Sagður hafa viljað beita hernum 14. desember 2004 00:01
Viktor Janúkovitsj, forsætisráðherra Úkraínu, þvertók í gær fyrir að hafa reynt að fá Leoníd Kútsjma forseta til að beita hersveitum gegn mótmælendum í Kiev. Breska viðskiptadagblaðið Financial Times birti í gær frétt þess efnis að Janúkovitsj hefði farið þessa á leit við Kútsjma og vísaði til heimilda í úkraínsku stjórninni og meðal sendimanna erlendra ríkja. Samkvæmt frétt Financial Times var Janúkovitsj einn þeirra áhrifamanna í úkraínskum stjórnmálum sem vildu að her eða öryggissveitir yrðu notaðar til að tvístra mótmælendum sem voru komnir til höfuðborgarinnar til að mótmæla kosningasvindli ráðamanna. "Ég veit að margir fulltrúar stjórnvalda reyndu að fá forsetann til að lýsa yfir neyðarástandi," hefur blaðið eftir Vasyl Baziv, aðstoðarstarfsmannastjóra forsetans. "Þeir sögðu að tími væri kominn til að nýta vald ríkisins. Forsetinn var frá fyrstu stundu mótfallinn því að beita valdi," sagði Baziv. Meðal þeirra sem sagðir eru hafa þrýst á forsetann er starfsmannastjóri hans, Viktor Medvetsjúk. Kútsjma er sagður hafa neitað að beita hervaldi þar sem hann vildi ekki að valdatíma sínum lyki með blóðugum átökum. Janúkovitsj þvertekur fyrir að hafa hvatt til þess að hervaldi yrði beitt gegn mótmælendum. Janúkovitsj var lýstur sigurvegari kosninganna sem fram fóru í síðasta mánuði og voru dæmdar ógildar nokkru síðar. Hann etur nú kappi við Viktor Júsjenkó í endurtekningu kosninganna. "Ég tók ekki þátt í neinum umræðum um þessa spurningu. Þessar upplýsingar eru falskar. Við ræddum ekki um að beita valdi heldur einungis um að koma á reglu," sagði Janúkovitsj eftir birtingu fréttarinnar. Fréttin er afar óheppileg fyrir Janúkovitsj, sem er talinn eiga erfitt uppdráttar gegn Júsjenkó.
Erlent Fréttir Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Fleiri fréttir Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Sjá meira