar. Einnig er óttast að tala látinna í Aceh -héraðinu einu saman verði á milli 58 þúsund þegar öll kurl verða komin til grafar.

Fremur dræmt í Konukoti

Aðsókn að Konukoti, athvarfi fyrir heimilislausar konur í Reykjavík var dræmari en við hafði verið búist yfir jólahátíðina, að sögn Brynhildar Bárðardóttur verkefnisstjóra hjá Reykjavíkurdeild Rauða kross Íslands, sem rekur athvarfið.

Heytugga bjargar hrossunum

Það er þjóðráð að gefa hrossum á húsi heytuggu rétt áður en flugeldaskothríðin hefst um áramót, segir Björgvin Þórisson dýralæknir.

Mörg snjóflóð hafa fallið í dag

Mörg snjóflóð, allt að 25 metra breið og þriggja metra djúp, hjafa fallið á Súðavíkurveg og Óshlíðarveg eftir hádegi og eru báðir vegirnir enn lokaðir vegna hættu á frekari flóðum. Engin vegfarandi var hætt komin þegar flóðin féllu, en þau eru blaut og þung að sögn vegagerðarmanna.

Landsframleiðsla vex

Landsframleiðsla er talin hafa vaxið um tæplega 7,5 prósent á síðasta ársfjórðungi ársins, samkvæmt tölum Hagstofunnar, sem er mun meiri hagvöxtur á einum ársfjórðungi en verið hefur undanfarin þrjú ár. Landsframleiðslan virðist hinsvegar að mstu leiti, eða sem nemur 5,8 prósentum, vera knúin upp af aukinni einkaneyslu.

Flughálka í Árnessýslu

Björgunarsveit frá Laugarvatni hefur verið kölluð út til að aðstoða fólk í bílum í uppsveitum Árnessýslu sem kemst hvorki lönd né strönd vegna flúgandi hálku og ísingar á öllum vegum. Margir bílar hafa runnið út í kanta og hálfvegis útaf, en hvergi hafa orðið slys né umtalsvert eignatjón.

Biðlaunum mótmælt

Fulltrúar Samfylkingarinnar í bæjarstjórn Kópavogs telja biðlaunarétt í samningi bæjarins við Hansínu Björgvinsdóttur bæjarstjóra í engu samræmi við starfstíma og aðrar venjur í þessum efnum. Hansína á að fá einn mánuð í biðlaun þegar hún lætur af starfinu eftir aðeins sex mánuði og Gunnar Birgisson tekur við.

Sjórinn fullur af börnum

Hundruð norrænna foreldra leita að börnum í spýtnabraki og líkhrúgum. Skurðaðgerðir fara fram með skítugum hnífum. Svíar segja ástandið á hamfarasvæðunum líkast helvíti á jörð. Þeir krefjast þess að utanríkisráðherrann segi af sér. </font /></b />

Minna um kolmunna

Tæplega 420 þúsund tonn veiddust á kolmunna á þessu ári, sem er umþaðbil 80 þúsund tonna minni afli en í fyrra, en veiðunum er lokið í ár. Aflaverðmætið er hlutfallslega enn minna, eða um tveir og hálfur milljarður á móti 3,4 milljörðum í fyrra, þar sem afurðaverðið hefur farið lækkandi.

Erlendum ferðamönnum fjölgar

Rúmlega sex hundruð erlendir ferðamenn dvöldu hér um jólin á sex hótelum og nokkrum gisitheimilum, sem er sjötíu prósenta aukning frá síðustu jólum. Þá er búist við að minnsta kosti 2,600 ferðamönnum um áramótin, sem er 40 prósenta fjölgun fá síðustu áramótum. Til viðbótar dvelja margir erlendir ferðamenn hér á milli jóla og nýárs.

2 Danir fórust í járnbrautarslysi

Tveir danir fórust og einn slasaðist alvarlega þega bíll varð fyrir járnbrautarlest nálægt bænum varde á Jótlandi. Fjórði maðurinn, sem var í bílnum slapp nær ómeiddur. Talið er að sól hafi blindað ökumann bílsins og að hann hafi ekki séð þegar slá seig niður til að loka fyrir bílaumferð yfir teinana.

Dýr flúðu flóðbylgjuna

Á meðan rúmlega 22 þúsund manns hafa týnt lífinu í Sri Lanka í hörmungunum í suðaustur-Asíu kemur það mönnum á óvart að engin dýrshræ hafa fundist að ráði í Yala-þjóðgarðinum .

Sjá næstu 50 fréttir