Silfraður fiðringur í útvegsmönnum 13. desember 2004 00:01
Talið er að 1950 árgangurinn af norsk-íslensku síldinni hafi verið um 20 milljón tonn og er það stærsti árgangur sem fundist hefur til þessa. Samkvæmt mælingum norsku fiskifræðinganna er nú fundinn árgangur sem er álíka stór eða enn meiri að vexti. Því stærri sem árgangurinn er, því meira beitarsvæði þarf hann og ef spár um hlýnun sjávar austur af landinu ganga eftir er líklegt að þessi síld komi upp að Austurlandi og gangi norður fyrir landið. Freysteinn Bjarnason, framkvæmdastjóri útgerðarinnar hjá Síldarvinnslunni, sagði í samtali við Fréttablaðið að íslenskir útvegsmenn fylgdust grannt með fréttum af þessum stóra árgangi. „Gangi vonir okkar eftir munu íslensk skip væntanlega fá að veiða 15,5% af þessum árgangi og stærstur hluti þess afla mun fara í vinnslu til manneldis. Ég á ekki von á að menn rjúki til og byggi vinnsluaðstöðu tvist og bast um landið en slík búbót mun klárlega treysta rekstrargrundvöll þeirrar útgerðar og vinnslu sem fyrir er. Þar að auki eru síldarmarkaðir traustir um þessar mundir og mikil eftirspurn eftir síld. Við bíðum því spenntir eftir frekari fréttum," sagði Freysteinn. Aðspurður hvort hugsanlega verði erfitt að manna vinnsluna í landi sagði Freysteinn: „Ég hef ekki áhyggjur af því vegna þess að sjálfvirknin í vinnslunni fer sífellt vaxandi." Á undanförnum áratugum hefur verið stór og köld tunga í hafinu út af Austurlandi og hafa göngur norsk-íslensku síldarinnar stöðvast við þessa tungu. Á síðustu árum hefur þetta kalda svæði minnkað og ef spár um frekari hlýnun sjávar ganga eftir mun þessi tunga enn minnka og færast norðar. Flest bendir því til að norsk-íslenska síldin muni eiga greiða leið að landinu.
Fréttir Innlent Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Fleiri fréttir „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Sjá meira