Fleiri fréttir

Gefur tóninn fyrir aðra

Kjarasamningi kennara er fagnað hvarvetna í atvinnulífinu, það sé stöðugleiki í sjálfu sér að friður skapist um starf svo stórs launahóps. Verðbólgumarkmið Seðlabankans er þegar í hættu og margir telja að samningurinn bæti ekki úr skák. </font /></b />

Menn eiga að hlýða lögum

Lög eiga að ganga jafnt yfir alla og allir eiga hlýða lögum, hvort sem um olíufursta eða kennara er að ræða. Verkfall kennara er bannað. Kennarar eiga að koma til vinnu. Annars gilda viðurlög samkvæmt lögum. </font /></b />

Áfellisdómur yfir ráðakonum

Eftirvænting ríkti meðal foreldra og nemenda í Austurbæjarskólanum í Reykjavík í gærmorgun þegar foreldrar komu með sex, sjö og átta ára börn í skólann. Börnin biðu í ofvæni við hurðina að stofunni og foreldrar settust niður í fatahenginu og ræddu hljóðlega ástandið í skólamálunum. Margir höfðu hringt fyrr um morguninn til að kanna hvort kennsla færi fram, aðrir renndu blint í sjóinn og bara mættu. </font /></b />

Fundað fram yfir miðnætti

Samningafundur kennara og sveitarstjórnarmanna hjá Ríkissáttasemjara, sem hófst klukkan tíu í gærmorgun, stóð fram yfir miðnætti. Eiríkur Jónsson formaður Kennarasambandsins sagðist í viðtali við Fréttastofuna í morgun, hvorki vera bjartsýnn né svartsýnn á að samkomulag næðist fyrir helgi, en þá taka ákvæði laga um gerðardóm, gildi.

40 árekstrar í dag

Að minnsta kosti fjörutíu árkestrar urðu á höfuðborgarsvæðinu eftir að snjóa tók í gær. Flestir voru þeir minniháttar og ekki er vitað til þess að neinn hafi slasast í þeim. Snjóruðningstæki voru á þönum langt fram á kvöld og byrjuðu aftur snemma í morgun. Með morgninum fór að hvessa á höfuðborgarsvæðinu þannig að kóf verður í vindhviðum.

Undrast lausagöngu Scott Ramsays

Sú ákvörðun Sýslumannsins í Keflavík að krefjast ekki gæsluvarðhalds yfir Scott Ramsay sem játaði að hafa banað dönskum liðsforingja um síðustu helgi hefur vakið mikla athygli. Rannsóknarlögreglumenn á höfuðborgarsvæðinu sem DV hefur rætt við segja það algert einsdæmi að maður sem gerst hefur sekur um slíka árás gangi laus strax að henni lokinni.

Seltirningar fá 350 milljónir

Tekjur Seltjarnarnesbæjar vegna sölu lands og bygginga á Hrólfskálamel og Suðurströnd verða 350 milljónum króna samkvæmt fjárhagsáætlun bæjarins fyrir næsta ár. Tekjur aðalsjóðs sveitarfélagsins og stofnana þess eru áætlaðar 1.432 milljónir króna en gjöldin 1.254 milljónir. Hagnaðurinn er því áætlaður 177 milljónir króna.

Átök út af áburði í Árbæjarlaug

Fastagestir í morgunsundi í Árbæjarlauginni eru að yfirliði komnir út af áburði sem einn gestanna ber á sig í búningsklefanum. Gesturinn telur áburðinn allra meina bót en eigandi Áburðarverksmiðjunnar í Gufunesi þolir ekki lyktina og sparkaði í gestinn með hinn illa lyktandi áburð.

Atlantis fundin fyrir strönd Kýpur

Bandarískir vísindamenn telja sig hafa fundð hina týndu borg Atlantis úti fyrir strönd Kýpur. Samkvæmt sonar-mælingum þeirra virðast stór mannvirki vera á hafsbotninum milli Kýpur og Sýrlands. Vísindamennirnir segja að umfang mannvirkjanna og stærð þeirra passi við frásagnir Plató af borginni og konungdæminu.

Varnarliðið fer ekki

Colin Powell, fráfarandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna, gaf það sterklega til kynna á hálftíma fundi með Davíð Oddssyni utanríkisráðherra í Wasington í gær, að ekki kæmi til greina að að flytja allt varnarliðið héðan. Davíð sagði að fundurinn hafi verið góður og að framvinda mála væri komin í ákveðinn farveg.

