Fleiri fréttir

Ný stöð rís í Glæsibæ

Heilsugæslan í Reykjavík og Íslenskir aðalverktakar hf. skrifuðu í gær undir samning um leigu til 25 ára á nýju húsnæði fyrir heilsugæslustöð í Voga- og Heimahverfinu.

Lækka niðurgreiðslur á mat

Ákveðið hefur verið að lækka niðurgreiðslur til skólamötuneyta í Reykjavík um 20 krónur á máltíð til að koma til móts við kröfu um hagræðingu hjá Fræðsluráði Reykjavíkur. Skólamáltíðir gætu því hækkað um 400 krónur á mánuði. 

Öruggast á Austurlandi

Öruggast virðist að búa á Austurlandi, eftir því sem fram kemur í ritinu Afbrotatölfræði 2003, sem tekið er saman af Ríkislögreglustjóra, en fæst brot áttu sér stað á Austurlandi árið 2003.

Laun embættismanna hækka

Kjaradómur hefur ákveðið að hækka laun embættismanna, sem falla undir kjaradóm, um þrjú prósent um áramótin og er þá tekið mið af almennum launahækkunum.

Nýjar sannanir um vatn

Spirit, könnunarfar NASA á Mars, hefur fundið steinefni sem teljast til öruggasta sönnunin hingað til fyrir því að vatn hafi einhvern tíman fundist á plánetunni. Þetta kom fram hjá vísindamönnum NASA á mánudag.

Ók á bíl í vegkanti

Ökumaður bíls sem ekið var vestur eftir Suðurlandsvegi skammt austan við Þjórsá ók á kyrrstæðan mannlausan bíl í vegkantinum með þeim afleiðingum að bíll hans fór út af veginum, valt og endaði þvert yfir skurði. Ökumaðurinn leitaði læknis á heilsugæslustöðinni á Hellu vegna meiðsla á handlegg og á fæti. Báðir bílarnir eru gjörónýtir og voru fjarlægðir af slysstað með kranabíl.

Dæmdur í fangelsi með tengdamömmu

25 ára gamall maður og tengdamóðir hans voru dæmd, í Héraðsdómi Reykjavíkur, í tíu og fimmtán mánaða fangelsi fyrir hassinnflutning í febrúar á þessu ári. Saman voru þau sakfelld fyrir innflutning á tæpum níu kílóum af hassi. Tengdamóðir var ein ákærð og sakfelld fyrir að flytja inn fimm kíló af hassi.

Alþingi dæmt til greiðslu bóta

Alþingi var, í Héraðsdómi Reykjavíkur, dæmt til að greiða rúmlega sextugum manni tæpar 3,3 milljónir fyrir slys sem hann varð fyrir í bílageymslu nýbyggingar Alþingishússins árið 2001.

Náttúran aðal aðdráttaraflið

Hann er vel menntaður, vel stæður og hefur fyrst og fremst áhuga á náttúru Íslands. Þannig hljómar lýsingin á hinum dæmigerða, erlenda ferðamanni samkvæmt niðurstöðum nýrrar könnunar Ferðamálaráðs.

Stífkrampabaktería víða í jörðu

Stífkrampabaktería er í jörðu á þó nokkrum stöðum á landinu, þar á meðal í Norðlingaholti, norðan Elliðavatns. Þar á að reisa rúmlega þúsund íbúða byggð. 

Mismunun trúfélaga leyfileg

Hrópleg mismunun og ranglæti er milli trúfélaga, segir Hjörtur Magni Jóhannsson, prestur í Fríkirkjunni í Reykjavík. Hjörtur biður um jafnræði milli þjóðkirkjunnar og annarra trúfélaga. Endurskoða þurfi lög sem gildi um kirkjuna. Hvorki sé verið að biðja um forréttindi til handa Fríkirkjunni né að hún verði ríkiskirkja.

Rannsókn á andláti eldri borgara

Heilbrigðisráðherra hefur óskað eftir því að Landlæknir kanni aðdraganda þess að maður lést eftir byltu á Hrafnistu í Reykjavík. Aðstandendur mannsins hyggjast fara fram á lögreglurannsókn.

