Fleiri fréttir

Gæsluvarðhaldið framlengt

Lögreglan í Reykjavík fer í dag fram á framlengingu á gæsluvarðhaldi yfir karlmanni sem varð Ragnari Björnssyni að bana á veitingastaðnum Ásláki í Mosfellsbæ um síðustu helgi. Þess verður krafist að maðurinn sitji í gæsluvarðhaldi að minnsta kosti sex vikur til viðbótar.

Danir hefja eigin innrás

Danir hafa snúið vörn í sókn og hafið innrás í íslenska efnahagslífið. Danski málningarframleiðandinn Flugger hefur keypt allt hlutafé í Hörpu Sjöfn, sem framvegis verður dótturfélag danska fyrirtækisins og lætur Helgi Magnússon framkvæmdastjóri af störfum.  

Ofsaveður í gærkvöldi

Ofsaveður var út af suðausturströndinni í gærkvöldi, en mesti veðurofsinn náði ekki inn á landið. Yfir 50 metrar á sekúndu mældust á skipi á þessum slóðum, en þegar vindur verður svo mikill, ná öldurnar sér ekki upp og því var ekki vont í sjóinn þrátt fyrir veðurhaminn.

Bin laden lifir

Osama bin Laden er á lífi, samkvæmt nýrri hljóðupptöku sem fram hefur komið. Á upptökunni heyrist rödd, sem líkist mjög rödd bin Ladens, blessa hóp sádí-arabískra hryðjuverkamanna sem réðst inn á ræðismannsskrifstofu Bandaríkjanna í Sádi-Arabíu þann 6. desember. Ekki hefur þó enn verið staðfest að þarna sé örugglega um rödd bin Ladens að ræða.

Dó vegna afleiðinga höggs

Allt að sex vikna gæsluvarðhalds verður krafist í dag yfir banamanni Ragnars Björnssonar, sem lést eftir högg sem hann hlaut á krá í Mosfellsbæ um helgina. Bráðabirgða niðurstaða krufningar liggur fyrir. Samkvæmt henni má rekja lát Ragnars til hnefahöggs sem hann fékk á vinstri vanga. Afleiðingar þess höggs drógu hann til dauða.

Tveir handteknir í Stokkhólmi

Tveir menn hafa verið handteknir í Stokkhólmi, grunaðir um að hafa rænt starfsmanni gjaldeyrisbanka, fest við hann sprengju og rænt síðan bankann.

Gerði grein fyrir áformum í gær

Davíð Oddsson utanríkisráðherra gerði bandaríska sendiheranum hér á landi grein fyrir þeim áformum að veita Bobby Fischer landvistarleyfi hér á landi, á fundi í gær.

Vekur heimsathygli

Allir stærstu vestrænu fjölmiðlar heims fjalla í dag um tilboð íslenskra stjórnvalda um dvalarleyfi til handa Fischer. Til að mynda hafa fréttastofur BBC, ABC, CNBC, CNN, Reuters, írskir fjölmiðlar ásamt fleirum fjallað nokkuð ítarlega um málið í morgun.

Umsátrinu lauk í nótt

Nítján klukkustunda umsátri um mannræningja sem héldu sex manns í gíslingu í rútu í Aþenu lauk í nótt, þegar ræningarnir gáfust upp. Upphaflega voru 23 í rútunni sem mennirnir rændu í Aþenu snemma í gærmorgun. Í gærdag slepptu mannræningjarnir svo smám saman yfir daginn meirihluta gíslanna, en héldu sex eftir.

Bætt upp fyrir verkfallið

Fræðsluyfirvöld í Reykjavík og Hafnarfirði hafa lagt fram áætlanir til að bæta grunnskólanemendum tjónið sem hlaust af löngu verkfalli grunnskólakennara.

Ætlar að bjóða sig fram á ný

David Blunkett, innanríkisráðherra Bretlands, sem sagði af sér í gær, ætlar að bjóða sig fram á ný í næstu kosningum. Blunkett naut mikils trausts Blairs forsætisráðherra, og þykir afsögnin mikið áfall fyrir hann.

