Fleiri fréttir

Flugfarþegum fjölgar um 17,9%

Farþegum í áætlunarflugi Icelandair fjölgaði um 15,1% í október. Þeir voru rúm 110 þúsund í október í ár en 96 þúsund í október í fyrra. Frá áramótum eru farþegar Icelandair tæplega 1.170 þúsund eða 17,92% fleiri en á fyrstu tíu mánuðum síðasta árs. Þetta kemur fram á vef Kauphallarinnar.

13 óbreyttir borgarar fórust

Í það minnsta þrettán fórust og töluverður fjöldi særðist í sjálfsmorðssprengjuárás í Bagdad í morgun, allt óbreyttir borgarar. Bíl ku hafa verið ekið upp að eftirlitsstöð hersins nærri græna svæðinu, þar sem Bandaríkjaher og bráðabirgðastjórn Íraks hafa aðsetur, og hann sprengdur í loft upp.

Jarðir falli í verði vegna smits

Dæmi eru um að jarðaeigendur óttist að jarðir þeirra kunni að falla í verði, ef staðfest er að hræ af militsbrandssýktum dýrum hafi verið urðuð þar. Þá er það nokkuð samdóma álit kunnugra í þessum viðskiptum að framvegis verði að taka sérstaklega fram við sölu á bújörðum ef hræ af miltisbrandssýktum skepnum hafa verið urðuð á jörðinni.

Eyddi gögnum um sprengjuárásina

Ríkisstjórn Jose Maria Aznars eyddi mikilvægum gögnum um atburðina kringum 11. mars þegar hryðjuverkamenn gerðu árásir á lestir í Madríd. Þessu heldur Jose Luis Rodriguez Zapatero, forsætisráðherra Spánar, fram.

Júsjenko heppinn að vera á lífi

Viktor Júsjenko, forsetaframbjóðandi stjórnarandstöðunnar í Úkraínu, kveðst vera heppinn að vera á lífi og krefst rannsóknar á því hvernig hann varð fyrir díoxíneitrun. Saksóknari hefur á ný hafið rannsókn á því hvernig Júsjenko veiktist og afmyndaðist í andliti.

Deilan leysist ekki á næstunni

Björg Bjarnadóttir, formaður Félags leikskólakennara, segist ekki of bjartsýn á að kjaradeila félagsins við sveitarfélögin verði leyst á næstunni. Fulltrúar leikskólakennara og launanefndar sveitarfélaga voru á fundi með ríkissáttasemjara í morgun. 

Stirt á milli Bush og Giulianis

Samskipti George Bush Bandaríkjaforseta og Rudys Giulianis, fyrrverandi borgarstjóra í New York, eru sögð hafa borið skaða af vandræðum í tengslum við skipan nýs heimavarnaráðherra. Bernard Kerik dró sig fyrir helgi í hlé og afþakkaði tilnefningu í embættið í kjölfar þess að upp komst um vandræðamál í fortíð hans en Giuliani er sagður hafa mælt með honum.

Landsframleiðsla jókst um 7,5%

Útflutningur á þjónustu, sem einkum má rekja til aukinna umsvifa íslenskra leiguflugfélaga, á hvað drýgstan þátt í því að landsframleiðsla jókst um tæplega sjö og hálft prósent á þriðja ársfjórðungi sem er mun meiri aukning en á undanförnum ársfjórðungum.

Friðarvonir dofna í kjölfar árása

Vonir um frið í Miðausturlöndum dofnuðu í nótt eftir að palestínskir hryðjuverkamenn gerðu árás á eftirlitsstöð Ísraelshers og herinn svaraði með loftárásum á Gasa-borg.

Fylgni mígrenis og heilablóðfalls

Þeir sem þjást af mígreni eru helmingi líklegri en aðrir til að fá heilablóðfall. Þetta er niðurstaða rannsókna breskra og bandarískra vísindamanna. Átta sinnum meiri líkur eru á að konur sem þjást af mígreni og taka pilluna fái heilablóðfall en aðrir.