Kvenmannskjöltukoddi á markaðinn

Hvað er mjúkt og hlýtt, hefur ávalar línur og er gott að kúra sig upp við? Svarið er einfalt: koddi. Reyndar er koddinn sem hér um ræðir enginn venjulegur koddi heldur kjöltukoddi, þ.e.a.s. koddi sem er eins og kvenmannskjölta í laginu.

Íslenskir unglingar á réttri leið

Dregið hefur meira úr reykingum og drykkju ungmenna hér á landi en í öðrum Evrópulöndum. Þetta kemur fram í skýrslu Evrópuráðsins um vímuefnaneyslu unglinga. Sama könnun sýnir að notkun á sniffefnum hefur aukist jafnt og þétt hér á landi.

Hinir staðföstu halda heim

Uppreisnarmenn í Írak halda áfram árásum sínum og er lögregla vinsælt skotmark. Fyrir vikið fækkar í röðum írakskra sveita og hinir staðföstu halda heim á leið.

Beitukóngurinn þykir sælkeramatur

Veiðar og vinnsla á kuðungum úr Breiðafirði skapa nú þrjátíu manns atvinnu í Stykkishólmi og Grundarfirði. Beitukóngurinn þykir sælkeramatur bæði í Asíu og Evrópu.

Réttað yfir samherjum Saddams

Nokkrir af nánustu samstarfsmönnum Saddams Hussein, fyrrum einræðisherra Íraks, verða dregnir fyrir rétt í næstu viku, sagði Iyad Allawi, forsætisráðherra Íraks í gær.

Treystir Rumsfeld ekki

John McCain, einn áhrifamesti öldungadeildarþingmaður repúblikana, segist ekki bera neitt traust til Donalds Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, þegar kemur að því að ákveða hvernig haga eigi stríðsrekstri í Írak.

Mistök að grípa til vopna

Það voru mistök hjá Palestínumönnum að grípa til vopna gegn Ísraelum, sagði Mahmoud Abbas, leiðtogi Frelsissamtaka Palestínu, í viðtali við blaðið Asharq al-Awsat, sem gefið er út á arabísku í London. Hann sagði að Palestínumenn ættu að beita sér gegn hernámi Ísraela án þess að grípa til ofbeldis.

Átján tíma í köldum sjó

Áttræðum veiðimanni var bjargað úr sjávarháska eftir að hafa verið átján klukkustundir í sjónum undan Flórída.

Nær fjörutíu létu lífið

38 manns létu lífið þegar tvær indverskar farþegalestir rákust saman í Punjab-héraði í norðurhluta Indlands. Lestirnar voru fyrir mistök á sama járnbrautarspori en hvor á leið í sína áttina og lentu því framan á hvorri annarri.

Sagður hafa viljað beita hernum

Forsætisráðherra Úkraínu þvertekur fyrir að hafa viljað senda herinn til að tvístra mótmælendum í höfuðborginni. Financial Times hefur eftir heimildarmönnum að hann hafi þrýst á forsetann um þetta. </font /></b />

Nýtt segulómstæki tekið í notkun

Nýtt segulómstæki sem kostar litlar hundrað og fimmtíu milljónir var tekið í notkun á Landspítala háskólasjúkrahúsi í dag. Það kemur í stað þrettán ára gamals tækis og er mun öflugra og snarara í snúningum.

Íslensk jól í Danmörku

Um sjö þúsund Íslendingar sem eru búsettir í Danmörku eru ýmist að koma sér til Íslands fyrir jólin eða að bíða eftir að hangikjötið skili sér að heiman.

Spara mætti 240 milljónir á ári

Stjórnendur Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar segja margfalt ódýrara að vera með innanlandsflug í Keflavík en í Reykjavík. Taka myndi innan við ár að koma upp aðstöðu fyrir innanlandsflugið á Keflavíkurflugvelli. Hugmyndirnar voru ræddar á fundi með Aflvaka, atvinnuþróunarfélagi Reykjavíkur.