Næstum fram af klettabelti

Minnstu munaði að stór flutningabíll með tengivagni steyptist fram af hundrað metra klettabelti á Ennishálsi í Strandasýslu í gær, þegar hann rann stjórnlaus afturábak, í fljúgandi hálku, niður bratta brekku í átt að klettabrún. Þetta gerðist í kjölfar þess að driflæsing bílsins bilaði.

Mótmæla kaupum á teikningum

Ungir sjálfstæðismenn mótmæla þeirri ákvörðun ríkisstjórnarinnar að kaupa allar teikningar listamannsins Sigmunds, sem hann hefur teiknað fyrir Morgunblaðið, fyrir átján milljónir króna af skattfé almennings. Ungir sjálfstæðismenn benda á að almenningur geti keypt þessar myndir í bókum Sigmunds og að þær séu auk þess aðgengilegar almenningi á opinberum bókasöfnum.

Umhirðan í lagi

Umhirða og og heilbrigði dýra á hundabúinu Dalsmynni er eðliegt samkvæmt úttekt dýralæknis. Hundabúið að Dalsmynni hefur verið mikið í fréttum og þá sjaldan af góðu einu og mikil gagnrýni verið á aðbúnað dýranna þar. Dýralæknir á vegum Umhvferfisstofnunar gerði úttekt á dýrahaldi þar í síðasta mánuði.

Zarqawi í Baghdad?

Eftirsóttasti hryðjuverkamaðurinn í Írak, Abu Musab Al Zarqawi, er mjög líklega í Baghdad, eftir að hafa verið svældur burt úr hæli sínu í Fallujah. Þetta segir hátt settur hershöfðingi innan Bandaríkjahers, sem jafnframt telur að erfitt verði að finna hann, því að hann dvelji ekki lengi á hverjum stað og í Baghdad sé fjöldi fólks tilbúinn að skjóta yfir hann skjólshúsi.

10 sækja um skólameistarastöðu

Tíu sóttu um stöðu skólameistara við Fjölbrautaskólann við Ármúla, en umsóknarfrestur rann út í gær. Þeir sem sóttu um stöðuna eru: Anna Jóna Guðmundsdóttir, Erpur Snær Hansen, Eyjólfur Bragason, Gísli Ragnarsson, Helga Kristín Kolbeins, Magnús Ingólfsson, kennslustjóri Ólafur Jónsson,,Ólafur Hjörtur Sigurjónsson, Sigurlaug Kristmannsdóttir og Svava Þorkelsdóttir. Miðað er við að skipað verði í stöðuna þann 1. janúar næstkomandi.

Eitrið í mat?

Viktor Júsjenkó, forsetaframbjóðandi í Úkraínu, segist handviss um að stjórnvöld í Úkraínu hafi eitrað fyrir sér. Hann telur að eitrið hafi verið sett í mat sem hann snæddi á fundi með yfirmönnum öryggismála í Úkraínu í september.

Áfrýjun Dutroux hafnað

Áfrýjun belgíska barnaníðingsins Marc Dutroux vegna lífstíðardóms fyrir misnotkun og morð á fjölmörgum stúlkum, hefur verið hafnað. Þá hafnaði hæstiréttur Belgíu einnig áfrýjun konu Dutroux, sem gert var að sitja 30 ár í fangelsi fyrir sína aðild að glæpum eiginmanns síns.

22 konur - 79 karlar

Konur halda um stjórnartaumana í 22 af 101 sveitarfélagi í landinu. Karlar stjórna hinum 79. Konur eru í forsvari fyrir fjögur af átta sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu. Flestir eru kvensveitarstjórarnir á Norðurlandi eystra en fæstir á Norðurlandi vestra. </font /></b />

Tökum Tyrkjum fagnandi

Jacques Chirac, Frakklandsforseti segir land sitt og öll lönd Evrópu hafa hag að því að Tyrkir gangi í Evrópusambandið. Í dag og á morgun fundar framkvæmdastjórn Evrópusambandsins og tekur ákvörðun um það hvort hefja skuli aðildarviðræður við Tyrki.