Reynir allt til að tryggja frið

Mahmoud Abbas, sitjandi leiðtogi Palestínumanna, reynir nú allt til að semja við andstæðinga sína um að tryggja frið á svæðinu. Leiðtogar Hamas samtakanna funduðu í gær með Abbas og ræddu þá hvaða hlutverk íslamskir hópar muni hafa í framtíðarstjórn landsins.

Bysumenn á þinginu í Ekvador

Það hitnaði heldur betur í kolunum á þingi miðbaugsríkisins Ekvadors, þegar stuðningsmenn forsetans og andstæðingar tókust þar á og eldheitur stuðningsmaður forsetans dró upp byssu. Öryggisverðir urðu að skerast í leikinn og yfirbuga óeirðaseggina.

Aðhaldsaðgerðir framundan?

Sérfræðingar Greiningardeild Landsbankans túlka þá ákvörðun Seðlabankans að birta fimm mánaða gamla skýrslu fyrst núna, að bankinn sé að búa menn undir kröftugar aðhaldsaðgerðir í peningamálum á næstu misserum.

Ný stöð hjá Atlantsolíu

Valgerður Sverrisdóttir viðskiptaráðherra ætlar að taka fyrstu skóflustungu að nýri bensínstöð Atlantsolíu við Sprengisand í Reykjavík í dag. Þetta verður fyrsta bensínstöð félagsins í Reykjavík og sú fyrsta af sex nýjum stöðvum, sem félagið ætlar að reisa víða um land á næstu misserum.

Nýr meirihluti tekur við völdum

Nýr bæjarstjórnarmeirihluti V-listans og Sjálfstæðisflokks tók formlega við völdum á bæjarstjórnarfundi í Vestmannaeyjum í gærkvöldi eftir að meirihluti V-lista og Andrésar Sigmundssonar úr Framsóknarflokki klofnaði nýlega. Guðrún Erlingsdóttir hjá V-lista verður forseti bæjarstjórnar.

Skjálftar við Grímsey

Jarðskjálftahryna hófst austan við Grímsey í gærkvöldi og mældist stekasti skjálftinn 2,7 á Richter um miðja nótt. Síðan hefur dregið úr styrk skjálftanna og er hrynan líklega búin. Skjálftahrynur eru algengar á þessu svæði og boða ekki frekari tíðindi.

Samþykkt að hækka útsvar

Meirihluti borgarstjórnar Reykjavíkur samþykkti á fundi sínum í gærkvöldi að hækka útsvar upp í rúm 13 prósent og að hækka fasteignaskatt líka. Sjálfstæðismenn greiddu atkvæði gegn báðum hækkununum og fulltrúi Frjálslynda flokksins gegn hækkun fasteignaskatts.

Heimurinn hættulegri

Heimurinn er hættulegri eftir Íraksstríðið, að mati Jacques Chiracs, forseta Frakklands. Chirac er væntanlegur í opinbera heimsókn til Bretlands á morgun, og sagði í viðtali við BBC meðal annars, að hann teldi engar líkur á að Bretar gætu miðlað málum á milli Frakka og Bandaríkjamanna. <font size="4"></font>

Hassan líklega skotin til bana

Allar líkur eru á því að konan, sem írakskir hryðjuverkamenn sjást skjóta til bana á myndbandsupptöku sem send var arabískri sjónvarpsstöð í gær, sé Margaret Hassan, yfirmaður CARE-mannúðarsamtakanna í Írak. Henni var rænt í síðasta mánuði og hún meðal annars neydd til að biðja sér griða á myndbandsupptöku.

Hátíð með forsætisráðherra aflýst

Félag löggiltra endurskoðenda þurfti að aflýsa árshátíð sinni um síðustu helgi. Áhugaleysi félagsmanna var ástæðan þó svo sjálfur forsætisráðherra hafi verið auglýstur ræðumaður kvöldsins. Halldór Ásgrímsson er sem kunnugt er menntaður endurskoðandi. Nánar í DV í dag.

Dagur formaður skipulagsnefndar

Dagur B. Eggertsson var í gær kjörinn formaður Skipulags og byggingarnefndar frá og með 1. desember. Hann tekur við af Steinunni Valdísi Óskarsdóttur sem lætur af formennsku þegar hún tekur við starfi borgarstjóra af Þórólfi Árnasyni.