Ráðherra gagnrýnir sofandahátt

Íslendingar hafa meiri skilning á því að gerðar séu ráðstafanir vegna náttúruhamfara en hamfara af manna völdum, að mati Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra.

Heimshorfurnar til umræðu

Geir H. Haarde fjármálaráðherra stýrði 22. ráðsfundi Evrópska efnahagssvæðisins í fjarveru Davíðs Oddssonar utanríkisráðherra í Brussel í gær. EES-ráðið er samráðsvettvangur utanríkisráðherra EES-ríkjanna, þ.e. EFTA-ríkjanna innan EES og Evrópusambandsins, en Ísland lýkur formennsku í ráðinu um áramót.

Nottla gegt gaman

Ekki er víst, og reyndar æði ólíklegt, að allir lesendur skilji fyrirsögnina hér að ofan. Stór hópur á hins vegar auðvelt með að lesa þetta og við honum blasir einfaldlega: "Náttúrlega geðveikt gaman". Fjöldi orða er nú stafsettur á nýstárlegan hátt í samskiptum unga fólksins með fjarskiptatækjum nútímans. </font /></b />

Íslendingar sýna fordæmi

Íslendingar hafa verið beðnir um að kynna vetnisáform stjórnvalda fyrir erlendum þjóðum. Hjálmar Árnason, þingmaður og formaður nefndar um vetnisvæðingu á Íslandi, sat fund orku- og umhverfisnefndar Norðurlandaráðs í Osló í liðinni viku þar sem hann kynnti verkefnið.

Ásókn í störf fyrir Austan

Talsvert er um það að umsækjendur um embættisstörf hjá Fljótsdalshéraði sæki um fleiri en eina stöðu. Einn þeirra sækir um þær allar. Rúmlega sjötíu umsóknir bárust um störfin sjö sem auglýst voru. Flestar voru umsóknirnar um starf menningar- og frístundafulltrúa, átján talsins.

Enn stríðshrjáð tveimur árum eftir lok bardaga

Dag hvern deyja um þúsund íbúar Kongó af ástæðum sem rekja má til stríðsins sem geisaði í landinu á árunum 1998 til 2002. Það hefur kostað 3,8 milljónir manna lífið og nú óttast margir frekari átök. </font /></b />

Gagnrýnir Berlusconi hástöfum

Romano Prodi, sem nýlega lét af embætti forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, stimplar sig á ný inn í stjórnmálalífið á Ítalíu með kraftmikilli gagnrýni á Silvio Berlusconi forsætisráðherra.

Fullkomið hljóðkerfi í Egilsbúð

Samvinnufélag útgerðarmanna í Neskaupstað afhenti í gær Norðfirðingum að gjöf fullkomið hljóðkerfi. Hljóðkerfið hefur verið sett upp í Egilsbúð og notað þar undanfarnar vikur og segir Guðmundur Rafnkell Gíslason, veitingamaður í Egilsbúð, að sennilega sé þetta eitt besta hljóðkerfið á landinu.

Blaðamaður lagði línurnar

Bandarískur blaðamaður fékk tvo hermenn til að spyrja Donald Rumsfeld varnarmálaráðherra út í það hvers vegna farartæki þeirra væru ekki nægilega vel brynvarin. Hann sá líka til þess að spurningum þeirra yrði svarað með því að ræða fyrirfram við liðþjálfa sem valdi þá úr sem fengu að spyrja ráðherrann út úr.

Þrjú ár fyrir morð

Þrítugur bandarískur hermaður, Johnny M. Horne, var í gær dæmdur af bandarískum herdómstól til þriggja ára fangelsisvistar fyrir að myrða alvarlega særðan sextán ára gamlan Íraka í ágúst síðastliðnum.

