Ætlar að bjóða sig fram á ný 16. desember 2004 00:01
David Blunkett, innanríkisráðherra Bretlands, sem sagði af sér í gær, ætlar að bjóða sig fram á ný í næstu kosningum. Blunkett naut mikils trausts Blairs forsætisráðherra, og þykir afsögnin mikið áfall fyrir hann. Blunkett var með valdameiri ráðherrum stjórnar Blairs. Afsögn Blunketts í gær kom í kjölfar ásakana um að hann hefði beitt sér fyrir því að barnfóstra fyrrum ástkonu hans fengi landvistarleyfi með hraði. Að auki voru safaríkar fréttir af einkalífi Blunketts áberandi á síðum breskra dagblaða, en ástkonan var gift og telur Blunkett sig föður tveggja ára sonar hennar og barns sem hún ber undir belti. Hefur hann höfðað faðernismál. Blunkett segist ekki hafa sagt af sér vegna máls barnfóstrunnar, enda hafi komið í ljós að ekkert væri hæft í ásökunum um að hann hefði gert eitthvað rangt í þeim efnum. Hinsvegar hefði hann séð að faðernismálið myndi skaða stjórnmálaferil hans, og því ákveðið að gefa embættið frekar upp á bátinn heldur en börnin tvö. Hann segist ætla að bjóða sig fram á ný í næstu kosningum. Brotthvarf Blunketts kom ekki sérstaklega á óvart og segja fréttaskýrendur að hann hafi sagt af sér til þess að verða ekki rekinn. Þrátt fyrir það þykir afsögnin slæm tíðindi fyrir Tony Blair sem skipaði menntamálaráðherrann Charles Clarke í stöðu innanríkisráðherra í gærkvöldi.
Erlent Fréttir Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Fleiri fréttir Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Sjá meira