Flugeldasalar sæki um fyrir 10. desember

Frestur til að sækja um tímabundið leyfi til smásölu flugelda rennur út 10. desember. Leyfi eru veitt að uppfylltum skilyrðum ákvæða vopnalaga og gildandi reglugerðar. Ströng skilyrði eru sett um húsnæði, tryggingar og geymslu flugeldanna. Sala hefst 28. desember og má standa til 6. janúar. Meðferð flugelda er einungis heimil á því sama tímabili.

Skólahald orðið eðlilegt á ný

Skólahald á Suðvesturlandi var með eðlilegum hætti í morgun eftir þá ákvörðun stjórna kennarafélaga og trúnaðarmanna grunnskólakennara í gær, að mæta aftur til vinnu.

Rekstur Norrænu í kröggum

Rekstur ferjunnar Norrænu er í kröggum og siglilngar hennar gefa Smyril Line of lítið í aðra hönd þannig að fyrirtækið leitar nú leiða til að sameinast Fjord Line í Noregi. Frá þessu er greint í færeyska útvarpinu og staðfestir blaðafulltrúi Smyril Line að svona sé komið. Rekstur ferjunnar yrði þá væntanlega stokkaður upp og leliðakerfið endurskoðað.

Banameinið skorpulifur

Banamein Jassirs Arafats, leiðtoga Palestínumanna, var skorpulifur. Franska dagblaðið Le Monde greinir frá þessu í dag. Alla jafna er skorpulifur rakin til ofneyslu áfengis, en Arafat er sagður hafa verið vatnsdrykkjumaður mikill.

Viljayfirlýsing um þriðju stækkun

Hitaveita Reykjavíkur og og Norðurál undirirtuðu í morgun viljayfirlýsingu um raforkuviðskipti vegna þriðju stækkunar álversins á Grundartanga, löngu áður en lokið er við stækkun númer tvö.

Reiði og sorg í Írak

Reiði og hneykslan ríkir í Írak í kjölfar þess að sýndar voru myndir af því þegar bandarískur hermaður skaut óvopnaðan, illa slasaðan Íraka til bana í Fallujah í gær. Fimm fórust og fimmtán slösuðust í bílsprengingu í morgun.

Heimurinn hættulegri en áður

Heimurinn er hættulegri en áður eftir Íraksstríðið, að mati Jacques Chiracs, forseta Frakklands. Hann segir stuðning Breta við stríðið engu hafa skilað.

Fara hvergi

Varnarliðið hverfur ekki héðan. Svo skilja íslenskir ráðamenn orð Colins Powells, fráfarandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna, á fundi með Davíð Oddssyni, utanríkisráðherra í gær.

Segja enn loforð hafa verið gefin

Stjórnarformenn Olís og Essó halda fast í þær fullyrðingar sínar að fulltrúar Samkeppnisstofnunar hafi lofað að málinu yrði hvorki beint að einstaklingum né færi það í lögreglurannsókn. Það hafi verið forsenda þess að þeir hófu samstarf við Samkeppnistofnun um rannsókn á ólögmætu samráði olíufélaganna.

Pattstaða á Dalvík

Bæjarstjórn Dalvíkurbyggðar hefur ekki enn getað komið sér saman um hvort hætta skuli rekstri Húsabakkaskóla eða ekki. Skiptar skoðanir eru um málið milli allra flokka í bæjarstjórn.

Kjaradeila kennara að leysast

Samningar í kjaradeilu kennara og sveitarfélaga virðast í augsýn. Samninganefndir hafa setið á fundi hjá ríkissáttasemjara síðan klukkan níu í morgun og samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hefur miðað vel í viðræðunum. Talið er að hugsanlega verði skrifað undir samninga í dag eða á morgun með þeim fyrirvara að þeir hljóta samþykki kennara og sveitarstjórna.

Dollarinn lækkar enn

Dollarinn er á hraðri niðurleið gagnvart bæði krónunni og Evru. Dollarinn er kominn niður fyrir 67 krónur íslenskar og hefur hann ekki verið lægri í fjölmörg ár. Þá hefur dollarinn aldrei verið lægri í samanburði við Evruna, síðan hún komst á laggirnar.

Haldið upp á flauelsbyltingu

Tékkar halda í dag upp á 15 ára afmæli flauelsbyltingarinnar svokölluðu, sem leiddi til þess að kommúnistar hrökkluðust frá völdum í gömlu Tékkóslóvakíu. Þann 17. nóvember árið 1989 braut lögregla á bak aftur mótmælaaðgerðir þúsunda stúdenta á götum úti í Prag, sem leiddi til frekari mótmæla og á endanum til falls kommúnista í Tékklandi.