Brú yfir Kolgrafarfjörð vígð í dag

Nýr vegur og brú yfir Kolgrafarfjörð á norðanverðu Snæfellsnesi verða formlega opnuð í dag. Brúin sjálf er 230 metrar, og skipar sér í hóp lengstu brúa á landinu, og síðan eru hálfs kílómeters landfyllingar við báða enda. Þar bætast við nýir vegakaflar og tengjast þjóðveginum.

Rúmenía í ESB árið 2007

Traian Baseskú, sem tilkynnt var í morgun að hefði borið sigur úr býtum í forsetakosningunum í Rúmeníu sem fram fóru í gær, hefur boðið öðrum stjórnmálaflokkum í landinu til stjórnarmyndunarviðræðna en Baseskú er leiðtogi miðflokksins. Hann segir að aðaláherslan verði lögð á að mynda stjórn sem siglt geti Rúmeníu farsællega inn í Evrópusambandið árið 2007.

Varað við ferðum fyrir vestan

Ekkert ferðaveður er í Ísafjarðardjúpi, á Steingrímsfjarðarheiði og á Ströndum að sögn Vegagerðarinnar. Vegfarendur eru varaðir við að vera á ferðinni á þessum slóðum og er ráðlagt að fylgjast með veðurfréttum.

Bótakrafa vegna barnsláts

Ríkislögmanni hefur verið send bótakrafa vegna andláts barns sem tekið var með bráðakeisaraskurði á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja í september 2002.

Veruleg stytting á biðlistum

Biðlistar eftir skurðaðgerðum á Landspítala háskólasjúkrahúsi hafa styst um tæp 20% frá nóvember í fyrra.

70 uppreisnarmenn handteknir

Rúmlega 70 írakskir uppreisnarmenn voru handteknir í Bagdad í dag þegar þeir gerðu tilraun til að ráðast að inn á lögreglustöð í borginni. Ekkert mannfall virðist hafa orðið í átökunum en árásir á írakskar lögreglustöðvar hafa verið tíðar undanfarið þar sem tugir lögreglumanna hafa fallið.

Dómur fyrir stuld á 1031 krónu

25 ára gamall maður var í dag dæmdur í þrjátíu daga fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að stela matvörum að verðmæti 1031 króna í verslun 11-11 við Skúlagötu í ágúst síðastliðnum. Maðurinn á að baki nokkurn sakaferil og því kom ekki til álita að skilorðsbinda refsinguna. Hinn ákærði var jafnframt dæmdur til að greiða allan sakarkostnað.

Bush tilnefnir nýjan ráðherra

George Bush Bandaríkjaforseti hefur tilnefnt Michael Leavitt sem nýjan heilbrigðisráðherra í ríkisstjórn sinni. Leavitt hefur gegnt stöðu formanns umhverfisverndarmála í Bandaríkjunum undanfarin misseri en var þar áður ríkisstjóri Utah. Fráfarandi heilbrigðisráðherra, Tommy Thompson, sagði af sér á dögunum.

Annir og afslöppun á Alþingi

Jólahlé Alþingis hófst á föstudag og stendur til 24. janúar. Þingstörf liggja niðri í 28 virka daga. Starfsáætlun þingsins gerir ráð fyrir þing- og nefndafundum í 117 daga á þingárinu 2004 - 2005. Hefðbundinn launþegi vinnur rúma tvö hundruð daga að jafnaði á ári. Einn þingmaður hefur talað í fjórar mínútur í vetur. </font /></b />

Boðað til kosninga í Danmörku

Búist er við að boðað verði til kosninga í Danmörku í næsta mánuði en að öllu eðlilegu ættu þær ekki að fara fram fyrr en eftir tæpt ár, eða í nóvember á næsta ári. Forsætisráðherra Danmerkur, Anders Fogh Rasmussen, leiðtogi frjálslyndra, hefur rétt á að boða til kosninga fyrir þann tíma og mun að líkindum gera það vegna góðrar útkomu í könnunum undanfarið.