15 milljóna skattsvik

Ríkislögreglustjóri hefur ákært tvo menn fyrir að hafa svikið á hátt í fimmtán milljónir undan skatti á árunum 2001 og 2002. Mennirnir tveir ráku fyrirtæki á þessum tíma og er þeim gefið að sök að hafa hvorki greitt virðisaukaskatt upp á tæpa fjórðu milljón króna, né opinber gjöld vegna laun upp á 11,3 milljónir.

130 milljónir á kílómetra

Hver kílómetri sem sparast við að Kolgrafarfjörður á Snæfellsnesi hefur verið brúaður, kostar rúmar 128 milljónir króna.

Ganga ekki að öllum skilmálum

Erdogan, forsætisráðherra Tyrklands, segist fastlega gera ráð fyrir því að aðildarviðræður við Evrópusambandið hefjist á næstu 6 mánuðum. Í viðtali við franska sjónvarpið í dag sagði hann hins vegar að Tyrkir gætu ekki viðurkennt sjálfstæði Kýpurbúa strax.

Slæmar pestir herja á landsmenn

Slæmar umgangspestir hafa herjað á landsmenn undanfarnar vikur og gera enn, samkvæmt upplýsingum Þórólfs Guðnasonar læknir hjá sóttvarnalækni. Er um að ræða niðurgangspestir og hitapestir.

Ungar í hættu vegna ísjaka

Tugþúsundir mörgæsaunga á suðurskautslandinu gætu orðið hungurmorða á næstu vikum vegna risa-ísjaka sem lokar af veiðisvæði foreldra þeirra. Ísjakinn er þrjú þúsund ferkílómetrar, sá stærsti sem menn hafa séð frá upphafi. Vísindamenn telja að unganna bíði aðeins dauði. Í ísjakanum er jafnmikið vatn og rennur um Níl á áttatíu árum.

Formlegar athugasemdir frá 320

Um 320 lífeyrisþegar af tæplega 42 þúsund gera formlega athugasemdir við endurreikning Tryggingastofnunar á bótarétti ársins 2003, eða liðlega 0.8% lífeyrisþega, að sögn Karls Steinars Guðnasonar forstjóra TR.

Óværa í jólakveðju

Óvenjuskætt afbrigði tölvuorms fer mikinn í tölvupósti þessa dagana, en óværan ber með sér vírus að nafni Zafi.D. Ormurinn er dulbúinn sem jólakveðja og eru tölvunotendur hvattir til að uppfæra vírusvarnir sínar.

Beiðni um rannsókn vegna mannsláts

Aðstandendur gamals manns sem lést eftir að hafa dottið á Hrafnistu í Reykjavík hafa lagt inn beiðni um rannsókn á málinu til embættis lögreglustjórans í Reykjavík.

Gæsluvarðhald framlengt

Héraðsdómur Reykjavíkur framlengdi í dag gæsluvarðhald yfir manni á þrítugsaldri sem grunaður er um að hafa orðið valdur að dauða manns á veitingahúsi í mosfellsbæ um síðustu helgi. Gæsluvarðhaldsúrskurðurinn nær til sex vikna eða til 27. janúar. Maðurinn hefujr kært úrskurð héraðsdóms.

Ók ítrekað eftir sviptingu

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag karlamann á fimmtugsaldri í 7 mánaða fangelsi fyrir að hafa ítrekað ekið bifreið sinni eftir að hann var sviptur ökuréttindum og fyrir að skipta um númeraplötu á bifreið sem hann ók gegn stöðvunarskyldu og á vinnuskúr við Rauðavatn.

Aukning í sölu lyfjaverslana

Sala lyfjaverslana jókst um fimm prósent í nóvember í ár miðað við sama mánuð í fyrra samkvæmt upplýsingum Samtökum verslunar og þjónustu. Áfengissmásalan jókst um 2,9 prósent í nóvember miðað við sama tíma í fyrra og smásöluvelta dagvar á föstu verðlagi jókst um 2,3 prósent.