6 þúsund með Persaflóaheilkennið

Um 6 þúsund hermenn búa við afar bága heilsu vegna þáttöku í Persaflóastríðinu, samkvæmt nýrri skýrslu frá Bandaríkjunum. Ekki er nein ein afgerandi ástæða fyrir persaflóaheilkenninu svokallaða, eins og heilsubresturinn er kallaður, en í skýrslunni segir að hermenn sem fóru til Persaflóa séu helmingi líklegri til að þjást af alls kyns kvillum

Kosið sunnan Skarðsheiðar

Kosið verður um sameiningu hreppanna sunnan Skarðsheiðar næsta laugardag. Þetta eru hrepparnir Innri Akraneshreppur, Hvalfjarðarstrandarhreppur, Leirár- og Melahreppur og Skilmannahreppur. Kjörfundir verða frá klukkan tíu til sex og fer kosning fram í félagsheimilunum Miðgarði, Heiðarborg, Hlöðum og Fannahlíð.

Skíðalyfta í Breiðholti opnuð

Stefnt er að því að opna skíðalyftuna í Breiðholti um fimmleytið í dag, samkvæmt upplysingum frá Íþrótta og tómstundaráði Reykjavíkur en brekkan var troðin í nótt. Þá er stefnt að því að skíðalyftan í Ártúnsbrekku verði opnuð síðdegis á morgun og skíðalyftan í Grafarvogi á föstudag.

2 látnir eftir sprengingu í bíói

Tveir létust og 29 slösuðust í sprengjuárás á kvikmyndahús í Pakistan í gær. Sprengjunni hafði verið komið fyrir í plastpoka við fremstu sætaröðina í kvikmyndahúsinu og sprakk hún rétt áður en myndinni lauk. 200 manns voru í salnum þegar sprengjan sprakk, en enginn hefur lýst tilræðinu á hendur sér.

Sprengingar í Buenos Aires

Óljósar fregnir berast af þremur sprengjur við bankaútibú í Buenos Aires í Argentínu. Vitað er að í það minnsta einn hefur látist, öryggisvörður við Citibank.

Samkeppniseftirlit fær meira

Ríkisstjórnin stefnir að því að stórauka framlög til samkeppniseftirlits. Þetta segir viðskiptaráðherra í svari til Jóhönnu Sigurðardóttur alþingismanns sem spurðist á Alþingi fyrir um starfsaðstæður Samkeppnisstofnunar. Viðskiptaráðherra segir unnið að gerð lagafrumvarpa á grundvelli starfs nefndar um íslenskt viðskiptaumhverfi.

Ný tegund kjarnorkuflauga

Rússar eru að koma sér upp kjarnorkuflaugum, sem eru öðruvísi en þær flaugar sem nú þekkjast. Vladimir Pútín, forseti Rússlands segir nauðsynlegt að kjarnorkubúnaður landsins sé háþróaður á tímum hryðjuverka. Hann segist fullviss um að ekki muni á löngu líða uns flaugarnar verði tilbúnar til notkunar fyrir flugher landsins.

Sýknaður af bruðli

Jacques Chirac Frakklandsforseti, var í dag sýknaður af ákæru um að hafa bruðlað með almannafé þegar hann var borgarstjóri Parísar á árunum 1988 til 1995. Matarreikningar Chirac á tímabilinu voru að meðatali um 600 Evrur á dag, eða sem nemur rúmum 50 þúsund krónum. Alls borgaði Chirac kokki sínum rúmlega 130 milljónir króna á 7 ára tímabili.

Verið að skrifa undir

Samninganefnd kennara og launanefnd sveitarfélaga eru nú að skrifa undir kjarasamning  til handa grunnskólakennurum. Samningurinn mun að miklu leyti byggja á þeim samningi sem kennarar höfnuðu áður en til lagasetningar kom.

Snjómokstur - á annan milljarð

Þegar snjó festir fara allra handa tæki af stað til að ryðja vegi, götur, stíga og plön. Vegagerðin ver milljarði króna í snjómokstur á þessu ári og Reykjavíkurborg yfir 200 milljónum. Kostnaður annarra sveitarfélaga, fyrirtækja og húsfélaga bætist svo ofan á. </font /></b />

Kærir húsnæðislán bankanna

Jóhannes Valdemarsson rekstrarfræðingur hefur kært viðskiptabankana til Samkeppnisstofnunar vegna nýrra húsnæðislána sem þeir bjóða upp á. Hann telur ýmislegt í tilboðum bankanna brjóta í bága við samkeppnislög.

Sjá næstu 50 fréttir