Sjö lágu í valnum

Fimm ísraelskir hermenn lágu í valnum eftir árás palestínskra vígamanna á ísraelska herstöð í fyrrinótt. Vígamennirnir grófu göng undir herstöðina, sprengdu öfluga sprengju og réðust síðan á hermennina vopnaðir hríðskotarifflum. Fimm ísraelskir hermenn særðust til viðbótar þeim sem létust og tveir vígamenn létu lífið í árásinni.

Abbus næsta öruggur um sigur

Mahmoud Abbas, leiðtogi Frelsissamtaka Palestínu (PLO) og fyrrum forsætisráðherra heimastjórnar Palestínu, þykir næsta öruggur með sigur í forsetakosningum Palestínu eftir tæpan mánuð.

Kennir stjórnvöldum um eitrunina

"Þetta er verk ríkisstjórnarinnar," sagði Viktor Júsjenkó, forsetaframbjóðandi í Úkraínu, þegar hann sakaði keppinauta sína um að hafa eitrað fyrir sér. Orð sín lét hann falla þegar hann sneri heim til Kiev eftir að hafa fengið staðfest hjá austurrískum læknum að eitrað hefði verið fyrir honum.

Borgarstjóri verður forseti

Traian Basescu, borgarstjóri í Búkarest, bar sigurorð af Adrian Nastase forsætisráðherra í rúmensku forsetakosningunum sem fram fóru á sunnudag. Úrslitin lágu fyrir í gær, Basescu hlaut 51,2 prósent atkvæða en Nastase 48,8 prósent.

Á þriðja tug létust á sólarhring

Þrettán Írakar létust þegar bílsprengjuárás var gerð í Bagdad í gær og þrír þjóðvarðliðar féllu í bardögum við uppreisnarmenn, þá var eitt ár liðið frá handtöku Saddams Husseins. Sjö bandarískir hermenn féllu í bardögum við andspyrnumenn í vesturhluta Íraks.

Pinochet skal í stofufangelsi

Dómari fyrirskipaði í gær að Augusto Pinochet, fyrrum einræðisherra Síle, skyldi hnepptur í stofufangelsi. Ástæðan er ákærur sem tengjast ofsóknum gegn pólitískum andstæðingum Pinochet í valdatíð hans.

Rúmlega 100 fastir á Landspítala

Rúmlega 100 einstaklingar eru innlyksa á Landspítala háskólasjúkrahúsi þar sem hjúkrunarrými eða búsetuúrræði skortir fyrir þá. Ekki eru handbærar tölur um dvalarkostnað þeirra á spítalanum en framkvæmdastjóri segir hann hærri heldur en ef þeir dveldu á hjúkrunarheimilum. </font /></b />

Allt í einu skíðlogaði allt!

Tveir vélsmiðir, sem voru að sjóða saman rör í vélsmiðju í Garðabæ í fyrrinótt, þegar neisti komst í olíutunnu, lýsa skelfingu sinni eftir eldsprengingu á staðnum. Slökkvitæki réðu ekkert við eldinn. Tjónið nemur tugum milljóna króna </font /></b />

Skattfé skotið undan

Hægt væri að reka allt skólakerfið fyrir það fé sem á hverju ári er svikið undan skatti. Ýmsar leiðir eru til slíkra undanskota og má segja að hver glufa sé nýtt til hins ítrasta.

Eiginkonan reyndi endurlífgun

Sonur mannsins sem lést á sveitakránni í Mosfellsbæ eftir þungt högg um helgina segir fjölda fólks hafa gert lífgunartilraunir á föður sínum. Minningarstund var í Lágafellskirkju í gærkvöld. </font /></b />

Pinochet verður sóttur til saka

Agusto Pinochet, fyrrverandi einræðisherra í Chile, var í dag formlega ákærður fyrir morð og mannrán í valdatíð sinni. Vöflur hafa verið um hvort ætti að sækja hinn 89 ára gamla Pinochet til saka sökum slæms heilsufars en dómari í Chile kvað upp úr með í dag að það skyldi gert. Lögmenn einræðisherrans fyrrverandi segjast ætla að áfrýja ákvörðuninni.