Engin leikskóli á Fáskrúðsfirði

"Það er verið að neyða fólk til að flytja til Austurbyggðar," segir Friðmar Gunnarsson, oddviti Fáskrúðsfjarðarhrepps í viðtali við Austurgluggann, en stúlku þaðan hefur verið sagt upp leikskólaplássi hafa ekki samið við Austurbyggð um vistun barna.

Tíu sækja um

Tíu hafa sótt um stöðu skólameistara við Fjölbrautaskólann við Ármúla, þar af þrír starfsmenn skólans.

Safnað fyrir kornabarnahúsi

Alls söfnuðust 1,2 milljónir króna fyrir kornabarnahúsi í útvarpssöfnun sem ABC barnahjálp stóð fyrir á Lindinni í október.

Gæsluvarðhald framlengt

Bráðabirgðaniðurstöður krufningar hafa leitt í ljós að Ragnar Björnsson, maðurinn sem lést eftir árás í Mosfellsbæ um síðustu helgi, lést af völdum höggs á kjálka og gagnauga. Gæsluvarðhald yfir árásarmanninum hefur verið framlengt

Sárir og reiðir

Bolvíkingar eru sárir og reiðir yfir fyrirætlunum um að segja upp starfsmönnum Ratsjárstofnunar á Bolafjalli. Einar Pétursson, bæjarstjóri í Bolungarvík, segir að varla sé um annað talað fyrir vestan.

Fékk skilorð fyrir að skalla mann

Rúmlega tvítugur maður var í Héraðsdómi Norðurlands eystra dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás. Honum var gert að greiða þeim sem hann réðst á tæplega 300 þúsund krónur í skaðabætur.

Vonin fer minnkandi

Rannsókn á brottnámi níu ára stúlku í Kópavogi í nóvember hefur ekki borið árangur að sögn Friðriks Smára Björgvinssonar, yfirlögregluþjóns í Kópavogi.

Sextán seldu unglingum tóbak

Sextán sölustaðir í Hafnarfirði af 27, eða 59 prósent, seldu unglingum tóbak í nýlegri könnun sem forvarnarnefnd Hafnarfjarðar gerði. Útkoman er betri nú en í vor þegar 62 prósent sölustaða seldu unglingum tóbak.

Voru ölvaðir í bílferð

Jeppi og fólksbíll, sem komu úr gagnstæðri átt, lentu saman á Sandgerðisvegi skammt frá veginum að Rockville klukkan rúmlega fjögur í fyrrinótt.

Varð brátt í brók

Ætlað kókaín fannst á 25 ára gömlum Nígeríumanni við tollskoðun í Leifsstöð á þriðjudagskvöld. Strax vaknaði grunur um að maðurinn væri með meira magn fíkniefna innvortis sem var sannreynt með röntgenskoðun sama kvöld.

Þjálfun vegna leikanna skilar sér

Átján klukkustunda umsátri um mannræningja sem héldu sex manns í gíslingu í rútu í Aþenu lauk í nótt, þegar ræningarnir gáfust upp. Mennirnir, sem eru Albanar, hótuðu að sprengja upp rútuna fengju þeir ekki sem svarar 85 milljónum íslenskra króna, og kæmust með flugi til Rússlands.

Ekki verið að brjóta lög

Evrópsk lög banna verslun með líffæri og vefi. Forsvarsmenn tæknifrjóvgunarstofunnar Art Medica sem tekið hafa upp á þeirri nýbreytni að greiða konum fyrir egg, eru þess þó fullvissir að þeir brjóti ekki lög.

Mannúðarástæður réðu för

Bandaríska dómsmálaráðuneytið hefur nú til umfjöllunar ákvörðun íslenskra stjórnvalda um að veita Bobby Fisher dvalarleyfi hér á landi. Davíð Oddsson, utanríkisráðherra, sagði við sendiherra Bandaríkjanna að þessi ákvörðun hefði verið tekin af mannúðarástæðum og vegna þess að það væru að koma jól.

Sjá næstu 50 fréttir