Silfraður fiðringur í útvegsmönnum

Mælingar norskra fiskifræðinga benda til að fundinn sé gífurlega stór árgangur af norsk-íslenskri síld. Góðæri í hafinu og hækkun sjávarhita við Ísland gefa vonir um að síldin gangi að ströndum landsins og verði þar veiðanleg eftir tvö ár. </font /></b />

Lítil viðbrögð við þráðlausu kerfi

Lítil pólitísk umræða hefur orðið um tilboð fjarskiptafyrirtækisins eMAX sem hefur sagst geta sett upp ódýra lausn á dreifikerfi internetsins fyrir landsbyggðina. Stefán Jóhannesson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, segir að nokkrir þingmenn hafi haft samband við hann þegar fjallað var um fyrirtækið í fjölmiðlum fyrr í vetur til að fá upplýsingar um tæknina sem fyrirtækið notar.

Skólagjöld í skötulíki?

Fyrir skömmu samþykkti meirihluti Alþingis frumvarp sem kveður á um að hækka skráningargjöld við Háskóla Íslands um tæp 40 prósent. Stúdentaráð hefur lengi barist gegn hækkun innritunargjalda og gagnrýndi Dagnýju Jónsdóttur harðlega fyrir að sitja hjá við atkvæðagreiðslu, en ekki greiða atkvæði gegn frumvarpinu.

Árásarmaðurinn í jólasveinabúningi

Fjöldi vitna segir Loft Jens Magnússon hafa greitt hálfsextugum manni þungt hnefahögg í höfuð í fyrrinótt þannig að maðurinn lést hálfum sólarhring síðar. Loftur var klæddur í jólasveinabúning þegar hann gerði árás sína. Maðurinn sem lést hét Ragnar Björnsson. Eiginkona hans og sonur var með honum á skemmtistaðnum Áslák þar sem atlagan var gerð.

Stórtjón í bruna í vélsmiðju

Stórtjón varð í bruna í stórri vélsmiðju að Miðhrauni átta í Garðabæ í nótt. Tveir menn, sem voru við vinnu í smiðjunni þegar eldurinn braust út með skjótum hætti, sluppu ómeiddir út og kölluðu á slökkvilið. Þegar slökkvilið af öllu höfuðborgarsvæðinu kom á vettvang skömmu síðar logaði út um glugga og í þakinu.

Barghouthi hættir við framboðið

Marwan Barghouthi, vinsæll en herskár leiðtogi úr röðum Palestínumanna, hefur ákveðið að hætta við framboð sitt til forseta Palestínu og styðja þess í stað framboð Mahmouds Abbas sem er mun hófsamari. Barghouthi situr í fangelsi í Ísrael fyrir morð og því var með öllu óljóst hvað gerðist, bæri hann sigur úr býtum í kosningunum.

Deilunni vísað til sáttasemjara

Launanefnd leikskólakennara hefur ákveðið að vísa launadeilu sinni við samninganefnd sveitarfélaga til Ríkissáttasemjara í dag þar sem viðræður voru ekki lengur að skila árangri að mati nefndarinnar.

Basescu lýstur sigurvegari

Traian Basescu, fulltrúi stjórnarandstöðunnar í Rúmeníu, hefur verið lýstur sigurvegari í forsetakosningunum í landinu, sem fram fóru í gær, af yfirkjörstjórninnni. Þegar búið var að telja 92% atkvæða nú á tíunda tímanum var hann með 51,75% atkvæða en andstæðingur hans, forsætisráðherrann Adrian Nastase, var með 48,25%.</font /></font />

Ísraelsmenn með hefndarárásir

Ísraelskar herþyrlur skutu í það minnsta sex flugskeytum á skotmörk í Gasa-borg í nótt í hefndarskyni fyrir árás palestínskra hryðjuverkamanna á landamærastöð Ísraelsmanna á mörkum Egyptalands og Gasa-strandarinnar. Fjórir hermenn fórust og tíu særðust í þeirri árás sem er sú mannskæðasta frá því að Jasser Arafat lést.

Lýtaaðgerðadrottningar í Kína

Kínverskar fegurðardrottningar spókuðu sig í almenningsgarði í Peking í morgun að þeirra tíma. Þetta eru þó ekki venjulegar fegurðardrottningar heldur var meginskilyrðið í keppninni að hafa gengist undir lýtaaðgerð.

Sjá næstu 50 fréttir