Verðhækkanir á fölskum forsendum

Iðnaðarráðherra segir stjórnarformann Hitaveitu Suðurnesja undirbúa verðhækkanir á fölskum forsendum. Ný raforkulög hækka verð um þrjú prósent en ekki tíu eins og stjórnarformaður Hitaveitunnar haldi fram.

Niðurstaða krufningar væntanleg

Búist er við að bráðabirgðaniðurstaða úr krufningu mannsins, sem lést eftir hnefahögg við veitingahús í Mosfellsbæ í fyrrinótt, liggi fyrir á morgun. Lögregla hefur yfirheyrt fjölmörg vitni.

Bruninn á versta mögulega tíma

Sigurður Markússon, rekstrarstjóri Nóatúns, segir næstu tvo til þrjá daga skera úr um hvenær hægt verði að opna verslunina við Hringbraut aftur. Allar vörur hafa verið fjarlægðar úr búðinni en Sigurður segir þá ákvörðun hafa verið tekna í samráði við tryggingarfélag fyrirtækisins. Hann vildi ekki svara því hvort verslunin væri með rekstrarstöðvunartryggingu.

Í fangelsi fyrir búðarhnupl

Tuttugu og fimm ára maður var, í Héraðsdómi Reykjavíkur, dæmdur í þrjátíu daga fangelsi fyrir þjófnað. Hann var fundinn sekur um að stela matvöru í versun 11-11 fyrir rétt rúmar eitt þúsund krónur.

Áttu fótum fjör að launa

Tveir menn áttu fótum fjör að launa þegar eldur kom upp í vélsmiðju í Hafnarfirði í nótt. Húsið er mikið skemmt ef ekki ónýtt. Mennirnir voru að klára verkefni fyrir Hitaveitu Suðurnesja þegar neisti skaust í olíutunnu eða málningu og úr varð mikið bál.

Ár liðið frá handtöku Saddams

Ár er liðið frá því að Saddam Hússein var gómaður í holu í Írak. Örlög hans eru enn óráðin, en á meðan yrkir hann ljóð og uppreisnarmönnum vex ásmegin.

Tjáir sig ekki um tölvuleiki

Engar reglur gilda um tölvuleiki hér á landi. Þórhildur Líndal, umboðsmaður barna, hefur frá árinu 2001 óskað eftir reglum.

Af eftirlitslista Sambandsins

Fjármál Mýrdalshrepps eru ekki lengur undir smásjá Sambands íslenskra sveitarfélaga. Sveinn Pálsson, sveitarstjóri Mýrdalshrepps, segir skýringar sveitarfélagsins hafa verið fullnægjandi.

Línur kjaraviðræðna lagðar

Samningaviðræður leikskólakennara og launanefndar sveitarfélaganna þokast, segir Karl Björnsson, formaður launanefndarinnar í viðræðunum.

Miltisbrandseitrun kortlögð

Stefnt er að því að kortleggja þá staði á landinu þar sem grunur leikur á að miltisbrandseitrun sé í jörðu. Dæmi eru um að jarðaeigendur óttist að eignir þeirra falli í verði, ef þær rata inn á þann lista eða séu í nágrenni við slík svæði.

Friðarvonirnar fuðruðu upp

Friðarvonir í Miðausturlöndum fuðruðu upp í gærkvöldi þegar sprengja palestínskra hryðjuverkamanna grandaði fimm ísraelskum hermönnum. Svar Ísraelsmanna var ljóst: auga fyrir auga, tönn fyrir tönn. 

Fischer kveðst vera í lífshættu

Bobby Fischer, fyrrverandi heimsmeistari í skák, fullyrðir að honum sé bráður bani búinn í bandarísku fangelsi og sækir fast að fá hæli hér á landi. Bandarísk yfirvöld hafa óskað eftir því að fá Fischer framseldan til Bandaríkjanna en hann hefur verið í gæsluvarðhaldi í Japan svo mánuðum skiptir.

Sjá næstu 50 fréttir